Morgunblaðið - 08.03.1995, Qupperneq 48
48 MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Simi 5691100 • Simbréf 569 1329
Ekkí bara skyld-
ur, líka rétt-
ur, eða hvað?
Tommi og Jenni
Biddu hundinn Því miður, Upptekinn? Að gæta baunabelgsins er
þinn að koma hann er upp- að vera upptekinn.
út að leika... tekinn...
Frá Eiríksínu Kr. Ásgrímsdóttur og
Guðnýju S. Marinósdóttur:
KENNARAR eru ríkisstarfsmenn og
eiga að framfylgja stefnu stjórn-
valda í skólamálum skv. grunnskóla-
lögum. Til þess að öðlast kennslu-
réttindi þarf kennari að mennta sig
í þrjú til fjögur ár í háskóla. Nám
kennara sem útskrifast úr Kennara-
háskóla íslands felst í víðtækri þekk-
ingu í uppeldis- og sálarfræðum,
kennslufræði ásamt öllum þeim
greinum sem kenndar eru í grunn-
skólanum. Auk þess velja allir eina
eða tvær greinar sem sérsvið. í
umræðum um skólamál kemur
stundum fram sú skoðun að allir
geti stundað kennslu. Er virðing
fyrir menntun kennara og námi
nemenda ekki meiri en svo? Störf
kennara eru mjög fjölbreytt og krefj-
andi hvar sem þeir eru í íslenska
skólakerfinu og skal tekið dæmi um
kennara sem kennir einum bekk í
grunnskóla. Hann er með ákveðinn
fjölda nemenda sem hafa ólíkan
bakgrunn og geta þess vegna verið
mjög misjafnir að þroska og getu
til náms. Samt skal kennarinn sinna
bæði bekknum í heild og sjá til þess
að sérhver einstaklingur fái kennslu
við sitt hæfi, en því eiga nemendur
rétt á skv. grunnskólalögunum.
Kennarar eyða löngum tíma í að
skipuleggja starfið, útbúa kennslu-
gögn, fara yfir verkefni, sækja nám-
skeið ár hvert til þess að fylgjast
sem best með og halda góðu sam-
bandi við forráðamenn nemenda
sinna. Því það er nú ekki eins og
margir halda að kennarar undirbúi
sig bara einu sinni undir kennslu og
noti þær áætlanir síðan aftur og
aftur. Það er ákveðið virðingarleysi
fyrir kennslustarfmu og námi nem-
enda að halda slíku fram. Kennslan
miðast við þá einstaklinga sem fá
kennsluna á hveijum tíma. Skyldur
kennarans eru margar og aukast frá
ári til árs, við þessu eiga kennara
að taka þegjandi og hljóðalaust.
Mörgum sem ijalla um kennara-
starfið verður oft tíðrætt um skyldur
kennara gagnvart nemendum og
heimilum. Kröfurnar aukast stöðugt
og eðlilega vilja allir foreldrar allt
það besta fyrir sitt barn, en fáir
geta neitað því að umræðan í garð
skólastarfs og kennslu hefur oft á
tíðum verið frekar á neikvæðum
nótum en hitt. Umræður um skóla-
starf og kennslu hafa bjargað margri
veislunni og auðveldað sumum hár-
skerum samræður við viðskiptavini
sína, en sem betur fer heyrast líka
jákvæðar raddir og mættu þær
vissulega vera háværari. Skyldur
foreldra eru að okkar mati að veita
barninu fæði, klæði og ástúð, sjá
um að bamið sæki skóla, fylgjast
með námi barnsins, styðja og sýna
áhuga á verkum þess og veita því
aga og leiðsögn í gegnum lífíð. For-
eldrar eiga rétt á því að börnin fái
kennslu við sitt hæfi. Hver ber
ábyrgð á því? Ríkisstjórnin ber
ábyrgð á skólakerfmu í heild. Kenn-
arar eru starfsmenn ríkisins. Kenn-
arar eiga rétt á þvi að standa vörð
um að starf þeirra sé metið og virt
að verðleikum. Nemendur eiga rétt
á því að foreldrar/forráðamenn
standi vörð um að stjómvöld fram-
fylgi í verki stefnu sinni í skólamál-
um. Fyrst og fremst þarf að efla
jákvæðni í garð skólastarfs og fólk
þarf að líta í eigin barm og segja:
Hvað get ég gert til þesss að bæta
vinnuaðstöðu barna og kennara?
EIRÍKSÍNA KR. ÁSGRÍMSDÓTTIR,
GUÐNÝ S. MARINÓSDÓTTIR,
kennarar og foreldrar.
Misskilningnr
um Votta Jehóva
Frá Gunnari Markússyni:
ÞAÐ er mikill misskilningur hjá fólki
að halda að þegar Vottar Jehóva
koma og banka upp á hjá manni
sé eina leiðin til þess að losna við
þá að taka við ritum þeirra. Það er
ekki þannig sem votturinn túlkar
þetta. Honum er skylt að túlka þetta
sem áhuga fólks á Vottum Jehóva
og það mun fljótlega fá „callback",
þ.e. þeir munu koma aftur og reyna
enn frekar að ná til fólksins og bjóða
því jafnvel „biblíunám". Loks er
hættulegt að tala við þá því þeir
koma gjarnan með spumingar um
heimsmálin og hvað fólki finnst og
ætlast til að fólk hefji viðræður um
málið. Ef það er gert, þá hafa þeir
náð tökum á fólki. Núna getur hann
sýnt þér ritin og ef til vill bækur
og þú verður opnari fyrir „túlkun"
þeirra á Biblíunni eða með öðrum
orðum glataður ef þú tekur þig ekki
á og losar þig úr þessu.
Eina árangursríka aðferðin til
þess að losna við Votta Jehóva er
að taka ekki við ritum þeirra, þá
eru mun minni líkur á að þeir komi
aftur og þá ekki fyrr en eftir mörg
ár. Hefja ekki viðræður við vottana,
heldur að láta þá tala, svara engum
spurningum, taka ekki við neinu,
bíða þar til þeir hafa lokið sér af
og kveðja. Umfram allt er allra
mikilvægasta atriðið að vera kurt-
eis, það skaðar álit þeirra á öðru
fólki sem ekki em vottar, ef fólk
er dónalegt við þá og styður ofsókn-
arkenningu vottanna. Þetta þarf
ekki að vera erfítt, hagið ykkur ein-
faldlega eins og kristnu fólki sæmir
og sýnið kærleika og umburðar-
lyndi.
GUNNAR MARKÚSSON,
Hellissandi.
Allt efni sem birtist i Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.