Morgunblaðið - 28.07.1995, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Meðaltalsgrá turinn
7-0
BTGMunJc? —%/w
Þetta er alveg orðið óþolandi, maður er kominn með hellu fyrir annað ...
Víða að glæðast veiði
LAXVEIÐIN hefur víða tekið vel
við sér á nýjan leik eftir að það
hlýnaði í veðri og þykknaði upp.
Nú er enn stórstreymi og ljóst að
göngum er ekki lokið. Hins vegar
er vatnsleysi farið að hrjá í sumum
ám.
Laxá í Kjós orðin vatnslítil
Laxá í Kjós er orðin afar vatnslít-
il og stendur það veiði nokkuð fyrir
þrifum, því mjög mikill lax er í
ánni. Að sögn Páls G. Jónssonar
eru komnir nærri 450 laxar á land
og er það þokkalegt miðað við að-
stæður, en fremur lítið miðað við
hve mikill lax er í ánni. „Ég var
sjálfur með Bandaríkjamanni við
Alabakkana í vikunni, það var logn
og lítið vatn og Kaninn hreinlega
fraus er hann sá í ána. Laxarnir
skiptu einhvetjum hundruðum.
Þetta er einmitt þess háttar staður
þar sem laxinn getur hlaðist upp
þegar vatnið er lítið, en það eru
fleiri slíkir staðir í ánni,“ sagði Páll
í gærdag.
Góð veiði í Haffjarðará
Mjög góð veiði hefur verið í Haf-
fjarðará og í gærdag voru komnir
yfir 400 laxar á land og lax enn
að ganga. Uppistaðan í veiðinni er
mjög vænn smálax, 5-7 pund, en
það eru einnig boltar innan um.
Gott vatn er enn í ánni þar sem
Oddastaðavatn hefur mjög jafna
stöðu.
Glæðist aftur í Miðfjarðará
„Það byrjaði hópur ítalskra
veiðimanna á sunnudaginn og
þetta var þungt hjá þeim í byijun.
En í gær veiddu þeir 15 laxa og
höfðu þá fengið alls 30 stykki.
Vikan á undan gaf 100 laxa þann-
ig að þetta virtist allt vera að koma.
Þessir 15 sem þeir fengu gefa fyrir-
heit um að eitthvað gerist í stór-
streyminu, enda er það haft fyrir
satt að mikill lax er að sveima í
sjónum og það hlýtur að koma að
því að hann gengur í ána. Annars
er sá lax sem er genginn vel dreifð-
ur um svæðið. Helst að maður
hafi áhyggjur af því að Vesturá
og Núpsá eru að verða nokkuð
vatnslitlar,“ sagði Böðvar Sig-
valdason á Barði í Miðfirði í gær-
dag. Þá voru komnir um 350 laxar
á land. „Það er ekki nóg, en við
erum enn vongóðir um að rætist
úr og þakklátir á meðan það er
ekki ördeyða,11 bætti Jlöðvar við.
Gyúfurá í toppformi
Nú þegar hefur veiðst meira í
Gljúfurá en allt síðasta sumar. Á
hádegi á miðvikudag voru komnir
179 laxar á land og veiðimenn sam-
dóma um að mikill lax er í ánni,
sérstaklega ofarlega. Þar til fyrir tíu
dögum eða svo veiddist lítið fyrir
ofan veiðihús, þess meira á svæðum
þar fyrir neðan. Að undanförnu hafa
efri svæðin lifnað svo um munar,
en einnig er kominn vísir að því að
nýir fískar séu að ganga neðar með
vaxandi straum. Nær allur laxinn
er 3 til 6 pund, nokkrir 8 til 10
pundaogeinn, sástærsti, 16,4 pund,
veiddur á maðk í Efra Kerinu.
Upplýsingafulltrúi frá RKÍ til Tanzaníu
Flóttamennirnir
ekki á heimleið
Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir
Fyrir um ári streymdu
flóttamenn frá Rú-
anda yfir landa-
mærin til Tanzaníu. Voru
þeir að flýja blóðuga borg-
arastytjöld og fjöldamorð
heima fyrir. Nú hefur
ástandið í Rúanda skánað
en ástandið í nágrannarík-
inu Búrúndi að sama skapi
versnað og eru .nú um 700
þúsund flóttamenn
Tanzaníu frá löndunum
tveimur. Þórunn Svein-
bjarnardóttir, _ sendifulltrúi
Rauða kross íslands, er á
leið til Tanzaníu til að sjá
um upplýsingamál í
Benaco-flóttamannabúðum
í Ngara-héraði sem liggur
að landamærum Rúanda.
Rauði krossinn hefur áður
sent sendifulltrúa á svæðið,
en Þórunn er fyrsti íslenski
sendifulltrúinn sem gegnir
starfi upplýsingafulltrúa.
- Hvernig kom það til að þú
fékkst starfið?
„Ég fór á námskeið fyrir verð-
andi sendifulltrúa hjá Rauða
krossi íslands fyrir tæpu ári síðan
og það staðfesti grun minn að
mig langaði að vinna fyrir RKÍ
erlendis. Ég er búin að vera á
veraldarvakt RKÍ síðan í vor og
þegar mér bauðst að fara til
Tanzaníu ákvað ég að slá til.
Ég hef lengi haft áhuga á mál-
um flóttamanna því það vill oft
gleýmast að þegar stríð eða póli-
tísk átök eru um garð gengin þá
situr oft eftir fólk í sárum sem
einhver þarf að hugsa um.“
- / hveiju er starfið fólgið?
„Ég á að gegna starfí upplýs-
ingafulltrúa. Eg fer sem sagt til
að safna upplýsingum, skrifa
skýrslur og tilkynningar sem
sendar eru til aðalstöðvanna í Genf.
Þær eru síðan notaðar til að afla
peninga frá Rauða kross félögum
um allan heim. Ég sé einnig um
samskipti við fjölmiðlafólk og vinn
með öðrum hjálparstofnunum á
svæðinu að upplýsingaöflun.“
- Hvernig er aðstaðan í flótta-
manpabúðunum í Ngara?
„Á svæðinu í kringum Ngara í
norðvesturhluta Tanzaníu er um
hálf milljón flóttamanna frá Rú-
anda og Búrúndi. í Benako-búð-
unum, þar sem ég mun starfa,
dvelja upp undir 200 þúsund
manns.
Mér skilst að aðstaðan í búðun-
um sé nokkuð góð. Heilsugæsla
er góð og það er gott skipulag á
matardreifingu. Búið er að koma
upp húsaskjóli, kömrum og ein-
hverri fráveitu. Einnig hefur tek-
ist að sjá fyrir aðalatriðinu sem
er hreint vatn.“
- Er fólkið á heimleið?
„Fólkið sem í búðunum er er
ekki á leiðinni neitt. Eins og
ástandið er í Rúanda eru litlar lík-
ur á að það fari þangað
aftur í bráð. Ný stjórn
hefur tekið við völdum
í Rúanda sem segir að
Rúandabúar hafi ekk-
ert að óttast ef þeir
snúi til baka. En á það ber einnig
að líta að heimili margra hafa
verið eyðilögð og jarðir teknar af
þeim. Það blasir ekkert við að
fólk fari heim og gangi að heimili
sínu vísu.
Rauði krossinn tekur þátt í að
hjálpa fólki að flytja heim til sín
í samstarfi við viðkomandi stjórn-
völd. En Rauði krossinn sem slík-
ur hefur ekki umboð-til að segja
fólki að koma eða fara.“
- Hvaða augum lítur Tanzaníu-
stjórn fóttamennina?
„í Tanzaníu eru um 700 þúsund
fóttamenn frá Rúanda og Búr-
úndí. Því fylgir margs konar álag,
► Þórunn Sveinbjarnardóttir er
fædd þann 22. nóvember 1965
í Reykjavík. Hún lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1984, BA-prófi
í sljórnmálafræði frá Háskóla
íslands árið 1989 og meistara-
prófi í alþjóðastjórnmálum frá
Johns Hopkins University í
Bandaríkjunum árið 1991. Að
námi loknu starfaði hún i háift
ár hjá Rauða krossi íslands við
að aðstoða víetnamska flótta-
menn. Árið 1992 var hún við
störf hjá EFTA í Genf í Sviss
en undanfarin þijú ár hefur
Þórunn verið framkvæmda-
stýra Kvennalistans. Hún er
einnig varaþingkona flokksins
í Reykjavík. Þórunn er dóttir
hjónanna Önnu Lárusdóttur og
Sveinbjarnar Hafliðasonar.
bæði efnahagslegt og álag á
byggðir í landamærahéruðum.
Tanzanía er fátækt land og getur
ekki eitt og sér annað þessum
fjölda og séð um hann. Ég las það
einhvers staðar að stjórnvöld í
Tanzaníu hefðu áhyggjur af að
annar eins fjöldi af flóttamönnum
kæmi frá Búrúndí ef upp úr syði
þar. Manni skilst af fréttum þaðan
að lítið þurfí til þess. Þetta eru
skiljanlegar áhyggjur því þetta er
gífurlegur mannfjöldi sem kemur
yfir landamærin allslaus og heim-
ilislaus.“
- Hversu mikið starfsfólk er Al-
þjóða Rauði krossinn með íNgara?
„Á svæðinu starfa um 40-50
sendifulltrúar. Með þeim starfar
fíöldinn allur af sjálfboðaliðum frá
Tanzaníska Rauða krossinum.
Starfið í Ngara er allt unnið í
samstarfi við Rauða krossinn í
Tanzaníu sem er lykillinn að þessu
öllu saman. Til dæmis þarf ég að
finna einhvern úr Tanzaníska
Rauða krossinum til að
vinna með mér.“
- I hverju hefur undir-
búningur þinn verið
fólginn?
„Undirbúningurinn
hefur verið fólginn í að fá spraut-
ur, lyf gegn malaríu og fara í
læknisskoðun til að athuga hvort
maður er við líkamlega og andlega
heilsu. Einnig hefur maður þurft
að koma öllum pappírum í lag og
svo auðvitað lesa sér til og safna
þeim gögnum sem maður getur.
Ferðin hefst svo með viðkomu í
Genf þar sem tveir dagar fara í
undirbúning."
- Hvernig leggst starfið í þig?_
„Þetta leggst vel í mig. Ég
hlakka til en óneitanlega fylgir
þessu streita því ég veit ekki hvað
bíður mín á svæðinu, en ég veit
að þetta verður krefjandi."
í stríðslok
situr eftir fóik
I sárum