Morgunblaðið - 08.03.1995, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 23
John Lennon á Kjarvalsstöðum
10.000 manns hafa
séð sýninguna
NÚ stendur yfir sýning á grafíkmyndum
Johns Lennon á Kjarvalsstöðum. Sýningin
er farandsýning sem fer víða um Evrópu.
Nú þegar tvær vikur eru liðnar frá sýning-
aropnun hafa um 10.000 manns séð sýning-
una.
I kynningu segir: „John Lennon sem tón-
listarmaður hafði mikil áhrif á menningu
20. aldarinnar. Hann lagði einnig stund á
myndlist áður en hann hóf tónlistarferil
sinn og allan feril sinn gerði hann myndir
sem lýsa nánasta umhverfi hans. Myndirnar
á þessari sýningu voru unnar á tveim tíma-
bilum frá 1968 til 1969. Þar á meðal eru
annarsvegar myndir sem voru fyrst gefnar
út eftir dauða Johns Lennon og hinsvegar
steinþrykksmyndaröðin „The Bag One
Portfolio" sem var brúðargjöf Johns til
Yoko konu sinnar og var fyrst sýnd opin-
berlega í janúar Í979 í The London Art
Gallery í New Bond Street í London. Höf-
uðtema hennar er upphafning ástar Johns
á konu sinni Yoko Ono og samlíf þeirra
hjóna. Á öðrum degi sýningarinnar var
henni lokað af Scotland Yard og átta eró-
tískar steinþrykksmyndir gerðar upptækar
vegna þess að þær þóttu ósæmilegar og
særðu siðferðiskennd manna. Upp úr þessu
hófst mikið fjölmiðlafár um heim allan,
lögreglurannsókn og síðar réttarhöld, en
nokkrum mánuðum síðar var málið látið
niður falla.
Þessi sýning er óvenjuleg að því leyti að
hún er sölusýning, þ.e. allar myndirnar á
sýningunni eru til sölu. Myndirnar eru á
ýmsu verði, allt frá 14.000 krónum upp i
tæplega 500.000 krónur. í tengslum við
þessa sýningarferð var ennfremur gefin
út sýningarskrá og gerðar peysur með
áþrykktum myndum af verkum Johns
Lennon og fer nú hver að verða síðastur
að festa kaup á þeim.“
Sýningin verður opin daglega til 26.
mars, frá kl. 10-18. Kaffistofa Kjarvalsstaða
verður opin á sama tíma.
Kóramót
íslenskra
kvennakóra
FYRIRHUGAÐ er að halda kóramót
íslenskra kvennakóra dagana 23.-25.
júní nk. Að þessu sinni mun Kvenna-
kór Reykjavíkur sjá um mótið sem
verður nú haldið í annað sinn. Hið
fyrra var í umsjón Kvennakórsins
Lissýjar og var haldið að Ýdöium í
S-Þingeyjarsýslu. Kóramótinu mun
ljúka með stórtónleikum þar sem
allir kóramir koma fram og flytja
sameiginlega dagskrá.
Kvennakór Reykjavíkur var form-
lega stofnaður vorið 1993 og er því
einungis tæpra tveggja ára. Um 100
konur syngja með kórnum um þessar
mundir. Einnig starfrækir Kvenna-
kórinn Gospelkór og Skemmtikór,
auk kórskóla og annarrar starfsemi.
Þeir kórar sem hafa áhuga á að
taka þátt í kóramótinu eru vinsamleg-
ast beðnir um að tilkynna þátttöku
fyrir 20. mars á skrifstofu Kvenna-
kórs Reykjavíkur, fyrir hádegi.
.....♦ ■ ♦-----
Framlög til
starfsemi at-
vinnuleikhópa
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur, að fengnum tillögum frá út-
hlutunarnefnd Leiklistarráðs, úthlut-
að framlögum af fjárlagaliðnum
starfsemi atvinnuleikhópa 1995, sem
hér segir:
1. Möguleikhúsið starfsemi á yfir-
standandi ári. Styrkúrinn verði bund-
inn einu ótilteknu verkefni kr.
2.000.000.
2. Leikhópurinn 10 fingur til upp-
setningar á sýningu eftir skáldsög-
unni The Mists af Avalon kr.
2.000.000.
3. Hermóður og Háðvör til upp-
setningar á nýju ónefndu leikriti eft-
ir Árna Ibsen, kr. 2.000.000.
4. Alheimsleikhúsið til uppsetning-
ar sýningarinnar Konur skelfa eftir
Hlín Agnarsdóttur kr. 2.000.000.
5. íslenska leikhúsið til uppsetn-
ingar sýningarinnar í djúpinu eftir
Maxim Gorki, kr. 900.000.
6. Frjálsi leikhópurinn til leikferð-
ar utan Reykjavíkur með sýninguna
Sannur vestri eftir Sam Shepard kr.
400.000.
23 leikhópar sóttu um framlög til
54 verkefna. Til ráðstöfunar voru
15.200.000 kr., þar af hafði þegar
verið ráðstafað 5.400.000 kr. til
Leikhúss frú Emilíu sem er loka-
greiðsla upp í starfssamning.
-......♦ ------
„Hörundsár“
á Mokka
BJARNI Sigurbjörnsson sýnir um
þessar mundir átta olíumálverk í
Mokka við Skólavörðustíg og ber
yfirskriftina Hörundsár.
Í kynningu segir: „Þrátt fyrir að
verkin markist af óheftum abstrakt
espressjónisma fela þau í sér sterka
fígúratífska skírskotun."
Bjarni lauk BFA frá Art Institute
í San Francisco 1992 og er nú á loka-
stigi mastersnáms við sama skóla.
Haföu fjármál fjölskyldunnar
í góðum höndum!
ISLANDSBANKI
- í takt viö nýja tíma!
Átaksvika um fjármál heimilanna er kjörinn
tími til ab huga ab fjármálum fjölskyldunnar
og koma reglu á þau.
NÁMSKEIÐ í HEIMIUSBQKHALDl
Islandsbanki býbur upp á námskeiö í heimilisbókhaldi til
aö auka skilning á mikilvœgi þess aö fjármál fjölskyld-
unnar séu vel skipulögö. Þátttakendum veröur kennt aö
skipuleggja fjármál heimilisins og sérstakri möppu undir
heimilisbókhald veröur dreift á námskeiöinu.
RÁÐCjÖF VEGNA CREIÐSLUERFIÐLEIKA
Einstaklingar og fjölskyldur geta sótt um aöstoö vegna
greiösluerfiöleika hjá íslandsbanka. Þjónusta bankans felst
meöal annars í því aö kanna fjárhagsstööu viöskiptavinar-
ins og greiöslubyröi allra skulda.
ÚTLÁNAÞjÓNUSTA
Upplýsingablöö liggja frammi í útibúum bankans um
lántöku og greiöslubyröi lána. Viö mat á lánsumsóknum
leggur bankinn áherslu á greiöslugetu og fjárhagsstööu
viöskiptavinarins.
SPARIÞJÓNUSTA
Reglulegur sparnaöur
er góö leiö til aö byggja
upp fjárhagslegt öryggi.
Spariþjónustan getur tengst öllum
Sparileiöum íslandsbanka og hver og einn
velur lengd sparnaöartímans sjálfur.
LÆKKUN KOSTNAÐAR MEÐ RÉTTU CREIÐSLUFQRMI
Flestir velja tékkareikninga til aö hafa greiöan aögang
aö því fé sem notaö er daglega en mikilvœgt er aö nota
þá á sem hagkvœmastan hátt. íslandsbanki hefur gefiö
út upplýsingabœkling þar sem fjallaö er m.a. um notkun
á peningum, debetkortum, tékkheftum og annarri
greiöslumiölun og lœkkun kostnaöar viö greiöslur.
Bœklingurinn liggur frammi í öllum útibúum bankans.
Kynntu þér málib hjá íslandsbanka, fjölmargir
möguleikar eru í bobi. Allar nánarí upplýsingar
veita þjónustufulltrúar bankans.