Morgunblaðið - 13.08.1995, Blaðsíða 8
8 B SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
PÓLSKI leikstjórinn
Agnieska Holland
(Evrópa, Evrópa) er nú að
leggja lokahönd á nýjustu
mynd sína, Sólmyrkva, sem
fjallar um skáldið Arthur
Rimbaud. Handritið gerir
breska leikritaskáldið - og
nú nýverið kvikmyndaleik-
stjórinn - Christopher
Hampton en með aðalhlut-
verkin fara Romane Bohrin-
ger, fremsta leikkona
Frakka af yngri kynslóðinni,
og dóttir Richard, Dom-
inique Blance, Leonardo
DiCaprio og David Thewlis.
Myndin hefst árið 1871
og segir af vinskap Rim-
baud, sem þá er 16 ára, og
Paul Verlaine í París. Sá er
kvæntur Matthildi de Fleur-
ville sem er þunguð. Paul
hefur hrifist af kveðskap
Rimbaud og boðist til að
aðstoða hann í stórborginni
og það verður upphafið að
örlögum þeirra.
IMYND um Rimbaud:
Leonardo DiCaprio.
SÝND á næstunni; Sjö með Pitt og Freeman.
7.000 hafa
séð Don Juan
ALLS hafa um 50.000
manns séð gaman-
mynd Jims Carreys, Heimsk-
ur heimskari, í Laugarásbíói
og víðar að sögn Magnúsar
Gunnarssonar bíóstjóra.
Þá hafa um 7.000 manns
séð rómantísku gaman-
myndina um Don Juan og
1.500 svertingjamyndina
Langan föstudag.
Næstu myndir Laugarás-
bíós eru „Major Paine“ með
Damon Wayans og svo ís-
lendingasaga eða Kjartans-
saga, víkingamyndin sem
Michael Chapman gerði hér
á landi. Hún er væntanleg í
byijun september. Eftir hana
kemur Stallonemyndin
„Judge Dredd“ og þar á eft-
ir vísindaskáldskapurinn
„Species".
Aðrar myndir Laugar-
ásbíós í framtíðinni eru
Sjö með Brad Pitt og
Morgan Freeman og
„Mortal Kombat“, sem
gerð er eftir sam-
nefndum tölvuleik.
ÞAÐ þarf svo sem
engum að koma á
óvart þótt fyrsta hreina
afþreyingarmyndin frá
stóru kvikmyndaverun-
um í Hollywood, sem
dreift er í Bandaríkjun-
um með stimplinum
„NC-17“, sé eftir þá fé-
íaga Paul Verhoeven
leikstjóra og Joe Eszter-
has handritshöfund. Þeir
gerðu Ógnareðli saman.
Nýja myndin
þeirra gerist á
klámbúllum Las
Vegas og heitir
„Showgirls" en
stimpillinn á
henni þýðir að |
hér er um „full-
orðinsmynd“
að ræða, sem
dregur ekki úr
nektarsenum
og kynlífsatr-
iðum.
„Ég hef virki-
lega gaman af því
að kvikmynda
naktar stelpur,“ er
haft eftir Verhoeven
hinum hollenska.
Svo virðist sem hon-
um gæti tekist að
bijóta ýmis tabú hins
settlega Hollywoodiðn-
aðar með mynd sinni
og fleiri fylgi í kjölfarið.
Stimpillinn var hugsaður
sem leið fyrir myndir
eins og „Showgirls" að
komast í almenna dreif-
ingu er haft eftir ieik-
stjóranum en aðeins
C* einni „NC-17“ mynd
hefur áður verið dreift,
tHenry og June eftir
i Philip Kaufman, sem
var listrænt sköpunar-
verk, ekki afþreying-
.armynd.
Holland gerir mynd
um Arthur Rimbaud
Fólk
Í.VVV
■ MEISTARA VERK Luis
Bunuels, „Belle de Jour“,
með Catherine Deneuve í
aðalhlutverki hefur verið
sett í endurdreifingu í
Bandaríkjunum af Miramax
fyrirtækinu. Deneuve leikur
eiginkonu læknis og eyðir
eftii-miðdögunum á hóru-
húsi. „Fólk er enn að tala
við mig um þessa mynd,“
er haft eftir henni.
■ FÁIR fá feitari launa-
ávísanir í Hollywood en
grínistinn og Jerry Lewis
arftakinn Jim Carrey frá
Kanada. Ein af næstu
myndum hans (þegar allar
framhaldsmyndirnar eru
frágengnar) er „Cable
Guy“ þar sem hann leikur
einmana starfsmann kapal-
sjónvarpsstöðvar, sem fínn-
ur grímu eða kannski ekki.
Hann fær 17 milljónir doll-
ara fyrir viðvikið.
■ NORSKI leikstjórinn
Nils Gaup kemur víða við
og vinnur nú með franska
leikaranum Christopher
Lambert við myndina
„Tashunga", sem gerist
árið 1899 og segir af gull-
æði í Alaska. Meðal annarra
leikara má nefna James
Caan. Frakkar framleiða
og myndin verður frumsýnd
í Frakklandi um jólin
næstu.
FULLT af nýjum útgeimsmyndum; úr Stjörnustríði.
KVIKMYNDIR
Hvad líbur útgeimsmyndum?
IBIO
EINMUNA gúrkutíð
hefur verið í bíóun-
um að undanförnu og
myndarleysumar vaðið
uppi. Ekkert bíóanna hef-
ur sloppið við gúrkuna
sem einkennist kannski
helst af myndum sem
ómögulegt er að sjá að
eigi erindi hingað til
lands.
Þetta eru amerískar
fjQlskylduvellumyndir
eins og Raunir einstæðra
feðra eða Perezfjölskyld-
an eða Húsbóndinn á
heimilinu og Bradyfjöi-
skyldan, sem líklega er
sýnu verst. Þá var Kyn-
lífsklúbbur í Paradís ekk-
ert augnayndi og Tommy
Boy kallinn, eins og
myndin virðist heita, er
varla neitt stórvirki. Held-
ur ekki „Exotica" eða
Æðri menntun John Sing-
letons eða önnur vellan,
Jack og Sara. Hvað þá
mynd sem virðist heita
Laaaaaaangur fóstudag-
ur og segir af svertingjum
í Los Angeles. Eða Á valdi
frygðarinnar. Eða Skrið-
drekaskvísan. Hvílíkar
gúrkur. Heilagur Batman
hjálpi okkur. Og geðveik-
in í Gogga kóng.
Innrásimar
fráMars
FÁAR myndir hafa meira afþeyingargildi en amerísku
spennumyndirnar úr útgeimi. Þær hafa að vísu næstum
orðið útdauðar, því miður, á síðasta áratug eða svo en
áhuginn á þeim er aftur að vakna til allrar blessunar og
heill hellingur er nú í bígerð vestra. Geta áhugamenn um
þessa sérstöku tegund tekið gleði sina á ný og hlakkað
vongóðir til næsta sumars.
Flestar nýju myndanna
gerast reyndar ekki í
útgeimi heldur á jörðu niðri
því jarðarbúar eiga von á
hverri innrásinni á fætur
■hhm annarri
komandi
geimvísind-
atryllum. í
Þjóðhátíð-
ardeginum
eða „Inde-
pendence
Day“, sem
20th Cent-
eftir Amald
Indriðason
ury Fox framleiðir undir
leikstjórn Roland Emmerich
(Stjörnuhlið), lenda 25 kíló-
metra geimskip í Washing-
ton og kvikindi í líkingu
engispretta taka að murka
lífið úr hinum hugrökku og
fijálsu. Pill Pullman leikur
forseta Bandaríkjanna en
með önnur hlutverk fara
Will Smith, Randy Quaid og
Jeff Goldblum, sem fengist
hefur við útgeimsverur áður
en með litlum árangri. Hand-
ritshöfundurinn og framleið-
andinn, Dean Devlin, lýsir
tryllinum sem dæmigerðri
John Wayne mynd „í anda
stórslysamynda Irwin All-
ens“.
Þá er Tim Burton (Bat-
man 1 og 2) að undirbúa
mynd núna sem heitir Árás-
irnar frá Mars eða „Mars
Attacks!“ Wamer Bros. sér
um kostnaðinn og Burton
leitar að leikurum I aðalhlut-
Striplsyn-
ingar í Las
Vegas; úr
„Showgirls"
Paul Ver-
hoevens.
verkin og hefur helst Hugh
Grant í huga sem vísinda-
mann og Warren Beatty í
hlutverki forsetans. Eitthvað
dróst að klára handritið þeg-
ar í ljós kom að þættir í því
líktust atriðum í Þjóðhátíðar-
degi en sagt er að myndin
komi til að verða einstök í
útliti m.a. vegna klippi-
myndatækni eins og þeirri
sem Burton notaði í Martröð
undir jólin.
Einnig er hollenski leik-
stjórinn Paul Verhoeven
kominn langt með undirbún-
ing að „Starship Troopers"
eða Víkingasveitinni sem
byggir á skáldsögu eftir
Robert Heinlein en Tri Star
borgar þær 80 milljónir doll-
ara sem hún á að kosta.
Handritshöfundur er Ed
Neumeier og framleiðandi
Jon Davison svo liðið úr
„RoboCop" hittist á ný til
að segja sögu af einskonar
víkingasveit í geimnum sem
á í stöðugri baráttu við eitt-
hvað risastórt og ljótt.
Einnig er Mad Max leik-
stjórinn George Miller tekinn
til við að kvikmynda sögu
stjörnufræðingsins Carl
Sagans, „Contact" eða Sam-
band, fyrir TriStar, sem seg-
ir frá því þegar mannkynið
fær upplýsingar um hvernig
það getur haft samband við
æðri verur í geimnum.
Myndin mun ekki vera í anda
þeirra sem segja frá útrým-
ingu jarðarbúa.
Ýmis minniháttar út-
geimsverk eru einnig í und-
irbúningi eins og
„Shockwave" með Charlie
Sheen í hlutverki geimfara;
„DNA“ með F. Murray
Abraham og geimskrýmsli
sem búið hefur verið til úr
fornu geni; „Men in Black"
er geimgamanmynd með
Tommy Lee Jones undir leik-
stjórn Barry Sonnefeld
(Áddamsfjölskyldan) og Frá
hvaða plánetu ert þú? er
önnur gamanmynd sem seg-
ir af geimveru í leit að lífs-
förunaut á jörðunni.
Steven Spielberg mun
kannski gera myndina „De-
ep Impact“ um árekstur loft-
steins á jörðina og ekki má
gleyma Stjörnustríðsbálki
George Lucas, sem brátt
verður sexfaldur.
í