Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Eiginmaður minn, ÁRNI HALLGRÍMSSON, Suðurengi 11, Selfossi, andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands 13. febrúar. Guðbjörg Finnbogadóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSGRÍMUR STEFÁN BJÖRNSSON stýrimaður, Langagerði 116, Reykjavík, andaðist mánudaginn 13. febrúar. Camilla Pétursdóttir, Þorbjörg Ásgrfmsdóttir, Helgi Gunnarsson, Agnar Ásgrímsson, Edda Marfa Guðbjörnsdóttir, Ásgri'mur Lárus Ásgrímsson, Sigurveig Hjaltested, barnabörn og barnabarnabarn. t Móðursystir mín, GUÐRÚN MARIA GUÐMUNDSDÓTTIR, vistheimilinu Seljahlíð, áðurtil heimilis á Lindargötu 21, lést í Borgarspítalanum að morgni 14. febrúar. Fyrir hönd systur og annarra ættingja, Erla Gústafsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, BIRNA BJÖRNSDÓTTIR, ■* lést á sjúkradeild Hornbrekku í Ólafs- firði sunnudaginn 12. febrúar. Borghildur Kristbjörnsdóttir, Magnús Ólason, Gígja Kristbjörnsdóttir, Arngrímur Jónsson, Rakel Kristbjörnsdóttir, Hreinn Bernharðsson og ömmubörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdasonur og bróðir, HÁLFDÁN BJARNASON, Flúðaseli 69, Reykjavík, lést í Landspífalanum 13. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Vigdfs Hulda Ólafsdóttir, Sigríður Laufey Hálfdánardóttir, Bjarni Hálfdánarson, Ólafur Hálfdánarson, Hörður Kristján Hálfdánarson, Ólafur Pálsson, Sigri'ður Vilhjálmsdóttir og systkini hins látna. t Elskuleg systir mín og fóstra okkar, SVEINÍNA JÓRUNN LOFTSDÓTTIR, Seljahli'ð, áður Kaplaskjólsvegi 31, sem lést í Borgarspítalanum aðfaranótt 10. febrúar, verður jarð- sungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 17. febrúar kl. 13.30. Anna Loftsdóttir, Sjöfn og Dri'fa Helgadætur og aðrir aðstandendur. t Systir okkar, SOFFÍA PÁLMADÓTTIR frá Hofi, Þórunnarstræti 86, sem andaðist þann 5. febrúár, verður jarðsungin frá Akureyrar- kírkju föstudaginn 17. febrúar kl. 13.30. Systkini hinnar látnu og aðrir aðstandendur. + Kristín Einars- dóttir fæddist að Steinavöllum í Flókadal, Fljótum, 29. apríl 1914. Hún lést í Landspítalan- um hinn 7. febrúar síðastliðinn. For- eldrar Kristínar voru Einar Bald- vinsson frá Bjarn- argili og Anna Jóns- dóttir frá Steinavöll- um. Systkini Kristín- ar voru Sigmundur (f. 1894), Björg (f. 1895), Ástvaldur (f. 1896), Guðbjörg (f. 1898), Siguijóna (f. 1900), Stef- anía (f. 1904), Sigurður (f. 1906), Þorleifur (f. 1909) og Lúther (f. 1910). Eftirlifandi eiginmaður Kristínar er Bjarni Bjarnason hárskeri frá Hoffelli i Vest- mannaeyjum (f. 12.5.1916). Börn Kristínar og Bjarna eru, Jónína (f. 1942), Annar Erna (f. 1943), eiginmaður Onnu Ernu er Magn- ús Þ. Karlsson, Bjarni (f. 1946, d. 1966), Guðbjörg Helga (f. 1948), eiginmaður Guðbjargar Helgu er Hjalti Jóhannsson, Ein- ar (f. 1956), eiginkona Einars er Ester Ólafsdóttir. Barnabörnin eru átta og barnabarnabörnin eru tvö. Kristín verður jarðsung- in frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 15. febrúar og hefst at- höfnin kl. 13.30. ELSKU amma mín er dáin. Nú er hún búin að fínna friðinn sem hún þráði og allar hennar þján- ingar á enda. Mig langar að minnast hennar með nokkrum orðum. Amma vissi hvað lífíð var, enda þurfti hún að ganga í gegnum marg- ar sárar raunir á lífsleiðinni, svo sár- ar að margir hefðu bug- ast. Einhvem veginn tókst henni þó alltaf að horfa fram á veginn og eflaust hefur hennar sterka trú átt stóran þátt í því. Hún sagði oft við mig að hún óttaðist ekki dauðann, því hún væri sannfærð um að annað og betra líf tæki við. Áhugi hennar á andleg- um málefnum var mikill og sátum við nöfnur oft lengi og spjölluðum enda var hún víðlesin og fróð. Ég á eftir að sakna þess að geta ekki sest niður með ömmu og skipst á skoðunum við hana, því það var alltaf notalegt og gott. Það verður mér alltaf minnisstætt þegar ég sem lítil stelpa fékk að dvelja hjá ömu og afa í Eyjum. Til- hlökkunin var gífurleg að fá að fara, því það var svo gaman og gott að vera hjá þeim. Ég man að ég sat á hnjám ömmu og hún kenndi mér að syngja barna- vísur. Amma með sitt rólega fas og kímnigáfu hafði alltaf tíma til að setjast niður og tala um atburði dags- ins. Þegar kvölda tók var afi alltaf reiðubúinn að lesa bók og oftast fleiri en eina. Amma var mjög myndarleg kona á allan hátt. Heimilið hennar var fallegt og á meðan heilsan leyfði hafði hún mikla ánægju af handa- vinnu og lestri góðra bóka. Hún saumaði með miklum glæsibrag fötin á börnin sín á handsnúnu saumavél- ina sína og margt annað afrekaði hún í þeim efnum. Allir meðlimir ijölskyldunnar muna eftir ómótstæðilegu pönnu- kökunum hennar ömmu Stínu og myndarskap hennar í eldhúsinu. Það sem einkenndi ömmu einna helst var rólegt og traust fas henn- ar. Einnig hafði hún næmt auga fyr- ir öllu því fyndna og skemmtilega sem lífið býður uppá. Þess vegna kom hún oft á óvart með hnyttnum og skemmtilegum athugasemdum þegar síst varði. Amma var með hjarta úr gulli og vildi helst tryggja öllum af- komendum sínum örugga og góða framtíð. Elsku amma, þakka þér allar ynd- islegu stundirnar sem þú gafst mér og mínum. Það var ómetaniegt að eiga þig að. Guð blessi minningu þína. Kristín Björk. Nú er hún amma Stína farin. Hún hefur fengið ósk sína uppfyllta og fengið hvíldina eftir langa og erfiða baráttu við hin ýmsu veikindi. Amma og afí hafa búið í Reykja- vík allt mitt líf og því hef ég ekki kynnst þeim sem skyldi. Við hitt- umst kannski tvisvar á ári, en nú hef ég verið í námi hér á höfuðborg- arsvæðinu í eitt og hálft ár og því getað heimsótt þau oftar. Oft var mjög gaman að sitja og spjalla, þau höfðu frá svo mörgu að segja. Amma Stína var gáfuð kona, vissi heilmikið og oft gat ég hlegið í nokkra daga að hnyttnum tilsvörum hennar. Hún var mjög hreykin af okkur, bamabörnunum, og fylgdist vel með því sem við vorum að gera. Elsku amma, ég, Elva, Bjami og Sara þökkum þér fyrir samveruna og vitum að þér líður betur núna. Góði Guð, viltu geyma ömmu mína og veita okkur öllum sem eftir lifum styrk og huggun í sorg okkar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Kristborg. KRISTIN EINARSDÓTTIR HENRÝ KRISTINN MATTHÍASSON + Henrý Kristinn Matthíasson fæddist 21.6. 1961 í Reykjavík. Hann lést á heimili sínu . 6. febrúar 1995. Foreldrar hans voru Matthías Helgason, sjómað- ur, frá Grímsey, f. 31.12. 1910, d. 28.11. 1983, og Cec- ilia Heinesen frá Klaksvík í Færeyj- um, f. 15.5. 1921. Systkin Henrýs eru fimm: Jakob, f. 16.1. 1942; Henný, 1948; Þórir, f. 25.11. f. 10.10. 1949; Guð- fram frá febrúar. rún, f. 25.4. 1954; og Helgi, f. 25.12. 1957, sem búsettur er í Klaksvík, Fær- eyjum. 14. maí 1994 kvæntist Henrý Samaporn Prada- blert, f. 28.3. 1961 í Thailandi. Þau eiga son, Andra, f. 14. maí 1992. Næstum alla starfsævi sína vann hann sem símsmið- ur hjá Pósti og sínia. Útför Henrýs fór Fossvogskirlqu 13. t KONRÁÐ JÚLÍUSSON frá Patreksfirði, áðurtil heimilis á Öldugötu 27, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá kapellunni við kirkjugarðinn í Hafnarfirði fimmtudaginn 16. febrúar kl. 13.30. Aðstandendur. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR frá Pétursborg, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 18. febrúar kl. 14.00. Guðbjörg Hallvarðsdóttir, Ingibjörg Halivarðsdóttir, Sigurður Hallvarðsson, Ásta Hallvarðsdóttir, Hrefna Hallvarðsdóttir, Halldór Valur Þorsteinsson, Málhildur Þóra Angantýsdóttir, Jón Stefánsson, Tryggvi Geir Haraldsson, barnabörn og barnabarnabörn. MIG LANGAR í fáum orðum að minnast frænda míns, Henrýs Kr. Matthíassonar. Nú er komið að kveðjustund og upp í hugann koma óteljandi minn- ingarbrot, allt frá þvi að ég man fyrst eftir mér og þar til nú. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. . Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ég kveð þig elsku Henrý og þakka þér fyrir allar okkar sam- verustundir sem eru mér dýrmæt eign. Kæru Sam og Andri, innilegar samúðarkveðjur til ykkar. Ykkar sorg er mikil, megi algóður Guð styrkja ykkur og leiða á þessum erfiðu tímamótum. Einnig sendi ég öðrum aðstand- endum innilegar samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur öllum. Hafdís C. Jakobsdóttir og fjölskylda. Sérfræðingar í l)lóinaski‘(‘y(iiii>iiiii vii> i»ll Grlvilarí'i Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími19090

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.