Morgunblaðið - 28.07.1995, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ1995 31
FRÉTTIR
Ný verslun í Borgarkringlunni
Morgunblaðið/Júlíus.
Fimmtán þús-
und skópör
FYRSTI skógámurinn, sem
Steinar Waage skóverzlun hf.
hefur safnað notuðum skóm í á
þessu ári, er nú tilbúinn til flutn-
ings og fer til hjálparstofnunar
kirkjunnar í Þýzkalandi. í gámn-
um eru um 15 þúsund pör.
Fyrirtækið safnaði notuðum
skóm til hjálparstarfs fyrir tveim-
ur árum og fóru þá þrír gámar
úr landi.
Til fyrirtækisins var nú leitað
eftir hjálp fyrir íbúa Grænhöfða-
eyja og var ætlunin að senda
skóna með skipi, sem þangað á
að fara í haust. Söfnunin gekk
hins vegar svo vel, að þegar kom-
ið var í gáminn, var ákveðið að
senda hann til Þýzkalands og
hefur annar gámur þegar verið
tekinn frá fyrir fleiri skó.
A myndinni er Snorri Waage
að ganga frá gámnum til Þýzka-
lands.
Gönguferð
um Vestureyna
HEFÐBUNDIN helgardagskrá í
Viðey er fólgin í gönguferð með
leiðsögn á laugardögum. Annan
hvern sunnudag er messa í Við-
eyjarkirkju, en alla sunnudaga
er staðarskoðun kl. 15.15. Auk
þess er ljósmyndasýning opin í
Viðeyjarskóla alla eftirmiðdaga
og svo er hestaleiga starfandi
alla daga. Tjaldstæði eru einnig
leyfð í eynni.
Á morgun verður gönguferð
um Vestureyna. Farið verður frá
kirkjunni kl. 14.15. Ferðin tekur
um einn og hálfan tíma og rétt
er að vera vel búinn til fótanna.
Á sunnudag kl. 14 messar sr.
Þórir Stephensen og fermir í
messunni einn dreng. Sérstök
bátsferð verður með kirkjugesti
kl. 13.30. Eftir messu verður svo
staðarskoðun. Veitingar eru seld-
ar í Viðeyjarstofu. Bátsferðir eru
úr Sundahöfn á klukkustundar
fresti frá kl. 13 um helgar.
Stokkur undir
stubbana
ÆSKULÝÐSSAMBAND íslands
hefur hrundið af stað náttúru-
verndarátaki sem kallast
„Stubbastokkur náttúrunnar
vegna“, til verndar íslenskri nátt-
úru.
Áfengis- og tóbaksverslun rík-
isins lét hanna „stokk“ sem er
ætlaður undir vindlingastubba og
tyggigúmmí. Stokkurinn er
framleiddur í plastverksmiðjunni
Sigurplasti í Mosfellsbæ. Hann
er íslensk hugmynd og hönnun
NÝLEGA opnaði í Borgar-
kringlunni verslunin Dekor.
Verslunin hefur á boðstólum
silfurfatnað, bæði fyrir dömur
og herra, slæður, bindi, jakka,
stuttbuxur, náttföt o.fl. Stærsti
vöruflokkur verslunarinnar er
handsaumuð bútasaumsrúm-
teppi í mismunandi gerðum.
og hefur verið framleiddur í
nokkrum litum. Stokkurinn er
lítið stærri en Opal-pakki.
Stokkurinn er opnaður að ofan
með því að lokið er dregið frá.
Við opið er lítil stálfjöður sem
hægt er að nota til að drepa í
vindlingum. Síðan er vindlinga-
stubbnum stungið í stokkinn og
lokið dregið fyrir aftur. Ef um
tyggjónotanda er að ræða þá er
hægt að snúa lokinu við þá er
fjöðurin ekki fyrir, síðan má
tæma stokkinn í næstu rusla-
tunnu þegar stokkurinn er orðinn
fullur. Fátt er leiðinlegra þegar
gengið er um náttúru Islands en
að sjá vindlingastubba og tyggjó-
Einnig er verslunin með silki-
bútasaumsteppi. Sérstakt
tækifærisverð er á öllum vör-
um verslunarinnar þessa dag-
ana. Afgreiðslutími er frá kl.
10-18.30 virka daga og 10-16
laugardaga. Rekstraraðilar
eru Om Arnarson og Sophus
J. Bjömsson.
klessur á víð og dreif, segir í
fréttatilkynningu.
íslandsbanki og Olíuverslun
íslands gerðust styrktaraðilar
átaksins. Stokknum verður dreift
á afgreiðslustöðum íslands-
banka, Olís og hjá langferðabíla-
stöðvum um land allt.
■ GÖTULEIKHÚSIÐ setur
upp útisýningu í porti Hafnar-
hússins við Tryggvagötu á
föstudagskvöldið kl. 23. Þar
verður sett upp skrautsýning þar
sem við sögu koma karlakórinn
Silfur Egils, sönghópurinn Gall-
iard, fimleikamenn úr Ármanni,
rokkhljómsveit og ýmsir aðrir.
Flugdagur
Flugtaks á
Reykjavíkur-
flugvelli
FLUGSKÓLINN Flugtak heldur
sinn árlega flugdag á morgun,
laugardag. Eins og áður verður
mikið um að vera og má þar
nefna listflug, fallhlífarstökk,
lágflug farþegaþotna, svifflug,
útsýnisflug með flugvélum og
þyrlum, flug módelflugvéla o.fl.
Dagskráin stendur frá kl.
14-16 og verður við gamla flug-
turninn á Reykjavíkurflugvelli.
Útsýnisflugið hefst kl. 13 og
stendur til kl. 18. Grillaðar pylsur
og kók á staðnum.
Allir velkomir og aðgangur
ókeypis.
Gróðurkorta-
námskeið
HIÐ íslenska náttúrufræðifélag
efnir til námskeiðs í notkun og
gerð gróðurkorta laugardaginn
12. ágúst.
Námskeiðið hefst kl. 10 í fund-
arsal Rannsóknarstofnunar land-
búnaðarins á Keldnaholti á korta-
kynningu og starfsaðferðum, en
síðan fara fram hagnýtar æfing-
ar úti í náttúrunni sjálfri.
Leiðsögumenn verða náttúru-
fræðingarnir Ingvi Þorsteinsson,
Einar Gíslason og Guðmundur
Guðjónsson. Námskeiðið er ætlað
almenningi, skipulagsaðilum og
öðrum sem hafa not af gróður-
kortum í starfi sínu.
Skráning þátttakenda fer fram
á skrifstofu HÍN.
HROSSARÆKTARBÚIÐ á Árbakka á Landi í Rangárþingi.
A
Hrossaræktarbúið á Arbakka
Hestasýningar
alla laugardaga
SÖLUSÝNINGAR á folöldum og
kynbótahrossum verða á hrossa-
ræktarbúinu á Árbakka í Land-
sveit alla laugardaga í sumar líkt
og verið hefur undanfarin ár.
Hrossin á Árbakka eru öll af
Kolkuóssgrein hins þekkta Svaða-
staðastofns, en ræktun þessa gæð-
ingakyns má rekja allt aftur til
miðrar 18. aldar. Mörg hrossanna
frá Árbakka hafa tekið þátt í sýning-
um og keppni á undanfömum ámm
og em sum þeirra meðal hæst
dæmdu kynbótahrossa landsins.
Folöldin í sumar eru undan bæði
þekktum kynbótahestum og ung-
um, vel ættuðum og efnilegum
ungfolum. Meðal þeirra má nefna
Sokka frá Kolkuósi, Loga frá
Skarði og Vökul og Svaða frá Ár-
bakka.
Á sölusýningunum eru til sýnis
hryssur og stóðhestar á öllum aldri
og nokkrir tugir folalda. Sýning-
arnar eru sem fyrr segir alla laug-
ardaga, en einnig er unnt að skipu-
leggja sýningar aðra daga, sé þess
óskað.
Utsölumarkaður Olís
OLÍS opnaði útsölumarkað í 500
fm sölutjaldi við þjónustustöðina
Álfheima í gær.
Á útsölunni kennir ýmissa grasa;
þar verða til sölu gasvörur ýmis-
konar, allra handa viðleguútbúnað-
ur, leikföng, grill o.m.fl.
Verðlækkun frá almennu útsölu-
verði er umtalsverð en dæmi eru
um að vara lækki um allt að sjötíu
prósent.
Útsalan verður opin frá 12-20 í
í dag, föstudag, og frá 10-18 laug-
ardag og sunnudag.
Haukadal í Biskupstungum
laugardaginn 29. júlí kl. 13:30-17:00 verður
opinn dagur í Haukadalsskógi
■ Við förum í gönguferðir, Mustum á tóMist
og gæðum okkur á veitingum í skóginum.
■ Tréálfurinn kemur og heilsar upp á bömin
og gefur þeim eitthvað skemmtílegt til
minningar um sig.
Veltíbíllinn frá Ökuleikni verður á
staðnum.
■ Þið akið sem leið liggur að Geysi og þaðan
er leiðin greið inn í Haukadalinn.
Takið fram gönguskóna og gangið
með okkur um skóginn. íslenskir
skógar eru fyrir þig og þeir eru
forvitnilegri en þig grunar.
MYLLAN
M
Skógrækt meö Skeljungi
Við grillum SS pylsur í Myllubrauði, og
rennum því niður með Pepsí. Einrng
verður El-Marino kafh á könnunni,
Frónkex og Oscars sveppasúpa.