Morgunblaðið - 04.06.1995, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 04.06.1995, Qupperneq 20
20 B SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ1995 MORGUNBLAÐIÐ ATVIN N %MAUGL YSINGAR Félagsmálastjóri Staða félagsmálastjóra Hornafjarðar er laus til umsóknar. Félagsmálastjóri er yfirmaður félags- og fræðslumála Hornafjarðarbæjar. Félagsmálastjóri sér um framkvæmd laga um félagsþjónustu, er yfirmaður dagvistar- mála, heimaþjónustu og situr í þjónustuhópi aldraðra. Félagsmálastjóri er einnig starfsmaður Heil- brigðis- og öldrunarráðs Austur-Skaftafells- sýslu. Félagsmálastjóra er jafnframt ætlað að sinna fræðslumálum og vinna m.a. að undirbúningi fyrirhugaðs flutnings grunnskóla frá ríki til sveitarfélaga. Umsækjandi þarf að hafa háskólamenntun eða aðra sambærilega menntun. Umsóknar- frestur er til 20. júní nk. Frekari upplýsingar um starfið veitir bæjar- stjóri Hornafjarðar í síma 478-1500. Hornafirði, l.júní 1995, bæjarstjóri Hornafjarðar, Sturlaugur Þorsteinsson. Forstjóri Menningarmiðstöðvar Grænlands Til stendur að ráða í stöðu forstjóra Menning- armiðstöðvar Grænlands, sem verið er að reisa í Nuup, frá og með 1. september 1995. Verður ráðningin til fjögurra ára. Menningarmiðstöð Grænlands er sjálfseign- arstofnun, sem aðalverktakinn afhendir heimastjórn Grænlands og sveitarstjórninni í Nuup 1. september 1996. Markmið miðstöðvarinnar er að örva og þróa grænlenskt menningarlíf með alhliða, frjálsu og óháðu starfi í samstarfi við stofnanir, samtök, fyrirtæki og aðra. Miðstöðin á að stuðla að því að breiða út þekkingu á grænlenskri list og menningu á Norðurlöndum, stuðla að norrænu lista- og menningarlífi á Grænlandi og vinna að menn- ingarlegri samvinnu milli Grænlands og meg- inlands Norður-Ameríku og þá sér í lagi við þjóðflokka Ínúíta. Fyrsti forstjóri menningarmiðstöðvarinnar verður að hafa stjórnunarreynslu, gjarnan af áþekkri starfsemi, s.s. af rekstri ráð- stefnu- eða sýningamiðstöðva, kvikmynda- húsa- eða kaffihúsarekstri. Forstjórinn sér um daglegan rekstur miðstöðvarinnar og ber ábyrgð gagnvart stjórn á verkefnavali, fjár- hag og stjórnkerfi. Á lokastigi byggingaframkvæmda á forstjór- inn að leggja drög að verkefnadagskrá, byggja upp stjórnkerfi og annað þess hátt- ar, ráða starfsmenn og taka þátt í störfum byggingarnefndar. Laun samkvæmt samningi. Rétturtil greiðslu á ferðum og búslóðaflutningum tekur mið af gildandi samningum milli landsstjórnar Grænlands og samtaka embættismanna á Grænlandi (NAK) þegar ráðning á sér stað. Hægt er að útvega húsnæði og miðast greiðslur fyrir það við gildandi reglur. Frekari upplýsingar um stöðuna er hægt að fá með því að snúa sér til ritara byggingarnefnd- ar, Ole G. Jensen, menningarráðunauts, í síma 00 299 2 30 00, framlenging 4689. Umsókn ásamt upplýsingum um fyrri störf og meðmæli sendist með flugpósti til: Bygge- komiteen for Gronlands Kulturhus, Direktor- atet for Kultur, Uddannelse og Kirke, post- boks 1029, 3900 Nuuk, ekki síðar en 15. júlí 1995. Það eru sveitafélagið Nuup, heimastjórn Qrænlands og Norræna ráðherranefndin, sem standa að byggingu menningarmiöstöðvar- innar. f menningarmiðstöðinnl verður stór lelkhússaiur, tónleika- og rððstefnusalur, minni salur fyrir ýmsa starfsemi, stórt anddyri með sýningasvæðum og kaffihús. Menningarmiðstöðin mun einn- lg hýsa hinar sjálfstæðu stofnanir Listaskóla Grænlands, ferðaleik- hús og Norrænu stofnunina á Grænlandi. Rekstur hússins er fjár- magnaður með framlögum frá heimastjórn Grænlands og sveitar- fálaginu Nuup. Stjórn hússins verður skipuð innan tíðar. Hún mun sjá um ráðninguna. Laus störf 1. Tollskjalagerð og verðútreikningar hjá innflutningsfyrirtæki í austurborginni. Vinnutími frá kl. 9-17. 2. Bókari hjá útflutningsfyrirtæki í Reykjavík. Starfið felst að auki í ýmsum tilfallandi skrifstofustörfum. 50% starf. 3. Símavarsla og létt skrifstofustörf hjá opinberri stofnun í miðborginni. Vinnutími frá kl. 8.15-16.15. 4. Sölumaður í herrafataverslun með þekktar og vandaðar vörur. Leitað er að liprum og þjónustulunduðum aðila með fágaða framkomu. Vinnutími frá kl. 10-18. 5. Mötuneytisstarf hjá framleiðslufyrirtæki. Starfið felst í því að útbúa léttan hádegis- verð, kaffiumsjón og frágangi. Um sum- arafleysingu er að ræða frá 10. júlí til 4. ágúst. Vinnutími er frá kl. 8-16. Umsóknarfrestur er til og með 9. júní nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Liðsauka hf. sem opin er frá kl. 9-14. Afleysinga- og ráðningaþjónusta Liósauki hf. Skólavörðustig 1a - 101 Revklavik - Sími 56213SS_ + Rauði kross Islands Starfsmaður á Norðurlandi Rauði kross íslands óskar eftir starfsmanni á Norðurlandi til að annast stuðning við RKÍ-deildirnar á svæðinu. Um heilsdagsstarf er að ræða. Áætlað er að helmingur tímans sé viðverutími á skrif- stofu. Hinn hlutinn fer í fundi, námskeiða- hald og fræðslu utan fasts viðverutíma. Á Norðurlandi eru 13 deildir frá Hólmavík til Þórshafnar. Æskilegt er að 'starfsmaður sé staðsettur miðsvæðis á svæðinu. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. september nk. Helstu verkefni • Auka tengsl milli skrifstofu RKÍ og deilda á Norðurlandi. • Er framkvæmdastjóri fyrir svæðisnefnd og sinnir sameiginlegum verkefnum deilda og stuðningi við þær. Aðstoðar deildir við að koma upp nýjum verkefnum. • Rauða kross fræðsla á svæðinu. Aðstoð við námskeiðahald, kynningamál og út- gáfustarf (fréttabréf o.fl.). • Stuðningur við barna- og ungmennastarf RKÍ. • Fylgja eftir skipulagi neyðarvarna RKÍ. • Verkefni fyrir RKÍ sem tengjast deildar- starfi annars staðar á landinu. Kröfurtil umsækjenda • Verður að vera lifandi í starfi, vinnusamur og hafa frumkvæði. • Hafa bíl til umráða og geta farið um svæðið. • Reynsla af störfum með félagasamtökum. • Góð ensku- og tölvukunnátta æskileg. • Gert er ráð fyrir að viðkomandi sé/verði búsettur á Norðurlandi. Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon hjá Ráðgarði frá kl. 9-12 í síma 561 6688. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs hf., Nóatúni 17, 105 Reykjavík, merktar: „RKÍ - Norðurland" fyrir 17. júní nk. RÁÐGARÐUR hf STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN17 105 REYKJAVÍK SÍMI5616688 Tónlistarskóli Njarðvíkur Eftirtalin störf eru laus til umsóknar fyrir næsta skólaár: Staða sellókennara. Staða tréblásturskennara. Kennslugreinar: Þverflauta, saxófónn, samspil. Staða orgel/hljómborðskennara í eitt ár. Ný staða. Kennslugreinar: Rafmagnsgítar, rafmagnsbassi og tölvutónlist. Umsóknir, er greini frá aldri, menntun og fyrri störfum, sendist Tónskóla Njarðvíkur, Þórustíg 7, 260 Njarðvík, fyrir 15. júní nk. Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 421 3995 eða 421 2903. Skóiastjóri. Frá Fræðsluskrif- stofu Austurlands- umdæmis Staða skólastjóra við Vopnafjarðarskóla er laus til umsóknar, einnig kennarastöður við: Fellaskóla: Kennsla eldri barna. Grunnskólann í Breiðadalshreppi: Kennsla eldri barna. Umsóknarfrestur er til 9. júlí. Umsóknarfrestur um áður auglýstar kenn- arastöður framiengist til 18. júní. Seyðisfjarðarskóli: Sérkennsla, handmennt, íþróttir, mynd- mennt, heimilisfræði og tónmennt. Nesskóli f Neskaupstað: Almenn kennsla, heimilisfræði og hand- mennt. Verkmenntaskóli Austurlands: Handmennt og myndmennt. Grunnskólinn á Eskifirði: Almenn kennsla, heimilisfræði, smíðakennsla. Grunnskólinn á Bakkafirði: Almenn kennsla. Vopnafjarðarskóli: Almenn kennsla, smíðar, myndmennt, sér- kennsla, heimilisfræði, tungumál, hannyrðir og raungreinar. Brúarásskóli: Almenn kennsla. Grunnskóli Borgarfjarðar: Almenn kennsla og sérkennsla. Grunnskólinn á Eiðum: Almenn kennsla. Grunnskóli Reyðarfjarðar: íþróttakennsla. Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar: Almenn kennsla, myndmennt, danska og handmennt. Grunnskólinn á Stöðvarfirði: Meðal kennslugreina: íslenska, danska og enska. Grunnskólinn Djúpavogi: Meðal kennslugreina: myndmennt og raun- greinar eldri nemenda. Grunnskólinn Kerhömrum: Almenn kennsla, hlutastarf. Hafnarskóli: Sérkennsla, smíðar, hannyrðir, myndmennt, heimilisfræði og tónmennt. Heppuskóli: Sérkennsla. Upplýsingar veita viðkomandi skólastjórar og ber að skila umsóknum til þeirra. FræðslustjóriAusturlandsumdæmis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.