Morgunblaðið - 15.02.1995, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
r
BG (3ET £KK'
LOFAÐ þvi A£>
flLUR KO/HI HUt-
ie )q hOfí til BflkAj
ÚR. FLbrTAHUAA/
rr
,..£F £INHVE(£7VAÍ .
'HciCAfl Shiter HUGUfl. ]
StcflL &H/HHSAA1/
frKvepri SiG MÚNA1/
• • þAP se i/£&£> /}£> sÝaia\
/VIYNÞ MBD BOHk U/AVA/Ej
Grettir
PngnnblabUi
BRÉF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Athugasemd
vegna NUPO-Iétt
auglýsingar
Tommi og Jenni
Þú gætir skrifað Þú gætir byijað daginn Leiðindaskjóða fædd.
heila bók um lif sem ég fæddist.
mitt.
Frá Maríu Ásgeirsdóttur:
ÞANN 27. janúar sl. birtist hér í
blaðinu á okkar vegum auglýsing,
þar sem ekki var farið með rétt
mál að öllu leyti og við viljum því
leiðrétta þetta og biðja viðkomandi
velvirðingar. Mig langar stuttlega
að gera grein fyrir hvað um er að
ræða:
Orðrétt stóð í auglýsingunni:
„Eru ekki allir duftkúrar eins?
Nei alls ekki. Oftast skortir tals-
vert á að aðrir kúrar uppfylli nær-
ingarþörf líkamans. T.d. er bannað
að selja kúra eins og Herbalife í
Danmörku og Svíþjóð, vegna þess
að þeir uppfylla ekki kröfur um
næringargildi.“
Sannleikur þessa máls er sá, að
þegar við sömdum þessa auglýs-
ingu töldum við þetta bann enn í
gildi. Síðar gerist það, sem við viss-
um ekki, að leyfi er veitt fyrir sölu
á Herbalife í Danmörku og Svíþjóð
en aðeins að ströngum skilyrðum
uppfylltum. Framleiðendum þess
var gert að staðhæfa framleiðslu
sína að reglugerðum þessara 2ja
landa og ennfremur skuli ítarlega
tekið fram í leiðarvísi að neyta
skuli daglega 80 gramma af dufti
ásamt 1 af léttmjólk að viðbættri
einni velsamsettri máltíð. (Hvað
er velsamsett máltíð?)
Aftur á móti er leyfilegt að
benda á að hægt sé að neyta ein-
göngu 5-6 glasa daglega af NUPO
(uppleyst í vatni) án nokkurrar
viðbótarfæðu. Þessi fjöldi skammta
af NUPO uppfyllir fullkomlega
daglega næringarþörf líkamans.
Ef reiknaður er út endingartími
Herbalife-dósarinnar er hann að-
eins 1 vika (550g : 80g = 7 dag-
ar) Kostnaður er því ca. 5.000 kr.
pr. vika. Aftur á móti er fólki sagt
að dósin dugi því í 1 mánuð, sem
eru 30 dagar, en samkvæmt því
ætti aðeins að nota 17 g pr. dag.
Við getum svelt okkur og grennst,
hvort sem við borðum 17 g af ein-
hveiju dufti eða ekki, en hvaða
áhrif hefur fasta á líkamann? í
fáum orðum langar mig að setja
fram nokkur rök um gildi næring-
arefna fyrir líkamann. Hann er
flókið verkfæri, sem starfar aðeins
eðlilega fái hann tilskilið magn
næringarefna. Þegar við fitnum
er það vegna þess að við höfum
borðað of margar hitaeiningar, eða
fleiri en við brennum. Við brennum
mismiklu og við getum ekki gert
neitt að því, en við getum gert
eitthvað við því. Þess vegna förum
við í megrun og minnkum hitaein-
inganeysluna.
Dæmi um mikilvægi
næringarefna
Tökum nokkur dæmi um mikil-
vægi næringarefnanna: Til þess
að hjartsláttur sé eðlilegur þurfum
við lágmark 2 g af kalíum á dag,
annars fáum við hjartsláttartruf-
lanir.
Próteín er efni sem er nauðsyn-
legt til vöðvauppbyggingar. Lág-
mark er að konur fái 45 g af prót-
eínum á dag en karlar 56 g. Ef
skortur er á próteínum fer líkam-
inn að ganga á vöðvana. Einn
mikilvægasti vöðvi líkamans er
hjartað og það er ekki undanskil-
ið. Megrunin er tilgangslaus ef við
sveltum okkur í hel. Dæmi eru úm
fólk, sem hefur látist sem afleiðing
ákveðinna kúra, sem í raun reynd-
ust föstukúrar.
Við þurfum vítamín í ákveðnum
hlutföllum. Margir hafa heyrt um
fólk áður fyrr sem fékk skyrbjúg
af C-vítamínskorti. í dag ætti
þetta ekki að geta gerst, því nóg
höfum við af C-vítamíngjöfum, en
ef við tökum af okkur matinn þá
getur allt gerst.
Járn er nauðsynlegt fyrir blóðið,
það bætir almenna líðan og mót-
stöðuaflið. Flestir vita hver eru
einkenni járnskorts; máttleysi og
þreyta m.a. C-vítamín bætir nýt-
ingu jáms úr fæðunni þannig að
þessi efni starfa saman.
D-vítamín er nauðsynlegt
líkamanum til að vinna kalk og
fosfór úr fæðunni, en þessi efni
eru nauðsynleg beinunum. Einnig
er D-vítamín nauðsynlegt fyrir
storknun blóðsins ásamt fyrir
virkni vöðva og taugakerfis.
Trefjar eru nauðsynlegar melt-
ingunni. Þær hafa áhrif á nýtingu
fæðunnar, veita seðjandi tilfínn-
ingu og auka magn hægða. Þar
sem trefjarnar fara ómeltar í
gegnum líkamann er ekki hægt
að segja að þær séu næringarefni
í sjálfu sér en þær bæta eins og
áður er sagt nýtingu þeirra. Auk
þess koma þær í veg fyrir ýmsa
sjúkdóma. Magn trefja er talið
nauðsynlegt 30 g.
Skortur á hveiju einstöku
bætiefni er hættulegpir
Hér er aðeins lauslega komið
inn á nokkur næringarefni til þess
að sýna dæmi um mikilvægi
þeirra. En öll eru þau jafn mikil-
væg í þeim skömmtum, sem gefn-
ir eru upp af sérfræðingum. Þess
vegna er skortur á þeim hættuleg-
ur, það koma fram skortseinkenni
og sjúkdómar geta fylgt, sem eru
miserfiðir viðfangs. Það þótti ekki
gæfulegt hér áður fyrr að fá sjúk-
dóma af völdum næringarskorts,
en þetta getur átt sér stað ef vit-
laust er að farið við megrun. Þess
vegna: Verið varkár og gætið
vandlega að því hvað þið borðið.
F.hLyfjahf.
MARÍA ÁSGEIRSDÖTTIR,
lyfjafræðingur.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.