Morgunblaðið - 26.03.1995, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. MARZ 1995 B 29
Islenskur karfi frá Kína
VIÐ, á íslandsskerinu, er-
um í marga áratugi
búin að ganga með þær
duldu vonir í bq'óstinu,
að við gætum að einhverju leyti
frelsast frá fiskinum. Það var
hættulegt að vera algerlega upp
á þann gula kominn, var sagt,
og langflestir töldu að við yrðum
að þróa nýja útflutningsatvinnu-
vegi. Okkur dreymdi um að flytja
út vatn og vodka í stórum stíl og
líka hugvit og hugbúnað. Eitthvað
höfum við eflaust þokast í rétta
átt, en 1995 erum við samt enn
að miklu leyti upp á fiskinn kom-
inn.
Feikilegar breytingar hafa orð-
ið á fiskveiðum og útflutningi á
síðustu fimm árum. Veiðar á hefð-
bundnum tegundum af heimamið-
um hafa dregist saman, en stór
togarafloti hefur sótt á nýjar slóð-
ir og frysting úti í sjó hefir auk-
ist. Svo hófust kaup á heilfrystum
fiski frá erlendum veiðiskipum,
og byrjað var að þýða upp og
fullvinna það hráefni í stórum
stíl. Þessi innflutti fiskur var allm-
iklu ódýrari en nýr fiskur af
heimamarkaði, svo að afurðirnar
var hægt að selja á 10-20% lægra
veðri.
Það er út af fyrir sig mjög at-
hyglisvert hvernig vinnslan á út-
þídda fiskinum hefir breytt rekstri
margra frystihúsa. Það var alltaf
draumurinn, að hægt yrði að reka
frystihús eins og hverjar aðrar
verksmiðjur, þar sem unnið yrði
í 8 tíma dagvinnu. Þá væri hægt
að skipuleggja framleiðsluna vel
og nýta hráefnið í sem dýrastar
pakkningar. Á sjöunda og áttunda
áratugnum var mikið rætt um að
beita atómgeislun til þess að varð-
veita hráefnið sem nýtt í nokkra
daga, svo hægt væri að vinna það
skipulega. Ekkert varð úr þeim
áformum og hafa því aflahroturn-
ar sagt fyrir um fiskvinnsluna,
og oft hefir orðið að pakka í fljót-
legustu pakkningar til þess að
bjarga fiskinum.
Þéir, sem merka (kemur í veg
fyrir hryllingsorðið „markaðs-
etja“) íslenzka fiskinn í hinu stóra
útlandi, voru algerlega óundir það
búnir að selja á skipulegan máta
þessar nýju afurðir frá íslandi,
tvífrysta fískinn. Sumir héldu því
fram, og gera reyndar enn, að
neytandinn myndi verða fyrir von-
brigðum með þennan „nýja“ ís-
lenzka fisk og gæti þetta ævin-
týri eyðilagt aðstöðuna á Amer-
íkumarkaði fyrir gæðafisk frá
íslandi, sem byggð hefði verið upp
á löngum tíma með mikilli vinnu
og tilkostnaði.
Allar þessar breytingar í veið-
um og vinnslu hafa valdið glund-
roða hjá því fólki, sem ber ábyrgð
á innkaupum á frystum fiski fyr-
ir bandaríska neytendur. Rugling-
urinn í sambandi við einfrystan
og tvífrystan fisk er alger. Sann-
leikurinn er sá, að venjulegt fólk
sér engan mun á gæðum físksins.
Nýting á tvífrystum fiski rýrnar
allmikið við eldun, en gallinn er
sá, að neytandi hefir sjaldnast
einfrystan og tvífrystan físk til
þess að bera þetta saman. Ein
algengasta flakapakkningin úr
Þórir S. Gröndal
skrifar fré
F\ órída
einfrystum þorski kostar 2,80
dollara, en 2,20 dollara úr tví-
frystum og auðvitað selst sú síð-
arnefnda miklu betur.
Þeim mönnum, sem falin er
mörkun (markaðssetning) ís-
lenzks físks hérna í henni Amer-
íku, er því allmikill vandi á hönd-
um. Hvernig á að aðskilja hágæða
sjófryst þorskflök af íslenzkum
fiskimiðum frá tvífrystum Rús-
safiski úr Barentshafi? Kannske
er neytandinn ekki fær um að
aðgreina þessar tvær afurðir. Ef
svo er, er þá ekki hætta á því,
að eftirspurnin eftir einfrysta,
dýrari fískinum minnki og myndi
það því lækka meðalverðið, sem
fæst fyrir allan fisk frá íslandi?
Það er svo mikil ringlun og
della komin í fisksöluna, að mað-
ur veit ekki, hvort heldur á að
hlæja eða gráta. Þeir, sem halda
því fram, að tvífryst þorskflök séu
léleg vara, eiga erfitt með að út-
skýra það, hvers vegna búrfiskfl-
ök frá Eyjaálfu eru seld á tvö-
földu þorskverði á Bandaríkja-
markaði. Staðreyndin er sú, að
öll búrfiskflök, sem hér eru seld,
eru tvífryst. Einhver gárunginn
lét hafa það eftir sér, að ef eitt-
hvað væri gert tvisvar, eins og
að frysta físk, þá hlyti það að
kosta meira!
Við allt þetta bætist, að breyt-
ingar á gæðaeftirliti og almenn-
ur, losaraskapur í útflutningi allra
sjávarafurða frá Fróni, hafa orðið
til þess, að íslenzkur fiskur hefir
tapað að nokkru því orði, sem
hann hafði á sé fyrir það að vera
ávallt í hæsta gæðaflokki. Allt
er þetta að gerast með blessun
stjórnarvaldanna, sem ákváðu
fyrir nokkrum árum, að gefa allan
útflutninginn frjálsan. Reynslan á
eftir að skera úr um það, hvort
þær ákvarðanir voru réttar.
Heilfrysting um borð í veiði-
skipum hefír þannig snarbreytt
allri vinnslu og sölu á fiskafurðum
á heimsmörkuðunum. Ég les ef
til vill ekki réttu fagblöðin, en
ekki man ég eftir því, að neinn
hámenntaður snillingurinn hafí
séð fyrir þessa þróun. Hún kom
bara rétt eins og hland úr fötu,
líkt og Smuguveiðar og aðrar
stórbreytingar, sem hafa afger-
andi áhrif á afkomu og framtíð
íslenzkrar þjóðar.
Fiskviðskiptin eru að verða al-
þjóðlegri, spannandi heimskúluna
meira en nokkra sinni fyrr. Amer-
ískt fyrirtæki í Boston sendi um
daginn símbréf vítt og breitt um
landið, þar sem boðin vora íslenzk
karfaflök, pökkuð í Kína. Ég veit
ekki, hvaðan karfínn er kominn;
hann gæti verið úr óseldum birgð-
um af íslenzkum karfa, sem pakk-
aður hafði verið fyrir Japansmark-
að. Annars era Kínamenn famir
að selja fullt af fískflökum á
Ameríkumarkað. Allt er þetta tví-
frystur fískur, mest Alaska ufsi
og Rússaþorskur úr ýmsum höf-
um.
í desember keypti Flórída fisk-
sali nokkra gáma af heilfrystri
smáýsu í Noregi og sendi hana
til Taílands. Þar var hún þýdd
og flökuð, en send síðan til
Flórída. Handbragð allt í fisk-
virtnslu í Asíu þykir til fyrirmynd-
ar, hvert fiskflak er sérvafið og
flokkað í æskilegar stærðir.
Vinnuaflið er ódýrt og fólkið
vandvirkt. Þetta ýsuævintýri
verður samt líklega ekki endur-
tekið, því fiskurinn var frekar
lausholda og nýtingin ekki eins
góð og reiknað hafði verið með.
Sjálfir era við íslandsmenn
komnir í alheimsviðskiptin, eins
og öllum er kunnugt. Bráðum fara
að berast hingað lýsingsflök frá
Namibíu, þar sem íslenzkar
sjávarafurðir eru orðnar meðeig-
andi í stóra fiskvinnslufirma. Hok-
inhali og aðrar afurðir frá Friosur
í Chile, þar sem Grandamenn hafa
hazlað sér völl, era hér seldar af
Coldwater Seafood, dótturfyrir-
tæki Sölumiðstöðvarinnar.
Bezta dæmið, sem ég man eft-
ir í bili um alheimsruglinginn í
fiskframleiðslu og mörkun, er svo
þetta: í síðustu viku var fyrirtæki
í Boston að bjóða 20 tonn af sjó-
frystum „íslenskum" þorskflökum
á afbragðs verði. Þegar málið var
kannað, kom í ljós, að fískurinn
var veiddur í Barentshafi af skipi,
sem skráð er í Belize, og verður
því að koma inn í landið sem fram-
leiðsla þess lands. Togarinn er
reyndar í íslenskri eigu og á skip-
inu er íslenzk áhöfn og auðvitað
þýzkar flökunarvélar!
PANTANIR A GRÆNU B0KINNI!
Vegna mikillar eftirspurnar er upplag Grænu bókar-
innar á þrotum. Þeir sem hafa hug á að tryggja sér
eintak eru vinsamlegast beðnir að snúa sér til
l kosningaskrifstofa G-listanna og láta skrá pöntun
1 sfna. Bókin verður þá póstsend sé hún ekki til á
■ viðkomandi skrifstofu.
K
Græna bókin er nú komin á Veraldarvefinn -
Internet - og þeir sem hafa aðgang að honum
geta kynnt sér hana eftir þeirri leið.
Netfangiö er http://strengur.is/~abl/
Alþýðubandalagið og óháðir
SJÚKRANUDD
Höfum opnað sjúkranuddstofu í Álftamýri 5, neðri hæð.
Tímapantanir í síma 688868.
Jóhanna Björk Briem, lögg. sjúkranuddari,
Styrmir Sigurðsson, lögg. sjúkranuddari
Sérgrein: Manuelle Lymph Therapeut.
Geymið auglýsinguna.
með fararstjóra
FERÐAMIÐSTÖÐ AUSTURLANDS HF
Skógaijöndum 3 - Egilsstöðum - Sími 97-12000
f ".. .
IMORDMEIMDE
TELEFUNKEN
ÞÝSK HÁGÆÐASJÓNVARPSTÆKI
MEÐ SURROUND STEREO
Telefunken F-531 C STEREO NIC
er 28" sjónvarpstæki:
Black Matrix-flatur glampalaus
skjár • Surround-umhverfishljóm-
ur • PSI (Picture Signal Improve-
ment) • ICE (Intelligent Contrast
Electronic) • Pal, Secam og NTSC-
video • 59 stöSva minni •
Sjálfvirk stöóvaleit og -innsetning
• Mögu-leiki á 16:9 móttöku •
Islenskt textavarp • Tímarofi •
40W magnari • A2-Stereo
Nicam • 4 hátalarar • Tengi fyrir
heymartól og sjónvarpsmyndavél
• AÓskilinn styrkstillir fyrir
heymartól • 2 Scart-tengi o.m.fl.
Þessi tæki eru nú bæði saman á sé
Nordmende V-1242 SV er vandaÓ þriggja
hausa myndbandstæki með hraðþræðingu,
2 Scart-lengjum, long Pby, Show View-mögu-
leika, ATRS, GoTo, Index, Intro Scan, 8 liSa-
365 daga uppfckuminni og vandaÓri fjarstýr-
ingu sem einnig mó nota fyrir sjónvarpstækiS.
ii, aðeins 129.900,- kr. e6a
aðeins
j 19.900,■ k'
VISA
TIL ALLT AO 24 MÁIMAÐÁ
Alti. Aðeins þorl a5 slinga Surround-hátölurum i samband vö sjónvarpstætö!
L — JriW-TuLTSIlil
TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA
RAÐGREIÐSLUR