Morgunblaðið - 28.07.1995, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 669 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUgtCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Ný frumvarpsdrög gera ráð fyrir breytingum á stimpilgjöldum
Hugmyndir um
breikkun skattstofns
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra segir að stimpilgjöld valdi óhag-
ræði á íslenskum fjármagnsmarkaði en frá því í vor hafa legið fyrir drög
að frumvarpi um breytingar á stimpilgjaldtöku í fjármálaráðuneytinu. Þar
er m.a. bent á nauðsyn þess að stimpilgjöld af markaðsverðbréfum verði
annaðhvort lækkuð eða afnumin og að stimpilgjöld af skuldaskjölum verði
tengd við lánstíma, að sögn ijármálaráðherra. Einnig er gert ráð fyrir
að skattstofninn verði breikkaður til að afla tekna á móti þeim tekju-
missi sem hlytist af öðrum breytingum á stimpilgjaldtökunni. Meðal hug-
mynda sem nefndar hafa verið i því sambandi er álagning stimpilgjalda
á sölu aflaheimilda og ýmsa leigu- og sölusamninga.
Útlit fyrir tap
á rekstri ÚA
ÚTLIT er fyrir að tap verði á rekstri
Útgerðarfélags Akureyringa hf. á
árinu. Miðað við reksturinn fyrri
hluta ársins gæti tapið í heild orðið
A annað hundrað milljónir, sam-
Kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins, en stjómendur félagsins vinna
að því að draga úr því.
A síðasta ári varð hagnaður upp á
155 milljónir kr. af rekstri Útgerð-
arfélagsins. Lakari afkoma nú er fyrst
og fremst rakin til skakkafalla vegna
verkfalls sjómanna og lækkunar
bandaríkjadals sem hefur tekjutap í
för með sér vegna þess hvað stór
hluti framleiðslunnar er seldur í doll-
urum. Einnig hefur minnkandi grá-
lúðuveiði slæm áhrif á reksturinn.
Draga úr kostnaði
Á móti kemur að karfaveiði togara
félagsins hefur gengið vel að undan-
förnu og reynt hefur verið að lækka
launakostnað með því að draga úr
yfirvinnu og spara í veiðarfærum.
Þá hefur verið haldið áfram við að
bæta framleiðsluna til að auka verð-
mæti afurðanna.
Háværar raddir hafa komið upp
að undanförnu um að breyta stimp-
ilgjöldum eða leggja þau niður en
að sögn Friðriks er ekki einfalt mál
að afnema stimpilgjaldið enda er
það umtalsverður tekjustofn fyrir
ríkissjóð. Á þessu ári er áætlað að
stimpilgjöld skili ríkinu 2.435 millj-
ónum króna. Umfjöllun um frum-
varpsdrögin er ekki lokið.
Seðlabankinn telur ýmsa
ókosti við gjaldtökuna
í greinargerð sem peningamála-
deild Seðlabanka íslands tók saman
á seinasta ári, um hugsanleg áhrif
stimpilgjaldtöku á þróun ijármagns-
markaða, segir að breyta þurfi lög-
unum um stimpilgjöld frá 1978,
þannig að þau hindri ekki eðlilega
þróun á íslenskum verðbréfamark-
aði_.
I skýrslu OECD um stimpilgjald-
töku í ýmsum löndum, sem fylgir
greinargerð Seðlabankans, segir að
aukið frelsi ljármagnsmarkaða í
OECD-löndum hafi leitt til minni
skattheimtu á ijármagnsfærslur.
Þar kemur fram að í OECD-löndum
hefur þróunin verið sú að afnema
eða lækka stimpilgjöld á fjármagns-
færslur og að af 20 OECD-löndum
séu engin stimpilgjöld á fjármagns-
færslum i 13 þeirra.
Heimtur
úr helju
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar,
TF-SIF, bjargaði í gær norskum
kajakræðara, Jan Fasting, af
ísjaka um 170 sjómílur norður
af fslandi. Gæsluvélin TF-SYN
hafði þá fundið manninn með
hjálp neyðarsendis. Jan fór frá
Grænlandi á mánudag áleiðis til
íslands, en lenti fljótlega I hafís.
Hann slapp undan ísbjörnum
sem gerðust áleitnir, en ísinn var
svo ógreiðfær að hann ákvað að
kalla eftir hjálp. Þyrlan sveif
yfir ísnum með nefið upp í vind-
inn meðan sigmaður hennar
hjálpaði Jan að bjarga föggum
sínum.
Morgunblaðið/Halldór B. Nellett
Næsta leikár LR
Nýjungar
og ný ís-
lensk verk
LEIKFÉLAG Reykjavíkur frumsýn-
ir fjögur ný íslensk leikverk á stóra
sviðinu á næsta leikári, þ.á m. nýja
leikgerð Bríetar Héðinsdóttur á Is-
landsklukku Halldórs Laxness. Á
litla sviðinu verður m.a. frumsýnt
nýtt verk eftir Ljúdmílu Raz-
umovskaju, höfund Kæru Jelenu.
Af nýjungum í starfseminni má
nefna að í forsal verða hádegisleik-
sýningar og myndlistarsýningar.
Þar verður einnig flutt kammertón-
list fyrir leiksýningar og í hléi.
■ Ný íslensk verk/18
■ „Ég er þakklátur .. ./4
Mannbjörg
þegar trilla sökk
MANNBJÖRG varð þegar lítil
trilla, Valborg BA 130, sökk
17 sjómílur vestur af Blakk við
Patreksfjörð um kl. 23.20 í
gærkvöldi.
Ekki er vitað um tildrög
slyssins en maðurinn, sem var
einn á báti, fór í sjóinn en komst
um borð í gúmbjörgunarbát
skömmu síðar. Ágætis veður
var á slysstað.
Vélbáturinn Hafliði BA kom
að Valborgu eftir að skipveijinn
hafði skotið upp neyðarblysi.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Patreksfirði bjarg-
aðist skipveiji Valborgar BA í
gúmbát og var Hafliði á leið til
Patreksfjarðar í nótt með skip-
brotsmanninn og var áætlaður
komutími þeirra þangað klukk-
an tvö.
■ Stefnir í 100 milljóna/15
■ Hindra þróun/22