Morgunblaðið - 08.03.1995, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 21
LISTIR
„Tjöpömipinnipi“
MYNDLIST
Ráöhús Reykjavíkur
INNSETNING
OG HLJÓÐVERK
MAGNÚS PÁLSSON
Opið alla daga til 10. mars.
Aðgangur ókeypis.
NORRÆN samvinna er efst á
baugi þessa dagana, og heyrst hefur
orðtak sem umsnúið segir „allt nor-
rænt vel er vænt“. Slíkar bylgjur eru
árlegar og rísa sennilega hæst í því
landi sem Norðurlandaþing er haldið
hvetju sinni. En þinginu hér fylgir
að þessu sinni ekki aðeins fjölmenni
sem hefur atvinnu af fundarsetum,
heldur einnig líflegt listalíf, sem er
rétt að benda fólki á að nýta sér
eins og kostur er.
Einn angi þessa er sýning Magn-
úsar Pálssonar í Ráðhúsinu við Tjörn-
ina, sem er haldin í boði íslandsdeild-
ar Norræna myndlistarbandalagsins.
Starfsemi þessa bandalags fer sjald-
an hátt í fjölmiðlum, en er merkileg
engu að síður. Það var stofnað 1945,
löngu áður en norræn samvinna var
almennt komin á þann grunn sem
nú er; í gegnum tíðina hefur það
stuðlað að ýmsum merkum sýningum
jafnt á Norðurlöndunum sem utan
þeirra, og lagt sitt fram til að kynna
norræna list í víðara samhengi. Það
var síðan aðalhvatinn að stofnun
listamiðstöðvarinnar á Sveaborg við
Helsinki og þó margt misjafnt hafi
verið sagt um þá starfsemi í gegnum
árin er ljós að án hennar væri nor-
rænt listalíf fátækara en ella.
1995 mun meðal annarra hluta
vera norrænt myndlistarár og er von
á ýmsum uppákomum vegna þessa.
Sýning Magnúsar er aðeins fyrsti
anginn af því sem koma skal við
almenna kynningu á samtímalist í
víðu samhengi, hér á landi sem á
hinum Norðurlöndunum.
Undanfarin ár hefur Magnús Páls-
son verið dijúgur við að skapa það
sem mætti nefna „þjóðlega hljóð-
skúlptúra"; í þessum verkum hefur
gjarna verið blandað saman suttum
sögum, samræðum o.fl. sem vísa
sérstaklega til íslenskrar tilveru, og
sett fram í samhengi við aðra hluti
í einni innsetningu.
Þetta er einnig rammi verksins
hér, sem helgast af Tjörninni og sög-
um úr lífi listamannsins, sem tengj-
ast henni. Staðsetningin í Ráðhúsinu
er þannig mikilvægur þáttur innsetn-
ingarinnar, en hér hefur
Magnús raðað upp gler-
brotum af ýmsu tagi í
oddfleyg á gólfið, sem
getur hvoru tveggja
táknað Tjömina sjálfa
og flug anda og gæsa,
sem þar dvelja allan árs-
ins hring. Umhverfis
hefur hann síðan komið
fýrir litlum hátölurum,
en frá þeim hljóma í
vönduðum lestri sex sög-
ur og ljóð sem Magnús
hefur umritað í það sem
kalla mætti „P-mál“.
Dæmi um brot úr sögu-
texta:
„Stypyttapa apaf hap-
afmepey vapar repeist ipí
Tjöpörnipinnipi frap-
amupundapan rapáðhe-
perrapabúpústapa-
ðnupum. Þepettapa vap-
ar veperk Nipínupu
Sapæmupundssopon.
Möpörgupum lipistap-
amöpönnupum, epein-
kupum þepeim mepeð
apafstrapaktipið sjop-
óðapandipi ipí blopóðip-
inupu, þopóttipi epekkipi
Magnús Pálsson: Oddaflug andanna
hluti innsetningar.
vapænt upum þepettapa
frapamtapak. Épeg vapar
epeinn þepeirrapa."
Lesi nú hver sem betur
getur.
Æfíngin er fljót að
skila textanum lesnum,
en heyrnin er lengi að
átta sig á inntakinu. Það
sem hlustandinn nemur
einkum er taktfastur
hrynjandi lestursins, en
lesendur hafa náð gífur-
legu valda á þessu flúraða
máli og skila því með af-
brigðum vel. Sögurnar
eru skemmtilegar í sjálfu
sér þegar maður hefur
lesið þær, en framsögpiin
er mikilvægari en textinn,
og vísar til hrynjandi
náttúrunnar, þar sem
skiptast á umferðarniður
og fuglagarg, árstíðir vet-
urs, vors, sumars og
hausts með öllum þeim
breytingum sem þær hafa
í för með sér í þessu
hjarta Reykjavíkur.
Það ætti að vera sjálf-
sagður hluti ferðar niður
að „Tjöpörnipinnipi" á
næstu dögum að koma
við í Ráðhúsinu og kynn-
ast þessari léttleikandi
innsetningu lítillega.
Eirikur Þorláksson
Nýjar bækur
Höfuð konunnar
eftir Ingibjörgu
Haraldsdóttur
HÖFUÐ konunnar
eftir Ingibjörgu Har-
aldsdóttur er komið
út og er þetta fimmta
ljóðabók hennar. Ingi-
björg hefur ekki að-
eins getið sér gott orð
sem ljóðskáld því hún
er einn mikilvirtasti
þýðandi okkar um
þessar mundir og hef-
ur meðal annars þýtt
skáldsögur
Dostojevskís og Búlg-
akovs.
Ljóðabókin Höfuð
konunnar skiptist í
frumort ljóð og þýð-
Ingibjörg
Haraldsdóttir
ingu á löngum ljóða-
bálki eftir eina af
merkustu skáldkonum
Rússa á þessari öld,
Marínu Tsvetajevu.
Mál og menning er
útgefandi. Bókin er 96
bls. Filmuvinna, prent-
un og bókband fór
fram í G. Ben.- Eddu
prentstofu hf. en kápu
gerði Ingibjorg Ey-
þórsdóttir. Ut úr búð
kostar bókin 2.680
krónur en fyrir féiaga
í Ljóðafélagi Máls og
menningar kostar hún
1.980 krónur.
FRABÆRT
VERÐ
Hyundai Grace er mjög
rúmgóður og aflmikill
sendibfll sem hefur vakið
athygli um allan heim og
fengið góðar viðtökur á
íslandi. Enda ekki furða því
1.097.974
kr. án vsk.
- á götuna
verðið skapar honum algjöra
sérstöðu á markaðinum.
Vél............. 2,4 Iítra
Hestöfl..............122
Lengd............ 4,74 m
Hæð................1,97 m
Breidd............ 1,69 m
Flutningsrými... 5,8 m3
Burðargeta .... 1,275 kg
Bestu ævintýri
barna verðlaunuð
FLEIRI en tvö þúsund börn frá
Islandi, Svíþjóð, Noregi og Dan-
mörku tóku þátt í ævintýrasam-
keppni fyrir börn á Norðurlöndum,
sem var skipulögð af Páátaloistit-
utti, menntastofnun fyrir ritlist í
Finnlandi. Norræni menningar-
sjópurinn veitti stuðning.
I Finnlandi hófst ævintýrasöfn-
un fyrir fáeinum árum, en bestu
ritin hafa verið verðlaunuð á
nafndag Satu (Sögu) í finnska al-
manakinu, þann 18. október.
Það er ætlast til að verk barna
frá hinum Norðurlöndunum verði
verðlaunuð þann 8. mars á ári
hveiju í framtíðinni, en þá er
nafndagur Sögu í Svíþjóð.
Besta ævintýrið frá Islandi var
„Drekinn á Rammeyju“ eftir
Hauk Pálsson, frá Svíþjóð „Björn-
en som inte var en björn“ eftir
Anders Seidin, frá Noregi „Den
snohvite stovengelen" eftir Kari
Lise Hogseth og frá Danmörku
„Sylifinda" eftir Lone Bolander
Simonsen og unnu þau fyrstu
verðlaun. Aðalverðlaunin, ferð til
Múmínlands, vann Anders Seidin.
f flokki íslenskra barna urðu
úrslit þessi:
9-10 ára. 1. „Drengurinn og
prinsessan" eftir Hörpu Viðars-
dóttur, 2. „Álfarnir sigraðir“ eftir
Hafdísi Vigfúsdóttur, 3. „Sagan
um bæina tvo“ eftir Svanborgu
Jónsdóttur.
11-13 ára. 1. „Drekinn á
Rammeyju“ eftir Hauk Pálsson,
2. „Brúðkaup dóttur greifans“ eft-
ir Ragnheiði Sturludóttur og 3.
„Gulleggið" eftir Sjöfn Andrés-
dóttur.
í dómnefndinni sátu Petri Pirin-
en frá íslandi, Maj Sazelius frá
Svíþjóð, Grete Randsborg Jensen
frá Noregi og Ingerlise Koefoed
og Lisbeth Algreen frá Danmörku.
Allir skólar sem tóku þátt í sam-
keppninni fá heiðursskjal. Auk
þess verða bækur gefnar til viður-
kenningar. Tilgangur með þessari
samkeppni er að styðja ævintýra-
hefðina og finna nýjar sögur.
Bestu ritin verða gefin út í bókar-
formi í haust.
Ath! í boði er 3 sæta bekkur
og vsk. grind á 70.000,-kr.
Fáanlegur með bensín- eða díselvél.
HYunoni
...til framtíðar
ÖRKIN 3114-1-75-30