Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hagnaður SS
30 milljónir
Greiðslustaðan batnaði um 81 millión í fyrra
RÚMLEGA 30 milljóna króna
hagnaður varð af rekstri Sláturfé-
lags Suðurlands svf. á síðasta ári
skv. bráðabirgðauppgjöri félags-
ins.
Rekstrartekjur S.S. voru 2.740
milljónir á síðasta ári skv. bráða-
birgðauppgjörinu og eigið fé í árslok
273 milljónir. Um er að ræða 21%
aukningu eigin fjár frá fyrra ári.
Þetta kemur fram í fréttabréfi Slát-
urfélags Suðurlands sem sent er
félagsmönnum.
Ennfremur kemur fram að
greiðslustaða félagsins, þ.e. mis-
munur skammtímaskulda og
veltufjármuna, hafi batnað um 81
milljón á milli áranna 1994 og 1993.
Veltufjárhlutfall var 0,93 í lok síð-
asta árs skv. uppgjörinu.
í fréttabréfinu segir að þessa
jákvæðu þróun í rekstri félagsins
megi þakka hagræðingaraðgerðum
undanfarinna ára og stuðningi fé-
lagsmanna og starfsfólks við upp-
byggingu félagsins. Enn sé þó mik-
ið verk óunnið og nauðsynlegt að
styrkja fjárhag félagsins frekar til
að takast á við óvissar aðstæður í
framtíðinni.
Framleiðsla
Morgunblaðið/Kristinn
UMBÚÐAMIÐSTÖÐIN hf., Gámaþjónustan hf. og Kjötumboðið hf. hlutu viðurkenningu umhverfis-
ráðuneytisins í gær fyrir góða viðleitni í umhverfismálum á undanförnum misserum. A myndinni
eru f.v. þeir Benóný Ólafsson, framkvæmdasljóri Gámaþjónustunnar, Össur Skarphéðinsson, um-
hverfisráðherra, Guðmundur Karlsson, framkvæmdastjóri Umbúðamiðstöðvarinnar, Helgi Óskar
Óskarsson, framkvæmdastjóri Kjötumboðsins hf.
Vinsældir lýsis
aukast í útlöndum
LÝSI hf. í Reykjavík hefur um
nokkurt skeið flutt út lýsi til Finn-
lands og Eystrasaltsríkjanna og
selt undir eigin vörumerki. Á síð-
asta ári var verðmæti útflutningsins
um 13 milljónir króna sem er átt-
földun frá árinu áður.
Finnska lyfjafyrirtækið Oriola
OY hefur séð um sölu og markaðs-
setningu á lýsinu, en tilraunir með
útflutning á lýsi til Finnlands hafa
staðið yfir frá 1982. „Það er fyrst
nú sem þessi vinna er farin að skila
verulegum árangri," sagði Andri
Þór Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs hjá Lýsi, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Oriola hefur tekið að sér sölu og
markaðssetningu fyrir Lýsi hf. í
Eystrasaltsríkjunum. Þá er áætlað
að sala geti hafíst í Pétursborg í
lok þessa árs. í þessum löndum er
lýsi aðeins selt í apótekum og ný-
lega var salan tekin frá heilsuvöru-
deild Oriola og flutt í lyfjadreifínga-
deild. Andri sagði að sú breyting
hefði gefíst vel. Öflugt markaðsá-
tak hefði skilað stóraukinni eftir-
spurn eftir lýsi og miðað við söluna
fyrstu tvo mánuði þessa árs mætti
ætla að um töluverða aukningu
yrði að ræða á þessu ári miðað við
árið 1994.
í Finnlandi og Eystrasaltsríkjun-
um er selt hefðbundið þorskalýsi
ásamt lýsi með ávaxta- og mint-
bragði í samskonar flöskum og á
íslandi. Ásamt flöskulýsinu eru
seldar lýsisperlur. Þá stendur til
að hefja sölu á lýsi með sítrónu-
bragði, en sala á því er hafin hér
á landi.
Umhverfisráðherra
Heflum umræðu um
umhverfisskatta
HAGRÆN stjórntæki í umhverf-
ismálum á borð við mengunar-
skatta á iðnfyrirtæki munu vænt-
anlega ryðja sér til rúms í stað
boða og banna á næstu árum, að
sögn Össurar Skarphéðinssonar
umhverfisráðherra á ráðstefnu
um atvinnulífið og umhverfis-
málin í gær. Hann sagði umræðu
um umhverf isskatta skammt á
veg komna hér á landi og hvatti
samtök atvinnulífsins til að hefja
virka umræðu um málið.
Össur sagði að hagræn stjórn-
tæki við umhverfisvernd nýttu
sér kosti markaðarins og virkuðu
á sama hátt og verð á frjálsum
markaði. Þau væru yfirleitt talin
sveigjanlegri og hagkvæmari
kostur en boð og bönn, þar sem
fyrirtækin sjálf gætu valið um
besta kostinn til að ná settum
markmiðum. Flestir væru sam-
mála um að umhverfisskattar
gætu ekki verið viðbót við núver-
andi skattheimtu, heldur yrði að
fella niður aðra skatta á móti.
Laurens Jan Brinkhorst, fyrr-
verandi yfirmaður umhverfis-
mála framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins, sagði að notkun
hagrænna sljórntækja í ESB
væri enn að mestu á tilrauna-
stigi. Lítið hefði miðað í átt að
því að skattleggja útblástur kolt-
vísýrings; ellefu ríki hefðu sam-
þykkt að taka slíkan skatt upp
innan ESB en Bretar teldu að
slík skattlagning ætti að vera á
valdi hvers þjóðríkis.
Hitaveita
tekur 800
milljóna lán
HITAVEITA Akraness og Borgar-
fjarðar hefur undirritað samning
um lántöku hjá Sumitomo Bank í
Lundúnum að fjárhæð 15,4 milljón-
ir svissneskra franka. Þetta jafn-
gildir um 800 milljónum króna.
Lánið er tekið að jöfnu í sviss-
neskum frönkum ogjapönskum jen-
um og ber fasta vexti í þessum
gjaldmiðlum, 5,96% í frönkum og
4,85% í jenum. Það er til 10 ára
og er afborgunarlaust fyrsta árið.
Eftir það greiðast jafnar afborganir
af láninu að frátalinni síðustu
greiðslu sem nemur um þriðjungi
af lánsfjárhæð.
Láninu verður varið til að end-
urljármagna eldri lán. Ólafur
ísleifsson, framkvæmdastjóri al-
þjóðasviðs Seðlabankans, segir að
kjör lánsins megi telja hagstæð fyr-
ir Hitaveituna. Lánið sé í ýmsum
efnum sérsniðið að þörfum hennar
m.a. með tilliti til lánstíma, sem sé
nokkru lengri en það sem algengt
sé á bankamarkaði um þessar
mundir. Þá sé sérstaklega séð fyrir
óskum Hitaveitunnar hvað gjaldm-
iðlaskiptingu og vaxta- og afborg-
unarskilmála áhræri.
Skeljungur með sína bestu afkomu frá upphafí
Hagnaðurinn nam
um 125 milljónum
SKELJUNGUR hf. skilaði alls um 124,9 milljóna hagnaði á sl. ári saman-
borið við 95,7 milljóna hagnað árið áður. Velta félagsins nam alls 6.013,6
milljónum en var 6.173 milljónir árið áður. Umtalsverður bati varð á
rekstri félagsins í fyrra en rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði jókst
úr um 153,5 milljónum frá árinu 1993 í um 217,2 milljónir eða um
63,7 milljónir. Eigið fé Skeljungs í árslok nam alls 2.468,9 milljónum
og hækkaði um 110,4 milljónir milli ára. Eiginfjárhlutfall var 48% eða
óbreytt frá fyrra ári. Aðalfundur Skeljungs verður haldinn nk. þriðju-
dag, 14. mars og verður þar lögð'fram tillaga um að greiddur verði
10% arður til hluthafa.
Kennir gegnum Intemet
un frá Florida State Uni-
versity. Hann er núver-
andi deildarforseti
stjórnunardeildar í upp-
lýsingamiðlun í Marriott
School of Management
við Brigham Young Uni-
versity. Timm er höfund-
ur og kemur fram á
fjölda þjálfunarmynd-
banda á ofangreindum
sviðum, sem notuð eru
af mörgum framsækn-
ustu fyrirtækjum Bandaríkj-
DR. PAUL R. Timm,
einn fremsti sérfræð-
ingur Bandaríkjanna, á
sviði þjónustugæða og
prófessor við Brigham
Young University er nú
staddur hér á landi á
vegumStjórnunar-
félags íslands til fyrir-
lestrahalds. Hann gefur
þó ekki nemendum sín-
um í Utah fri meðan á
Islandsdvölinni stendur
heldur verður hann með
kennslustund héðan síðdegis í
dag gegnum Intemetið.
Dr. Timm hefur doktorsgráðu
í kerfisbundinni upplýsingamiðl-
anna. A morgun, fimmtudag,
verður Dr. Timm á tveimur
námstefnum á vegum Stjómun-
arfélags íslands á Hótel Sögu.
Kristinn Bjömsson, forstjóri Skelj-
ungs, segir þetta bestu afkomu fé-
lagsins frá upphafí. Bata í rekstri
megi einkum rekja til þess að tekist
hafí lækka sameiginlegan kostnað
og dreifingarkostnað. „Eigin dreif-
ingarkostnaður okkar er að fjárhæð
162 milljónir á móti 180 milljónum
árið áður. Hins vegar þurftum við
að greiða í flutningsjöfnunarsjóð
umfram endurgreiðslur úr sjóðnum
39,6 milljónir en árið áður greiddum
við 38,2 milljónir."
í annan stað segir Kristinn að
bætt afkoma skýrist að minni af-
skriftum útistandandi skulda. „Við
höfum verið með mjög ríflegar nið-
urfærslur á skuldum á undanfömum
árum og þurftum því að færa mun
minna niður fyrir árið í fyrra.“
Þyngri rekstur á þessu ári
Um horfur í rekstri félagsins á
þessu ári segir Kristinn að geisileg
óvissa ríki á olíumarkaðnum um
þessar mundir. „Ég held að það
megi gera að því skóna að rekstur
félagsins verði þyngri á þessu ári en
á sl. ári, sérstaklega vegna mikillar
samkeppni. Þá verðum við að und-
irbúa okkur mjög vel undir það að
erlendir aðilar komi inn á mark-
aðinn. Það gæti þýtt mjög miklar
breytingar á starfsemi félagsins
bæði hvað varðar mannhald, fjárfest-
ar og aðhaldsaðgerðir.“
Metsala á
Lion King-
mynd-
bandi
Los Angeles. Reuter.
SALA myndbanda með teikni-
myndinni The Lion King hefur
slegið öll met síðan þeim var
dreift í verzlanir í síðustu viku
að sögn Walt Disney fyrir-
tækisins og verð hlutabréfa í
því hefur ekki verið hærra í
52 vikur.
Fyrstu fjóra dagana seldust
20 milljónir eintaka af The
Lion King í verzlunum fyrir
350 milljónir dollara.
Metsalan kom fjárfestum á
óvart og varð til þess að hluta-
bréf í Disney hækkuðu um 2.25
dollara í 56 dollara í kauphöll-
inni í New York.
Fyrsta daginn var salan á
The Lion King meiri en saman-
lögð sala þriggja vinsælustu
teiknimynda fyrirtækisins til
þessa fyrsta daginn þegar þær
voru til sölu.
Þær þijár myndir voru
Mjallhvít og dvergarnir sjö,
Aladdín og Fríða og dýrið, sem
Disney kallar metsölumynd-
bönd allra tíma. Mjallhvít hefur
selzt í 26 milljónum eintaka.
Kunnugir spá því að
hagnaður Disneys af The Lion
King muni nema einum millj-
arði dollara.
Wellcome
tekur tilboði
Glaxo
London. Reuter.
BREZKA lyfjafyrirtækið
Wellcome hefur viðurkennt
ósigur í baráttu sinni gegn níu
milljarða punda tilboði Glaxo í
fyrirtækið og lagt til við hlut-
hafa að þeir taki boðinu.
Wellcome sagði að þetta
hefði verið ákveðið, þar sem
tveir hugsanlegir „bjargvættir"
hefðu ákveðið að bjóða ekki í
fyrirtækið. John Robb stjómar-
formaður sagði að sáralitlu
hefði munað að hærra boð hefði
borizt.
Sameinað fyrirtæki
Wellcome og Glaxo verður
stærsta lyfjafyrirtæki heims.
Að sögn Wellcome var einn
hugsanmlegur bjóðandi, sem
kunnugir telja að hafi verið
Zeneca Group Plc, reiðubúinn
að bjóða meira en Glaxo, ef
Wellcome Trust, sem á 39,.5%
í Wellcome, gerði ráðstafanir
til þess að tryggja góðar líkur
á árangri.