Morgunblaðið - 26.03.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.03.1995, Blaðsíða 24
24 B SUNNUDAGUR 26. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ATVIN NUAUGIYSINGAR Atvinna óskast Ég er 30 ára iðnrekstrarfræðingur, með meistararéttindi í vélvirkjun. Hef reynslu sem framleiðslustjóri í áliðnaðarfyrirtæki og sem verslunarstjóri í blandaðri matvöruverslun. Andri Þorsteinsson, sími 38154. Hárgreiðslusveinn og nemi Bára Kemp, Hár og snyrting, óskar að ráða hárgreiðslusvein og nema, sem hefur lokið grunndeild iðnskóla. Upplýsingar í síma 622075. Aðalbókari Staða aðalbókara við embætti sýslumanns- ins á Patreksfirði er laus til umsóknar. Æskilegt er að störf geti hafist sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 10. apríl nk. Sýslumaðurinn á Patreksfirði, 20. mars 1995. Þóróifur Halldórsson. Vélstjóri Útgerðarfyrirtæki á Norðurlandi óskar að ráða vélstjóra með VS1 atvinnuréttindi til starfa á litlum rækjufrystitogara. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar. Umsóknir er tilgreini aldur og fyrri störf sendist skrifstofu okkar, fyrir 6. apríl. GUÐNIIÓNSS0N RÁÐGTÖF»' RÁÐNINGARÞTÓNUSTA HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22 Rútubílstjóri Vanur rútubílstjóri óskast í framtíðarstarf úti á landi. Aðeins fjölskyldumaður kemur til greina. Húsnæði fylgir. Upplýsingar um aldur, fyrri störf og fjöl- skyldustærð leggist inn hjá Mbl. fyrir 2. apríl nk., merktar: „H - 17549“. Fyrsta vélstjóra vantar á Sólrúnu EA-351, 147 tonna bát frá Árskógsandi, frá 15. apríl. Búseta á staðnum æskileg. Uppjýsingarísímum 96-61098 og 96-61946. Sumar við sjávarsíðuna Matreiðslumaður óskast á lítið hótel úti á landi. Áhugasamir leggi inn skrifleg svör á afgreiðslu Mbl. fyrir 1. apríl, merkt: „Kokkur - 16147“. Laus staða í Landbúnaðarráðuneytinu er laus til um- sóknar staða sérfræðings. Um er áð ræða tímabundna ráðningu í eitt ár. Krafist er háskólamenntunar í hagfræði eða sambærilegrar menntunar. Starfsreynsla í tengslum við landbúnaðarmál er æskileg. Umsóknir skulu berast Landbúnaðarráðu- neytinu, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík í síð- asta lagi 10. apríl nk. Landbúnaðarráðuneytið, 22. mars 1995. „Au pair“ - Þýskaland! Tvær þýskar fjölskyldur í Essen óska eftir „au pair“ í vor. Tilvalið fyrir vini. Nánari upplýsingar í síma 553 3240. „Au pair“ í Svíþjóð Glaðlynd og reyklaus.stúlka óskast frá ágúst '95 til sænskrar læknafjölskyldu í Gautaborg. Börnin, 3ja og 5 ára, eru að hluta á dagheimili. Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 15. apríl merktar: „Mynd og meðmæli". Tölvur Fjölbreytt starf Vantar starfsmann til að fara á milli fyrir- tækja til að kynna og sýna vörur tengdar tölvum. Starfið krefst hæfni í mannlegum samskiptum og að starfsmaður hafi bifreið til umráða. Umsóknir sendist til Mbl. merkt: G-101 fyrir 29. mars. ©radiomidun Rafeindavirki Radiomiðun hf. óskar eftir að ráða rafeinda- virkja. Starfið yrði fólgið í $ð sjá um uppsetningu og viðhald á siglinga- og fiskleitartækjum sem fyrirtækið selur. Leitað er að ábyggilegum einstaklingi sem býr yfir mikilli þjónustulund og reynslu á þessu sviði. Nánari upplýsingar veitir Kristján Gíslason framkvæmdastjóri í síma 622640. RAÐAUGÍ YSINGAR Atvinnuhúsnæði Rúmlega 70 fm húsnæði er til leigu. Húsnæðið er snyrtilegt, bjart og hlýtt. Heppi- legt til ýmissa nota. Góð aðkoma. Bílastæði. Upplýsingar gefur Ottó í síma 21123. Skeifan - til leigu 846 fm jarðhæð/kjallari. Hentar fyrir t.d. verslun eða iager o.fl. Upplýsingar í síma 872220 á kvöldin og um helgar í síma 681680. Til sölu 108fm jarðhæð í Dalshrauni 11, Hafnarfirði. Verð 3,9 millj. Áhvílandi 1,3 millj. Opið hús í dag milli kl. 14 og 17. Kaffi á könnunni. Sími 565 1048. Einnig til sölu Benz 608, pallbíll, skoðaður 1996. Skrifstofu-/lagerhúsnæði Til leigu eru ca. 185 fm skrifstofu- og lager- húsnæði á jarðhæð miðsvæðis í Reykjavík. Þrjú góð skrifstofuherbergi og stórt lager- pláss með stórum innkeyrsludyrum. Næg bílastæði. Tilvalið fyrir heildverslun eða iðn- fyrirtæki. Sanngjörn leiga. Laust fljótlega. Upplýsingar veittar í síma: 674940. Laugavegur Óska eftir verslunarhúsnæði til kaups eða leigu við Laugaveg. Vinsamlegast leggið inn upplýsingar á af- greiðslu Mbl. fyrir 30. mars merkt: „Traust verslun - 15030“. Við Grensásveg Til leigu 365 fm iðnaðarhúsnæði á götuhæð. Hentar fyrir léttan iðnað, lager eða sem geymsluhúsnæði. Gott verð. Upplýsingar í síma 656104 eftir kl. 18.00. Vinnustofa í miðbænum óskasttil leigu Myndlistarmaður óskar að taka á leigu hús- næði undir vinnustofu í miðbænum. Má vera óstandsett. Öruggar greiðslur. Svör sendist afgreiðslu Mbl., merkt: „N - 15782.“ Til leigu á Grensásvegi 16 Til leigu eru tvö samliggjandi herb. ca 36 og 12 fm á 4. hæð að Grensásvegi 16. Til greina kemur að leigunni fylgi símasvörun og önnur skrifstofuþjónusta eftir þörfum leigutaka. í sama húsnæði er rekin endurskoðunarskrif- stofa. Húsnæðið er laust nú þegar. Upplýsingar á skrifstofutíma í síma 568-5730. Bæjarhraun 20 Til leigu 2 rými á 2. hæð, 147 fm og 74 fm. í húsinu eru núna verkfræðingar, endurskoð- endur, tölvuþjónusta o.fl. Embætti sýslumannsins í Hafnarfirði verður í næsta húsi frá 1. nóvember. Einnig er til leigu við Reykjavíkurvegi 68, 68 fm skrifstofurými. Uppl. í símum 52980, 656287 og 985-31644. Smábátaeigendurl! Höfum erlenda kaupendurað úreldingabátum. Vinsamlegast sendið upplýsingar um bátinn og verðhugmyndir í bréfasíma 565 5577. Fiskiskiptil sölu Til sölu eru vélskipið Silfurnes SF-99 (1674) og frystiskipið Andey SF-222. Bæði skipin seljast með aflahlutdeild. Lögmenn Garðar og Vilhjálmur, Hafnargötu 31, Keflavík, s. 92-11733. Bréfasími92-14733.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.