Morgunblaðið - 13.08.1995, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1995 B 3
Kona verður forseti bandaríska lögfræðingafélagsins
Imyndin gæti skánað
New York. Reuter.
anlega er, tiltölulega fyrirferðarlít-
inn. Vissulega eru flugferðirnar
stór liður í fjármálum heimilis-
haldsins, en þá kemur enn upp
spurningin hvað verðmætast er í
lífinu og ég fyrir mitt leyti vill
miklu heldur fá Helgu til mín svo
oft sem unnt er en fjárfesta í verð-
bréfum fyrir þá upphæð sem þama
er um að tefla.
Smekkur manna alls
staöar likur
Það sem hefur komið mér mest
á óvart í þessu starfi er hvað
heimurinn er lítill og möguleikarn-
ir miklir. Ég hef líka komist að
því að smekkur manna er ótrúlega
líkur hvar sem er í heiminum. í
öllum löndum segja menn að þeir
vilji hafa meira af dýralífsmyndum,
sígildu myndefni og öðru menning-
arefni en í öllum löndum er hins
vegar það sama upp á teningnum,
allir vilja helst horfa „Dallas og
Dynasty“. Það sem hins vegar er
að gerast núna býður upp á miklu
meiri fjölbreytni í efnisvali en áður
var mögulegt. Það verður svo
miklu ódýrara að senda út efni
með tilkomu stafræna kerfisins.
Sjónvarpið og tölvan eru að renna
æ meira saman í ýmsu tilliti, má
þar nefna ýmiss konar upplýsinga-
net, svo sem Internetið, CD Rom
tölvuumhverfið og fleira. Við mun-
um nýta hina miklu flutningsgetu
sem stafræna kerfið í gervi-
tunglunum býður upp á og varpa
út upplýsingaefni þegar annað er
ekki í gangi. Þá má nefna allar
útvarpsrásirnar sem Nethold er
líka með. Þar er úr mörgu að velja,
hægt er t.d. að velja útvarpsrásir
þar sem eingöngu er sent út ókynnt
tónlistarefni. Ef fólk vill svo vita
hvaða efni er verið að útvarpa eru
allar upplýsingar aðgengilegar
með fjarstýringunni á sjón-
varpsskjánum."
í spjalli okkar Jónasar R. Jóns-
sonar kemur í bland ýmislegt fram
um manninn sem á bak við hið
ytra býr. Meðal annars kemur fram
að Jónas er eilítið hallur undir for-
lagatrú, án þess þó að láta slíka
trú stjórna lífi sínu að neinu leyti.
Hann er t.d. viss um að til London
átti hann að fara og segist undr-
ast hve svæðið í kringum Mayfair
hafi komið honum kunnuglega fyr-
ir sjónir. „Ég er þó ekki þar
með að segja að ég hafi komið þar
í fyrra lífi, en undarlega kunnug-
legt var allt þarna,“ segir hann og
hlær. Það kemur einnig fram að
Jónasi dreymir oft fyrir daglátum,
fær stundum hugskeyti og stöku
sinnum fær hann hugboð þegar
eitthvað mikilvægt er á næsta leiti
í lífi hans. Þær miklu breytingar
sem urðu í hans tilveru fyrir rúmu
ári komu þó honum algerlega að
óvörum. „Vissulega tók líf mitt
stóra og óvænta beygju þegar ég
var rekinn frá Stöð 2. Ég harma
ekki þau umskipti, si'ður en svo,
og ég el engan kala í brjósti til
þeirra sem þar áttu hlut að máli,
þvert á móti,“ segir Jónas. „Þessi
mikla breyting hefur orðið mér til
góðs það sem af er. Ég hef kynnst
nýjum og spennandi heimi þar sem
margt lærdómsríkt ber fyrir augu
og eyru, það eru forréttindi að fá
að lifa svona lifi um tíma. Sem
maður hef ég líka fundið ný og
mikilvæg sannindi og lært að meta
betur ijölskyldu mína og vini. Fjar-
vistir verða til þess að skerpa línur
milli vina og kunningja. Trygg vin-
átta stendur af sér ýmislegt og
styrkist jafnvel frekar en hitt, sem
hætt er við að verði kunningsskap
að falli. Eins og fyrr sagði ætla
ég ekki að verða eilífur í því starfi
sem ég gegni núna. Þegar ég læri
ekki lengur af því ætla ég að hætta
og koma heim. Kannski verður
þessi bylting í fjölmiðlaheiminum
þá tekin að bijóta sér braut inn í
líf íslendinga. Eins og er virðast
þeir harla lítið fylgjast með því sem
fram fer í hinum stóra fjölvarps-
heimi erlendis. En það kemur að
því að menn vakna til vitundar um
þær miklu breytingar sem staf-
ræna kerfið býður upp á, bæði
hvað snertir sjónvarp og tölvur,
það. kemur að því.“
ÞAÐ kann að sýnast vonlaust verk
að fegra ímynd bandarískra lög-
fræðinga. Én ímyndafræðingar
segja það tvímælalaust spor í rétta
átt að kona skuli vera orðin forseti
fjölmennasta lögfræðingasam-
bands heimsins.
Það hefur vakið mikla athygli í
Bandaríkjunum að Roberta Ramo,
lögfræðingur frá Albuquerque,
mun í næstu viku taka við sem
forseti Félags bandarískra lögfræð-
inga. Þessi athygli þykir einungis
geta orðið til bóta fyrir stétt sem
að áliti almennings er álíka vinaleg
og hákarlar og skúnkar.
„Kona á þess kost að breyta
ímyndinni, en slík breyting verður
ekki á einni nóttu,“ segir Howard
Rubinstein, eigandi stórs almanna-
tengslafyrirtækis í New York, sem
er fulltrúi fjölda lögfræðinga og
lögmannastofa.
Alls eru 370 þúsund meðlimir í
Félagi bandarískra lögfræðinga.
Ramo er fyrsta konan sem verður
þar forseti.
ímyndafræðingarnir segja að
þetta geti breytt miklu um viðhorf
almennings til lögfræðinga, því að
konur séu alla jafna álitnar meira
traustvekjandi og umhyggjusamari
en karlmenn. Fyrir skömmu settist
önnur kona, Pamela Liapakis, í stól
forseta Félags bandarískra réttar-
lögfræðinga, og auk þess eru konur
forsetar lögfræðingafélaga í ýms-
um stórborgum, þar á meðal New
York og Los Angeles.
Þótt þeir sem vit hafa á almanna-
tengslum séu harla kátir vegna
aukinna valda og ábyrgðar kven-
lögfræðinga, ítreka þeir að enn sé
gífurlegt verk óunnið í því að breyta
ímynd lögfræðinga.
Davíð ekki
ósiðlegur
Hong Kong. Reuter.
DÓMARI í Hong Kong hefur
kveðið upp úr með að stytta Mic-
helangelos af Davíð brjóti ekki í
bága við almennt velsæmi.
Dómsúrskurð þurfti til vegna
þess að dagblaðið The Eastern
Express vildi fá hnekkt þeim
dómi Velsæmisréttar Hong Kong
að mynd sem blaðið birti af stytt-
unni, væri ósiðleg.
Ritstjóri blaðsins sagði að
dómarinn hefði vísað málinu aft-
ur til Velsæmisréttarins til end-
urupptöku. „Hong Kong er um
það bil að verða athlægi," sagði
í blaðinu.
% 4
1 —
S
= 20
10
Nemendur {
skrifstofustörfum
Fyrir nám í VSN 3 mánuðum
veturinn ‘94 - ‘95 eftir útskrift
\ ý y
£>£ÞJ SiaLAíiAííAj'JÖí
Reynir Björnsson,
sölufulltrúi Sigurplasts hf.
Þegar ég byrjaði í viðskiptaskóla Stjórn-
unarfélagsins og Nýherja var ég með
verslunarpróf frá Framhaldsskóla Húsa-
víkur. Til greina kom að Ijúka stúdents-
prófi eða fara í markaðs- og sölunám hjá
VSN. Þar sem ég taldi að VSN gæfl meiri
möguleika á góðu starfi að námi loknu,
pá fór ég í hann. i upphafi fannst mér skólinn vera dýr, en eftir pví
sem á leið sannfærðist ég um að námið væri rúmlega peninganna
virði. Ég var svo lánssamur að fá virinu hjá Sigurplasti hf. í gegnum
skólann áður en að starfsþjálfun kom og hóf ég störf þar um miðjan
apríl sl. Ég mæli af heilum hug með námi við VSN. Kennslan er
hnltmiðuð og hagnýt og kemur að góðum notum á vinnumarkaði.
Stutt og hnitmiðað
starfsnám í takt
við þarfir atvinnulífsins.
Hægt er að velja um
morguntíma, hádegistíma
eða síðdegistíma.
Rós Magnúsdóttir,
Ríkisbókhaldi
Áður en ég hóf nám hjá VSN hafði ég ein-
göngu unnið við afgreiðslu og ræstingar.
Ég hætti í framhaldsskóla eftir tvö ár og
því voru atvinnumöguleikar minir ekki
miklir. síðastliðið sumar fékk ég kynningar-
bækling um skólann sendan heim. Hann
vakti strax forvitni mína og bað ég um að
sendar yrðu nánari upplýsingar til mín. Eftir lestur þeirra ákvað ég
að slá til og sækja um. Þar sem ég er með ungt barn og þurfti að
vinna með námi hentaði kennslutíminn mér vel, en aðeins er kennt
þrjá tíma á dag. Undir lok skólaársins var haft samband við mig frá
ráðningarskrifstofu, en skólastjóri skólans hafði bent á mig i
sambandi við starf hjá Ríkisbókhaldi, þar sem ég starfa nú.
Starfsþjálfun í fyrirtækjum
veitir nemendum mikilvæga
innsýn í skrifstofustörf.
Námstími er 2 x 13 vikur,
3 klst. daglega.
VJlÐSKIPTASKÓLI
Stxörnunarfélagsins og ttÝHERJA
ÁNANAUSTUM 15-121 REYKJAVÍK
FURUVÖUUM 5 - 600 AKUREYRI