Morgunblaðið - 28.07.1995, Page 1
56 SÍÐUR B/C
169. TBL. 83. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Flóttamönnum
Sar^jevo. Reuter.
Flak Komsomolets
Ottast
spreng-
ingn
Kaupmannahöfn. The Daily TelegTaph.
NORSK stjórnvöld lýstu því yfir í
gær að þegar í stað yrði hafin rann-
sókn á þeim staðhæfingum Rússa
að hætta væri á því að kjarnorku-
tundurskeyti um borð í rússneska
kafbátnum Komsomolets gætu
sprungið.
„Við höfum farið þess á leit við
ráðuneyti vamar- og umhverfismála
svo og stofnanir kjarnorkumála að
meta hættuna," sagði talsmaður ut-
anríkisráðuneytisins.
Komsomolets sökk suður af
Bjarnarey í apríl 1989 eftir að eldur
kom upp í kjarnakljúfi skipsins. Auk
hefðbundinna tundurskeyta voru í
vopnabúri kafbátsins tvö kjarnorku-
tundurskeyti. Samkvæmt heimildum
Norðmanna laskaðist annað tundur-
skeytið er kafbáturinn sökk.
Norskir sérfræðingar segja að lítil
hætta sé á ferðum jafnvel þótt tund-
urskeytið spryngi vegna mikils dýpis.
♦ ♦ ♦---
A
Ihaldsmenn
töpuðu
BRESKI íhaldsflokkurinn tapaði
þingsæti í aukakosningum í Little-
borough og Saddleworth í gær.
Frjálslyndir demókratar unnu
þingsætið með 38% atkvæða en
frambjóðandi Verkamannaflokks-
ins lenti í öðru sæti með 34%. Ihald-
flokkurinn varð að láta sér nægja
þriðja sætið með 24%. Ríkisstjórn
Johns Majors hefur nú einungis níu
þingsæta meirihluta.
Japanskeisari
í Hiroshima
AKIHITO, keisari í Japan, og
Michiko keisarafrú leggja blóm
að minnismerki í Friðar- og
minningagarðinum í Hiroshima
í gær, í minningu fórnarlamba
fyrstu kjarnorkusprengingarinn-
ar í heiminum, 6. ágúst 1945.
Keisarahjónin heimsóttu Naga-
saki á miðvikudag.
FRIÐ ARGÆ SLU S VEITIR Sam-
einuðu þjóðanna (SÞ) fylgdu í gær
múslimskum flóttamönnum brott
frá griðasvæðinu í bænum Zepa,
sem fallinn er í hendur Bosníu-
Serbum. Einnig var greint frá því
að í hinum enda Bosníu, við landa-
mæri Króatíu, væri hópur serb-
neskra flóttamanna á flótta undan
átökum.
Samkvæmt heimildum úr her
Bosníu-Serba hafa Bosníu-Króatar,
sem eru á bandi múslima, sótt fram
á víglínunni milli Tomislavgrad og
Gravoho í suðvesturhluta Bosníu
og var sagt að þúsundir Bosníu-
Serba hefðu yfirgefið heimili sín og
haldið norður á bóginn. Hart er
barist allt í kringum griðasvæðið í
Bihac vestast í Bosníu.
Leiðtogar serbneskra uppreisn-
armanna í Knin, sem er í Krajina
héraði í Króatíu, hafa látið safna
liði til að bregðast við sókn Bosníu-
Króata.
Tillögur Rússa
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
lagði í gær fram nýjar friðartillögur
til að leysa ágreininginn í Bosníu.
Rússneska fréttastofan Interfax
hafði eftir Igori ívanov aðstoðarut-
anríkisráðherra að í tillögum Jelts-
íns væri gert ráð fyrir því að beinar
viðræður yrðu haldnar milli Bosníu-
Serba og stjórnvalda í Sarajevo og
viðskiptaþvingunum SÞ á Serbíu
yrði aflétt gegn því að Serbar viður-
kenndu sjálfstæði Bosníu. Olíklegt
er talið að þessi hugmynd fái stuðn-
ing Vesturlanda. „Þetta virðist ekki
mjög raunsætt," var haft eftir
breskum stjórnarerindreka um til-
löguna.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
skoraði í gær á SÞ að standa við
skuldbindingar sínar um að styðja
harðari loftárásir í Bosníu. Ella yrðu
bandamenn að breyta stefnu sinni.
■ Afnám vopnasöIubanns/17
Skaftá
í ham
SKAFTÁ var sem heljarfljót yfir
að líta í gær, en þá náði hlaupið
í henni hámarki. Áin bar ógnar-
magn af jarðvegi og eðju með
sér, m.a. efnið úr um 200 metra
löngum vegarkafla. Hér steypist
beljandinn niður eftir farvegi
Eldvatns, en það vill heimamönn-
um til happs, að hlaup úr Skaft-
árjökli dreifist í nokkra farvegi.
Hlaupið í Hverfisfljóti náði líka
hámarki í gær. Að þessu sinni
kom hlaupið úr eystri sigkatli
jökulsins, en hlaupið í fyrra, sem
var mun minna, kom úr vestri
katlinum. Gert er ráð fyrir að
rennsli ánna verði komið í eðli-
legt horf eftir þrjá til fjóra daga.
■ Eitt stærsta hlaup/6
Reuter
Rannsókn miðar hægt
París. Reuter.
SKIPTIBORÐ lögreglunnar í París
var sem logandi í gær eftir að
heitið hafði verið um 13 milljónum
kr. í verðlaun hveijum þeim, sem
gætu gefið upplýsingar um þá sem
stóðu að hryðjuverkinu í neðan-
jarðarlestinni sl. þriðjudag. Að
sögn lögreglunnar miðar þó rann-
sókninni enn hægt en talið er víst,
að sprengiefninu hafi verið komið
fyrir í gaskút.
Mikilvægasta vísbendingin til
þessa er frá lögreglumanni sem
ekki var á vakt er var um borð í
lestinni. Hann hefur gefið lögregl-
unni lýsingu á tveimur aröbum er
höguðu sér grunsamlega og fóru
úr lestinni á stöðinni á undan Saint-
Michel, þar sem sprengjan sprakk.
Annað vitni segist hafa séð mann,
sem líktist Norður-Afríkubúa, fara
úr lestinni á Chatelet-les Halles-
stöðinni rétt áður en sprengjan
sprakk og gefa klúrt merki, sem
virtist beint að farþegunum.
Háttsettur maður innan lögregl-
unnar sagði að enn væri þó of
snemmt að draga einhverjar álykt-
anir.
Allar ábendingar eru kannaðar
þótt yfirleitt sé ekki búist við mikl-
um árangri en menn minnast þess,
að það voru ríkuleg verðlaun, sem
áttu mestan þátt í því, að hryðju-
verkahópurinn Action Directe var
upprættur 1987.
„Hveijir?" var aðalfyrirsögnin á
forsíðu dagblaðsins Le Parisien í
gær en við spurningunni um það
hveijir myrtu sjö manns og slösuðu
áttatíu hafa engin svör fengist enn.
Enn er mest rætt um alsírska öfga-
menn eða Bosníu-Serba en talsmað-
ur þeirra síðarnefndu vísaði slíkum
vangaveltum á bug í gær.