Morgunblaðið - 26.03.1995, Side 31

Morgunblaðið - 26.03.1995, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARZ 1995 B 31 gerst hér. Jessica Lang er í hópi bestu leikara vestanhafs en hefur verið lengst af seinheppin í hlut- verkavali. Hún á allt gott skilið en það verður að teljast með ólíkindum að hún standi uppi sem sigurvegari í Heiðskírum himni (,,Blue Sky“), mynd sem fór framhjá flestum og var reyndar búin að safna ryki í á annað ár áður en hún var tekin til sýninga. Tom og Viv (ósýnd hér- lendis) þykir þokkaleg smámynd sem einkum hefur gengið í húsum sem sýna listrænar myndir. Svo mikið er víst að lítið raunsæi felst í að telja bresku leikkonuna Mir- öndu Richardson líklegan verð- launahafa og tilnefning Susan Sar- andon í Umbjóðandanum, mynd sem er ekkert meira en dæmigerð, sómasamleg afþreyingarmynd, undirstrikar kreppunni í þessum flokki. Þá er Winona Ryder, sem er í miklu dálæti á þessum bæ, enn ótalin. Hún og myndin Litlar konur hafa hlotið mjög góða sóma, Ryder á örlítinn möguleika. Jodie Foster Winona Ryder Jessica Lange Susan Sarandon Miranda Richardson Besti karlleikari í aukahlutverki Næstum útilokað að spá hér í spilin. Tveir stórkostlegir skapgerð- arleikarar standa langbest að vígi, annar hvor þeirra mun ganga út með Óskar í hendi aðfaranótt þriðjudagsins. Engin spurning. Að sjálfsögðu eru þetta kapparnir Martin Landau og Samuel L. Jack- son. Landau fer á kostum sem Bela Lugosi, hin kunna stjarna gömlu hryllingsmyndanna í Ed Wood og ekki er Samuel L. Jackson síðri, spúandi eldi úr munni og byssu í Reyfara. Landau er sagður einkar vel þokkaður maður og leiðbeinandi í framsögn sem tekið hefur flestar stjörnur Hollywoodborgar í læri, það hjálpar. Hins vegar er Reyfari smellur en Ed Wood skellur. Það getur gert gæfumuninn. Keppi- nautarnir þrír eru allir kunnir gæðaleikarar, en eiga tæpast möguleika i ár. Samuel L. Jackson Martin Landau Gary Sinise Paul Scofield Chazz Palminteri Besti kvenleikari i aukahlutverki Þetta er ijári erfiður flokkur. Allar leikkonurnar fimm hlotið fína dóma. Helen Mirren er sög;ð sýna enn einn stórleikinn í Geggjun Ge- orgs konungs (ósýnd hérlendis), sömu sögu er að segja af iöndu hennar, Rosemary Harris, íTom og Viv. Woody Allen er með færari leikstjórum í að laða það besta fram úr leikurum sínum enda hafa ófáir þeirra unnið til verðlauna gegnum tíðina. Tveir til viðbótar bætast hér í hópinn. Jennifer Tilly (í öllum bænum ruglið henni ekki saman við hina óþolandi systur hennar, Meg) og Dianne Wiest í Byssukúlur á Broadway, eru til alls vísar. Uma Thurman hafði fátt sýnt sem flokk- ast getur undir leiklist, tók sig sam- an í fríðu andlitinu og hristi fjári magnaða ruglukollu framúr erminni í Reyfara og stendur vel að vígi. Það getur allt gerst hér. Uma Thurman Helen Mirren Dianne Wiest Jennifer Tilly Rosemary Harris Besti leikstjórinn Enn vandast valið. Þó má telja víst að baráttan standi eingöngu á milli Roberts Zemeckis og Quentins Tarantinos. Skoðun mín á stöðu þeirra hjá akademíunni er þegar komin fram og engu við það að bæta. Zemeckis hlýtur að teljast mun sigurstranglegri. En gaman væri að sjá Tarantino vinna. Robert Redford er orðinn miklu betri leik- stjóri en hann var nokkurn tíma leikari og hefur nú gert tvær gæða- myndir í röð. Gettu betur er ein af langbestu myndum síðasta árs en BESTA KVIKMYND ÁRSINS ForrestGump I(jögur brúð- kaup og jarðarför Gettu betur („Quiz Show“) Reyfari („Pulp Fiction“) Rifci Hay worth og Shaws- hankfangelsið "" * * 1995 BESTA ERLENDA KVIKMYND ÁRSINS Farinelli: II CastratoBeJgía Fyrir regnið („Before The Rain Makedónía Jarðarber og súkkulaði („Fresa Y Chocolate“) Kúba Matur, drykkur, maður, kona (Eat Drink Man WoinanTævan Sólbruni („Burnt By The Sun“)Rússland BESTI LEIKSTJÓRINN Woody Allen -Byssukúlur á Broadway (Bullets Over Broadway Krzysztof Kieslowski -Þrír litir: Rautt Robert Redford -Gettu betur Quentin Tarantino -Reyfari Robert Zemeckis -Forrest Gump BESTI KARLLEIKARI í ADALHLUTVERKI Morgan Freeman -Rita Hayworth og Shawshankfangelsið Tom Hauks -Forrest Gump Nigel Hawthorne -Geggjun Georgs konungs („The Madness of King George“) Paul Newman -Enginn er fullkominn („Nobody’s Fool“) John Travolta -Reyfari BESTIKVENLEIKARI í ADALHLUTVERKI Jodie Foster -Nell Jessica Lang -Heiðskír himinn („Blue Sky“) Miranda Richardson - Tom og Viv Winona Ryder -Litlar konur („Little Women“) Susan Sarandon -Umbjóðandinn („The Client") BESTIKARLLEIKARI Í AUKAHLUTVERKI Samuel L. Jackson -Reyfari Martin Landau -Ed Wood Chazz Palminteri -Byssukúlur á Broadway Paul Scofield -Gettu betur Gary Sinise -Forrest Gump BESTIKVENLEIKARI Í AUKAHLUTVERKI Rosemary Harry -Tom og Viv Helen Mirren -Geggjun Georgs konungs Uma Thurman -Reyfari Jennifer Tilly -Byssukúlur á Broadway Dianne Wiest -Byssukúlur á Broadway BESTA FRUMSAMDA HANDRITID Woody Allen og Douglas McGrath -Byssukúlur á Broadway ' Richard Curtis -Fjögur brúðkaup og jarðarför Frances Walsh og Peter Jackson -Himneskar verur („Heavenly Creatures") Quentin Tarantino -Reyfari Krzysztof Piesiewicz og Krzysztof Kieslowski Þrír litir. Rautt BESTA HANDRITIÐ BYGGT ÁÁDUR BIRTU EFNI Paul Attansio - Gettu betur Alan Bennett -Geggjun Georgs konungs Robert Benton -Engirrn er fullkominn Frank Darabont -Rita Haywortli og Shawshankfangelsið Eric Roth -Forrest Gump BESTIKVIKMYNDATÖKUSTJÓRINN Don Burgess -Forrest Gump Roger Deakins -Rita Hayworth og Shawshankfangelsið Owen Roizman -Wyatt Earp Piotr Sobocinski -Þrír litir. Rautt John Toll -Vindar fortfðar („Legenda of the Fall“) BESTA KLIPPINGIN Forrest Gump Körfuboltadrauinai- („Hoop Dreams“) Leifturhraði - („Speed“) Reyfari Rita Hayworth og Shawshankfangeisið BESTA FRUMSAMDA TÓNLISTIN Eiiiot Goldenthal - Viðtal við vampíruna („Intervi- ew With The Vampire") Thomas Newman -Litlar konur Tliomas Newinan -Rita Hayworth og Shawshankfangelsið Alan Silvestri -Forrcst Gump Hans Zimmer -Konungur Ijónanna („Tbe Lion King“) BESTA LISTRÆNA STJÓRNUNIN Byssukúlur á Broadway Forrest Gump Geggjun Georgs konungs Viðtal við vampíruna Vindar fortiðar BESTA FÖRÐUNIN Ed Wood Forrest Gump Frankenstein - („Mary Shelley’s Frankenstein“) BESTU BUNINGARNIR Byssukúlur á Broadway La Reine Margot Litlar konur Maverick Priscilla, drottning eyðimerkurinnar („The Adventuiæs of PrisciUa, Queen of the Desert BESTA HUÓDUPPTAKAN Bein ógnun („Clear and Present. Danger“) Forrest Gump Leifturhraði Rita Hayworth og Shawshankfangelsið Vindar fortíðar það þarf kraftaverk til að hann hljóti Óskarsverðlaunin í ár. Nafni hans sér fyrir því. Hollywood hefur tekið Woody Allen í sátt eftir hans al- ræmdu kvennamál, það verða bestu fréttir Allens í ár. Mikil óánægja greip um sig er akademían ákvað að halda Þrírlitir: Rauðurutan hinna útvöldu um heiðurinn besta erlenda mynd ársins, en hinir háu herrar í AMPAS töldu þjóðemið óljóst. Dreif- ingaraðili myndarinnar í Bandaríkj- unum gat þó komið Krzysztof Ki- eslowski á framfæri sem einum útv- alinna úr röðum leikstjóra. En mögu- leikar hans hljóta að vera hverfandi á Vesturströndinni. Robert Zemeckis Quentin Tarantino Robert Redford Woody Allen Krzysztof Kieslowski Besta frumsamda handritið Þetta er eini flokkurinn þar sem Tarantino og Reyfari ættu að vera öruggir sigurvegarar. Þó má ekki gleyma verðugum keppinautum, þeim helstum Woody Allen og Dou- glas McGrath fyrir Byssukúlur á Broadway. Höfundar tveggja er- lendra mynda eru tilnefndir í þess- um hópi, það er óvenjulegt og held- ur ólíklegt að þeir hafi betur. Þetta em snjallir höfundar; Krzysztof Kieslowski og nafni hans Piesiewicz með Þrír litir: Rauðurog Nýsjálend- ingarnir Frances Walsh og Peter Jackson, höfundar handrits fjári ónotalegrar myndar en athyglis- verðrar, Himneskar verur. Quentin Tarantino Woody Allen og Douglas McGrath Krzysztof Piesiewicz og Krzysztof Kieslowski Frances Walsh og Peter Jackson Richard Curtis Besta handritið byggt á áður birtu efni Enn kemur Forrest Gump fyrst upp í hugann og hlýtur Eric Roth að vera sigurstranglegastur fyrir sitt rómaða handrit sem lagði gmndvöllinn að góðri mynd. Helst að Paul Attanasio veiti honum keppni fyrir handrit Gettu betur. Þeir Alan Bennett (Geggjun Georgs konungs) og Frank Darabont, sem er sagður hafa gert góða hluti með söguna hans Stephens Kings, Rita Hayworth og Shawshankfangelsið, era aðeins inni í myndinni. Eric Roth Paul Attanasio Alan Bennett Frank Darabont Robert Benton Besti kvikmyndatökustjórinn Nú era aðalflokkamir að baki og farið fljótt yfir sögu. John Toll gerir mikið fyrir Vinda fortíðar og kvik- myndataka Owens Roizmans er langbesti þátturinn í stórvestranum Wyatt Earp. Eðli málsins samkvæmt kemur þó ekki á óvart að Forrest Gump „hreinsi borðið“ og hirði §ölda minni verðlauna á uppskerahátíðinni — þar á meðal Don Burgess fyrir tökuna. Svo það er ekki síður úr vöndu að ráða hér sem annars staðar. John ToII Owen Roizman Don Burgess Roger Deakins Piotr Sobocinski Besta klippingin Forrest Gump Leifturhraði Reyfari Rita Hayworth og Shawshankfangelsið Hoop Dreams Þá skulum við gera því skóna að Forrest Gump kræki í Óskar fyrir bestu förðunina; tónlist Hanz Zimmers sigri fyrir bestu frum- sömdu tónlistina í Konungi Ijón- anna; Viðtal við vampíruna vinni til verðlauna fyrir bestu listrænu stjórnunina. Leifturhraða, þeirri frábæru spennumynd, útbýti ég svo að lokum einu stk. Óskar — fyrir besta hljóðupptöku. Minna má það ekki vera. Megi þeir bestu vinna!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.