Morgunblaðið - 28.07.1995, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Tónskáldið klórar
í koparinn
Morgunblaðið/Rúnar Þór
HAFLIÐI Hallgrímsson tónskáld hengir upp myndir sínar í
Listasafninu á Akureyri.
Hafliði Hallgrímsson
tónskáld opnar mynd-
listarsýningu í Lista-
safninu á Akureyri
laugardaginn 29. júlí.
Sverrir Páll hitti
Hafliða að máli og
forvitnaðist um mynd-
listarstörf tónlistar-
mannsins.
Á sýningunni sem er i vestursal
safnsins eru 35 myndir sem Hafliði
hefur gert á undanfömum þremur
árum, en hluta myndanna hefur
hann áður sýnt, í Skálholti fyrir
tveimur árum, í Hallgrímskirkju á
síðasta sumri og auk þess á nor-
rænni menningarhátíð í Colchester.
Við opnun sýningarinnar í dag mun
Helga Bryndís Magnúsdóttir leika
nokkur píanótónverk Hafliða.
Tvennir tónleikar á
myndlistarsýningu tónskálds
í tengslum við sýningu Hafliða
verða tvennir tónieikar í Listasafn-
inu á Akureyri. 2. ágúst kemur þar
fram Tríó Reykjavíkur, Halldór
Haraldsson píanóleikari, Guðný
Guðmundsdóttir konsertmeistari
Sinfóníuhljómsveitar íslands, sem
leikur á fiðlu, og Gunnar Kvaran
sellóleikari. Á tónleikunum verður
leikin tónlist eftir Hafliða Hall-
grímsson, meðal annars verk sem
hann hefur tileinkað hljóðfæraleik-
urunum hveijum fyrir sig. Þama
verður einleikur og tvíleikur og loks
samleikur þar sem tríóið leikur
verk sem Hafliði samdi til minning-
ar um John Tunnell, konsertmeist-
ara Skosku kammersveitarinnar,
en fyrir tilverknað hans segist
Hafliði hafa sest að í Skotlandi þar
sem hann starfaði meðal annars í
þessari hljómsveit.
Á tónleikum í Listasafninu 13.
ágúst leikur Helga Bryndís Magn-
úsdóttir fjöimörg píanótónverk eft-
ir Hafliða. „Þetta em mörg smá
verk en flutt í bálkum,“ segir Hafl-
iði. „Meðal verkanna eru 13 ný
píanóstykki og 10 af þeim em sér-
staklega samin fyrir nemendur
Tónlistarskólans á Akureyri. Þetta
er eins konar þakklætisvottur minn
fyrir dvölina í Davíðshúsi. í verkun-
um era meðal annars ýmsar minn-
ingar frá Akureyri og úr umhverf-
inu hér, til dæmis eitt sem heitir
Klettahljómur og er um það þegar
ég reyndi einu sinni að heyra álfa-
söng í kletti hérna, eins konar
ímynduð álfatónlist, annað heitir
Fyrir utan Tónlistarskólann og þar
heyrist meðal annars í bakgmnni
í nemanda sem er að æfa skala.
Eitt stykkið heitir Helgimynd og
er kannski tilvitnun í litla bútinn
úr Coventry-dómkirkjunni sem er
á einum stað í glugga í Akureyrar-
kirkju. Þá eru á dagskránni 3 verk
sem ég samdi fyrir spænskan
píanóleikara sem pantaði hjá mér
verk sem tengdust myndlist og ég
samdi þau og tileinkaði Mondrian.
Ennfremur eru þarna fjögur þjóð-
lög sem ég útsetti einu sinni fyrir
Philip Jenkins píanóleikara sem
lengi kenndi hér á Akureyri."
Hafliði Hallgrímsson býr í Edin-
borg og er þar aðiii að grafíkverk-
stæði sem hann segir mjög vel
búið tækjum. Þangað segist hann
fara fjórum sinnum á ári til að
vinna og prenta, en plöturnar geri
hann heima, grípi í það einstöku
sinnum á kvöldin að teikna á þær
og stundum láti hann prenta þær
fyrir sig. „Ég er fyrst og fremst
tónskáld og helga tónsmíðum mest-
an minn tíma. Eg hef lagt einieika-
rastarfið að mestu á hilluna enda
var ég búinn að spila svo mikið og
víða að mér fannst komið nóg. Ég
hafði auk þess alltaf stefnt að tón-
smíðastarfinu. Hins vegar hef ég
alltaf haft mikinn áhuga á mynd-
list, stundað sýningar og farið á
námskeið. Ég iít á myndlistariðkun
mína fyrst og fremst sem hvíld frá
tónsmíðunum, enda set ég mér
ákveðin mörk, fæst bara við graf-
ík.“ Hafliði sagðist ekki hafa sér-
stakan áhuga á að sýna mikið, en
stofninn að sýningunni væri til og
hefði verið sýndur áður en þó hafi
hann bætt töluvert miklu við það
sem áður var. En hvert er mynd-
efni tónlistarmannsins og á það
samleið með tónsmíðunum?
Að gera það sem manni
er tamt
„Myndefnið er allt milli himins
og jarðar. Það er gott að vera
áhugamaður í þessu því það gefur
mér frelsi og frelsið er mér mikil-
vægt. Við könnumst við hand-
bragð. Við könnumst við hlut eða
verk og getum sagt að þetta hafi
þessi gert. í hvom tveggja sem ég
fæst við, tónlistinni og myndlist-
inni, er ég að reyna að finna það
sem mér er eðlilegt, eða að gera
mér það svo tamt, að það verði
mér eðlilegt. Þannig held ég að sé
svipað handbragð á verkum mín-
um. Þegar ég skrifa nótur skrifa
ég til dæmis smátt og fínlega og
þegar ég klóra með nál í koparinn
er það líka fínleg vinna. En grafík-
in er mér eingöngu hvíld frá tón-
smíðunum og tónsmíðar eru gríðar-
lega tímafrekt starf. Þetta tvennt
er algerlega aðskilið og ég vinn að
myndunum eingöngu á kvöldin og
ekki nema nokkmm sinnum í mán-
uði. Menn verða að hafa eitthvað
til að gleyma sér við utan aðal-
starfsins. Sumir fara í golf, sumir
í siglingar eða hestamennsku, en
þetta em mínar sparistundir.“
Hafliði Hallgrímsson fluttist frá
Akureyri til Reykjavíkur árið 1958
og til útlanda fiutti hann 1964 og
hefur lengst af búið í Skotlandi.
Hann segist ævinlega hafa komið
heim að minnsta kosti einu sinni
eða tvisvar á ári, haldið tónleika,
samið tónverk, oft sérstaklega fyr-
ir tiltekna tónlistarmenn, sýnt
myndlist og með þessu lagt sinn
skerf til íslenskrar menningar.
Hann segist sannfærður um að sá
skerfur væri ekki stærri þótt hann
hefði búið hér heima allan þennan
tíma. Þetta sé sér mjög mikils virði,
„og það er mér ekki síst mikilvægt
að fá tækifæri til að vera með í
menningarlífínu á Akureyri og
þátttakandi í þeirri miklu menning-
amppbyggingu sem hér hefur átt
sér stað á síðustu ámm þegar
Listagilið hefur fyllst af metnaðar-
fullu menningarstarfi."
ROGER Sayer organisti.
Enskur
organisti í
Hallgríms-
kirkju
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 30. júlí
leikur breski organistinn Roger
Sayer á fimmtu orgeltónleikum
sumarsins í Hallgrímskirkju. Tón-
leikarnir hefjast kl. 20.30. Roger
Sayer er organisti og tónlistarstjóri
dómkirkjunnar í Rocherster á Eng-
landi þar sem hann hefur starfað
síðan 1989. Á síðasta ári var hljóð-
rituð geislaplata þar sem hann lék
á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju og
er sá diskur að koma út um þessar
mundir á vegum breska útgáfufyr-
irtækisins Priory. Sayer er nýkom-
inn úr orgeltónleikaferð um Norður-
löndin.
Fyrst verður leikin tónlist frá
rómantíska tímabilinu eftir Widor
og Howells. Þá verða flutt þrjú
verk sem ekki hafa verið flutt áður
hér á Islandi. Heiti þeirra eru Lag
fyrír túbu eftir Norman Cocker,
Dauðadans Hamborgar eftir sviss-
neska tónskáldið Guy Bovet og
Potsdam forleikurinn eftir Barry
Fergusson en hann er forveri Roger
Sayers sem dómorganisti í Rochest-
er. Að lokum leikur hann verk eftir
tvö þekkt orgeltónskáldum 20. ald-
arinnar: tékkneska tónskáldið Petr
Eben franska tónskáldið Maurice
Duruflé.
Efnisskrá: Allegro úr Orgelsin-
fóníu nr. 6 efítr Charles-Marie Wid-
or, Rapsódía nr. 1 eftir Herbert
Howels, Lag fyrir túbu eftir Nor-
man Cocker. Dauðadans Hamborg-
ar eftir Gay Bovet Potsdam, forleik-
urinn eftir Barry Ferguson, Moto
Ostinato úr „Sunnudagstónlist“ eft-
ir Petr Eben, Svíta op. 5 eftir
Maurice Dumflé.
Danska skáldið Hein
hannar enn
DANSKA skáldið, uppfinninga-
maðurinn og hönnuðurinn Piet
Hein er enn að, þrátt fyrir að
hann sé orðinn 89 ára. Á hverju
ári eru kynntir á milli 10 og 15
munir sem hann hefur hannað,
þó að ekki sé allt nýtt af nál-
inni. Að því er fram kemur í
Politiken er ástæðan fyrst og
fremst sú að fyrir fimm árum
gafst Hein upp á því að henda
reiður á bókhaldi og skráningu
hugmynda sinna og stofnaði í
því skyni fyrirtæki, sem hefur
unnið við það síðustu árin að
gera skurk í skjalahaugum
hans. Mun margt merkra hug-
mynda hafa komið þar í ljós og
vonast Hein og framkvæmda-
sljórar fyrirtækis hans til þess
að sem flest af þessu líti dagsins
ljós. Ekki hefur enn fengist
uppgefið um hvers konar muni
er að ræða en á myndinni, sem
er tekin 1992, stendur Piet Hein
fyrir framan sólúr sem hann
hannaði.
Tónleikar í
Grindavík-
Morgunblaðið/Ingibjörg
KRISTJANA Helgadóttir, f.v., Geir Rafsson og Arna Kristín
Einarsdóttir leika í Grindavíkurkirju á sunnudag.
urkirkju
Á TÓNLEIKUM sem haldnir verða
í Grindavíkurkiiju á sunnudag kl.
18, verður flautuleikur og slagverk
í bland. Á efnisskránni verða verk
eftir Áskel Másson, Niei Deponte,
Debussy, Alice Gomez og Bach.
Kristjana Helgadóttir lauk blás-
arakennaraprófí frá Tónlistarskóla
Reykjavíkur 1994 og burtfararprófi
þaðan 1995. Aðalkennari hennar
þar var Bernard Wilkinson. Krist-
jana stefnir á Sweelinck Conservat-
orium í Amsterdam þar sem aðal-
kennari hennar verður Peter Ode.
Kristjana hefur starfað sem flautu-
leikari við Tónlistarskólann í Mos-
fellsbæ undanfarin ár og leikið
meðal annars með Sinfoníuhljóm-
sveit Æskunnar og Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlanda, Orkester Nord-
en.
Arna Kristín Einarsdóttir lauk
einleikaraprófi í flautuleik frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík 1990.
Aðalkennari hennar var Bernard
Wilkinson. Arna Kristín stundaði
framhaldsnám við Indiana Univers-
ity í Bloomington og lauk Perform-
ance Diploma þaðan með láði 1992.
Hún stefnir nú að lokaprófi frá
Royai Northern College of Music í
Manchester í Englandi á næsta
vetri. Peter Lloyd hefur verið aðal-
kennari hennar í Bandaríkjunum
og Bretlandi. Arna Kristín hefur
fengist við kennslu í flautuleik við
Tónmenntaskólann í Reykjavík, og
meðal annars tekið þátt í tónleikum
á vegum Caput-hópsins.
Geir Rafnsson slagverksleikari
hóf nám við Tónlistarskóla Akur-
eyrar 1983 hjá Roar Kvam. Frá
árinu 1990 stundaði hann nám við
Tónlistarskóla FÍH hjá Reyni Sig-
urðssyni, Pétri Grétarssyni, Maart-
en van der Valk og Steef van
Oosterhout og lauk þaðan burtfar-
arprófi vorið 1994. Geir hefur á
undanförnum árum leikið reglulega
með Sinfóníuhljómsveit Islands,
Caput-hópnum, Kammersveit
Reykjavikur og Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands.