Morgunblaðið - 08.03.1995, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.03.1995, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stígamót, samtök kvenna gegn kynferðislegu ofbeldi, 5 ára í dag 44,5% þolenda kynferðisofbeldis er leituðu til Stígamóta á liðnu ári höfðu orðið fyrir ofbeldinu á aldrin- um 5 til 9 ára. Alls höfðu 83,5% orðið fyrir ofbeldinu fyrir 16 ára aldur. Hlutfallið var 84,7% árið 1993 og 90,6% árið 1992. Aðeins rúmlega 10% ofbeldismanna þolenda frá í fyrra eru ókunnugir karlar. Stíga- mót, samtök kvenna gegn kynferðis- legu ofbeldi, halda upp á 5 ára starfsafmæli sitt á alþjóðlegum bar- áttudegi kvenna í dag — 8 mars. Stígamót hafa gefið út skýrslu, annars vegar með upplýsingum um starfsárið 1994 og hins vegar með samanburði á þremur síðustu starfs- árum. Guðrún Jónsdóttir, starfskona Stígamóta, sagði samanburðinn leiða fram nokkuð ákveðin hlutföll. Konur væru t.d. kringum 94% þo- lenda og karlar 6%. Hlutföllin sner- ust við þegar sjónum væri beint að ofbeldismanninum. Hann væri í 98-99% tilvika karl og 1-1,5% tilvika kona. Einn þriðji þolenda leitar að- stoðar vegna nauðgunar og tveir þriðju vegna sifjaspella. Nefndi Guðrún að áhersla væri lögð á að halda saman upplýsingum um starfsemina enda lægju þær hvergi fyrir annars staðar. Fyrir- liggjandi tölur væru sambærilegar tölum annars staðar frá og gæfu til kynna að þverskurður hefði fengist af ástandinu. Harmur og sársauki En Guðrún lagði áherslu á að bakvið tölurnar lægi mikill harmur og sársauki. Algengustu og erfið- ustu afleiðingar kynferðisofbeidis eru samkvæmt skýrslunni sektar- kennd, lélag sjálfsmynd, erfíðleikar í kynlífi og depurð eða þunglyndi. Alls höfðu 57 eða 16,5% þolenda kynferðisofbeldis er leituðu til Stíga- móta á liðnu ári gert eina eða fleiri tilraunir til sjálfsvígs. Tæpur þriðj- ungur hafði gert slíkar tilraunir ít- rekað. Svipað hlutfall hafði rætt of- EIGNAMIÐUJNIIN % Sími 88 • 90 • 90 - Fax 88 • 90 • 95 - Síöumúla 21 Langholtsvegur - laus - NÝTT. Rúmg. og björt um 95 fm rishæð ásamt 28 fm bílskúr. Áhv. ca 5,0 millj. íb. er laus. Verð 7,2 millj. 3905. Reykjavíkurvegur - Rvík - NÝTT. Vorum að fá í sölu glæsilega 3ja herb. íb. í nýlegu 5-íb. húsi. Vandaðar innréttingar. Park- et. Gott útsýni. Hagstætt byggsjlán. Laus nú þegar. Verð 8,3 millj. Skipholt - NÝTT. 3ja herb. 77 fm björt og góð íb. á jarðhæð í bakhúsi. Parket. Mjög ról. staður. Ákv. sala. Verð 6,2 millj. 4369. Fróðengi - í smfð- um - NÝTT. Vorum að fá til sölu glæsilegar 61,4 fm 2ja herb., 99 fm 3ja herb. og 117 fm 4ra herb. íbúðir á frábærum útsýnisstað. íb. eru til afh. fljótlega fullbúnar m. vönduöum innr. en án gólfefna. Öll sameign fullfrág. að utan sem innan. Hægt er að kaupa bílskúr með. Verð frá 6,5 millj. 4359. 44,5% verða fyrir ofbeldi 5 til 9 ára Morgunblaðið/Sverrir STARFSKONUR Stígamóta, f.v.: Hólmfríður Guðmundsdóttir, Halldóra Halldórsdóttir, Sigríður Marteinsdóttir, Theódóra Þór- arinsdóttir, Guðrún Jónsdóttir og Áshildur Bragadóttir. Alls hafa 1.666 einstaklingar leitað til Stígamóta á 5 ára starfstíma samtakanna. beldið við aðra hjálparaðila og taldi þriðjungur hópsins sig ekki hafa mætt skilningi. Stígamót hafa veitt einstaklings- bundna ráðgjöf og verið með sjálfs- hjálparhópa á snærum sínum. Af öðru má nefna að starfskonur Stíga- móta hafa gegnt útköllum vegna nauðgana í samvinnu við Neyðar- móttöku Borgarspítalans. Fram kemur í skýrslunni að ekki hafi leng- ur verið óskað eftir aðstoð þeirra í maí síðastliðnum. „í kjölfar þessa reyndu Stígamótakonur hvað þær gátu -að koma á áframhaldandi sam- starfí en án árangurs. í júní síðast- liðnum lauk því samstarfi Stígamóta og Neyðarmóttöku. Þessi niðurstaða var okkur mikil vonbrigði,“ segir í skýrslunni. Falið ofbeldi í skýrslunni kemur fram að árið 1992 höfðu 22% ofbeldismanna í sifjaspellsmálum beitt aðra ofbeldi. Hlutfailið er 12,2% árið 1993 og 17% í fýrra. Af ofbeldismönnum í nauðg- unarmálum höfðu 3,9% beitt aðra ofbeldi árið 1992, 2,9% árið 1993 og 2,3% árið 1994. Tölurnar byggj- ast á vitneskju þolenda eftir að mál hafa verið opnuð og rædd innan fjöl- skyldunnar. Fram að þeim tíma hafði ofbeldið ekki komið fram. Skilgreining sifjaspells er í skýrsl- unni allt kynferðislegt atferli milli einstaklinga sem tengdir eru tengsl- um trausts og þar sem annar aðilinn vill ekki slíkt atferli en er undirgef- inn og háður ofbeldismanninum á einhvern máta. Nauðgun er kynferð- islegt ofbeldi þar sem einhver þreng- ir sér eða gerir tilraun til að þrengja sér inn í líkama annarrar manneskju og brýtur þar með sjálfsákvörðunar- rétt og sjálfsstjórn hennar á bak aftur. Afmælið Eins og áður segir halda Stígamót upp á 5 ára starfsafmæli sitt í dag. Afmælisins verður minnst með göngu gegn kynferðisofbeidi og leggur gangan af stað frá Hlaðvarp- anum, Vesturgötu 3, kl. 17.30. Gengið verður um miðbæinn með viðkomu í stjórnarráðinu. Þar verður fulltrúa ríkisstjórnarinnar afhent áskorunarskjal. Útifundur hefst á Ingólfstorgi kl. 18. A fundinum verð- ur efnt til söngs, hljómlistar og ræðuhalda. Stígamótakonur hvetja alla til að vera með í göngunni og á Ingólfstorgi og mótmæla þannig kynferðisofbeldi. Á árinu 1994 leituðu 346 nýir einstaklingar til Stígamóta. Til við- bótar var 163 einstaklingum sem leituðu aðstoðar á fyrri árum veitt ráðgjöf. Heildarljöldi einstaklinga sem leituðu til Stígamóta á árinu 1994 var því 509. Alls hafa 1.666 einstaklingar leitað til Stígamóta. Þolendur og ofbeldismenn koma úr öllum stéttum og menntun þeirra er misjöfn. Kynferðislegt ofbeldi á sér heldur ekki landfræðileg mörk. Flestir verða fyrir ofbeldi af hendi þekkts aðila á unga aldri (yngri en 16 ára) en leita ekki aðstoðar fyrr en á fullorðinsárum. Flestir, eða 29,2%, leita aðstoðar á aldrinum 20 til 29 ára. Vanir menní innbrotum TVEIR ungir og afkastamiklir afbrotamenn voru staðnir að innbroti í leikskóla í Seláshverfi í fyrrinótt. Mennirnir komu að leikskól- anum á bíl, sem talið er að þeir hafí stolið en tengt hafði verið framhjá kveikjulás bílsins. Nágrannar sáu til ferða pilt- anna og tilkynntu lögreglu. Þegar lögregla kom að fannst annar piltanna inni á skrifstofu leikskólastjóra þar sem tölva og fylgihlutir hennar höfðu ver- ið teknir úr sambandi. Hinn pilturinn fannst í hnipri í leiksvæði á lofti leikskólans. Sá var nýlega laus úr haldi eft- ir rannsókn á mörgum brotum. Piltarnir, sem viðurkenndu að vera undir áhrifum fíkniefna, voru færðir í fangageymslur. Verkalýðsfélag Húsavíkur Samningar samþykktir Húsvík. Morgunblaðið. NÝGERÐIR kjarasamningar voru naumlega samþykktir við allsheijar atkvæðagreiðslu hjá Verkalýðsfélagi Húsvíkur. Öllum félögum, 1.122, voru send kjörgögn og áttu þeir að skila þeim fyrir 6. þessa mán- aðar, Alls greiddu atkvæði 399 eða 36% félagsmanna. Sam- þykkir samningur voru 205 eða 51,4% á móti voru 181 eða 45,4%. Auðir og ógildir seðlar voru 3,2%. Athugasemd frá Tryggingaráði MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Tryggingaráði, millifyrirsagnir eru blaðsins: Hlaut eitt atkvæði af fimm „Af gefnu tilefni telur Trygg- ingaráð rétt að eftirfarandi komi fram: Júlíus Valsson var í hópi 18 umsækjenda um stöðu trygg- ingayfirlæknis, er sú staða var auglýst laus til umsóknar í ársbyij- un 1994. Stöðunefnd Landlæknis- embættisins setti Júlíus ekki í hóp þeirra fímm umsækjenda sem hæfastir voru taldir til að gegna stöðu tryggingayfírlæknis. En því til viðbótar vakti stöðunefnd at- hygli á störfum Júlíusar og sjö annarra lækna. í Tryggingaráði hlaut Júlíus eitt atkvæði af fímm í þá stöðu. Þrátt fyrir álit stöðu- nefndar og þá staðreynd að Júlíus fékk aðeins eitt atkvæði í Trygg- 21150-21370 LARUS Þ. VALDIMARSS0N, framkvæmdastjori KRISTJAN KRISTJANSSON. loggiltur fasteignasali Ný á fasteignamarkaðnum - til sýnis og sölu m.a. eigna: Góð íbúð á góðu verði Sólrík 3ja herb. íb. á efri hæð v. Dalaland. 2 rúmg. svefnherb. m. innb. skápum. Rúmg. sólsvalir. Sér hitaveita. Ágæt sameign. Vinsæll staður. Sérhæð - mikið útsýni - eignaskipti Rúmg. og sólrík 6 herb. efri hæð í Austurborginni í þríbhúsi. Sér- inng., sérhiti, sérþvhús á hæðinni. Bílskúr 27,6 fm. Skipti mögul. á góðri 3ja-4ra herb. íb. í borginni á 1. eða 2. hæð. • • • Nokkrar góðar eignir á úrvalsstöðum íborginni. Nánari uppl. á skrifstofunni. ALMENNA FASTEIGNASALAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370 ingaráði afréð heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra að skipa hann í starfið. Tryggingayfirlæknir er yfir- maður læknadeildar og situr fyrir hönd Tryggingastofnunar ríkisins í ýmsum nefndum. Hann sækir fundi Tryggingaráðs og er í hópi' helstu embættismanna stofnunar- innar. Jafnframt því sem auglýst var staða tryggingayfirlæknis var auglýst staða tiyggingalæknis, sem jafnframt gegnir starfi stað- gengils tryggingayfirlæknis. Þar er um að ræða mun viðaminni stöðu og um hana sóttu 7 umsækj- endur. Stöðunefnd Landlækniá vakti athygli á reynslu þriggja umsækjenda, þ.á m. Júlíusar, af störfum tryggingalæknis svo og eins hinna fímm, sem hæfastir voru taldir og sóttu einnig um stöðu tryggingalæknis. Júlíus fékk fjögur atkvæði af fimm í þessa stöðu. Nefndi engar upphæðir Þegar Tryggingaráð ræddi við Júlíus vegna umsókna hans var hann spurður út í skattamál sín. Hann kvaðst aðeins hafa haft sam- skipti við skattstjóra vegna upp- hæða sem bæði hefðu verið til hækkunar og lækkunar álagning- ar hans og mátti á honum skilja að þar hafi verið um óverulegar Ijárhæðir að ræða. Júlíus nefndi engar upphæðir í því sambandi við Tryggingaráð. Kvað hann sam- skiptum sínum við skattayfírvöld að fullu lokið. í ljósi þeirra upplýs- inga og umsagna stöðunefndar taldi meirihluti ráðsinbs (4 af 5) rétt að mæla með Júlíusi Valssyni í stöðu tryggingalæknis.“ JÓHANNES Pálmason formaður safnaðarsljórnar Hallgríms- kirkju afhenti danska sendiherranum, Klaus O. Kappel, eintak af Passíusálmunum á dönsku við athöfn í kirkjunni í gær. Passíusálmarnir komnir út á dönsku „Omengaður trú- arboðskapur“ PASSÍUSÁLMARNIR á dönsku í þýðingu séra Björns Sigurbjörnsson- ar sóknarprests í Lyngby komu út í gær. Danskt útgáfufyrirtæki, ANIS forlag í Kaupmannahöfn, er aðili að útgáfunni og annast dreifingu henn- ar í Danmörku en Hið íslenska Biblíu- félag dreifír bókinni hérlendis. Efnt var til athafnar í Hallgríms- kirkju í gær vegna útkomu Passíu- sálma Hallgríms Péturssonar á dönsku, að viðstöddum þýðanda verksins, sóknarprestum, formanni safnaðarstjórnar Hallgrímskirkju, forsætisráðherra, biskup íslands og fleiri góðum gestum. Prentaðir 90 sinnum Sr. Ragnar Fjalar Lárusson Reykjavíkurprófastur sagði frá því í ávarpi sínu að miðað við handbærar upplýsingar ættu Passíusálmarnir að hafa verið prentaðir í heild 90 sinnum og auk þess brot af þeim eða hluti þeirra fímm sinnum. Meðal þeirra útgáfa er „Hallgrímur Pjeturssons Passionsaimur" þýðing á dönsku eft- ir sr. Þórð Tómasson sem út kom árið 1930. „Brátt komast prentanirnar á ann- að hundraðið og er það engin furða, slíkur sem fjársjóður sálmanna er, hvort sem litið er á ytri gerð þeirra, tungutakið og skáldaflugið eða innri gerð; þann ómengaða trúarboðskap sem þeir flytja. Það er gleðidagur í dag í Hallgrímskirkju að bæta nýrri þýðingu Passíusálmanna við útgáfu- safnið," sagði Ragnar Fjalar við þetta tækifæri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.