Morgunblaðið - 15.02.1995, Síða 38

Morgunblaðið - 15.02.1995, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ ' ! | "}Í% ■' Morgunblaðið/Amór Sigursveit Zia Mahmood í mótslok. Talið frá vinstri: Tony Forrester, Björn Theodórsson framkvæmdastjóri, Zia Mahmood, Fred Gitleman og George Mittleman Sjötti signr Zia Mahmood í sveitakeppninni BBIDS Hótel Loftlciðir BRIDSHÁTÍÐ 1995 Sveitakeppni með þátttöku 92 sveita 12.-13. febrúar. “ZIA Mahmood leiddi sveit sína til sigurs á 14. Bridshátíðinni í sjötta sinn á átta árum. Sveitin hlaut samtals 196 stig eða tæp 20 stig að meðaltali úr leik. Með Zia spiluðu Tony Forrester, Ge- orge Mittelman og Fred Gitelman. Fyrir síðustu umferðina hafði sveit Zia komið sér þægilega fyr- ir í efsta sætinu, hafði 182 stig eða 10 stigum meira en helztu andstæðingamir, norsk-íslenzka sveitin og sveit Samvinnuferða/ Landsýnar). í síðasta leik spilaði Zia við Samvinnpferðir og íslendingarnir urðu að vinna leikinn að minnsta kosti 20-10 til að komast upp fyrir Zia. Og úrslitin ultu í raun á einu spili í leiknum: Norður ♦ K864 VÁKD4 ♦ D ♦ D864 Austur ♦ G72 ¥52 ♦ G10764 ♦ 1072 Suður ♦ Á95 ¥ G10976 ♦ Á8 *ÁK5 6 hjörtu er örugg slemma í NS en við annað borðið létu Helgi Jóhannsson og Guðmundur Sv. Hermannsson sér nægja að spila 4 hjörtu. Við hitt borðið komust Zia og Tony Forrester alla leið í 7 hjörtu. Til að sú alslemma ynn- ist þurftu laufin að liggja 3-3 hjá andstæðingunum eða sami and- stæðingur að eiga lengd í laufi og spaða svo hægt væri að þvinga hann. Eins og sést var ekki hægt að kvarta yfir legunni og alslemm- an vannst og gaf Zia 17 impa. Hefði alslemman tapast hefðu Samvinnuferðir fengið 13 impa og unnið leikinn 23-7. En úrslit leiksins urðu 16-14 fyrir Sam- vinnuferðir og það gaf ýmsum möguleika á að blanda sér í topp- baráttuna. Norsk-íslenzka sveitin, sem átt hafði góða spretti í mót- inu og m.a. unnið Zia örugglega, varð að sætta sig við tap 12-18 gegn Ritu Shugart. Og sveit VÍB, sem var í 4.-6. sæti fýrir síðustu umferðina ásamt Ritu og S. Ár- manni Magnússyni, vann S. Ár- mann 17-13. Lokaúrslitin gátu ekki orðið Samvinnuferðum/ Landsýn hagstæðari og annað sætið í mótinu var þeirra. í sveit Samvinnuferða/Land- sýnar spiluðu forseti og varafor- seti Bridssambandsins, Helgi Jó- hannsson og Guðmundur Sv. Her- mannsson, Bjöm Eysteinsson, Aðalsteinn Jörgensen og Rúnar Magnússon. Náðugir dagar keppnisstjóra Sveit Tryggingamiðstöðvarinn- ar læddi sér upp í 3. sætið í loka- umferðinni eftir misjafnt gengi en annars varð lokastaðan þessi: ZiaMahmood. 196 Samvinnuferðir/Landsýn 188 Tryggingamiðstöðin 184 Noregur/ísland 184 Rita Shugard 183 VÍB 182 Bretland/yngri spilarar 181 Landsbréf 180 S. Ármann Magnússon 178 Anton Haraldsson 177 Kristján Hauksson keppnis- stjóri átti náðuga daga. Hann sagðist ekki muna eftir svo rólegu móti sem þessu en alls spiluðu 92 sveitir. Sveinn R. Eiríksson og Einar Guðmundsson voru honum til aðstoðar við keppnisstjórnina. Elín Bjarnadóttir framkvæmda- stjóri Bridssambandsins var móts- stjóri en Björn Theodórsson einn af framkvæmdastjórum Flugleiða afhenti verðlaun í mótslok. Arnór G. Ragnarsson Guðmundur Sv. Hermannsson Vestur ♦ D103 ¥83 ♦ K9532 ♦ G93 SVEIT Samvinnuferða/Landsýnar varð í öðru sæti eftir sig- ur á Zia í lokaumferðinni. Talið frá vinstri: Björn Eysteins- son, Aðalsteinn Jörgensen, Rúnar Magnússon, Guðmundur Sv. Hermannsson og Helgi Jóhannsson. I DAG Farsi fjárm'ala spá m „ ViS muruurr sjá hrg,l i/0*bakjör ! noii, 0<j hsérra Cjengi c/ollcirans Um he/þina BRIDS Umsjðn Uuömundur Páll Arnarson „ER þetta kriss-kross- skvís?“ Jakob R. Möller seg- ir stundum söguna af því þegar Jón Baldursson upp- götvaði víxlþvingun. Það var á Norðurlandsmóti í Noregi, en Jón spilaði þá í fyrsta sinn í opnum flokki, tvítugur að aldri. Jakob var félagi Jóns, en hinir í iiðinu voru Þórir Sigurðsson og Hallur Símonarson. Jón uppskar aðeins yfirslag á þvingunninni, en í fyrstu umferð tvímenningsmóts Bridshátíðar fékk bróðir Jóns, Guðmundur Baldurs- son, tækifæri til að vinna sex grönd með þessari sjaldgæfu þvingun. Vestur gefur; AV á hættu. Norður ♦ Á965 4 G1032 ♦ D 4 KG108 Vestur Austur 4 G3 4 K1074 4 9874 lllll! 4 D65 ♦ 632 ♦ K975 4 7532 4 96 Suöur 4 D82 4 ÁK ♦ ÁG1084 4 ÁD4 Guðmundur og nafni hans Grétarsson fóru alla leið í sex grönd, sem Bald- ursson spilaði í suður. Spaðaútspil gerir vonir sagnhafa strax að engu og hið sama gerir raunar út- spil í hjarta. En Guðmundur fékk út lauf. Hann gaf strax slag á tígulkóng. Austur spilaði hjarta til baka og Guðmundur tók slagi sína á láglitina. Lokastaðan leit þannig út: Norður 4 Á 4 GIO ♦ 4 - Vestur Austur 4 G3 4 K 4 9 lllll * D6 ♦ - IIHII 4 . 4 - 4 - Suður 4 D8 4 K ♦ - 4 - Guðmundur henti rétti- lega spaða í síðasta tígulinn og þvingaði austur um leið i hálitunum. Austur valdi að fara niður á spaðakóng- inn blankan og nú þurfti Guðmundur aðeins að spila spaða á ásinn. En hitt var jafn líklegt að drottningin í hjarta væri orðin stök og Guðmundur veðjaði á þann hest: tók hjartakónginn og varð því að sætta sig við að fara einn niður. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Tapað/fundið Húfa tapaðist ÉG tapaði svartri loðhúfu með tveimur litlum skott- um þriðjudaginn 7. febr- úar, annað hvort í Austurstræti eða fyrir utan verslunina 10-11 í Borgarkringlunni. Húfan var gjöf og er mér því sérstaklega dýrmæt. Fundarlaun. Upplýsingar í síma 672502 eftir kl. 18. íþróttajakki tapaðist DÖKKBLÁR efri partur af íþróttagalla 8 ára drengs tapaðist á fót- boltaæfingu í Íþróttahús- inu á Seltjarnarnesi sl. laugardag. Finnandi vin- samlega hringi í síma 612366. Fjallahjól tapaðist SVART Mongoose Threshold fjallahjól hvarf frá Hraunbæ 33 fyrir nokkru. Viti einhver um hjólið er hann vinsam- lega beðinn að hafa sam- band í síma 671089 eða við Vara, öryggisþjón- ustu. Taska og föt fundust FUNDIST hefur á lóð við Barónsstíg fatnaður, bol- ir, skór o.fl. ásamt tösku. Upplýsingar í síma 15214 eftir hádegi. Gleraugu töpuðust GLERAUGU í rauðri umgjörð sem var í fjó- lurauðu plasthylki töp- uðst í síðustu viku. Þetta eru mjög sérhæfð fjar- sýnisgleraugu. Finnandi vinsamlega hringi í síma 25524. Barnagleraugu töpuðust BARNAGLERAUGU í hvítu hulstri töpuðust á leiðinni frá Kópavogs- skóla og út í Hamraborg. Finnandi vinsamlega hafi samband við Erling í heimasíma 45019 eða vinnusíma 681240. Gæludýr Kvenpáfagaukur KVENPÁFAGAUKUR óskast gefíns, helst í búri. Upplýsingar í síma 876409. Kettling vantar heimili FALLEGAN fjögurra mánaða kettling þarf að komast á gott heimili. Upplýsingar í síma 18072. COSPER Víkveiji skrifar... ÆR eru frumlegar söluaðferð- imar, sem ferðaskrifstofumar nota á stundum, til þess að tryggja sér viðskipti þeirra sem huga á ferðalög í sumar til annarra landa. Víkverji telur að Samvinnuferðir- Landsýn hafi náð nú um helgina að jafna metin, eftir að Úrval-Útsýn náði ákveðnu forskoti með því að kynna ferðabækling sinn um einum mánuði fyrr en Samvinnuferðir gerðu. Þetta gerði ferðaskrifstofan með því að auglýsa ákveðinn fjölda ferða, til nokkurra áfangastaða er- lendis, á aðeins 7.900 krónur. En þeir lánsömu, sem fengu að kaupa slíkar ferðir á þessum kostakjömm, þurftu líka að leggja á sig mikla fyrirhöfn, því um miðjan dag á sunnudag fóru að myndast biðraðir við útsölustaði ferðaskrifstofunnar, þótt sala á miðunum hæfist ekki fyrr en kl. 9 á mánudagsmorgun. xxx ÍKVERJI átti þó bágt með að skilja röksemdafærslu fram- kvæmdastjóra SáSivinnuferða- Landsýnar í sjónvarpsviðtali í fyrra- kvöld, þar sem hann lýsti yfir mik- illi ánægju með það hvernig hafði tekist til með söluna þennan fyrsta söludag. Fréttamaðurinn spurði framkvæmdastjórann, hvort það væru ekki aðrir farþegar ferðaskrif- stofunnar sem væru einfaldlega að greiða niður farmiðaverð hinna heppnu. Framkvæmdastjórinn kvað nei við og sagði að við útreikninga um sætanýtingu væri miðað við 80% sætanýtingu. Þessir ódýru mið- ar væru úr umfram sætaplássi, þ.e. á milli 80% og 100%, þannig að þetta kæmi ekki við þá farþega sem væru fullgreiðandi, fyrir 80% sæt- anna. Þetta sýnist Víkverja vera hálfgerð hundalógík, því í hans huga er ekki nema um tvennt að ræða, þegar um svona boð er að ræða: Ánnaðhvort greiða aðrir far- þegar ferðakostnaðinn fyrir hina heppnu að stórum hluta, eða þá að ferðaskrifstofan ákveður sjálf að greiða hann niður og þar með vænt- anlega af áætluðum hagnaði af rekstri ferðaskrifstofunnar. xxx ELDUR þótti Víkveija Guðrún Helgadóttir, alþingismaður Alþýðubandalagsins í Reykjavík, vera frumleg í málflutningi sínum, við utandagskrárumræður á Alþingi í fyrradag um Qölmiðla og hringa- myndun. Þingmaðurinn sagði tíma- bært að þjóðin eignaðist dagblað og lagði til að ríkisvaldið hæfi út- gáfu dagblaðs. Rökstuðningur þingmannsins var sá, að þetta yrði gert „til þess að þjóðin fái upplýs- ingar sem má treysta, þar sem ekki sé gerður munur á fólki eða málefn- um og hið ískalda vald peninganna nái ekki að stjórna málum“! xxx OG hvernig hugsar talsmaður hins ríkisrekna dagblaðs sér framkvæmdina? Ætlar hún kannski að leggja til skylduáskrift til þjóðar- innar, þannig að hvert heimili verði að hafa keypt eitt eintak af ríkis- blaðinu, áður en heimilt verður að gerast áskrifandi að öðrum dag- blöðum? Það væri svo sem eftir öðru, í jafnmakalausum málflutn- ingi og þingmannsins, nú á árinu 1995. Það sem Víkverja finnst hvað skondnast við þennan málflutning þingmannsins er sú staðreynd, að fyrrum kommúnistaþjóðir eru hvar- vetna að hverfa frá ríkisforsjá, hægt og bítandi, en á sama tíma vill þingmaðurinn hér heim á Fróni auka forsjána, með heldur hæpinni röksemdafærslu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.