Morgunblaðið - 08.03.1995, Side 35

Morgunblaðið - 08.03.1995, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 35 I upphafi skyldi endinn skoða LÍTIL vetrarferð sem farin var fyrir nokkru kemur mér í hug þegar ég sest niður og skrifa nokkur varnaðarorð og leiðbeiningar vegna ferða vélsleðamanna og annarra útivistarmanna um afrétt og hálendi Rangárvallasýslu. Þetta svæði er stórt og stór- skorið og hættulegir staðir mjög víða: Um páska fyrir nokkrum árum vorum við nokkrir ferðafélagar saman á vélsleðum í Landmannalaugum. Á laugardagsmorgun var veður albjart og gott færi. Við fyllt- um eldsneytistanka, en tókum lítið nesti og stormuðum svo af stað „Laugaveginn", áleiðis í Þórsmörk. Ferðin frammúr gekk mjög vel. Við vorum ekkert að flýta okkur, stoppuðum víða á leiðinni og nutum ferðarinnar. Skömmu eftir hádegi vorum við í Þórsmörk. Kom þá í ljós að fólkið sem við ætluðum að hitta þar var í göngu, svo við tókum því rólega fram eftir degi. Um sex leytið fórum við aftur af stað í Laugar. Þá var enn albjart veður. Okkur gekk mjög vel í Álftavatn, stoppuðum þar stutt og hugðumst síðan fara upp hjá Háskerðingi. Þegar þangað kom var orðið allvont veður. Við gerðum nokkrar til- raunir til að komast upp og áfram, en urðum frá að hverfa um síðir í Álftavatnsskála. Vor- um við þar fram -eftir kvöldi, reyndum aftur undir miðnætti, en urð- um enn að hverfa frá vegna veðurs. Bjuggum við þá um okkur í skála FÍ við Álftavatn. í skálanum var gas- hitari svo að vistin var þokkaleg, að minnsta kosti fyrir suma. Við höfðum skilið mest allan okkar farangur eft- ir í Laugum, þar á meðal svefnpoka og mest allan mat. Einn okkar fann svefnpoka í skálanum og hertók hann strax, erida pokinn af sömu stærð og maðurinn. Óþarfí er að geta þess hver maðurinn er, en fyrsti stafurinn í nafninu hans er Stebbi. Nú, þarna reyndum við að sofa um nóttina og tókst það eitthvað. Um morguninn reyndum við enn að fara upp en allt sat við það sama með veðrið þegar Vélsleðamenn mega ekki grafa undan ferða- frelsi sínu, segir Einar Brynjólfsson, með ógætilegum akstri eða ölvunarakstri. upp kom, ekki glóra að halda áfram svo snúa varð til baka. Við héldum síðan áfram tilraunum fram eftir degi en tókst ekki. I farangri okkar voru tveir farsím- ar, en báðir voru óvirkir. Ég týndi loftnetinu af mínum, en hinn var rafmagnslaus. Að þeir voru ekki af sömu gerð var mjög óheppilegt, loft- netin pössuðu ekki á milli. Þetta þýddi að við gátum ekki látið vita hvernig ástatt var hjá okkur. Staðan var að verða slæm, ekki nægjanlegt eldsneyti til þess að fara fram í Þórs- mörk aftur, enda lítið betra veður á þeirri leið. Um síðir tókum við þá ákvörðun að fara vestur að Laufafelli. Það var frekar vont að komast yfir fljótið, háir lóðréttir kantar. Við fórum um Dalakofa, Mógilshöfða og Dómadal. Þar gekk svosem sæmilega, enda vorum við kunnugri þegar þangað kom. Allan tímann var veðrið leiðin- legt, oftast vont. Þegar í Laugar kom var Sigurður skálavörður í þann mund að kalla út leitarflokk, enda allur okkar farangur þama í Laugum svo vistin gat varla hafa verið góð hjá okkur. Þetta ferðalag slapp fyrir hom hjá okkur. Við vorum allir í flokki þeirra sem teljast vanir ferðamenn, en þetta hefði getað farið illa. Af þessari sögu má læra það að í upphafí skyldi end- irinn skoða. Við hefðum átt að hafa með okkur meiri farangur, svo mik- inn að við gætum legið hvar sem var svo lengi sem þurfti. Fjarskiptasam- band er auðvitað mjög gott að hafa í lagi og ferðaáætlun sé þess kostur. Ferðir á þessu svæði eru hættulegar ef illa sést til, eins og annars staðar á landinu. Ef ég ætti að fara að lýsa öllum þeim stöðum sem eru hættulegir þá yrði það of langt mál. Mér fínnst erfiðast að fást við opið vatn, ís og krapa. Þeir sem blotna í miklum kulda ættu að koma sér í hús svo fljótt sem kostur er. Sé of langt í hús er um að gera að fara úr strax Einar Brynjólfsson og vinda fötin eða fara í þurrt ef það hefur þá ekki líka blotnað. Glærur í brekkum eru afar hættu- legar og sýnu verst er, ef djúp gil eru undir. Ferðir milli Veiðivatna og Landmannalauga og fleiri staða liggja gjaman yfir djúp vötn. ís á þessum vötnum er gjaman traustast- ur út á miðju, en vakir em gjaman við land, en geta verið víðar. Um þessar mundir er mjög hættu- legt að fara hefðbundna leið frá Jök- ulheimum í Grímsvötn og skildi afla sér upplýsinga hjá þeim sem til þekkja. En miklir dýrðar staðir eru til hér á landi og eru margir þeirra á þeim slóðum sem engin hætta er að ferðast um, ef menn viðhafa lág- marks aðgæslu. Mér þykir miður ef vélsleðamenn em sjálfír að grafa undan ferðafrelsi sínu með ógætilegum akstri og á stundum undir áhrifum áfengis. Þessu getum við auðveldlega breytt. Við verðum að breyta ferðamátanum þannig að ekki fréttist af óhappaferð- um sem hægt hefði verið að komast hjá. Til þess að við fáum enn um langan tíma að ferðast um landið okkar ættum við að taka höndum saman og vinna að úrbótum á því sem aflaga hefur farið í ferðum okk- ar. Höfundur er vélsleðamaður og formaður Flugbjörgunar- sveitarinnar á Heliu. Höldum landinu okkar hreinu HEIMILISTÆKI (GroupTEKAAG.) ÞANN 26. febrúar sl. stóð Ungmennafé- lag íslands, UMFÍ, fyrir málþingi á hótel Loftleiðum undir yfir- skriftinni „Umhverfið í okkar höndum". Með málþingi þessu var formlega hrint af stað umhverfisverkefni UMFÍ 1995, sem UMFÍ stendur að í samstarfi við um- hverfisráðuneytið, sameinuð bændasam- tök og samband ís- lenskra sveitarfélaga. Verkefnið nýtur einn- ig stuðnings Farmanna- og fiski- mannasambands íslands, Sjó- mannasambands . íslands, Vél- stjórafélags íslands og Landssam- bands íslenskra útvegsmanna. Framkvæmdastjórn verkefnisins er í höndum nefndar sem UMFí veitir forystu. Meðal gesta á fjölsóttu málþingi voru forseti íslands frú Vigfís Finnbogadóttir, sem var heiðurs- gestur málþingsins, og umhvefis- ráðherra Ossur Skarphéðinsson auk fulltrúa frá þeim samtökum sem að verkefninu standa. í ávörp- um og erindum voru kynnt nokkur atriði tengd umhverfismálum, sem unnið hefur verið að á vegum þeirra aðila sem hér taka saman höndum í sameiginlegri sókn til bættrar umgengni um fjörur og vatnasvæði landsins. Fram kom að þrátt fyrir að tiltölulega stutt sé síðan að menn fóru að gefa umhverfismálum verulegan gaum, þá hefur ýmislegt áunnist. Þar má nefna að átak var gert til að hvetja sjómenn til að koma með allt sorp í land. Einnig má benda á átak í sorp- og fráveitumálum sveitarfélaga, lífrænan landbúnað, úttekt á vegum umhverfisráðu- neytisins á mengun í sjó við ísland og verkefni sem UMFI hefur stað- ið fyrir um hreinsun meðfram veg- um. Síðast en ekki síst skal minn- ast á „Fósturbörnin", sem var þriggja ára verkefni þar sem ung- mennafélög landsins tóku að sér umsjón með ákveðnum svæðum. Eins og áður er nefnt, verður kröftum þessa verkefnis beint að fjörum og vatnasvæð- um landsins. Verkefn- ið skiptist í þrennt, kynningar- og upplýs- ingaherferð, málþing og fræðslufundi vítt um land og hreinsun á rusli úr fjörum og af ár- og vatnsbökk- um. Ruslið verður skráð og flokkað þannig að upplýsingar fást um hvers konar rusl rekur á fjörur og jafnvel hvaðan það er upprunnið. í fram- haldi af því verður leitað leiða til að minnka það rusl sem berst á fjör- ur og bæta umgengni við nátt- úruna. Það má öllum vera ljóst að. góð umgengni við náttúruna. er einn sá besti arfur sem við getum skil- Umhverfið, hafið og landið, geyma fjöregg þjóðarinnar. Freygarð- ur Þorsteinsson skrifar um þjóðarátak til umhverfisverndar. að til framtíðarinnar. Við tölum um landið okkar sem eitt hið hrein- asta í heimi og það er okkar að halda því hreinu. Við lifum á tækniöld en við megum samt ekki gleyma því að landið og hafið í kringum það skapa grunn að þeirri velsæld sem við lifum í. Við þurf- um að vera meðvituð um að við berðum ábyrgð á að spilla því ekki. Ég hvet alla landsmenn til að kynna sér um_ hvað „umhverfis- verkefni UMFÍ 1995“ snýst og íhuga hvernig þeir geta orðið að liði. Við þurfum að ná fram hug- arfarsbreytingu og bæta um- gengni okkar við náttúruna. Þetta er eitthvað sem snertir okkur öll, umhverfið er í okkar höndum. Höfundur er efnaverkfræðingur. Freygarður Þorsteinsson Ennþá er lag að nýta kynningar- afsláttinn á þessum úrvalstækjum! Tilboð 1: Kr. 39.950 stgr. Innifalið tilboði: Efri ofn HT 510. Litur: Hvítur eða brúnn. Yflr-/undirhiti og grill. Með snúningsgrillteini, sjálfhreinsibúnaði og klukkurofa. Helluborð E60/4P. Litur: Hvítt, brúnt eða stál. 4 hellur með stjórnborði. Vifta C-60. Litir: Hvít eða brún. 3 hraða með Ijósi Tilboð 2: Kr. 68.950 stgr. Innifalið tilboði: Neðri ofn HT 610MEmeð 7 kerfum. Litur hvítur eða brúnn. Yflr-/undirhiti og grill. Með snúningsgrillteini, sjálfhreinsibúnaði, blæstri og klukku. Keramik- Vifta C-601 CLASSIC. Litir: Hvít eða brún. 3hraðameðmálmsiuogJjósi. Tilboð 3: Kr. 43.900 stgr. UPPÞVOTTAVEL 7 kerfi, tekur borðbúnað fyrir 12 manns. Mál: H 85 x b 59,5 x d57 cm. 'OTTAVÉL 6 kerfi, tekur borð- búnað fyrir 8 manns'. Mál: H 85 x b 44,5 x d 57 cm. Kr. 49.950 stgr. ^ Athugiö að unnt er að breyta tækjum innan tilboða 1 og 2, þannig að það virki sem grunnur fyrir öðrum tækjum VersCun fyrir aCCa Op0 mdnudaga tiíföstudaga frá kl. 9-18, (augardagafrá (f. 10—14. Jaxgfeni 9sími 588- 7332. '4,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.