Morgunblaðið - 28.07.1995, Page 23
22 FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
STJÓRNARFORMAÐUR: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
VINNUFRAMLAG
OG OFSKÖTTUN
SKATTBYRÐI einstaklinga hefur vaxið svo und-
anfarin ár, að hún er orðin vinnuletjandi. Inn-
heimtuhlutfall í staðgreiðslu nemur nú 41,84%, en
var 35,2%, þegar hún var tekin upp árið 1988. Hér
kemur til aukin skattheimta bæði ríkis og sveitarfé-
laga. Margir skattgreiðendur mega nú auk þess
búast við viðbótarútsvari, þar sem ýmis sveitarfélög
hafa nýtt sér heimildir að fullu, og er því útsvarshlut-
fallið hærra en staðgreiðsluprósentan segir til um.
Ein helzta ástæðan fyrir þessari miklu skattbyrði
er áralöng umframeyðsla ríkisins og sveitarfélag-
anna.
Skattheimtan hefur gengið svo langt, að ein leiðin
til að auka ráðstöfunartekjurnar er að minnka launa-
tekjur, þ.e. að minnka við sig vinnu. Um þetta sagði
Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra, þegar hann
kynnti niðurstöður álagningar fyrir árið 1994:
„Tekjutenging skatta, bóta og almannatrygginga
veldur því nú, að jaðarskattar eru í mörgum tilfellum
orðnir svo háir, að fólk getur hækkað ráðstöfunar-
tekjur sínar með því að lækka launatekjur.“ Fjár-
málaráðherra boðaði, að ríkisstjórnin muni athuga
þessi atriði nánar og hyggist ljúka fyrir lok ársins
1996 vinnu við skattkerfisbreytingar.
Bragð er að þá barnið finnur. Ríkið er örugglega
farið að missa skatttekjur vegna ofsköttunar, auk
þess sem þjóðfélagið í heild tapar á því, að launþeg-
ar dragi úr vinnuframlagi til að minnka skattaálög-
ur. Ástæða er því til að fagna yfirlýsingu fjármála-
ráðherra um endurbætur á skattkerfinu. Hins vegar
er gert ráð fyrir alltof löngum tíma til endurskoðun-
ar, þ.e. til loka næsta árs, sem þýðir að skattgreiðend-
ur þurfa að bíða til 1997 hið minnsta þar til úrbæt-
ur koma til framkvæmda, en þó trúlega til 1998.
Fjármálaráðherra upplýsti ennfremur, að einungis
einn af hverjum þremur framteljendum greiði tekju-
skatt, en hinir tveir greiða annaðhvort engan skatt
eða fá endurgreiðslur, þegar bætur eru teknar með.
Þetta sýnir einnig brotalöm í skattkerfinu. Ekki
getur talizt eðlilegt, að einungis þriðjungur framtelj-
enda beri tekjuskattsbyrðina, en tveir þriðju séu
þiggjendur, því slíkt brenglar afstöðu borgaranna
til þjóðfélagsins, sem þeir bera sameiginlega ábyrgð
á. '
í yfirliti fjármálaráðherra urrö álagningu skatta
nú eru nokkur atriði sem vekja athygli sérstaklega.
Þar má nefna að hagur atvinnufyrirtækjanna heldur
áfram að batna, en hins vegar halda skuldir heimil-
anna áfram að vaxa, eða um 9% árið 1994. Skulda-
söfnunin er að mestu leyti vegna íbúðakaupa og svo
námslána. Það verður að teljast eðlilegt. Hins vegar
bendir fjármálaráðherra á, að ein skýring skuldasöfn-
unar heimilanna sé auðveldari aðgangur að lánsfé,
m.a. í opinbera húsnæðislánakerfinu. Þess má geta,
að 22 þúsund framteljendur skulduðu meira en þeir
eiga 1994, en aftur á móti áttu ríflega 85 þúsund
eignir umfram skuldir.
Ríkisstjórnin vinnur nú að fjárlagagerð fyrir næsta
ár, en hún ráðgerir að minnka fjárlagahallann niður
í 4 milljarða. Brýn nauðsyn er á því að hætta halla-
rekstri ríkissjóðs og ekkert má sveigja stjórnarflokk-
ana af þeirri braut. Aukin efnahagsumsvif munu
auðvelda ríkisstjórninni þetta ætlunarverk, en vafa-
laust verður einnig að skera verulega niður í ríkis-
rekstrinum til að ná settu marki.
Eitt er víst, að ríkisstjórnin getur ekki gengið í
skrokk á skattgreiðendum. Þeir þola einfaldlega
ekki meira, sem bezt má sjá af ummælum fjármála-
ráðherra.
Seðlabankinn telur marga ókosti við stimpilgjaldtöku og að viðskipti færist úr landi
Yfirlit yfir stimpilskyldu og stimpilgjald
á íslenskum fiármagnsmarkaði Stimpil- Stimpil-
^skylda gjald
Ríkissjóður: Spariskírteini Nei
Ríkisbréf, ríkisvíxlar Nei
Fjárfestingarlánasj.: Húsbréf, húsnæðisbréf Nei
Aðrir fjárf.lánasjóðir í eigu ríkisins Nei
Bankar og sparisjóðir: Bankabréf, bankavixlar Nei
Eignarleigur: Bréf eignarleiga (vaxtaiaus og/eða án trygginga) Já
Víxlar Já
Hlutdeildarskírteini: Já
Bréf sveítarfélaga: Skuldabréf (vaxtal. og/eða án trygg.) Já
Skuldabréf Já
Víxlar Já
Bréf fyrirtækja: Skuldabréf (vaxtal. og /eða án trygg.) Já
Skuldabréf Já
Víxlar Já
Hlutabréf Já
0,5%
0,25%
0,5%
0,5%
1,5%
0,25%
0,5%
1,5%
0,25%
2,0%
Bréf einstaklinga: Skuldabréf (vaxtal. og/eða án trygg.) Já 0,5%
Skuldabréf Já 1,5%
Víxlar Já 0,25%
Tekjur ríkissjóðs af stimpilgjaldi *
og hlutfall þeirra af heildartekjum ríkissjóðs
<p
c
■o
c
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
1990 1991 1992 1993 1994 Aætl.
1995
* Tekjur af stimpilgjaldi og þinglýsingum, en um 97% af tekjunum eru vegna stimpilgjalda.
Hindrar þróun á
fj ármagnsmarkaði
Seðlabankinn telur að stimpilgjöld leiði til
minni veltu á verðbréfum, hafi áhrif á stöð-
ugleika fjármagnsmarkaða og leiði til þess að
—
viðskipti flytjist til annarra íanda. I grein
Omars Friðríkssonar kemur fram að í frum-
varpsdrögum í fjármálaráðuneytinu er lagt til
að stimpilgjöld verði tengd lánstíma, þau verði
lækkuð eða felld niður af markaðsverðbréfum
en gjaldstofninn verði breikkaður.
GAGNRÝNI á stimpilgjald-
töku ríkisins verður sífellt
háværari og er m.a. bent á
að gjaldið leggist illa á ein-
staklinga í greiðsluerfiðleikum, hindri
þróun á nútíma fjármagnsmarkaði og
valdi efnahagslegu óhagræði.
Stimpilgjald er óbeinn skattur sem
rennur í ríkissjóð en gjaldið er greitt
af stimplun ýmissa verðbréfa og er
upphæð þess mishá eftir tegundum
verðbréfa en algengast er að af ai-
mennri lántöku sé greitt 1,5% stimpil-
gjald. Hér er um umtalsverðan tekju-
stofn fyrir ríkissjóð að ræða en á sein-
asta árí námu tekjur ríkisins af stimp-
ilgjaldi og þinglýsingum um 2,4 millj-
örðum króna, þar af voru um 97%
upphæðarinnar vegna stirhpilgjalda. Á
yfirstandandi ári er áætlað að stimpil-
gjöld skili ríkissjóði 2.435 millj. kr.
2-2,5% af heildartekjum ríkissjóðs á
hverju ári eru vegna stimpilgjalda._
Peningamáladeild Seðlabanka ís-
lands tók saman greinargerð um stimp-
ilgjöld og hugsanleg áhrif þeirra á þró-
un ijármagnsmarkaða sl. haust. Niður-
staða Seðlabankans var m.a. sú að
stimpilgjöld leiði til minni veltu á þeim
verðbréfum sem þau eru lögð á, hafí
áhrif á verð þeirra og á stöðugleika
markaða. Stimpilgjöld leiði til þess að
viðskipti flytjist til landa þar sem þau
eru lægri eða að viðskiptin færist yfir
á önnur verðbréfaform, til að komast
hjá skattlagningu. „Stimpilgjöld leiða
til þess að útgáfa verðbréfa verður
minni vegna þess að kostnaður við út-
gáfu verður meiri. Auk þess verður
eftirspum eftir stimpilgjaldsskyldum
bréfum minni vegna þess að gjaldið
dregur úr ávöxtun þeirra. Því lengri
sem líftími verðbréfsins er því minni
áhrif hefur stimpilgjaldið.
Lögunum um stimpilgjöld frá ,1978
þarf að breyta þannig að þau hindri
ekki eðlilega þróun á ís-
lenskum verðbréfamarkaði,
jafni samkeppnisstöðu
þeirra aðila sem starfa á ís-
lenskum fjármagnsmarkaði
og samkeppnisstöðu inn-
lends fjármagnsmarkaðar
gagnvart erlendri samkeppni án þess
að tekjur ríkissjóðs skerðist mikið,“
segir í greinargerðinni. Einnig er bent
á að stimpilgjald á hlutdeildarskírteini
skerði ávöxtun verðbréfasjóða og þar
með versni samkeppnisstaða þeirra
gagnvart öðrum innlendum spamað-
arkostum og erlendum verðbréfasjóð-
um. Stimpilgjaldið geri það kostnaðar-
samara fyrir eigendur hlutdeildarskír-
teina að fiytja fjárfestingu sína á milli
verðbréfasjóða.
„Útgefendur stimpilskyldra skulda-
bréfa geta sloppið með að greiða 0,5%
stimpilgjald í stað 1,5% með því að
hafa bréfin vaxtalaus óg/eða án trygg-
inga. Það virðist vera að útgefendur
markaðsskuldabréfa fari þessa leið.
Rökin fyrir mismunandi gjaldi eftir
formi skuldabréfa eru vandfundin og
ekki getur verið æskilegt að ýta mönn-
um frá því að gefa út bréf með „hefð-
bundnu" fyrirkomulagi til þess eins
að komast hjá aukinni skattheimtu.
Yrðu stimpilgjöld afnumin eða
lækkuð, myndi útgáfa skammtíma-
markaðsverðbréfa fyrirtækja og sveit-
arfélaga væntanlega aukast og um
leið myndi markaður fyrir skamm-
tímafjárskuldbindingar styrkjast,"
segir í greinargerð Seðlabankans.
Verðbréfaútgáfa ríkissjóðs, ríkis-
stofnana að íjárfestingarlánasjóðum
meðtöldum, banka og sparisjóða er
stimpilgjaldsfijáls en yfirgnæfandi
hluti stimpilgjaldstekna ríkissjóðs er
vegna útlána lánastofnana og afsala
vegna eignaviðskipta. Lán vegna
kaupa á fiskiskipum á vegum Fisk-
veiðasjóðs hafa verið undanþegin
gjaldinu með sérstöku heimildar-
ákvæði í fjárlögum.
Fyrir stimplun skulda-
bréfa þegar skuldin ber
vexti og er tryggð með veði
eða ábyrgð, skal greiða
1,5% af fjárhæð bréfs. Ef
skuldabréfíð uppfyllir ekki
annaðhvort skilyrðið að bera vexti eða
vera með tryggingu er stimpilgjaldið
0,5% af fjárhæð bréfsins. Af afurða-
lánum sem bera vexti og eru tryggð
með veði eða ábyrgð skal greiða 1%
stimpilgjald og fyrir stimplun víxla
skal greiða 0,25% af fjárhæðinni.
Framsal á verðbréfum er stimpil-
fijálst. Fyrir stimplun hlutabréfa er
greitt 2% stimpilgjald af fjárhæð bréf-
anna en framsal hlutabréfa og útgáfa
jöfnunarhlutabréfa er stimpilfijáls.
Friðrik Sophusson ijármálaráðherra
segir ljóst að stimpilgjöld valdi óhag-
ræði á íslenskum ijármagnsmarkaði og
því séu nú ýmsar breytingar í undirbún-
ingi. Drög að frumvarpi um breytingar
á lögum um stimpilgjald hafa legið
fyrir hjá fjármálaráðuneytinu frá því í
vor en tillögurnar eiga þó eftir að fá
umijöllun í ríkisstjóm og þingflokkum.
Ekki stendur til að fella niður stimpil-
gjöld enda segir íjármálaráðherra ekki
einfalt mál að afnema stimpilgjaldið,
því þá yrði nauðsynlegt að afla ríkis-
sjóði tekna eftir öðrum leiðum.
í frumvarpsdrögunum er ekki gert
ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs skerðist
umtalsvert þrátt fyrir breytingarnar.
Tillögurnar miða annars vegar að því
að lækka stimpilgjaldsprósentuna af
ákveðnum verðbréfaformum og hins
vegar að breikka gjaldstofninn til að
afla nýrra tekna á móti þeim sem tap-
ast við það að lækka hlutföllin. Áð
sögn Friðriks er í frumvarpsdrögunum
bent á nauðsyn þess að lækka eða
jafnvel að hverfa frá stimpilgjöldum
af markaðsverðbréfum og að tengja
stimpilgjald af skuidaskjölum við láns-
tíma. „Það liggur í augum uppi að það
er ósanngjamt að borga
ákveðið hlutfall af upphæð-
inni eingöngu en ekki af
tímalengd skuldaskjal-
anna,“ segir Friðrik. Hann
bendir einnig á að ýmsir
samningar séu undanþegnir
stimpilgjöldum og kannski sé eðlilegt
að breyta því á sama tíma og rætt
sé um að undanþiggja eða lækka
stimpilgjaldshlutfall markaðsverð-
bréfa. Nefnt hafi verið að leggja stimp-
ilgjöld á t.d. sölu aflaheimilda og
ýmsa leigu- og sölusamninga. „Það
hafa þó engar ákvarðanir verið teknar
um hvort eða hvenær frumvarpið verð-
ur lagt fram. Ég geri ráð fyrir að
þetta verði skoðað á næstunni með
tilliti til þess að flutt verði frumvaip
á næsta þingi,“ segir Friðrik.
Guðmundur Hauksson, forstjóri
Kaupþings hf. og formaður Samtaka
verðbréfafyrirtækja, segir að stimpil-
gjöld séu tímaskekkja. Guðmundur
segir að íslenskir verðbréfasjóðir
standi mjög höllum fæti gagnvart er-
lendum sjóðum því íslensku sjóðirnir
þurfi að greiða stimpilgjald af hlut-
deildarskírteinum, en stimpilgjald er
ekki lagt á skírteini í erlendum verð-
bréfasjóðum. Hann segir að menn
verði að gæta að því í þessu sam-
bandi að hindranir á fjármagnsflutn-
ingum til annarra landa hafí verið
felldar niður. „Um leið og við erum
að fella niður þessa múra, verðum við
líka að sjá til þess að samkeppnisstað-
an hér sé hin sama og erlendis. Það
væri mjög bagalegt ef fjárfestar á
íslandi sæju sér hag í því að fjárfesta
frekar í erlendum sjóðum en innlend-
um, vegna þess að stimpilgjöld eru
þarna í veginum," segir hann.
Guðmundur bendir einnig á að á
öðrum Norðurlöndum hafi stimpilgjöld
af öllum verðbréfum sem snerta við-
skipti í kauphöllunum, verið felld niður
vegna þess að þau voru talin trufla
verulega viðskipti með þessi bréf. í
skýrslu um stimpilgjaldtöku í ýmsum
löndum, sem tekin hefur verið saman
á vegum OECD, kemur fram að af
20 OECD-löndum, sem samanburður-
inn náði til, séu engin stimpilgjöld lögð
á ijármagnsfærslur í 13 löndum. í
skýrslunni segir að í löndum OECD
hafi þróunin verið sú að afnema eða
lækka stimpilgjöld á fjármagnsfærsl-
um. Er gjaldið yfirleitt mun lægra í
þeim löndum sem leggja á stimpilgjöld
en hér á Iandi eða á bilinu 0,1-0,5%.
Þessi gjaldtaka ríkisins hefur einnig
verið gagnrýnd fyrir það hversu þung-
bær hún er skuldurum sem eiga í al-
varlegum greiðsluerfiðleikum og þurfa
að skuldbreyta lánum sínum. „Það er
með öllu óásættanlegt að ríkið sé að
hagnast á þessum fjárhagsvanda,"
segir Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtak-
anna. Hann telur að í ljósi
skuldastöðu heimilanna
megi gera ráð fyrir að
skuldarar muni í auknum
mæli fara fram á skilmála-
breytingar á lánum sínum til að kom-
ast undan stimpilgjaldinu.
Verslunarráð íslands hefur lagt til
að stimpilgjald af skammtímaverðbréf-
um verði lækkað og stimpilgjald af
hlutabréfum verði fellt niður. Einnig
verði stimpilgjald af hlutdeildarskír-
teinum verðbréfasjóða fellt niður, þar
sem um tvísköttun sé að ræða og loks
verði að tryggja jafnstöðu milli ríkis-
pappíra og annarra verðbréfa gagnvart
stimpilgjöldum. Jónas Fr. Jónsson, lög-
fræðingur Verslunarráðs, segir að
draga megi í efa að síðast talda atriðið
standist markmið samkeppnislaga.
Rætt um
stimpilgjald
á sölu afla-
heimilda
Engin stimpil-
gjöld í
13 OECD-
löndum
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995 23
FERÐALÖG
Hvert skal lialdið um
verslunarmannahelgina?
Mesta ferðahelgi ársins, verslunarmannahelg-
in, er að viku liðinni og margir famir að
hugsa sér til hreyfíngs. Fjölskyldu- og útihá-
tíðir verða haldnar víða um landið svo sem
venja er, stórar og smáar, og er verð að-
göngumiða mjög mismunandi. María Hrönn
Gunnarsdóttir hefur tekið saman yfírlit yfír
hátíðir helgarinnar fyrir þá sem ekki hafa
gert upp hug sinn um hvert skal haldið.
AÐ VENJU er margt í boði
um verslunarmannahelg-
iha. Fjölskylduhátíðir
verða áberandi og er víða
lögð áhersla á hóflega notkun áfengis
eða algert bindindi.
Nú verður í fyrsta skipti haldin al-
þjóðleg tónlistarhátíð í anda Hróars-
kelduhátíðarinnar í Danmörku og
verða þar hátt í 40 hljómsveitir og
plötusnúðar, innlendir og erlendir, þar
á meðal Björk.
Stígamót, samtök kvenna gegn
kynferðislegu ofbeldi, hafa á undan-
förnum árum sinnt ráðgjöf, gæslu,
áfallahjálp og aðhlynningu á útihátíð-
um um verslunarmannahelgi. Að
þessu sinni verður höfuðáhersla lögð
á forvarnarstarf í vikunni fyrir versl-
unarmannahelgina og hafa veggspjöld
og upplýsinga- og fræðslubæklingar
verið gefin út. Ef mótshaldarar óska
þess senda samtökin fulltrúa sína á
staðinn og verða þeir m.a. á Kirkju-
bæjarklaustri.
Ilér á eftir fer samantekt á hátíðum
sem haldnar verða víðs vegar um land-
ið um verslunarmannahelgina, sem er
frá 4. til 7. ágúst.
Suðurland
Bindindismótið að Galtalæk verður
að venju hajdið um verslunarmanna-
helgina. íslenskir ungtemplarar
standa að mótshaldinu. Fjölbreytt
dagskrá verður í boði frá morgni til
kvölds alla h'elgina. Spaugstofan verð-
ur á staðnum sem og Magnús Schev-
ing og sr. Pálmi Matthíasson. Hljóm-
sveitirnar Sixties, Nátthrafnar, Skíta-
mórall og Reggae on ice leika fyrir
dansi. Þá verður m.a. hægt að fara á
hestbak og í gönguferðir og börnum
er boðið í leikhús. Aðgöngumiðar
kosta 4.300 krónur fyrir 16 ára og
eldri, 3.500 fyrir 13 ára til 15 ára og
ókeypis er fyrir aðra. Yarla þarf að
minna á að algert áfengisbann er í
Galtalækjarskógi.
Á Kirkjubæjarklaustri verður
haldin alþjóðleg tónlistarhátíð. Fyrir-
tækið UXI annast undirbúning hátíð-
arinnar í samvinnu við fjölmarga inn-
lenda og erlenda aðila. Hátt á fjórða
tug hljómsveita og plötusnúða verður
á staðnum. Samið hefur verið við ell-
efu erlendar hljómsveitir s.s. Prodigy,
Drum Club og Chapterhouse. Af ís-
lenskum hljómsveitum má nefna Unun
og Pál Óskar, SSSól, 3T01, Bubbelfli-
es og Björk. Miðaverð er
7.600 og ókeypis er fyrir
börn yngri en 12 ára.
Þjóðhátíð í Vestmanna-
eyjum verður að venju
haldin í Heijólfsdal. Meðal
skemmtikrafta á hátíðinni að þessu
sinni verða Tweety, Vinir vors og
blóma, Karma, Hálft í hvoru, Borgard-
ætur, Björgvin Halldórsson, Laddi og
Örvar Kristjánsson. Kynnir verður
Árni Johnsen. Hátiðin verður með
hefðbundnu sniði en upphaf hennar
er rakið til þess er Vestmannaeyingar
komust ekki vegna veðurs á þjóðhátíð
á Þingvöllum í tilefni þúsund ára Is-
landsbyggðar árið 1874. Aðgangseyr-
ir er 6.500 krónur. Seldar verða pak-
kaferðir frá Reykjavík, Selfossi, Þor-
lákshöfn, Hellu og Bakkaflugvelli. Frá
Reykjavík kostar pakkinn um 12.000
krónur ef farið er með flugi en rúmar
9.000 krónur ef farið er með rútu og
Heijólfi. Frá Selfossi og Þorlákshöfn
kostar pakkinn 8.600 krónur. Ef farið
er með flugi frá Hellu kostar það
ásamt aðgöngumiða tæpar 11.000
krónur en frá Bakka 9.500.
í Vík í Mýrdal verður haldin fjöl-
skylduhátíð eins og undanfarin níu
ár. Dagskrá hátíðarinnar snýst að
mestu leyti um útivist, leiki og íþrótt-
ir. Öflug gæsla verður á tjaldsvæðinu
allan sólarhringinn. Á laugardags-
morgninum fer fram AGFA-ljós-
myndamaraþon og fá þátttakendur
afhenta eina 12 mynda ljósmyndaf-
ilmu og fjögur verkefni að kljást við.
Vegleg verðlaun eru í boði. Þá verður
m.a. haldið víðavangshlaup, veiði-
keppni og söngvarakeppni barna og
unglinga.
I Kirkjubæjarkoti í Fljótshlíð halda
Hvítasunnumenn landsmót sitt, Kot-
mót, og eru allir velkomnir. Þar verð-
ur fjölbreytt dagskrá fyrir alla aldurs-
hópa, s.s. biblíulestrar, unglingasam-
koma og barnamót. Aðgangsmiðinn
kostar 5.000 krónur en fyrir stakan
dag kostar 1.800.
I Múlakoti í Fljótshlíð verður haldin
Fjölskylduhátíð Flugmálafélagsins.
Þar verður m.a. sýnt listflug, fallhlíf-
arstökk, módelflug, vélflug og svif-
drekaflug. Einnig verður sérstök dag-
skrá ætluð börnum.
Að Úlfljótsvatni verður haldið
Fjölskyldumót Úlla. Þar gefst fólki
m.a. tækifæri til að prófa bjargsig,
og vatnasafarí, fara í gönguferðir og
taka þátt í Ólympíuleikum Úlfljóts-
vatns. Aðgangseyrir er 1.000 krónur
og 500 krónur fyrir börn 6-12 ára.
Börn undir 6 ára aldri fá ókeypis að-
gang.
Tjaldstæðið að Laugarvatni verður
opið um verslunarmannahelgina. Boð-
ið verður upp á dagskrá sem miðast
fyrst og fremst við þarfir fjölskyldu-
fólks. Gæðatröllið Laugi ekur gestum
tjaldstæðisins í sund, farið verður í
leiki og á laugardagskvöldið verður
varðeldur kveiktur og flugeldum skot-
ið á loft. Á sunnudeginum verður Ols-
en Olsen keppni og um kvöldið verður
dansað við tjaldmiðstöðina.
Austurland
Á Neskaupstað verður haldin í
þriðja skipti fjölskylduhátíðin Neista-
- flug ’95 og verður hún með
. svipuðu sniði og áður.
Ferðafélag Neskaupstaðar
stendur að hátíðinni. Að-
gangseyrir er enginn og
“ boðið verður upp á frí tjald-
Meðal skemmtikrafta verða
Fjölskylduhá-
tíðir verða
haldnar víða
Skipulög ð hátíðarhöld
u m verslunarmannahetginaj
Siglufjörður
'• Skagaströnd
' /jjf*—
/\ V Akureyri
Miðgarður
',\i U \ ■■ \ ,
A Vopnafjörður
(•■ A
‘leskaupstaður
4
Hellnar
( AVatnaskógur
ALaugarvatn
Útfijótsvatn 4 Galtalækur
" ■ N\ .Kirkjulækjarkpt^rkjubæjaíMaustur
. \AMúlakot r
VestmannaeyjarA
Galtalækur: Bindindismót. Fjölskylduhátíð. Greiða þarf fyrir aðgang.
Kirkjulækjarkot: Kotmót. Greiða þarf fyrir aðgang.
VíkíMýrdal: Víkurhátíð. Fjölskylduhátíð. Frítt inn á svæðið.
Kirkjubæjarklaustun Alþjóðleg tónlistarhátíð. Áfengisbann á tónleikasvæði.
Greiða þarf fyrir aðgang.
Múlakot: Fjölskylduhátíð Flugmálafélagsins.
Úlfljótsvatn: Fjölskyldumót Úlla. Greiða þarf fyrir aðgang.
Laugarvatn: Dagskrá á tjaldsvæðinu fyrir fjölskyldufólk.
Vestmannaeyjan Þjóðhátíð. Greiða þarf fyrir aðgang.
Vatnaskógur. Sæludagar. Fjölskylduhátíð. Greiða þarf fyrir aðgang.
Hellnan Snæfellsásmót. Greiðaþarf fyriraðgang.
Skagaströnd: Kántrýhátíð. Fjölskylduhátið.
Miðgarður: Miðnæturtónleikar.
Siglufjörður: Síldarævintýri. Fritt inn á svæðið.
Akureyri: Halló Akureyri. Fjölskylduhátíð.
Neskaupstaður: Neistaflug ’95. Fjölskylduhátíð. Greiða þarf fyrir aðgang.
Vopnafjörður: Vopnaskak ’95. Fjölskylduhátíð.
Greiða þarf fyrir aðgang að einstökum dagskráriiðum.
stæði.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
ásamt Helgu Möller, bítlahljómsveitin
Sixties, Páll Óskar og milljónamær-
ingarnir, Sólstrandargæjarnir og
Ózon. Auk þess verður boðið upp á
fjölda skemmtiatriða. Hápunktur há-
tíðahaldanna verður á sunnudegi, sem
endar með varðeldi og flugeldasýn-
ingu í Lystigarði bæjarins.
Vopnaskak ’95 verður haldið á
Vopnafirði um verslunarmannahelg-
ina. Þar verður m.a. haldið unglinga-
ball þar sem hljómsveitirnar Sixties
og Bananas leika fyrir dansi. Einnig
verða leiktæki, götuleikhús og
útimarkaður á hátíðinni auk töfram-
annsins Mighty Garreth sem sýnir
kúnstir sínar. Á laugardaginn verður
Burstafellsdagur en þá verða gamlar
vinnuaðferðir sýndar og lummur bak-
aðar á hlóðum.
Vesturland
Sæludagar í Vatnaskógi verða
haldnir í Vatnaskógi á vegum Skógar-
manna KFUM í samvinnu við einstakl-
inga og hópa innan kirkjunnar. Allir
sem áhuga hafa eru velkomnir. Sælu-
dagar eru áfengislaus hátíð og verður
þar margt á döfinni fyrir alla aldurs-
hópa. Haldnar verða kvöldvökur, farið
í ratleik og keppt í róðri á vindsæng-
um svo fátt eitt sé talið. Aðgangseyr-
ir er 2.700 krónur fyrir gesti utan þá
sem eru yngri en 13 ára og eldri en
67 ára, þeir fá ókeypis aðgang. Þá
er veittur afsláttur fyrir fjölskyldur
með unglinga undir 16 ára aldri.
Snæfellsássmót verður haldið á
Brekkubæ á Hellnum. Dagskrá móts-
ins verður rýmri en undan- _______
farin ár svo fólk fái tæki-
færi til að tengjast og
kynnast. Lögð verður
áhersla á námskeið og
dagskrá sem gestir móts-
ins geta tekið virkan þátt í. Þar kenn-
ir margra grasa svo sem heilunar-
vígslu, hópheilunar, rúnanámskeiðs,
samskiptanámskeiðs og grasaferðar.
Bandarískur vökumiðill verður meðal
annarra á mótinu. Aðgangseyrir er
2.500 krónur og ókeypis fyrir börn
yngri en 14 ára.
Norðurland
Kántríhátíð á Skagaströnd er ætluð
fjölskyldufólki. Á dagskrá verða rat-
leikir, vatnsfótbolti, útitónleikar,
kántrýídansasýning og fieira. Tvennir
Margar
áfengislausar
hátíðir
dansleikir verða haldnir öll kvöldin þar
sem Hljómsveit Magnúsar Kjartans-
sonar og Kúrekamir leika fyrir dansi.
Hestaleiga verður starfrækt og áætlað
er að halda gospelmessu í kirkjunni.
Útvarp Kántríbær verður með sérstaka
dagskrá allan sólarhringinn þar sem
fram koma ýmsir dagskrárgerðarmenn
og að sjálfsögðu verður Hallbjöm
Hjartarson staddur á hátíðinni.
Norðurlandsmót í golfi verður
einnig haldið á Skagaströnd og
Blönduósi um verslunarmannahelg-
ina. Þar verða spilaðar 36 holur, 18
holur á vellinum við Blönduós og 18
holur á vellinum við Skagaströnd.
Síldarævintýrið á Siglufirði verð-
ur á sínum stað. Eins og nafnið bend-
ir til verður horfið til gömlu og góðu
síldaráranna, síld söltuð, síldarsöngv-
ar sungnir og harmoníkan þanin. Tí-
volí verður opið alla helgina og dans-
leikir haldnir á hveiju kvöldi. Á laug-
ardaginn verður sjósleðaleiga opin
og haldið verður sjóstangaveiðimót.
Á Akureyri verður haldin fjöl-
skylduhátíðin Hailó Akureyri. Að
--------- vanda verður fjölbreytt
dagskrá í boði. Franska
lúðrasveitin L’enfant de
Bayard leikur í göngugöt-
unni, farið verður í ratleil-
í Kjarnaskógi og dansai
verður öll kvöld. Meðal skemmti-
krafta verða Sálin hans Jóns míns,
Stjórnin, Sigga og Grétar og Pált
Óskar og milljónamæringarnir. Þá
verður farið í útsýnissiglingu um
Eyjafjörð og í siglingu til Hjalteyrar.
Hljómsveitin SSSól heldur tvenna
miðnæturtónleika í Miðgarði um
verslunarmannahelgina, á föstudags-
og laugardagskvöld. Hljómsveitirna:
Sólstrandargæj arnir, Skítamórall
BCLB og Bylting troða einnig upp
Næg tjaldstæði eru í Varmahlíð 0£
er öll aðstaða þar til fyrirmyndar.