Morgunblaðið - 08.03.1995, Page 8

Morgunblaðið - 08.03.1995, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Greiða ber Stundum held ég að þið, þessir opinberu embættismenn, séuð ekki mennskir. Þú ert búinn að koma öllum þessum yndislegu sægreifabörnum til að hágráta með þessum skepnuskap . . . Skattamál tryggingayfirlæknis Telur málsmeðferðina brot á stj órnsýslulögum JÚLÍUS Valsson tryggingayfir- læknir telur að meðferð skattyfir- valda á máli sínu geti varðað við stjómsýslulög. Nefnir hann lög um upplýsingaskyldu, hversu langan tíma málsmeðferðin hafí tekið, jafnræðis- og meðalhófsreglu. Júlíus nefnir að stjómvöldum beri að tilkynna það sé meðferð mála breytt samkvæmt jafnræðis- reglu. Til dæmis hafi brot á skatta- lögum, sambærileg við brot trygg- ingalæknanna, jafnan verið af- greidd innan skattkerfisins áður fyrr. Hann hafi talið að svo myndi verða. Leita hefði átt vægustu refsingar í skýrslu ríkisendurskoðunar segir einnig að ástæða þess að málum tryggingalækna hafi verið vísað til opinberrar rannsóknar hafi verið sú að þeir hafi ekki svar- að bréfum rannsóknardeildar ríkis- skattstjóra þar sem þess var kraf- ist að þeir skiluðu bókhaldsgögn- um. Hann hafí hins vegar skilað ÚTHLUTAÐ hefur verið styrkjum úr þjóðhátíðargjöf Norðmanna, sem norska Stórþingið samþykkti í til- efni 1100 ára afmælis íslands byggðar. Styrki hlutu: Handverk, reynsluverkefni; Björgunarhunda- sveit íslands; sjúkraliðar í fram- haldsnámi í geðhjúkrun við Fjöl- brautarskólann í Ármúla; Flug- björgunarsveitin í Reykjavík og Hjálparsveit skáta; og Asgarður, handverkstæði fyrir þroskahefta. öllum gögnum og því engin ástæða til kæm. „Meðalhófsreglan segir að væg- ustu refsingar skuli leitað í hverju máli, nema annað mæli á móti því. Hérna er ekki um að ræða ítrekuð eða stórfelld skattalagabrot og vægari refsing hefði verið að vísa málinu til yfirskattanefndar. Skattrannsóknastjóri, sem hefur lýst sig vanhæfan í mínu máli, er með yfirlýsingar um það í fjölmiðl- um, sem líka er brot á stjórnsýslu- lögum. Það er enginn grunur uppi um brot á hegningarlögum og eng- in rök fyrir því að málið skyldi koma til opinberrar rannsóknar. Auk þess hafa stjórnvöld ekki sinnt upplýsingaskyldu sinni. Ég hef engar tilkynningar fengið um hvers vegna opinber rannsókn fór fram. Ég hef ekki geta svarað fyrir mig þótt maður eigi að geta svarað öll- um ákvörðunum á öllum stjórn- sýslustigum, fá skriflegar tilkynn- ingar og upplýsingar um hvert maður geti áfrýjað." Loks segir Júlíus að málsmeðferð Styrkir voru fyrst veittir úr sjóðn- um 1976 og fór nú fram nítjánda úthlutun. Ráðstöfunarfé sjóðsins var að þessu sinni 497.837 krónur. Styrkumsóknir voru 20, en samþykkt var að styrkja ofangreinda aðila. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins skal ráðstöfunarfénu, vaxtatekjum af höfuðstólnum, einni milljón nor- skra króna, sem varðveittur er í Noregi, varið til að styrkja hópferðir íslendinga til Noregs. hafí tekið óeðlilega langan tíma og að stjórnvöldum beri að útskýra tafir á henni, sem ekki hafí verið gert. -----» ♦ ♦----- Breyting á Aðalskipu- lagi Akureyrar Háskóla- svæðið við Sólborg stækkað BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam- þykkti í gær þá breytingu á Aðal- skipulagi Akureyrar 1990 til 2010 að stofnanasvæði Sólborgar verði stækkað til austurs um 5 hektara. Skipulagsnefnd Akureyrar hafði lagt til við bæjarstjórn að gera umrædda breytingu. Svæðið sem stækkunln nær til er nú skilgreint sem íþróttasvæði en var áður stofn- anasvæði. Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri sendi erindi til skipulagsyfirvalda á Akureyri þar sem beðið var um að afstaða yrði tekin til hugmynda um af- mörkun svæðis fyrir framtíðars- tækkun háskólans austan lóðar Sólborgar, en þangað mun Háskól- inn á Akureyri flytja starfsemi sína. Skipulagsdeild bæjarins hefur verið falið að fullvinna deiliskipulag svæðisins þannig að gert sé ráð fyrir stækkun lóðarinnar. Leggur skipulagsnefnd áherslu á það sjón- armið að háskólahverfið verði hluti almenns útivistarsvæðis og að lóða- skipulag skólans taki mið af því. Úthlutað úr norsku þjóðargjöfinni Nýtt leiklistarstúdíó Þjálfun sem nýt- ist í hvers kyns samskiptum Gísli Rúnar Jónsson INÆSTU viku hefst kennsla hjá Leiklist- arstúdíói Eddu Björgvins og Gísla Rúnars þar sem veitt verður til- sögn í hagnýtri leiklist og boðið upp á ýmiss konar námskeíð. Munu þau hjón annast leiðsögnina alfarið til að byija með. - Hvað veldur því að þið takið þetta skref? „Það hefur margsinnis verið skorað á okkur að safna saman reynslu okk- ar og þekkingu, sem orðin er býsna víðtæk, og koma í kennsluform. Þetta hef- ur staðið til lengi en við verið að einbeita okkur að öðru. Síðan breytast áherslurnar í starfi og líf- inu. Allt í einu kemur upp sú staða að mál sé til komið að fara að sinna þessu.“ - Hvað áttu við með hagnýtri leiklist? „Við tölum um hagnýtt leik- listarnám því það er svo margt í þessu sem fólk getur nýtt sér í öllum störfum sem það kann að taka sér fyrir hendur. Boðið verður upp á tvenns konar nám- skeið í fyrstu sem bæði byggjast upp á því sem við köllum tækni leikarans. Annað er helgarnámskeið, sjö klukkutíma á dag í tvo daga, og er ekki endilega ætlað þeim sem hyggja á frama í leiklistinni. Það er fyrir fullorðið fólk á öllum aldri sem vill fá á stuttum tíma skilvirka tilsögn í undirstöðuatr- iðum tjáningar og framkomu. Ekki síður þjálfun í raddbeitingu og framsögn sem getur nýst í hvers kyns mannlegum sam- skiptum. Bæði í leik og kannski ekki síður í starfi. Það er ekki síst fyrir fólk sem hefur atvinnu af því að koma fram, leiðbeina fólki eða flytja ræður. Til dæmis má nefna kennara eða fólk sem kemur fram í ljósvakamiðlum og er hugmyndin að halda nokkur slík helgarnámskeið. Síðan er um að ræða sex vikna leiklistarnámskeið ætlað byij- endum í leiklist, þá sem hyggja á leiklistarnám og eins fyrir hina sem hafa hug á tilsögn í helstu undirstöðuatriðum í starfi leikar- ans; með beinni þjálfun, æfing- um og því sem við getum kallað hagnýtu spjalli og kynningu á starfsvettvangi. Það er stiklað á stóru þannig að fólk fái að kynn- ast sem flestu og má þar nefna leiktúlkun og persónusköpun, þjálfun í verkkunn- áttu og leiktækni. Farið er í sögu leik- listar með áherslu á stefnur og aðferðir og vinnu við ólíka miðla, leiksvið, hljóðvarp, sjónvarp og kvikmyndir og síðast en ekki síst framsögn og beitingu raddar.“ - Hveijir eru það sem leggja leiklist fyrir sig? „Það þarf ákveðinn kjarna. Fyrsti hvatinn er auðvitað að langa til þess að leika. Allir þeir sem einhvern tíma munu vinna við leikhús hafa á einhveijum tímapunkti ævi sinnar viljað verða leikarar. Þetta er hundrað prósent regla. Áhuginn kviknar einfaldlega þannig að viðkom- andi sér leikara uppi á sviði í skemmtilegum búningi, að fara ► GÍSLI Rúnar Jónsson leik- ari og leikstjóri fæddist 20. mars 1953 í Reykjavík. Hann stundaði leiklistarnám við Leiklistarskóla Ævars Kvar- ans 1969—1970, námskeið hjá Leiklistarskóla leikhúsanna 1974 og framhaldsnám við sama skóla 1974-75. Einnig lagði hann stund á framhalds- nám í leiklist hjá „The Drama Studio“ í Lundúnum 1980-81 og sótti námskeið hjá Leikfé- lagi Akureyrar. Gísli kom fyrst fram með Leikfélagi Akureyrar árið 1970 og hóf feril sinn í sjónvarpi árið 1972. Hann starfaði við Þjóðleikhús- ið 1972-75 ogfrá 1981 auk þess að leika með Alþýðuleik- húsinu og þjá Leikfélagi Reykjavíkur. Jafnframt hefur Gísli leikstýrt fjölmörgum sjónvarpsþáttum og leikið í sjónvarpsþáttum og kvik- myndum. Hann er kvæntur Eddu Björgvinsdóttur leikara og eiga þau fjögur börn. með texta og hugsar með sjálfum sér, svona langar mig að gera, mig langar að koma fram. Þá komum við að því að leik- ari þarf að hafa ákveðna sýni- hneigð, sem þarf ekki að þýða að hann sé framfærnari en aðr- ir. Yfirleitt er því algerlega öfugt farið því þetta fólk er gjarnan ákaflega feimið. Oft finnst fólki það ótrúleg mótsögn, sem það á erfitt með að sætta sig við. En þetta er leið til að yfirvinna ákveðinn skort eða vöntun. Oft er verið að átelja leikara fyrir það að vera smáa í sálarkytrunni og nota leiklistina til að yfir- vinna það. Hvað annað? Það er svo virkilega göfugt. Þetta er á við sálfræðiþerapíu eða með- ferð.“ - Á hvaða stefnu verður áherslan lögð í kennslunni? „Allar. Það verður lögð áhersla á það hjá okkur að allar aðferðir og allar stefnur séu rétt- ar. Það er það sem skilur okkur, með fullri virðingu fyrir öðrum, frá öllum leiklistarmenntastofn- unum sem ég hef kynnst. Það er engin aðferð réttari en önnur, engin tegund leiklistar betri eða verri en önnur, vegna þess að þetta er allt saman umdeilanlegt og spurning um smekk.“ Allar stefnur og aðferðir réttar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.