Morgunblaðið - 08.03.1995, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 45
Liðakeppni dansskóla
Jóns Péturs og Köru
Pans
Ilótel ísland
LIÐAKEPPNI
DANSSKÓLANNA
Tíu lið - 4. marz 1995.
SL. LAUGARDAG stóð Dansskóli Jóns
Péturs og Köru fyrir liðakeppni í dansi á
Hótel íslandi. Alls voru tíu lið mætt til leiks
að þessu sinni, sem er helmings fjölgun frá
því í fyrra. Mikill fjöldi fólks fylgdist með
keppninni, sem hófst strax að lokinni nem-
endasýningu skólans, sem var víst hin bezta
skemmtun.
Það eru orð að sönnu að liðakeppni á
sífellt meiri vinsældum að fagna í íslenska
dansheiminum ef marka má fjölgun þeirra
liða sem tóku þátt í liðakeppni Dansskóla
Jóns Péturs og Köru síðastliðinn laugardag.
Það eru til mismunandi útgáfur á liða-
keppni, t.d. eins og var nú á laugardaginn
þar sem eitt lið byggist upp á 4 pörum,
annarsvegar 2 standarddanspörum og hins-
vegar 2 pörum sem dansa suður-amerísku
dansana. Þetta keppnisform er ákaflega
skemmtilegt og fjörlegt og brýtur svo sann-
arlega upp hið hefbundna keppnisform á
ánægjulegan hátt.
Liðakeppninni var skipt í tvo hluta,
keppni fyrir dansara 15 ára og yngri og
svo keppni 16 ára og eldri. Og að venju
voru það yngri liðin sem hófu leikinn. í liða-
keppni dansara 15 ára og yngri voru 6 lið
mætt til leiks, lið frá Dansskóla Sigurðar
Hákonarsonar, Danssmiðjunni, Nýja Dans-
skólanum, sameiginlegt lið frá Dansskóla
Heiðars Ástvaldssonar og Dansskóla Auðar
Haraldsdóttur og loks tvö lið frá gestgjöfun-
um. Sú skemmtilega nýbreytni var nú að
liðin voru látin kynna sig, þ.e. þau höfðu
búið til lítið kynningaratriði í samráði við
danskennarana sína. Atriðin voru mörg
hver ákaflega frumleg og vel úr garði gjörð.
Þá var komið að sjálfri keppninni. Yngri
SIGURVEGARAR í liðakeppni í flokki 15 ára og yngri komu úr Dansskóla Jóns
Péturs og Köru. Frá vinstri: Elísabet Sif Haraldsdóttir, Sigursteinn Stefánsson,
Berglind Ingvarsdóttir, Benedikt Einarsson, Svanhvít Guðmundsdóttir, Þröstur
Magnússon, Laufey K. Einarsdóttir og Hafsteinn Jónasson.
SIGURVEGARAR í liðakeppni 16 ára og eldri frá Dansskóla Jóns Péturs og
Köru. Frá vinstri: Erla Sóley og Arni Eyþórsbörn, Guðfinna Björnsdóttir, Egg-
ert T. Guðmundsson, Eygló K. Benediktsdóttir, Davíð Arnar Einarsson, Dag-
björt Rut Bjarnadóttir og Halldór Örn Óskarsson.
liðin dönsuðu átta dansa af samkvæmisdöns-
unum tíu og gerðu það með miklum sóma.
Af einstökum dönsum fannst mér cha cha
cha áberandi best dansað á laugardaginn,
af yngri hópnum, og hrein unun að horfa á
sterkustu pörin þar. Af standarddönsunum
fannst mér einna skemmtilegast að horfa á
Quickstep, þar varð ég vitni að ákaflega
fallegum dansi, en einnig að fullkominni
stýringu í dansi. Eitt parið dansaði hring
eftir hring, alltaf eitt og sér, stýrði sér ávallt
á autt svæði og engin pör gátu nálgast það,
fullkomin nýting á frekar litlum gólffleti.
Skemmtileg en alltof sjaldséð sjón! Það er
þó ekki hægt að segja að keppnin hafi verið
mjög spennandi því að yfirburðir sigurliðsins
voru nokkuð miklir en þó áttu liðin öll mjög
góða spretti. I keppni yngri liðanna fór lið
1 frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru með
sigur af hólmi.
Fjögur lið voru skráð til liðakeppninnar
í flokki 16 ára og eldri, lið frá Nýja Dans-
skólanum, sameiginlegt lið frá Dansskóla
Heiðars Ástvaldssonar og Dansskóla Auðár
Haraldsdóttur og loks tvö lið frá gestgjaf-
anum. Þessi lið byijuðu einnig á kynningar-
atriðum sínum. Atriðin í þessum flokki voru
hreint út sagt alveg frábær í alla staði,
glæsileg, fyndin og vel unnin. Þessi aldurs-
hópur dansaði alla tíu dansana að þessu
sinni og gerði með miklum „bravör“. Þó svo
einstakir dansarar hafi ekki verið í „essinu"
sínu þá var keppnin hörð og spennandi í
heild og mun jafnari en keppnin í yngri
flokknum. Allir dansarnir hjá þessu fólki
voru mjög vel dansaðir og ekki ástæða til
að taka einn dans út fyrir nema ef vera
skyldi “Pasóinn", hann var e.t.v. sístur og
hefur oft verið dansaður af meiri krafti en
á laugardaginn. Eins og fyrr segir var
keppnin í þessum flokki nokkuð spennandi,
en það var svo lið 1 frá Dansskóla Jóns
Péturs og Köru sem fór með sigur af hólmi
að þessu sinni.
Dómarar keppninnar voru sjö talsins og
stóðu sig með stakri prýði, þeir voru Her-
mann Ragnar Stefánsson fv.forseti D.í,
Gerður Harpa Kjartansdóttir, Haukur
Ragnarsson, Hinrik Norðfjörð Valsson, Jó-
hann Örn Ólafsson, Logi Vígþórsson og
Ólafur Geir Jóhannesson.
Þessi keppni var skemmtileg og vel skipu-
lögð í alla staði og allt gekk hratt fyrir
sig, eins og er nauðsynlegt í keppni af þessu
tagi. Liðakeppni sem þessi á svo sannarlega
bjarta framtíð.
Jóhann Gunnar Arnarsson
BBIPS
Arnör G. Ragnarsson
Bridsfélag Kópavogs
NÚ ER aðeins ein umferð eftir í
aðalsveitakeppni Bridsfélags Kópa-
vogs, og er staðan mjög spennandi.
Landssveitin 261
Ármann J. Lárusson 250
Ragnar Jónsson 240
Helgi Viborg 239
Magnús Torfason 231
Sveitakeppninni lýkur næsta
fímmtudagskvöld, 9. mars. Viku
seinna hefst þriggja kvölda butler.
Spilað er í Þinghól, Hamraborg 11,
og hefst spilamennska kl. 19.45.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Fimmtudaginn 23. febrúar spiluðu
18 pör í tveim riðlum.
A-riðill, 10 pör:
Þórarinn Ámason - Bergur Þorvaldsson 136
Ragnar Halldórsson - Vilhjálmur Halldórsson 126
MargrétBjömss. - Guðrún Guðjónsd. 114
B-riðill, 8 pör:
Sigurleifur Guðjónsson - Þorsteinn Erlingsson 97
Eyjólfur Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson 94
Fimmtudaginn 2. mars mættu 20
pör og spilað var í tveim riðlum:
A-riðill, 10 pör:
Þórarinn Ámason - Bergur Þorvaidsson 131
Ingunn Bernburg - Vigdís Guðjónsdóttir 124
Baldur Helgason - Haukur Guðmundsson 124
B-riðill, 10 pör:
Sigurleifur Guðjónsson - Eysteinn Einarsson 137
Eyjólfur Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson 125
Vilhjálmur Halldórsson - Oddur Halldórsson 113
Bridsdeild Húnvetninga
Spilaður var eins kvölds tvímenn-
ingur sl. miðvikudag.
Úrslit:
Jón S. Tryggvason - Bjðm Friðriksson 219
Kári Sigurjónsson - Eysteinn Einarsson 191
Páll Hannesson - Ólafur Bergþórsson 189
Hermann Friðriksson - Hlynur Angantýsson 172
Miðvikudaginn 8. mars hefst 3
kvölda Barómeter. Skráning stendur
yfir hjá Grími Guðmundssyni í síma
686589.
Bridsfélag Breiðfirðinga
Staðan að loknu einu kvöldi í hrað-
sveitakeppninni.
ívarM.Jónsson 523
Ingibjörg Halldórsdóttir 500
Gaflarar 489
GuðlaugurSveinsson 487
Nicolai Þorsteinsson 484
Bridsfélag Hreyfils
Mánudaginn 6. mars lauk Board
a Match keppni félagsins. Efstu
sveitir urðu:
sv. Daníels Halldórssonar 285
sv. Rúnars Gunnarssonar 260
sv. Birgis Kjartanssonar 242
sv. Sigfúsar Bjamasonar 239
Mánudaginn 13. mars ’95 hefst
Butler tvímenningur og eru menn
hvattir til þess að mæta.
Bridsdeild
Bar ðstrendingafélagsins
Nú er lokið aðalsveitakeppni deild-
arinnar með sigri sveitar Halldórs
Þorvaldssonar. Með honum spiluðu
Sveinn Þorvaldsson, Páll Þór Bergs-
son, Helgi Hermannsson, Hjálmar S.
Pálsson og Siguijón Harðarson.
Röð efstu sveita varð eftirfarandi:
sv. Halldórs Þorvaldssonar 293
sv. Þórarins Árnasonar 291
sv. Óskars Karlssonar 280
sv. Halldórs B. Jónssonar 277
sv. Friðgeirs Guðnasonar 250
Mánudaginn 13. mars nk. hefst 5
kvölda tvímenningur, Barómeter. Spil-
uð forgefin spil. Skráning hjá ísak í
síma 632820 á vinnutíma og Ólafi í
síma 5571374 á kvöldin og hjá BSÍ í
síma 879360. Spilað er í Þönglabakka
1, kl. 19.3w0. Ef fólk er stundvíst er
dahægt að skrá sig á staðnum.
Happdrætti Slysavarnafélags íslands
Dregið hefur verið í fyrsta útdrætti happdrættisins
(aukavinningar).
Aðeins dregið úr greiddum miðum.
Eftirtaldir aðilar hlutu vinning:
1. Ferð fyrir tvo í tvær vikur til Mallorka eða Benidorm, miði nr. 5590,
Pálína Oddsdóttir, Seltjarnarnesi.
2. Ferð fyrirtvotil Dublir,, miði nr. 50099,
Drífa Garðarsdóttir, Reykjavík.
3. Ferð fyrir tvo til Dublin, miði nr. 54142,
Rannveig Eiríksdóttir, Kirkjubæjarklaustri.
Næsti útdráttur úr seldum miðum er mánudaginn 13. mars.
Af tæknilegum ástæðum verða vinningar ekki birtir fyrr en 14. mars; kl. 20.55 á
RÚV og kl. 20.30 á Stöð 2 og í Morgunblaðinu 15. mars.
Kynningarfundur
_Dale .
Carnegie
þjálfun®
Fimmtudagskvöld kl.
20.30 að Sogavegi 69.
Námskeiðið
Konráð Adolphsson
D.C. kennari
✓ Eykur hæfni og árangur einstaklingsins.
✓ Byggir upp leiðtogahæfileika.
✓ Bætir minni þittog einbeitingarkraftinn.
✓ Skapar sjálfstraust og þor.
✓ Árangursríkari tjáning.
✓ Beislar streitu og óþarfa áhyggjur.
✓ Eykur eldmóðinn og gerir þig hæfari.
Fjárfesting í menntun
skilar þér arði ævilangt
Innritun og upplýsingar í síma:
581 2411
V7S4
©
STJORNUNARSKOUNN
Konráö Adolphsson, Einkaumboö fyrir Dale Carnegie® námskeiðin