Morgunblaðið - 26.03.1995, Page 17
16 B SUNNUDAGUR 26. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. MARZ 1995 B 17
Alexía Björg
Jóhannesdóttir
Anna María
Ragnarsdóttir
Berglind Berglind Bryndís Bryndís Elfa Björk Ellen Guðlaug Harpa Helena Mari
Laxdal Ólafsdóttir Ásmundsdóttir Guðmundsdóttir Magnúsdóttir Halldórsdóttir Gunnarsdóttir Jónsdóttir
FEGURÐARDROTTNING REYKJAVIKUR VERÐUR VALIN A FIMMTUDAGINN
Hrafnhildur
Hafsteinsdóttir
Ingibjörg
Ferdinandsdóttir
15 STULKUR
KEPPA UM THILINN
Katrín Brynja
Hermannsdóttir
Lovísa
Ólafsdóttir
María Lovísa
Árnadóttir
FEGURÐARSAMKEPPNI Reykjavíkur 1995 verður
haldin á Hótel íslandi fimmtudagskvöldið 30. mars.
Keppnin verður að þessu sinni með öðru sniði en
áður. Sett verður á svið sýning og keppnin fléttast
þar inn í.
Húsið opnar kl. 19 og kvöldið hefst með að boðið
verður upp á fordrykk, sem heitir því skemmtilega
nafni Björk, en að því loknu hefst borðhald og þar
með sýningin. Forrétturinn á matseðli kvöldsins er
freyðivínslöguð laxasúpa með aspas og melónu. Aðal-
rétturinn er rauðvínsleginn lambavöðvi með ferskum
kryddjurtum og perlulaukssósu. Eftirrétturinn er
Sherry-ís með kaffikremi, ávöxtum og rjóma.
Tónlistin á sýningunni er fengin úr söngleiknum
Cats eftir Andrew Loyd Webber. Dansarar, söngvarar
og hljóðfæraleikarar taka þátt í sýningunni en þar ber
fyrst að nefna Battú-dansflokkinn og Kjartan Valdi-
marsson píanóleikara. Helena Jónsdóttir stýrir sýning-
unni en hún mun einnig dansa þar ásamt Jóhanni
Frey Björgvinssyni. Stúlkurnar koma fram í íþróttaföt-
um og sundbolum frá Útilíf og kvöldkjólum að eigin
vali.
Dómnefndina í ár skipa fimm manns. Formaður
dómnefndar er Sigtryggur Sigtryggsson fréttastjóri
Morgunblaðsins, en ásamt honum sitja í nefndinni
Kristín Stefánsdóttir förðunarfræðingur, Gróa Ás-
geirsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Fegurðars-
amkeppni íslands, Elsa Haraldsdóttir danskennari og
Sigmundur Ernir Rúnarsson fréttamaður.
Þátttakendur að þessu sinni eru 15 og koma víðs
vegar af höfuðborgarsvæðinu. Stúlkurnar hafa verið
í strangri líkamsþjálfun hjá Katrínu Hafsteinsdóttur í
World Class frá því í janúar og þegið leiðbeiningar
um göngu og framkomu hjá Helenu Jónsdóttur dans-
ara og Þórunni Lárusdóttur, framkvæmdastjóra
keppninnar. Þær hafa fengið að sóla sig á sólbaðsstof-
unni Sólinni, Borgarkringlunni og í sama húsi hefur
snyrtistofan NN séð um að húð stúlknanna svo og
neglur hafa fengið rétta og nægilega umönnun. Um
hárgreiðslu stúlknanna fyrir myndatökuna sá hár-
greiðslustofan Hárný, Kópavogi, en stúlkurnar eru
farðaðar með snyrtivörum frá Professional.
Stúlkurnar eru: Axelía Björg Jóhannesdóttir, 18 ára
úr Hafnarfirði, Anna María Ragnarsdóttir, 18 ára úr
Reykjavík, Berglind Laxdal, 18 ára úr Mosfellsbæ,
Berglind Ólafsdóttir, 18 ára úr Hafnarfirði, Bryndís
Ásmundsdóttir 19 ára úr Reykjavík, Bryndís Guð-
mundsdóttir 22 ára úr Reykjavík, Elfa Björk Magnús-
dóttir 23 ára úr Reykjavík, Ellen Halldórsdóttir 23 ára
úr Hafnarfirði, Guðlaug Harpa Gunnarsdóttir, 22 ára
úr Kópavogi, Helena María Jónsdóttir, 21 árs úr
Reykjavík, Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, 18 ára úr
Reykjavík, Ingibjörg Ferdinandsdóttir, 20 ára úr
Reykjavík, Katrín Brynja Hermannsdóttir, 23 ára úr
Reykjavík, Lovísa Ólafsdóttir, 19 ára úr Reykjavík, og
María Lovísa Árnadóttir, 20 ára úr Reykjavík.
Verðlaun sem fegurðardrottning Reykjavíkur hlýtur
í ár eru veruleg. Hún hlýtur fyrst og fremst þátttöku-
rétt í fegurðarsamkeppni íslands, sem haldin verður
á Hótel Islandi 24. maí nk. Einnig fær hún perluskart-
gripi frá Misaki, fullkomna snyrtivörulínu frá Professi-
onal, að eigin vali, umönnun húðar og hand- og fótsn-
yrtingu frá Snyrtistofunni NN, Canon myndavél frá
Hans Petersen, dekurdag í Baðhúsinu, gjöf frá Orablu
og Ijósakort frá Sólinni svo eitthvað sé nefnt, en þetta
er aðeins brot af þeim verðlaunum sem í boði eru.
Afl fjöldans
undir merki nýrra tíma!
Yfir 5000 hluthafar af öllum sviöum
þjóölífsins skapa þann styrk sem eini hlutafélagsbanki
landsins byggir á.
Sameiginlegt afl þessa fjölda og
samkeppni viö ríkisrekstur leiöa til framfara í
efnahagslífi þjóöarinnar.
o
Q