Morgunblaðið - 26.03.1995, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.03.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARZ 1995 B 13 Ein stór fjölskylda láta í sér heyra eru Unun, sem á lagið Ég hata þig, Bubbleflies kynnir nýjan meðlim, Svölu Björgvins- dóttur, með laginu Egot- istique, Kolrassa krókríð- andi syngur um sætustu Þyrnirósina í bænum, Shark Remover lætur í sér heyra í fyrsta sinn með lag- inu Bláa kannan, Texas Jesús flytur óð um Dýrin í hálsakoti, Birthmark syng- ur On a Bridge of Crosses, Bubbi Morthens flytur lagið Mr. Dylan, Lipstick Lovers flytja Næturdætur, Bugju- ice, eða kannski bara bjöllu- safi, á lágið Monster of Delight, Atlot fiytur Villtar meyjar, Ríó tríó á líka lag á plötunni, Ég vil bara beat músík, Quicksand Jesus á lagið Low Down, og að auki á Hljómsveit hússins eitt lag, e.g. DÆGURTO Hver eru vandamál frœgöarinnar? KVIKMYNDIR og tónlist fara iðulega vel saman eins og dæmin sanna, meðal annars innlend dæmi. í næstu viku er væntanleg breiðskífa með lögum úr myndinni Einni stórri fjöl- skyldu sem frumsýnd verð- ur 31. mars. TZ' VIKM YNDAFÉLAG -^•“■íslands gerir Eina stóra fjölskyldu, en Smekk- leysa gefur safndiskinn út og Japís dreifir. Sautján lög þrettán hljómsveita Fjölmargir eiga lög á diskn- um, flest óútgefin og glæný en eiginlega tónlist mynd- arinnar samdi Skárren ekk- ert, sem á fjögur lög, Eins manns dans, Eina stóra fjöl- skylda, Jónas og hundinn og Pabba djamm. Aðrir sem Tóm- stunda- sveit FJÖLMIÐLAR vilja gjarn- an draga upp þá mynd af rokkheiminum að þar sé hver hendin upp á móti annarri og menn talist helst ekki við nema með aðstoð lögfræðinga. Þó kastast geti í kekki er reyndin önn- ur og ijölmörg dæmi um rokksveitir eins og Mad Season. MAD SEASON heitir hljómsveit sem sendi nýverið frá sér sína fyrstu breiðskífu, Above. Sú er skipuð nokkrum þungavigt- armönnum úr bandansku rokklífi; Mike McCready úr Pearl Jam, Barrett Martin úr Screaming Trees, Layne Staley úr Alice in Chains og blúsbassaleikaranum Baker. Þó þeir félagar séu flest- ir sprottnir úr Seattle-rokk- umhverfi er tónlist Mad Season all frábrugðin því sem þar tíðkast. Reyndar segja þeir félagar Mad Sea- son aðeins vera tómstunda- verkefni sem hafi farið úr böndunum, en tónlistin sem þeir settu saman hafi ein- faldlega verið það góð að rétt sé að leyfa öðrum að njóta. Tómstundagaman Liðsmenn Mad Season. kom út í Bretlandi. Þegar spjallið við Annie á sér stað er platan rétt óútkomin, en hljómsveitir í Bandaríkjun- um að kynna hana og leika í klúbbum. Hún segir að Bandaríkjamenn virðist ætla að taka sveitinni vel. „Breskum hljómsveitum hefur gengið illa að koma sér á framfæri vestan hafs, en mér finnst andrúmsloftið að breytast; núna eru menn til í að gefa hljómsveitum eins og okkur tíma til að sýna hvað við getum,“ seg- ir hún glaðbeitt, en bætir við að þetta umstang sé allt mun erfiðara en hún hafi gert sér grein fyrir áður en farið var af stað. „Það er biturt að því fleiri sem vilja hlusta á okkur, því minni tíma höfum til að semja tónlist," segir hún og hlær við. „Við ætlum þó að taka okkur gott frí eftir þessa ferð og læsa okkur inni í hljóðveri að semja fleiri lög og taka upp. Það skiptir öllu að eiga nóg af lögum og það vantar ekki að nóg er af hugmynd- um; vandamálið er að fá frið til að vinna úr þeim." MÓLYMPÍA og Texas Jesús leika á tónleikum í Rósenbergkjallaranum á miðvikudagskvöld. Ólymp- ía kynnir nýjan hljómborðs- leikara, en Texas Jesús grúa nýrra laga. WAÐDÁENDUR Red Hot Chilli Peppers lengir eftir plötu með sveitinni og til að stytta biðina heldur Quicksand Jesus sérstakt Red Hot Chilli Peppers- kvöld og hyggst leika lög eftir sveitina. Gestaleikar- ar verða Hrafn og Jonni úr Jet Black Joe og Óskar, sem leikur á saxófón. MBOGOMIL Font er væntanlegur til landsins og heldur merkilega tónleika með Bubba Morthens og Agli Ólafssyni í Tunglinu 31. mars nk. Undir leikur Tamlasveit Egils. Glymskrattar Oxford-félagar í Radiohead. ■ ■ Oxnafurður OXFORD-sveitin Radiohead sló óforvarandis í gegn með lagið Creep á þarsíðasta ári. Að sögn liðsmanna sveitar- innar var það hálfgerður Pyrrusarsigur, því allir vildu Creep, en enginn Radiohead. RADIOHEAD-félagar hafa haldið hópinn að mestu síðustu tíu ár, en þeir segjast reyndar ekki hafa lært almennilega á hljóðfæri fyrr en 1991. Þá komst sveit- in og á samning og fékk góð- an tíma til að setja saman breiðskífuna Pablo Honey. Á þeirri plötu var Creep, sem áður er getið, og frægð og ríkidæmi blasti við. Annað kom þó á daginn og þeir fé- lagar segja að á mikilli Bandaríkjaferð sinni hafi þeim liðið einna helst sem glymskröttum með einu lagi og því nauðsynlegt að fá frið til að setja saman plötu núm- er tvö. Sú kom út í vikunni heitir The Bends og hefur fengið fyrirtaks dóma víðast hvar, var meðal annars valin plata vikunnar í Vox, svo Radiohead virðist hafa sigr- ast á Creep. FLEIRI fyrirtaks rokk- sveitir hafa komið frá Bret- landi en ætla mætti miðað við höfðatölu og þó undan- farin ár hafí mörg verið all döpur í því efni, birtist nú hver sveitin af annarri. Nýjasti anginn í breskri rokkflóru er Elastica, sem sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu fyrir skemmstu. ELASTICA hefur verið svo umsetin af blaða- Árno Matthíasson monnum að hljóm- sveitin ákvað seint á síðasta ári að veita eng- in viðtöl. Frumung í fiemstii röð Viðtalabanninu var svo af- létt fyrir stuttu og bassa- leikari sveitarinnar, Annie Holland, sagði í stuttu spjalli að hljómsveitinni hefði verið of hampað og þv! þótt ástasða til að forð- ast sviðsljósið að minnsta kosti þar til fyrsta breið- skffan kæmi út. „Það var því líkast sem ætti að gleypa okkur,“ segir Annie og hlær við, „breska tónlist- arpressan er svo æst í að uppgötva eitthvað nýtt að hijómsveitir fá varla færi á að senda frá sér plötur áður en þær eru á ölium forsíð- um viku eftir viku.“ Annie segir að fjölmiðlafríið hafí verið mikill léttir og gefið hljómsveitinni færi á að ljúka við upptökur á breið- skífunni, sem kallast ein- faldlega Elastica. Annie Holland, sem er bassaleikari, er meðal stofn- meðlima sveitarinnar, en hún leggur áherslu á að Justine Frischmann, söng- kona og gítarleikari sveitar- innar, sé upphafskonan. Justine vann sér það' til frægðar meðal annars að leika á gítar í Suede um tíma, en vildi ráða ferðinni og stofna eigin hljómsveit. Auk þeirra tveggja sem þeg- ar eru taldar er í Elasticu trymbillinn Justin Welch, en annar gítarleikari er Donna Matthews, sem syngur einn- ig bakraddir. Frami Elasticu hefur ver- ið hraður og orðsporið sem fer af sveitinni var búið að koma henni í fremstu röð nánast áður en hún hóf tón- leikahald. Smáskífurnar sem sveitin hefur sent frá sér hafa líka selst afskap- iega vel, og breiðskífan fór beint á toppinn þegar hún Bresk dansinnrás ►BRESKA dansinnrásin heldur áfram af krafti og dansfiklar hafa haft nóg við að vera. Ekki er innrás- inni lokið því væntanleg er danssveitin Drum Club og leikur á femum tónleikum. Dmm Club er techno-sveit og hyggst leika í Tónabæ, Tunglinu, Villta tryllta Villa og 1929 á Akureyri. Dmm Club er talin ineð efnilegustu danssveitum Bretlands um þessar mund- ir. tslandsförin er farin til að taka upp þriðju plötu Dmm Club, tónleikaplötu sem heita á Live in Reykja- vík. Tónleikar sveitarinnar hér á landi verða 7. á Akur- eyri, 8. í Villta tryllta Villa, 11. í Tónabæ og 12. í Tungl- inu. Upphitunarsveit á öll- um tónnleikum verður Bubbleflies með Svölu Björgvinsdóttur. Tónleikaskífa Drum Club menn, Charlie og Lol.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.