Morgunblaðið - 26.03.1995, Qupperneq 26
26 B SUNNUDAGUR 26. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
RAI*AUGL YSINGAR
KENNSLA
Sumarnámskeið í Skotlandi
Þriggja og fjögurra vikna alþjóðlegur ensku-
skóli fyrir 13-16 ára unglinga í júlí, í út-
hverfi borgarinnar Dundee við austurströnd
Skotlands. Skólinn er staðsettur í fallegu og
rólegu umhverfi og býður upp á fjölbreytta
íþrótta- og tómstundaiðkun ásamt fjölda
skoðunarferða. Einnig er sérstakur golfpakki
í boði enda fjölmargir golfvellir í nágrenninu.
Reyndur, íslenskur fararstjóri verður með
nemendunum allan tímann.
Að auki býður skólinn upp á samskonar nám-
skeið í Kanada og námskeið fyrir 18 ára og
eldri í Dundee.
Nánari upplýsingar fást hjá Karli Óskari Þrá-
inssyni í síma 557-5887 og á faxi 587-3044.
Sænskunámskeið í
Framnesi í Norður-Svíþjóð
Kjörið tækifæri tii að sameina
sumarleyfi og sænskunám
Norræna félagið á íslandi, í samvinnu við
Norræna félagið í Norrbotten í Norður-
Svíþjóð, gefur 15 íslendingum kost á 2ja
vikna sænskunámi í Framnás folkhögskola
dagana 24. júlí-4. ágúst næstkomandi.
Kenndar verða 6 stundir á dag og auk þess
fer fram kynning á lífi og starfi fólks á
Norðurkollu.
Námskeiðið kostar um 68.000 krónur.
Innifalið er ferðir báðar leiðir, kennsla og
dvalarkostnaður meðan á námskeiðinu
stendur. Eftir námskeiðið gefst kostur á
þriggja daga ævintýraferð um Lappland.
Umsóknir skal senda til skrifstofu Norræna
félagsins, Norræna húsinu í Reykjavík, á
sérstöku eyðublaði sem þar fæst.
Opið mán.-fös. kl. 9-12 og 13-16.
Sími 5510165.
Umsóknarfrestur er til 22. apríl 1995.
Allar nánari upplýsingarfást á skrifstofunni.
ÝMISLEGT
Módel óskast
Vegna námskeiðs, sem haldið verður laugar-
daginn 1. apríl, þurfum við módel í klipping-
ar, litanir og permanent.
Áhugasamir komi á Salon VEH, Húsi verslun-
arinnar, Kringlunni 7, þriðjudaginn 28. mars,
milli kl. 17 og 18.30.
Byggingarlóð
á Seltjarnarnesi
Til sölu byggingarlóð á sunnanverðu Seltjarn-
arnesi. Heimild fyrir byggingu á þremur rað-
húsum, einbýli eða 2ja hæða húsi.
Tilboð sendist afgreiðslu Mbl., merkt:
„Margir möguleikar", fyrir 4. apríl nk.
Sumarbúðir í Reykjadal
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra mun að
venju reka sumarbúðir fyrir fötluð börn í
Reykjadal í Mosfellsbæ frá 16. júní-31. ágúst.
Umsóknir um dvalartíma þurfa að berast
félaginu fyrir 1. maí nk. á eyðublöðum,
sem fást í afgreiðslu félagsins á Háaleitis-
braut 11, Reykjavík.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Útgerðir - úreldingar
Höfum erlendan kaupanda að 14-15 m. bát
í góðu standi, helst plastbát. Getum einnig
losað útgerðir við úreldingabáta úr landi eft-
ir nánara samkomulagi.
Upplýsingar í símum 92-11980 og 988-18676.
Fullvinnslan hf.
Nýir höfundar
Sjónvarpsstöðvar og menningarmálastofn-
anir í Evrópu standa sameiginlega að verð-
launasamkeppni í því skyni að hvetja nýja
höfunda til að skrifa handrit að sjónvarps-
myndum eða leiknum sjónvarpsþáttum.
Keppt er um starfsverðlaun sem veitt verða
síðari hluta þessa árs. Verðlaunahafar koma
síðan til greina er Evrópuverðlaunin verða
veitt ári síðar. Starfsverðlaunin eru að upp-
hæð 15.000 svissneskir frankar.
Sjónvarpið hefur heimild til að tilnefna allt
að 3 handrit, sem valin verða af sérstakri
dómnefnd.
Umsækjendur mega ekki hafa samið, né
tekið þátt í að semja, nema eitt handrit í
fullri lengd (50 mínútur) fyrir sjónvarp eða
kvikmynd þegar handriti er skilað.
Umsækjendur leggi fram 5-10 síðna efnisút-
drátt að frumsömdu handriti með nákvæmri
lýsingu á innihaldi verksins og persónum.
Einnig skal fylgja sýnishorn af handriti (2
síður) með samtölum og upplýsingar um
höfund og æviágrip höfundar.
Umsóknargögnum skal skila til Innlendrar
dagskrárdeildar Sjónvarpsins, Laugavegi
176, 105 Reykjavík, þar sem reglur sam-
keppninnar liggja einnig frammi.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 1995.
SJÓNVARPIÐ GENÉVE-EUR^OPE «
Sjá einníg á síðu 636 í textavarpi Sjónvarpsins.
Styrkur
frá ambassadör Per-Olof Forshells
Minnesfond.
Hlutverk sjóðsins er fyrst og fremst að efla
sænskukennslu á íslandi og auka menning-
arsamskipti íslands og Svíþjóðar. Styrkurinn
er 3.000 sænskar krónur og skulu umsóknir
berast fyrir 21. apríl 1995 til „Per Olof Fors-
hells Minnesfond", c/o Sigrún H. Hallbeck,
Skipasundi 74, 104 Reykjavík, s. 812636.
Auglýsing um styrki
til náms á Ítalíu og í Finn-
landi námsárið 1995-96
ítölsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa
íslendingum til náms á Ítalíu. Styrkurinn er
einkum ætlaður til framhaldsnáms eða rann-
sókna við háskóla að loknu háskólaprófi eða
til náms við listaháskóla. Styrkfjárhæðin
nemur 1.000.000 lírum á mánuði. Frestur til
að skila inn umsóknum er hér með fram-
lengdur til 31. mars nk.
Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa
íslendingum til háskólanáms og rannsókna-
starfa í Finnlandi. Styrkurinn er veittur til níu
mánaða dvalar og styrkfjárhæðin er 4.000
finnsk mörk á mánuði. Umsóknarfrestur er
til 25. apríl nk.
Umsóknir um styrkina, ásamt staðfestum
afritum prófskírteina og meðmælum, skulu
sendar Menntamálaráðuneytinu, Sölvhóls-
götu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum um-
sóknareyðublöðum sem þar fást.
Menntamálaráðuneytið,
24. mars 1995.
Félagslegar
eignaríbúðir
Húsnæðisnefnd Rangárvallahrepps auglýsir
eftir umsækjendum um félagslegar eignar-
íbúðir, sem úthlutað verður á næstu mánuð-
um. íbúðirnar eru 3ja herbergja.
1. Umsækjendur þurfa að uppfylla ákv. 25.
gr. reglugerðar nr. 46/1991 um eigna- og
tekjumörk.
Tekjumörk eru að meðaltali vegna áranna
1991-1993: Einhleypingar kr. 1.673.471,
hjón kr. 2.116.839 og fyrir hvert barn innan
16 ára aldurs á framfæri umsækjanda
kr. 154.286.
Eignamörk: Að hámarki er leyfileg eign kr.
1.800.000 samkvæmt síðasta skattframtali.
Umsækjendur þurfa að auki að sýna fram á
greiðslugetu sbr. 2. tl. 71. gr. reglugerðar
nr. 46/1991.
2. Umsækjendur þurfa að uppfylla ákvæði
28. gr. reglugerðar nr. 46/1991 og leiðbein-
ingar Húsnæðisstofnunar um fjölskyldu-
stærð. Tekið verður tillit til núverandi hús-
næðisaðstöðu umsækjenda.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Rangárvallahrepps, Laufskálum 2, á Hellu,
sem er opin kl. 10-12 og 13-16. Á skrifstof-
unni fást umsóknareyðublöð.
Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi
30. apríl 1995. Þeir, sem eiga inni umsóknir
fyrir, þurfa að staðfesta þær.
Húsnæðisnefnd
Rangárvallahrepps,
Laufskálum 2, 850 Hellu.
Leiguíbúð
Við leitum að einstaklings- eða tveggja herb.
íbúð í Hafnarfirði fyrir einhleypan 45 ára
starfsmann okkar.
Upplýsingar í símum 92-11980.
Fullvinnslan hf.
Viltu minnka við þig?
Erum með um 120 fm íbúð í Reykjavík með
mjög góðu útsýni. Höfum hug á að stækka
við okkur. Einbýli eða raðhús á höfuðborgar-
svæðinu. Öllum bréfum verður svarað. Bréf
sendist til afgreiðslu Mbl. merkt: „Maka-
skipti - 15032“.
REKSTRARVERKTAK HF
VIDSKIPTASKRIFSTOFA QUDMUNDAR ARNALDSSONAR
Hæð eða lítið raðhús óskast til leigu
í allt að tvö ár.
Við óskum eftir að taka á leigu frá 1. maí
nk. til allt að tveggja ára, 4ra-5 herbergja
hæð éða lítið raðhús í vesturbænum eða
miðsvæðis í Reykjavík fyrir einn af viðskipta-
vinum okkar.
Traustur og ábyggilegur leigjandi með fyrsta
flokks umgengni og skilvísar greiðslur.
Áhugasamir hafi vinsamlega samband við
skrifstofu okkar í síma 562 2850 sem fyrst.
BANDALAQ ISLHNSKRA SKÁTA
Óskum eftir að kaupa eða leigja 250-350 fm
iðnaðarhúsnæði í Vogahverfi eða Ártúns-
höfða í Reykjavík, eða við Skemmuveg í Kóp.
Nauðsynlegt að húsnæðið sé með a.m.k. 4
metra innkeyrsluhurð, má vera nokkuð hrátt
að öðru leyti.
Vinsamlegast hafið samband í síma
562-1390 á skrifstofutíma.