Morgunblaðið - 26.03.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.03.1995, Blaðsíða 8
8 B SUNNUDAGUR 26. MARZ1995 MORGUNBLAÐIÐ Samstaöa á grundvelli einstak- lingshyggju Án sterkra tengsla á vettvangi einkalífsins og persónulegra samskipta innan ölskyldunnar er persónuþroski einstaklinganna í verulegri hættu, segir Axel Honneth, stjómmála- og félagsheimspekingur, í viðtali við Magnús Diðrík Baldursson, en Honneth mun flytja fyrir- lestur á vegum Siðfræðistofnunar Háskóla Islands 31. mars næstkomandi. Axel Honneth DAGANA 31. mars til 2. apríl efnir Siðfræðistofnun Há- skóla íslands til opinnar ráðstefnu undir heitinu „Fjölskyldan og réttlætið". Tilgangur ráðstefnunnar er að grafast fyrir um eðli og stöðu fjölskyldunnar í ljósi réttlæt- isins. í þessu tilefni er væntanlegur hingað til lands Axel Honneth, einn fremsti stjómmála- og félagsheim- spekingur Þýskalands, og mun hann halda opnunarfyrirlestur ráð- stefnunnar föstudaginn 31. mars, kl. 18. Axel Honneth er fyrrum nemandi Jiirgens Habermas, sem af mörgum er talinn fremstur nú- lifandi heimspekinga í Þýskalandi. Axel Honneth hefur ritað íjölmarg- ar bækur og verið gistipófessor í Kanada og Japan, en hann gegnir nú prófessorsstöðu við Freie Uni- versitát í Berlín. Magnús Diðrik Baldursson, heimspekingur í Berl- ín, hitti Axel Honneth að máli og ræddi við hann um viðfangsefni hans, brennandi spumingar sam- tímasiðfræði, réttlæti, samstöðu og ást, stöðu og vanda fjölskyld- unnar og um framlag hans til ráð- stefnunnar. „Hin hlið réttlætisins“ Þær gífurlegu tæknilegu, efna- hagslegu, þjóðfélagslegu og menn- ingarlegu breytingar sem átt hafa sér stað í vestrænum iðnríkjujn á síðustu áratugum hafa haft í för með sér mikla upplausn félags- legra og siðferðilegra gilda. Þessar breytingar hafa ekki numið staðar frammi fyrir hliðum háskóla og fræðistofnana, heldur mun óhætt að segja að þær hafi valdið straum- hvörfum í hugmyndum fræði- manna um inntak og eðli siðferðis- ins sjálfs. Til marks um þessa þróun er að á síðustu árum hefur hjá svo ólíkum hópum sem róttækum fem- ínistum og íhaldssömum samfé- lagssinnum sífellt látið hærra í þeirri skoðun að viðteknar hug- myndir okkar um réttlæti séu sjálf- ar að nokkru leyti afsprengi þeirr- ar veraldarsýnar sem auðkennir vestræna tæknihyggju og því hluti af vandanum sem við er að etja. í stað algildra og óhlutdrægra hugmynda um réttlæti verði að endurskoða siðferðisviðmiðin í ljósi þess raunveruleika sem stendur lífí einstaklinganna nær. I síðustu ritum þínum hefur þú tekið ákveðna afstöðu í þessari deilu með því að fjalla um það sem þú kallar „hina hlið réttlætisins". Hvað átt þú við með því? „Meginhugmyndin er sú að auk þess siðferðissjónarmiðs sem allt frá dögum þýska heimspekingsins Immanuels Kant hefur verið talið skipta höfuðmáli, það er jafnréttis- eða óhlutdrægnissjónarmiðsins, sem við höfum í huga öðru fremur þegar við tölum um réttlæti, séu til önnur siðferðileg sjónarmið sem eru jafn mikilvæg í félagslegum lífheimi okkar, en hafa verið van- rækt um langa hríð. Með þessu á ég við það sjónarmið sem femínist- ar hafa öðrum fremur dregið fram í dagsljósið á nýjan leik, nefnilega umhyggjuna. Hér er um að ræða siðferðilegt viðhorf sem er ekki beinlínis dreg- ið af óhlutdrægnissjónarmiðinu. Við horfum með öðrum orðum ekki hluttekningarlaust á fé- lagsumhverfi okkar og spyijum Ekkert samfélag get- ur þrifist í lýðræðis- legu og stjórnmála- legu tilliti ef ekki eru fyrir hendi forsendur til að þegnarnir geti a.m.k. orðað sam- eiginlega sögulega sjálfsmynd sína í opinberri umræðu hvernig við getum komið til móts við allar kröfur á réttlátan hátt, heldur er viðhorf okkar mótað af tillitssemi og umhyggju fyrir far- sæld raunverulegra annarra ein- staklinga. Einnig þetta sjónarmið er gagnkvæmt í persónulegum samskiptum á vettvangi einkalífs- ins. Einstaklingamir hafa persónu- leg samskipti eða bein afskipti af raunverulegum öðrum persónum á grundvelli gagnkvæmrar um- hyggju. Þetta er það sem ég kalla „hina hlið réttlætisins“. Svo er önnur spuming hvort til sé þriðja sjónarmiðið, sem einnig er „hin hlið“ réttlætisins, nefnilega sam- staðan, sem er ekki beinlínis af sama toga spunnin og umhyggjan. í skemmstu máli sagt er megin- hugmyndin alltaf sú að tefla fram, auk réttlætis-, jafnréttis- eða óhlutdrægnissjónarmiðsins, öðmm siðferðilegum sjónarmiðum sem skipta verulegu máli í siðferðilegri breytni okkar dags daglega.“ Kærleikur, réittlæti, samstaða í nýlegri bók þinni, „Barátta fyrir viðurkenningu“ [Kampf um Anerkennung, Frankfurt a.M.: Suhrkamp 1992], greinir þú á milli þriggja sviða siðferðisins, sem þú nefnir kærleika, réttlæti og sam- stöðu. Hvaða hlutverki gegna þessi svið í lífi okkar? Er eitthvert eitt svið öðrum yfirsterkara, til dæmis réttarsviðið sem eins konar rammi fyrir kærleika og samstöðu, eða er réttarsviðið sjálft háð eitthveiju öðru? „Það veltur á því frá hvaða sjón- arhomi ljtið er á málið hveiju sinni. Ég er sannfærður um að í nútíma- samfélögum gegnir réttarramminn stærsta og máttugasta hlutverk- inu. Við lítum ekki einasta á okkur sjálf sem handhafa réttinda, heldur fáum við ekki skilið samfélagið nema út frá fonnlegri, jafnri skipt- ingu réttinda. í þessari bók ætlaði ég — og þessi ætlun er skyld því sem ég fjallaði um undir heitinu „hin hlið réttlætisins" — með skír- skotun til þýska heimspekingsins Hegel, að gera grein fyrir þremur afbrigðum viðurkenningar sem eru afgerandi fyrir einstaklinginn. I persónulegri þroskamótun okkar verðum við öll, ef við erum svo lánsöm, fyrst þeirrar viður- kenningar aðnjótandi sem foreldr- ar veita bömum sínum. Þetta kalla ég kærleika og er viðurkenningar- háttur sem beinlínis tengist um- hyggju. í þessu tilviki erum við viðurkennd sem raunverulegir ein- staklingar með sérstakar, einstak- lingsbundnar þarfir. Þetta afbrigði viðurkenningar hefur varanleg áhrif. Ég tel óhætt að fullyrða að án þessarar viðurkenningar getur ekki mótast heildstæður persónu- leiki. Þannig horfir málið við frá sjónarhóli einstaklingsins. Ef málið er aftur á móti skoðað frá sjónarhóli samfélagsins er viðurkenning réttarins jafnvel enn mikilvægari, eins og ég gat um áðan. Þriðja tegund viðurkenning- ar er í senn flóknust og umdeild- ust, einkum í umræðunni sem hef- ur spunnist í kringum hina svoköll- uðu„samfélagshyggju“(„Kommun- itarismus"). Hér snýst spurningin um það hvort við sem þjóðfélags- þegnar ættum aðeins að líta á okkur sem handhafa réttinda eða einnig sem aðila er bindast sterk- ari böndum sameiginlegra gæða. Þetta væri frumgerð þeirrar viður- kenningar sem samstaða byggist á. Um þessar spurningar er fjallað í samfélagssinnaðri heimspeki samtímans." Sameiginleg sjálfsmynd Er hægt að reisa heil ríki á þeirri undirstöðu sem „hin hlið réttlætis- ins“ er? Fijálslyndir hugsuðir eru þeirrar skoðunar að hlutverk ríkis- ins sé fyrst og fremst að skapa almenna umgjörð og að spurningin um „gott líf“ sjálfum okkur til handa eða hvernig við viljum haga lífi okkar sé einkamál hvers og eins. Samfélagssinnarnir fullyrða aftur á móti að heild samfélagsins geti aðeins starfað eðlilega ef hin- ar smáu einingar þess gera það einnig. Samkvæmt þessari skoðun er heildin ekki aðeins formlegur rammi heldur lífræn heild sem verður að byggjast á sögulegri hefð. Við lestur síðustu rita þinna fær maður á tilfinninguna að þú berjist á tveimur vígstöðvum. í framhaldi af þessari spurningu mætti velta því fyrir sér hvort slík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.