Morgunblaðið - 08.03.1995, Síða 43

Morgunblaðið - 08.03.1995, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 43 MIIMNINGAR RAGNA LORENTZEN + Ragna Lorentzen fæddist í Kaupmannahöfn 18. októ- ber 1910 og andaðist 11. janúar 1995. Hún nam við Hafnarhá- skóla og lauk þar mag. art.- prófi í norrænum fræðum. Sam- hliða því námi lagði hún stund á islensku hjá Sigfúsi Blöndal bókaverði og Jóni Heljgasyni prófessor. Ragna hélt til Islands og nam íslensku við Háskóla íslands árið 1933 hjá prófessor- unum Alexander Jóhannessyni og Sigurði Nordal. Einnig nam hún íslensku við dvöl á bónda- bænum Oddsstöðum í Lundar- reykjadal í tvo mánuði sama ár. Ragna varð kennari við mennta- skólann í Khöfn að háskólaprófi loknu. Eftir tvo áratugi á þeim vettvangi hóf Ragna kennslu við VIÐ andlát Rögnu Lorentzen rifj- ast upp löng kynni við mikla heið- urskonu. Hún var nátengd íslend- ingum um langa hríð, eða allt frá því að hún stundaði nám í íslensku við Háskóla íslands og naut þar leiðsagnar hinna færustu kennara. Allt líf Rögnu snérist um nám og kennslu á Iangri ævi. Hún ræktaði samband sitt við land okkar og þjóð af fágætri kostgæfni. Fyrstu kynni mín af Rögnu urðu 1964, er tveir tugir íslenskra kenn- ara víðs vegar að af landinu tóku þátt í dönskunámskeiði í Kennara- háskólanum í Kaupmannahöfn um hálfsmánaðar skeið. Okkur birtist þar kona ein, sem þá var 54 ára og fullorðinsleg í útliti, að okkur fannst. Hún ávarpaði okkur og Kennaraháskólann. Þar gegndi hún lektorsstöðu til aldurs- inarka. Einnig kenndi hún dönsku á námskeiðum íslensk- um nemendum i Kaupmanna- höfn og Reykjavík, ár eftir ár. Eftir embættislok kenndi Ragna íslensku í einkatímum á heimili sínu. Hún þýddi á dönsku tvær bóka Hjálmars R. Bárðarsonar: Fuglar íslands og ís og eldur. Ragna var sæmd fálkaorðunni fyrir dönskukennslu sína. Var afhending heiðursmerkisins eitt af síðustu embættisverkum Kristjáns Eldjárns, forseta Is- lands, í júlí 1980. Ragna var ein- hleyp alla ævi og á ekki afkom- endur, en í blaðaviðtali í mars 1994 sagði hún að nemendurnir hefðu verið sín fjölskylda. kynnti sig eins og kurteisra er sið- ur. Hún sagðist skilja íslensku, og þess vegna ættum við ekki að tala illa um sig. Aftur á móti sagðist hún ekki tala þessa tungu mikið. í tímum sátum við svo hjá Rögnu dag hvern fyrrgreindan tíma. Skól- inn er á mótum tveggja mikilla umferðargatna, er nefnast Emdr- upvej og Tuborgvej. Sjálf bygging- in er skólann hýsir nefnist í dag- legu tali Emdrupborg. Þarna stunda danskir framhaldsnám, eft- ir að hafa lokið námi í almennum kennaraskóla. Margir íslenskir kennarar hafa stundað nám í þess- ari ágætu menntastofnun. Danir ' eru menningarþjóð, og þar er menntun i miklum metum. Engum dettur í hug að stunda neitt starf, án þess áð hafa tilskilda menntun eða þjálfun til að takast það á hendur. Rögnu þótti vænt um ísland og Islendinga. Hún lagði mikið á sig þeirra vegna. Mörg sumur kom hún hingað og fómaði stuttu sum- arfríi sínu frá kennslu ytra til að standa fyrir námskeiði í dönsku í Reykjavík. Og hún tók ekki eyri fyrir þetta mikla starf sitt. En margar gjafir bárust henni. Hið eina sem hún fékk greitt voru ferð- irnar fram og aftur svo og hótel- herbergi. Ég heimsótti hana eitt sinn á Hótel Borg. Hún gerði ekki miklar kröfur til sjálfrar sín. Mun- aður hennar var að. sjálfsögðu bækur og þær átti hún margar, bæði á dönsku og íslensku, svo og fleiri málum, því að hún var mikil tungumálamanneskja. Lagði til að mynda fyrir sig grænlensku á efri ámm, og leiðbeindi dönskum kenn- urum í því sambandi. En víkjum aftur að námskeiðinu í Khöfn 1964. Ragna fór með okk- ur í skoðunarferðir. Ein ferðin var farin til æskuslóða skáldsins Mart- ins A. Hansens á Stevns á Sjá- landi, en við lásum einmitt bók hans Logneren á námskeiðinu. Aðra ferð fórum við suður á Man- arkletta. Þá fór Ragna með okkur í hið merka safn gamalla bæja og húsa frá fyrri tíma, sem er í Lyngby og nefnist Frilandsmuseet. Þetta er þeirra Árbæjarsafn. Ragna fór með okkur um stórborg- ina og var leiðsögn hennar okkur mjög lærdómsrík. Kaupmannahöfn geymir margar byggingar tengdar sögu okkar fyrr og síðar. Ekki má gleyma því, er Ragna bauð okkur á námskeiðinu heim til sín. Hún bjó lengi í leiguíbúð við Saborgtorg, en það er í borgar- hverfinu Soborg, sem telst til BJÖRN PÉTURSSON + Björn Pétursson var fæddur í Reykjavík 30. maí 1930. Hann lést í Reykjavík 1. mars, síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Jórunn Björnsdóttir frá Höfða í Þverárhlíð. Björn var annar í hópi fimm systkina. María var elst, f. 1924, lengi starfs- maður varnarliðs- ins og dvelur nú í Arizona, þá Björn, Ásthildur, 1934, starfsmaður þjá Samvinnuferðum-Landsýn, Jón Birgir, f. 1938, blaðamað- ur, og Stefania Ingibjörg, f. 1941, skrifstofumaður hjá Há- skóla íslands. Útför Björns fer fram frá Kapellu Fossvogs- kirkju í dag, og hefst athöfnin kl. 13.30. BJÖRN bróðir minn átti sín fyrstu æviár við Grettisgötuna, en þegar hann var fjögurra ára flutti hann í . nýtt einbýlishús sem foreldrar okk- ar höfðu byggt af miklum dugnaði í Skerjafirði, á Þjórsárgötu 3. Þar átti hann heima næsta aldarfjórð- unginn. Líf Bjössa var áþekkt þvi sem gerðist hjá drengjum á hans aldri. Hverfið þar sem við bjuggum, Litli Skerjafjörðurinn, átti eftir að taka stakkaskiptum á stríðsárun- um. Þá byggðu Bretar flugvöll í hverfinu með tilheyrandi róti og raski, hús voru rifín eða flutt í önn- ur borgarhverfi. Okkar hús fékk að standa í nágrenni flugbrautar. Eflaust hefur flugið mótað huga Bjössa. Á unga aldri tók hann til að nema flugvirkjun, var í fyrsta hópi flugvirkja sem lærðu hjá Flug- félagi íslands hf. og við Iðnskólann í Reykjavik. Hann fór líka í flugtíma hjá flugskólanum Þyt og lauk við sólópróf og hafði leyfi til að fljúga einn. Vélar og tæki voru hans svið. Hann hafði gaman af að dunda við bílana sína, litla Renault Hagamús og stóran Dodge Weapon, eða Víp- on eins og þeir voru kallaðir amer- ísku fjallabílarnir sem bandaríski herinn skildi eftir sig eftir stríðið. Eftir skyldu- nám hafði Bjössi starf- að hjá frystihúsinu Herðubreið, helstu kjötheildsölu landsins, þar sem nú er til húsa Lástasafn íslands. Hann vann hjá kjöt- búðinni Borg og síðar hjá varnarliðinu í flug- skýlum þess á Kefla- víkurflugvelli. Við Bjössa blasti björt framtíð við störf í flugmálum, þegar blikur dró á loft. Hann átti ekki mikið eftir af námi sínu í flugvirkjun, þegar vart varð við sjúkdóm þann, sem átti eftir að rústa framtíð hans alla. Andleg veiklun hans tók að þrengja sér fram á óvæginn og ógnvænleg- an hátt. Það var mikil áraun fyrir fjölskyldu hans og hann sjálfan að finna hvemig hann missti flugið og alla sína framtíðarsýn. Hann hætti námi og vinnu og leið óbærilegar andlegar kvalir. Enda þótt hann hafi reynt fyrir sér um skeið sem sjómaður og verkamaður var ljóst að framtíð hans var hrunin. Síðastliðin 38 ár hefur Bjössi verið heimilisfastur á ýmsum stofnunum, lengst af í Amarholti og nú síðustu árin í Víðinesi. Vil ég nota tækifærið og þakka því ágæta starfsfólki fyrir góða umönnun alla tíð. Þessi innilokun Bjössa á stofnun- um hefur ekki rofið tengslin milli hans og systkinanna, þau voru í föstum sessi og heimsóknirnar kunni hann vel að meta. Bjössi hafði gaman af að sjá sína nánustu sem færðu honum pakka með tób- aki, sælgæti og öðru smálegu. Hann var oft og einatt kátur og til í að spjalla um heima og geima, hann gat verið hnyttinn og frumlegur í hugsun. Hann fylgdist ótrúlega vel með, og hann skynjaði líka ógæfu sína. Alltaf blundaði í honum draumurinn um að komast af stað út í lífið að nýju. Af þessu gat aldrei orðið. Á sunnudaginn fyrir rúmri viku mætti Bjössi til morgunverðar í Víðinesi, hress og kátur, spjallaði við félaga sína, og fór aftur til herbergis síns. Þar dundu ósköpin yfir. Líkaminn gafst hreinlega upp. Hann var flutt- ur á gjörgæsludeild Borgarspítalans og á þeim spítala andaðist hann miðvikudaginn 1. mars síðastliðinn, saddur lífdaga. I dauðastríði sínu var Bjössi alltaf ákveðinn í því að standa upp aftur og ná kröftum sínum aftur. Svo varð ekki. Ég veit að nú er Björn bróðir okkar staddur á öðrum lendum, heill heilsu, og á fyrir höndum betri daga en á jörðunni okkar. Þar sam- einast hann góðum foreldrum okkar og öðrum sem á undan honum hafa horfið yfir móðuna miklu. Við systkinin biðjum góðan guð að leiða og vernda Björn bróður okkar. Jón Birgir Pétursson. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end- urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringl- unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Ákur- eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi í númer 691181. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmæl- isfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. bæjarfélagsins Gladsaxe. Þama kunni Ragna vel við sig. Bækur þöktu flesta veggi. Ég tók eftir því að ritverk Halldórs Laxness voru þarna í fmmútgáfum. Jafnan leit ég inn hjá Rögnu, er ég kom til Hafnar. Henni sýndi ég þýðingar mínar á smáljóðum danska skáldsins Piets Heins, og hvatti hún mig til að þau yrðu gefin út, með svohjóðandi áritun: „Vedlagte anbefaler jeg varmt til udgivelse. Ragna Lorentzen, mag. art. Soborg, 29.06. 1986.“ Ekki höfðu útgefendur hér heima trú á að þeir högnuðust á útgáfu þess- ara smáljóða og varð ég því að kosta hana. Ragna kom á heimili mitt í Reykjavík skömmu eftir að henni var veitt fálkaorða íslenska lýð- veldisins. Greinilegt var, að henni þótti vænt um þennan virðingar- og vináttuvott. Hún átti hann sannarlega skilinn. Skömmu síðar hlaut hún danskt heiðursmerki. Að loknu námskeiði í Kaup- mannahöfn sumarið 1964 sagði ég þetta í ljóði til Rögnu, sem ort var sem þakklætisvottur frá nám- skeiðsfólkinu íslenska fyrir fram- úrskarandi kennslu: Og vonin ekki varð þeim tál né vondar freistingar. Þeir lærðu dijúgt hið danska mál, og dásamlegt það var. Þeim léðist einnig leiðsögn góð um lendur máls og fen, þvi rétt að verki röggsöm stóð hún Rapa Lorentzen. í dönskunámskeiði hjá Rögnu hér heima sumarið 1969 tók ég einnig þátt, ásamt mörgum öðrum kennurum. Samur var áhuginn hjá henni, og enn var það skáldverk Martins A. Hansens, Legneren, sem hún las með okkur. Sannar- lega athyglisvert, en upphaflega var það smásaga, sem höfundurinn nefndi Isen bryder eða ísinn brest- ur. Þarna þökkuðum við Rögnu góða leiðsögn í námi um hálfsmán- aðar tímabil, og setti ég saman ljóð að því tilefni. Þar segir á einum stað: Öll er kennsla amstur erfíði og streð þeim, sem ekk eiga ungt og lipurt geð. Þér er þetta leikur; þín er fræðsla jöfn uppi á ísafoldu og í Kaupinhöfn. Og viðlagið, sem á við ljóðið Lille sommerfugl, er á þessa leið: Öll við þökkum þér það, sem kenndir hér. Allt hið þrotlausa starf þér vitni ber. Lifðu langa stund, laus við böl og und, heima á ljómandi Danagrund. Ragna Lorentzen hvílir nú í mold feðra sinna og mæðra. Hún skilaði farsælu ævistarfi. Þökk sé henni fyrir það allt. Auðunn Bragi Sveinsson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vei frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta- skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word- perfect eru einnig auðveld i úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs- ingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Höf- undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. HAFSTEINN GUÐNASON + Hafsteinn Guðnason fædd- ist á Brekkum í Hvolhreppi í Rangárvallasýslu 22. október 1932. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 19. febrúar siðast- liðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 28. febrúar. ELSKU Hafsteinn minn. Ég veit varla hvað ég á að skrifa. Minningarnar um þig hrannast upp í huga mínum. Þú og þinn yndislegi og einlægi hlátur eru efst í huga mér. Það var svo gaman að heyra og sjá hvað einlægnin og góð- mennskan gagnvart öllum var mik- il. Þú ræktaðir alla ættingja þína og vini svo vel og svo varstu svo fróður um okkur öll, fylgdist svo vel með okkur. Ég man fyrst eftir þér þegar þú varst á sjónum og þegar við fórum að ná í þig eða heimsækja til Reykjavíkur. Þá fengum við alltaf útlenskt nammi og gosdrykki í dós og það þótti okkur sko ekkert smá flott. Ég var alltaf full tilhlökkunar á þessum stundum. Þegar ég flyt til Reykjavíkur og hef mitt nám, tókstu mér og Þórdísi frænku opn- um örmum og leyfðir okkur að búa hjá þér á meðan við leituðum okkur að íbúð. Þá var nú oft voða gaman hjá okkur. ' Og í þessi átta ár sem ég hef ver- ið hér í Reykjavík, áttum við oft svo góðar stundir saman, t.d. þegar við vorum í jólagjafainnkaupunum að ég tali nú ekki um allar rútuferðimar austur fyrir fjall og alla góðu kaffi- bollana sem við drukkum saman. Elsku Haffi minn, megi góður Guð geyma þig. Minningarnar um þig lifa í huga mínum. Elsku afí og aðrir ættingjar, megi mátturinn styrkja ykkur í sorginni. Hafdís Gunnarsdóttir. Eiginmaður minn, t BJÖRN JÚLÍUSSON barnalæknir, Stóragerði 11, er látinn. Þórunn S. Kristjánsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐRÚNAR ÓLAFSDÓTTUR, Hjallaseli 55, Reykjavík. Unnur E. Melsted, Gunnar Melsted, Ástriður L. Eyjólfsdóttir, Gyða Hansdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.