Morgunblaðið - 28.07.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995 7
FRÉTTIR
Verkakvenna-
félagið Framtíðin
Ekkert
hefur
þokast
EKKERT varð af áætluðum
fundi samninganefndar ríkisins
og Verkakvennafélagsins
Framtíðarinnar í gær. Deilu-
aðilar hafa ekki tekið ákvörðun
um áframhald viðræðna.
Enginn tilgangur í
að halda annan fund
„Það var engin ákvörðun
tekin um verkfallsboðun eða
annan fund, við sjáum bara til
fram yfir helgi," sagði Guðríður
Elíasdóttir, formaður félagsins.
„Við ræddum okkar mál í
Verkamannasambandinu og
það var enginn tilgangur í að
halda annan fund að svo
stöddu.“
Vilja ekki Sóknar-
samning óbreyttan
Guðríður segir að Framtíð-
arkonur vilji fá svipaðan samn-
ing og önnur félög heilbrigðis-
stétta innan Verkamannasam-
bandsins. „Það er búið að bjóða
okkur Sóknarsamninginn, en
þótt hann sé að mörgu ieyti
góður, viljum við fá leiðréttingu
á ýmsum atriðum og hærra
kaup.“
í Verkakvennafélaginu
Framtíðinni eru ófaglærðar
starfsstúlkur á Hrafnistu, Sól-
vangi og St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði, rúmlega 300 konur
alls.
Morgunblaðið/Golli
BIRGIR Haraldsson og Baldur Kristjánsson á heimili þess síðar-
nefnda þar sem útvarpsstöðin Hringurinn er til húsa.
Hringurinn samtengd
ur Bylgjunni og FM
TVEIR tólf ára gamlir strákar
hafa starfrækt útvarpsstöðina
Hringinn síðustu daga úr herbergi
bróður annars útvarpsstjórans í
Sæviðarsundi í Reykjavík. Ut-
varpsstjórarnir, Baldur Kristjáns-
son og Birgir Haraldsson, segja
að útsendingar hafi hafist sl. laug-
ardag og dagskrárefnið er tónlist
af margvíslegum toga. Þeim félög-
um bætist svo góður liðsauki í út-
sendingu í dag þegar útvarps-
mennimir Gunnlaugur Helgason
og Jón Axel Ólafsson verða með á
samtengdum rásum FM 95,7,
Bylgjunnar og Hringsins frá kl.
15-16. Sent verður út frá Sæviðar-
sundi. Um leið verður söfnunar-
átak í gegnum Gulu línuna og renn-
ur söfnunarféð til Barnaspítala
Hringsins. Baldur segir að þeir
félagar hafi fengið lánaðan tækja-
búnað frá íþrótta- og tómstunda-
ráði og sjálfir lögðu þeir fram
hljómtækin. Allir ágóði af auglýs-
ingasölu og styrkir frá fyrirtækj-
um renna einnig til Bamaspítala
Hringsins og sagði Baldur að þeg-
ar væri búið að safna nálægt 200
þúsund kr. Utsendingar Hringsins
nást fremur illa í Vesturbænum
en betur austar í borginni og sagði
Baldur að heyrst hefði í stöðinni í
Borgarfirði. „Við emm í samstarfi
við Jón og Gulla. Þeir hringdu í
okkar og vildu fá að vera með.
Við veltum þessu fyrir okkur í
dálitinn tíma en við þurftum að
fara á fótboltaæfingu svo við
ákváðum bara að leyfa þeim að
vera með,“ sagði Baldur. Hann
sagði að von væri á góðum gestum
í útsendingunni í dag, eins og
Kidda bigfoot og Bubba Morthens.
Tijárækt félagasamtaka í Heiðmörkinni
Nessöfnuður í
hóp landnema
UM 80 félagssamtök hafa fengið
úthlutað reit til tijáræktar í Heið-
mörk og á sunnudaginn bættist þar
við fyrsti kirkjusöfnuðurinn í
Reykjavík, þegar hópur á vegum
Nessóknar gróðursetti hátt í 300
plöntur í spildu í Skógarhlíð.
Séra Guðmundur Oskar Ólafs-
son, sóknarprestur í Neskirkju, seg-
ir að samþykkt hafi verið á sóknar-
nefndarfundi í vor að leita eftir
spildu í Heiðmörk. Skógræktarfélag
Reykjavíkur afgreiddi beiðnina og
gat nefndin valið út þremur spild-
um.
Lítið land eftir
Óiafur Sæmundsen, deildarstjóri
hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur,
segir að lítið land sé nú eftir í Heið-
mörk fyrir svonefnda landnema,
félagasamtök sem tekið hafa að sér
að gróðursetja tijáplöntur í Heið-
mörk. Félögin hafa fengið plöntur
og verkfæri hjá Skógræktarfélag-
inu og leiðbeinandi segir til um
hvemig gróðursetningin fari best
fram. Þeir sem fá spildu til úthlut-
unar hafa einnig það hlutverk með
höndum, auk gróðursetningarinnar,
að hlúa að henni á komandi árum,
því mun Nesöfnuður standa fyrir
ferðum upp í Heiðmörk á komandi
árum.
Heiðmörk var friðuð árið 1950
og hafa um 80 félagssamtök fengið
úthlutað reit á sl. áratugum. Eftir-
spurn var mikil áratuginn eftir frið-
un Heiðmerkur en upp úr 1960
dvínaði hún en tók aftur kipp í
tengslum við ár trésins árið 1980
og átak vegna landgræðsluskóga
Guðmundur Óskar Ólafsson,
sóknarprestur í Neskirkju, og
Vignir Sigurðsson, umsjónar-
maður Heiðmerkur, við gróð-
ursetningu í reit Nessóknar í
Heiðmörk.
árið 1990. Nú er fremur lítið og
rýrt land eftir til skógræktar því á
vegum vinnuskólans hefur einnig
töluvert verið plantað. Þó hefur
engum fyrirspurnum um spildur til
gróðursetningar enn verið hafnað
en Ólafur telur að ekki verði mikið
um úthlutanir úr þessu. Friðland
Heiðmerkur er um 2.800 hektarar
að stærð, þar af hefur verið plantað
í um 8-900 ha, en talsvert stór hluti
svæðisins er þakið hraunum og
vötnum.
Ætlarþú að sœkja um námslán
hjá LIN fyrir 1. ágúst?
Á Mermtabraut, námsmarmaþjónustu íslandsbanka, eiga námsmenn m.a. kost á lánum í
tengslum vib fyrirgreibslu Lánasjóbs íslenskra námsmanna. Lánafyrirgreibslan er í formi stighœkkandi
mánabarlegrar yfirdráttarheimildar. Fyrirkomulagib tryggir lágmarkskostnab námsmanna þar sem
þeir greiba abeins vexti af nýttri yfirdráttarheimild. í bobi á Menntabraut er mebal annars:
• Tékkareikningur meö 50.000 kr. yfirdráttarheimild
óháö fyrirgreiöslu vegna LÍN
• Vönduö skipulagsbók
• Námsstyrkir
Debetkort, greiöslukort o.fl.
Námsmenn, kynnib ykkur fjölmarga kosti Menntabrautar
Komib og rœbib vib þjónustufulltrúa íslandsbanka um
fjármálin, þeir hafa sérhœft sig í málefnum námsfólks.
v<
■
# ;a *
JK'PULAGSBÖK
ft nixyhh
i n
VIHAH
toANA OAtAl
HIMASHItA
fra menntun til framtiðar!
MENNTABRAUT
Nánisnianmiþjómista íslandsbanka