Morgunblaðið - 08.03.1995, Síða 14

Morgunblaðið - 08.03.1995, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Snarpar umræður í bæjarstjórninni um Skinnaiðnað Saka meirihluta um vald- níðslu við stjórnarkjör Miðstöð fólks í atvinnuleit Guðmund- ur og Steingrím- ur mæta FRAMBJÓÐENDUR stjórn- málaflokkanna verða gestir í Miðstöð fólks í atvinnuleit næstu vikur og munu þeir kynna stefnumál flokka sinna m.a. í atvinnumálum og svara fyrirspurnum þátttakenda. Alþingismennimir Guð- mundur Bjamason, Fram- sóknarflokki, og Steingrímur Sigfússon, Alþýðubandalagi, verða gestir miðstöðvarinnar í dag, miðvikudaginn 8. mars, en miðstöðin er opin frá kl. 15.00 til 18.00. Allir em velkomnir að hlýða á mál þeirra og koma sjónar- miðum sínum á framfæri. Kaffi og brauð verður á borð- um þátttakendum að kostnað- arlausu og dagblöðin liggja frammi. FULLTRÚAR minnihlutans í bæjar- stjóm Akureyrar sökuðu meirihlut- ann um valdníðslu við kjör í stjóm Skinnaiðnaðar hf. á aðalfundi í fyrradag. Þórarinn E. Sveinsson sem kjörinn var formaður stjórnar- innar taldi minnihlutann misskilja málið. Snörp umræða varð um mál- ið á fundi bæjarstjómar Akureyrar í gær. Ágreiningur er uppi milli fulltrúa meiri- og minnihluta um hvort fram- kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar, fyrrverandi formaður stjórnar Skinnaiðnaðar, hafí verið fulltrúi Akureyrarbæjar eða Iðnþró- unarfélagsins í stjórninni. Vakti furðu Sigurður J. Sigurðsson, Sjálf- stæðisflokki, sagði fyrirtækið hafa verið endurreist eftir gjaldþrot ís- lensks Skinnaiðnaðar fyrir tilstuðlan Akureyrarbæjar en það sjónarmið ætíð verið uppi að bærinn yrði aldr- ei meirihlutaeigandi fyrirtækisins. Það hefði því vakið furðu þegar í ljós hafi komið að bærinn myndi tilnefna þrjá menn í stjórn fyrirtæk- isins, en um slíkt hefði ekki verið rætt á fundi bæjarráðs í fyrri viku. Hann liti því svo á að umboð bæjar- stjóra á aðalfundinum hafi ekki ver- ið marktækt nema að hluta. Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðu- bandalagi, lýsti einnig yfir óánægju með málsmeðferð við stjórnarkjörið. Fram til þessa hefði verið samstaða innan bæjarstjórnar um hvernig staðið er að tilnefningum í stjórnir fyrirtækja sem bærinn ætti hlut í. Hún taldi óskynsamlegt að bærinn væri að sækjast eftir að vera í meiri- hluta stjórnar fyrirtækisins, það væri andstætt sjónarmiðum sem uppi hefðu verið við endurreisn þess. Þórarinn E. Sveinsson, Fram- sóknarflokki, sagði það síst hafa vakað fyrir meirihlutanum að sýna valdníðslu við stjórnarkjörið. Hann liti svo á að frá upphafi hafi bærinn átt þrjá fulltrúa í stjórninni, hann hefði verið fulltrúi fyrrverandi minnihluta á síðasta kjörtímabili og fráfarandi formaður, framkvæmda- stjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar, hefði verið annar af tveimur fulltrú- um fyrrverandi meirihluta bæjar- stjórnar, enda hefði félagið ekki haft burði til að ná manni inn í stjómina með rúmlega 6% eignar- hluta. Sá sæti áfram í stjórninni með stuðningi starfsmanna, en þeg- ar sér hefði verið ljóst að starfs- menn næðu ekki fulltrúa í stjórnina hefði hann lagt til að fulltrúi þeirra yrði fastur bókari á fundum stjórn- ar. Sigurður J. sagði við umræðuna að það væri deginum ljósara að bæjarstjóm Akureyrar hefði kosið tvo fulltrúa í stjórnina og leitt væri til þess að vita að Þórarinn hefði talið sig einn af þremur fulltrúum bæjarins í stjórninni allt liðið ár. Útflutningur á fiskafóðri frá fóðurverksmiðjunni Laxá hefur þrefaldast Morgunblaðið/Rúnar Þór JÓNAS Þór Unnarsson og Einar Arnaldsson að störfum í fóður- verkmiðju Laxár, en þar var verið að pakka fyrir Norðmenn. mnm TRAÐARLAND Gott einbýli sem er hæð og kj. um 225 fm auk 36 fm bílsk. Útgangur úr stofu út á verönd. Fallegur garður. Verð 15 millj. ENGJASEL — LAUS STRAX Björt og snyrtileg 99 fm íbúð á 2. hæð ásamt stæði í bílskýli. Suðursvalir. Góð sameign. Verð 7,5 millj. MJÓAHLÍÐ — LAUS STRAX Efri hæðum 103 fm með sameiginlegum inng. íb. skiptist í 2 stofur og 2 stór svefnherb. Suðurvalir og góður suðurgarður. Nýl. gler, rafmagn og þak. Sérbílastæöi. Verð 7,5 millj. MARÍUBAKKI Góð 80 fm íbúð á 3. hæð ásamt 12 fm herb. í kjallara með aðgangi að snyrtingu. Nýtt eldhús og parket. Áhv. langtímalán 3,9 millj. Verð 6,5 millj. HJARÐARHAGI — SÉRHÆÐ Neðri sérhæð um 115 fm sem skiptist í samliggjandi stofur og 3 svefnherb. Gott eldhús með borðkrók, flísalagt baðherb. með glugga. Suðurgarður. Áhv. byggsj. 2,0 millj. Verð 9,8 millj. SUÐURLANDSBRAUT4A 15% aukning innanlandssölu MIKILL útflutningur á fiskafóðri frá fóðurverksmiðjunni Laxá hefur orðið til þess að starfsfólki verksmiðjunn- ar hefur verið fjölgað úr 8 í 14. Samningaviðræður standa yfir um sölu á fóðri til Danmerkur. Þá hefur sala á fóðri innanlands einnig aukist. Guðmundur Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Laxár, sagði að nóg væri að gera í verksmiðjunni, unnið væri á tveimur vöktum og hinn mikli útflutningur á fiskafóðri til Skrett- ing AS í Noregi hefði orðið til þess að starfsfólki hefði verið fjölgað umtalsvert eða um 75%, úr 8 í 14. Útflutningur þrefaldast Níu mánuðir eru nú búnir af rekstrarári fyrirtækisins en það hefst 1. júní. Á tímabilinu hefur sala á innanlandsmarkaði aukist um 15% og útflutningur þrefaldast mið- að við_ sama tíma á fyrra rekstrar- ári. Útflutningur fyrirtækisins á fiskafóðri er nær því að vera sá sami og öll innanlandssalan, en það hefur ekki gerst áður. Á þessu tímabili hefur Laxá selt um fjórðungi meira fóður en fyrirtækið seldi allt síðasta rekstrarár. „Það hefur gengið vonum framar og vissulega gleðjast menn yfir því,“ sagði Guðmundur. Eingöngu er nú flutt út til Noregs, en á næstunni mun fyrirtækið færa út kvíarnar því samningaviðræður hafa staðið yfir við danska aðila um sölu á fóðri þangað. Sýnishorn hafa verið send utan og innan skamms fer prufu- sending til Danmerkur. Þróun gæludýrafóðurs Á síðustu árum hefur verið unnið að þróun framleiðslu á gæludýrá- fóðri hjá Laxá með útflutning í huga, en að sögn Guðmundar á eftir að koma í ljós hvernig til mun takast. Fyrirtækið hefur átt í viðræðum við aðila sem hefur áhuga á að kaupa slíkt fóður. Umtalsverð vinna hefur verið lögð í þetta starf, en Guðmund- ur sagði þó að um nokkurs konar hliðargrein við aðra starfsemi væri að ræða. Laxá hefur átt í samstarfi við Iðntæknistofnun og áður við Rannsóknarráð ríkisins. □ □ □ □ Btofa eldhus o Betri frágangur-sama verð Flétturimi 4 -Til sýnis virka daga frá kl. 13-16. F; Alno-eldhúsinnr. + vönduð tæki. ■ Kahrs eikarparket. ■Flísalagtbað. ■ Sérþvottahús. * Sérstæði í bílgeymslu. (Bílgeymsla fylflir ekki öllum ib.). Dæmi: 3ja herb.trá 82,1 fm. Verð 7,5 millj. 4ra herb. frá 110 fm. Verð 9,4 millj. Byggingaraðili: Atli Eiríksson s/f. FJARFESTING FASTEIGNASALAÍ Borgartúni 31,105 Rvk., sími 624250 Nýtt tjald- svæði að Hömrum TVÆR nefndir Akureyrarbæj- ar, umhverfis- og skipulags- nefndir, hafa lagt til við bæjar- stjórn Akureyrar að hún sam- þykki uppbyggingu nýrra tjald- svæða að Hömrum norðan Kjarnaskógar í tengslum við útilífsmiðstöð sem skátar á Akureyri hafa í hyggju að reisa á svæðinu. Nefndirnar leggja jafnframt til að rekstri núverandi tjald- stæða við Þórunnarstræti verði haldið áfram. Bæjarráð hefur lýst velvilja gagnvart hugmynd skátahreyf- ingarinnar að koma upp um- hverfís- og útilífsmiðstöð í landi Hamra. Ráðið hefur einnig samþykkt uppbyggingu nýrra tjaldstæða á þessu svæði. Dalsbraut- Borgarbraut verði þjóð- vegur FRAMKVÆMDANEFND Ak- ureyrarbæjar leggur áherslu á í bókun sinni að samkomulag takist við yfirstjóm vegamála um að fyrirhuguð tengibraut, Dalsbraut-Borgarbraut, verði vegarkafli þjóðvegar á Akureyri og Vegagerðin veghaldari hans eins en eftir slíku hefur verið leitað. Háskólinn á Akureyri hefur sent bæjaryfirvöldum bréf þar sem ítrekað er mikil- vægi þess að hraðað verði fyrr- greindum vegaframkvæmdum um Sólborgarsvæðið, framtíð- arsvæði skólans. Framkvæmdanefndin vekur einnig athygli á að það sé mik- ið hagsmunamál fyrir íbúa bæj- arins í Gilja- og Síðuhverfi norð- an Glerár að vegatenging milli Glerárgötu og Hlíðarbrautar komist á sem fyrst. Samhliða viðræðum við Vegagerðina um vegahald á þjóðvegum innan bæjarmarka Akureyrar vill nefndin að teknar verði upp viðræður um að leita leiða til að hraða verklegum fram- kvæmdum við tengibrautina. Hún ásamt brú yfir Glerá verði fullhönnuð og framkvæmdir undirbúnar til útboðs og að miðað verði við að unnt verði að bjóða hana út í áföngum eða í heild sinni á fyrsta ársfjórð- ungi næsta árs. Stefnt er að því að allri áætlanagerð vegna fram- kvæmdanna verði lokið fyrir 15. október næstkomandi. 285 umsóknir um búfjár- leyfi BORIST hafa 285 umsóknir um búíjárleyfi í lögsagnarumdæmi Akureyrar. Sótt var um leyfi fyrir 1.151 hross og 337 kind- ur. Búfé á lögbýlum er ekki meðtaiið. Komið hefur í ljós að mis- ræmi er á milli fjölda búfjár og uppgefínnar aðstöðu til búfjár- halds og hefur umhverfisstjóra Akureyrarbæjar og dýraeftir- litsmanni verið falið að afgreiða búfyárleyfi til þeirra umsækj- enda þar sem engar athuga- semdir hafa verið gerðar við umsóknir. Þá mun umhverfís- stjóri láta kanna þær umsóknir þar sem um vafamál er að ræða °g leggja þær fyrir umhverfís- nefnd að nýju.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.