Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Myrkir músíkdagar Nýttís- lenskt verk flutt NÝTT íslenskt tónverk eftir Hróðmar I. Sigurbjömsson tón- skáld við ljóðið Næturregn eftir Davíð Stefánsson verður frum- flutt á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar Norðurlands í Ak- ureyrarkirkju næstkomandi laugardag, kl. 20.30. Eingöngu íslensk verk Tónleikamir eru hluti af Myrkum músíkdögum. í tilefni af 50 ára afmæli Tónskáldafé- lags íslands eru einungis verk eftir íslensk tónskáld á efnis- skránni. Verkið eftir Hróðmar I. Sigurbjömsson við ljóð Dav- íðs Stefánssonar er samið í til- efni af 100 ára afmæli skálds- ins í janúar sl. Auk verks Hróðmars flytur hljómsveitin Hátíðarmars eftir Pál Isólfsson, Foma dansa eftir Jón Ásgeirsson, Of Love and Death eftir Jón Þórarinsson og Hljómsveitartröll eftir Þorkel Sigurbjömsson. Hátíðarmars Páls tengist-einnig Davíð Stef- ánssyni þar sem verkið er byggt á lagi Páls við ljóðið „Úr útsæ rísa íslandsfjöll". Einsöngvari á tónleikunum er Michael Jón Clark, en hann hefur starfað á Akureyri um 24 ára skeið sem kennari, kór- og hljómsveitarstjóri og hefur komið fram sem einsöngvari við fjölmörg tækifæri hér og er- lendis, síðast með Sinfóníu- hljómsveit íslands í haust. Stjómandi á tónleikunum er Guðmundur Óli Guðmundsson, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníu- hljómsveitar Norðurlands. Hljómsveitin heldur einnig tónleika í íslensku óperunni á sunnudag, 19. febrúar, kl. 16.00. Samvera eldri borgara SAMVERA eldri borgara verð- ur í Glerárkirkju á morgun, fimmtudaginn 16. febrúar frá kl. 15.00 til 17.00. Hún hefst með stuttri helgistund í kirkj- unni en síðan er gengið í safn- aðarsalinn þar sem tækifæri gefst á að hlýða á söng og spjalla saman og þá er fólk hvatt til að taka með sér spil. Boðið er upp á veitingar gegn vægu verði. Fjögur ungmenni handtekin vegna fjölda innbrota á Akureyri HÉÐINN Beck á Fiðlaranum skoðar skemmdir sem unnar voru í innbroti. Krafist allt að fjórtán daga gæsluvarðhalds FJÖGUR ungmenni,.tveir piltar og tvær stúlkur, voru handtekin á Akureyri í gærmorgun grunuð um aðild að fjölmörgum innbrotum í bænum og nágrenni hans síðustu daga. Krafa var lögð fram í Héraðs- dómi Norðurlands eystra í gær um að þrjú þeirra yrðu úrskurðuð í gæsluvarðhald. í gærmorgun var tilkynnt um fjölda innbrota, m.a. á veitingastað- inn Fiðlarann, þá var reynt að bijót- ast inn á skrifstofu Félags verslun- ar- og skrifstofufólks sem er í sama húsi, brotist var inn á veitingastað- inn Bing Dao við Strandgötu, Tryggingamiðstöðina og veitinga- staðinn Við Pollinn en þrír síðast- töldu staðirnir eru í sama húsi. Með fíkniefni á sér Loks var tilkynnt um innbrot í KEA Nettó við Óseyri og í sjoppu á Árskógsströnd. Rannsóknarlögregla handtók fjögur ungmenni í gærmorgun, sem grunuð eru um aðild að þessum innbrotum. Þá leikur grunur á að ungmennin tengist einnig innbrot- um í sjö verslanir í verslunarmið- stöðinni Krónunni sem uppgötvuð- ust á mánudagsmorgun. í fórum ungmennanna fundust fíkniefni og tæki til fíkniefnaneyslu. Ungmennin voru yfírheyrð hjá rannsóknarlögreglunni á Akureyri í gærdag. Krafist var hálfsmánaðar gæsluvarðhalds yfir piltunum en skemmra varðhalds annarrar stúlk- unnar. Ekki hafði verið tekin af- staða til þess í gærkvöld. Á þriðja hundrað þúsund Talið er að hátt á þriðja hundrað þúsund króna hafi horfið í umrædd- um innbrotum og þá voru töluverð- ar skemmdir unnar við innbrotin. Morgunblaðið/Rúnar Þór í GÆRMORGUN skoðuðu rannsóknarlögreglumenn aðstæður á innbrotsstað við KEA Nettó. Miðstöð fólks í atviimuleit Bæjarstjóri ræðir at- vinnumál JAKOB Bjömsson, bæjarstjóri á Akureyri, verður gestur í opnu húsi Miðstöðvar fólks í atvinnuleit í dag, miðvikudaginn 15. ..febrúar, frá kl. 15 til 18 í Safnaðarheimili Akur- eyrarkirkju. Jakob mun ræða um bæjarmálin og sérstaklega fjallar hann um at- vinnumál og atburði sfðustu vikna í þeim efnum. Kaffi og brauð verður á borðum að vanda þátttakendum að kostnað- arlausu og dagblöðin liggja frammi. Nánari upplýsingar um starfsemi miðstöðvarinnar gefur umsjónar- maður safnaðarheimilis á þriðjudög- um og föstudögum frá kl. 15 til 17 en hann tekur einnig á móti pöntun- um fyrir Lögmannavaktina sem er í safnaðarheimilinu á miðvikudögum frá 16.30 til 18.30. Langflestir þeirra sem fá fjárhagsaðstoð frá Félagsmálastofnun eru atvinnulausir • • Or fjölgun þeirra sem eru atvinmi- lausir lengi UM 60% þeirra sem leituðu eftir fjárhagsaðstoð Félagsmála- stofnunar Akureyrarbæjar eru ekki í vinnu. Meginskýringin á sívaxandi fjárhagsaðstoð stofnunarinnar er aukið atvinnuleysi í bænum sem hefur þrefaldast á tímabilinu 1989- 1993. Aðrar skýringar á aukinni fjárhagsaðstoð eru kaupmáttarr- ýmun og reglur um fjárhagsaðstoð Félagsmálastofnunar Akureyrar- bæjar sem tóku gildi árið 1992. Þetta kemur fram í úttekt á fjár- hagsaðstoð Akureyrarbæjar sem Arnar Árnason endurskoðandi og Bragi Guðbrandsson félagsfræðing- ur unnu fyrir bæjarráð Akureyrar og kynnt var í gær. Til samanburð- ar var þróunin einnig könnuð í Kópavogi, Hafnarfirði og Reykja- vík. Heildarútgjöld vegna fjárhagsað- stoðar á landinu öllu uxu á tímabil- inu 1989-1993 úr 445,7 milljónum króna í 632,8 milljónir, sem jafn- gildir 39% aukningu útgjalda frá upphafi til loka tímabilsins. Fjár- hagsaðstoð Akureyrarbæjar jókst um 74% á sama tímabili, í Kópa- vogi um 1%, útgjöld Reykjavíkur- borgar jukust um 27% en langmest varð aukningin í Hafnarfirði eða yfir 300%. Djúpstætt og alvarlegt vandamál Fullyrt er í skýrslunni að atvinnu- leysi á Akureyri sé mun djúpstæð- ara og alvarlegra vandamál en í samanburðarsveitarfélögunum. Á Akureyri fjölgaði þeim sem voru atvinnulausir sex. mánuði eða leng- ur úr 50 árið 1990 í um 160 í lok árs 1994. Til samanburðar voru 50 atvinnulausir á sama tíma í Kópa- vogi, og rúmlega 100 í Hafnarfirði. í ágúst á síðasta ári höfðu rúmlega 45% atvinnulausra á Akureyri verið atvinnulausir í meira en sex mán- uði, 33% í Hafnarfirði, 22% í Kópa- vogi og 14% í Reykjavík. í nóvem- ber á síðasta ári voru 160 manns á Akureyri sem verið höfðu atvinnu- lausir í 12 mánuði eða lengur en sambærileg tala í Hafnarfirði var 60 manns og 30 í Kópavogi. Fram kemur í úttektinni að regl- ur Akureyrarbæjar varðandi fjár- hagsaðstoð séu skjólstæðingum í flestum tilfellum hagstæðari en tíðkast annars staðar. Við gerð hennar var óskað eftir við félags- málastofnanirnar í sveitarfélögun- um fjórum að reikna út tilbúið dæmi um einstæða móður þriggja barna sem býr í leiguhúsnæði og hefur lágmarkslaun. Misjafnt eftir sveitarfélögum Niðurstöðurnar leiddu í ljós mikinn mun sem getur verið á rétti til að- stoðar í sveitarfélögunum. Sam- kvæmt útreikningnum fengi móðir- in 26.428 krónur á Akureyri, 16.548 krónur í Hafnarfirði, 3.132 krónur í Kópavogi og 1.764 krónur í Reykjavík. Um 40% þeirra sem fá fjárhags- aðstoð á Akureyri eru einstæðar mæður, þá einhleypir karlar, síðan hjón eða sambýlisfólk með börn og loks einhleypar konur en þeim hefur fækkað mest á tímabilinu. Þeir sem búa í leiguhúsnæði á fijálsum markaði eru tæplega helm- ingur þeirra sem fá íjárhagsaðstoð á Akureyri og hefur fjölgað mest í þeim hópi á síðustu árum. Öryrlqar og sjúklingar víkja fyrir atvinnulausum Algengustu ástæður þess að fólk leitar eftir fjárhagsaðstoð er at- vinnuleysi og/eða stopul vinna, en í upphafi tímabilsins voru örorka, áfengisvandi ásamt ónógum launa- tekjum helsta ástæða þess að fólk leitaði aðstoðar. Á síðustu tveimur árum hefur þeim sem hafa launaða vinnu og eru í fullu starfi fækkað í hópi þeirra sem leita eftir aðstoð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.