Morgunblaðið - 13.08.1995, Blaðsíða 20
20 B SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIIÍNUAUG[ýS/NGA/?
Kennarar
Kennara vantar í Ásgarðsskóla í Kjós.
Um er að ræða kennslu yngri barna.
Upplýsingar í síma 566 7001.
Heimilisaðstoð
4ra manna fjölskylda í vesturbæ Kópavogs,
3 fullorðin og 8 ára drengur, óskar eftir heim-
ilisaðstoð virka daga kl. 9.00-13.00.
Umsóknir skilist til afgreiðslu Mbl. fyrir
21. ágúst, merktar: „Kóp. - 10894“ .
Skyndibitastaður
Óskum að ráða hresst fólk til starfa á nýjan
skyndibitastað í Reykjavík.
Umsóknir skulu berast afgreiðslu Morgun-
blaðsins fyrir 20. ágúst,
merktar: „Nýr - 10645".
Kennarastöður
Við skólann eru tvær kennarastöður lausar
til umsóknar. Um er að ræða kennslu á
tölvur, í íþróttum og heimilisfræði; og í
íslensku, stærðfræði, samfélagsgreinum og
raungreinum í 7.-10. bekk.
í skólanum eru u.þ.b. 40 nemendur, sem
kennt er í fjórum bekkjardeildum.
Starfsaðstaða er góð, m.a. nýtt íþróttahús
og fullkominn tölvubúnaður. Skólinn er
einsetinn og við hann starfar metnaðarfullt
starfsfólk.
Áhugasömu fólki er greidd launauppbót og
flutningsstyrkur.
Upplýsingar veitir skólastjóri í símum
456-4961 og 854-1761 og sveitarstjóri í
vinnusíma 456-4912. Umsóknir sendist til
skólastjóra.
Akureyri
viðskiptafræðingur
Óskum eftir að ráða viðskiptafræðing til
starfa hjá framsæknu flutningafyrirtæki á
Akureyri.
Starfssvið:
1. Umsjón með bókhaldi, merking fylgi-
skjala, afstemmingar, uppgjör og skýrslu-
gerð.
2. Daglegar fjárreiður, gerð greiðsluáætl-
ana, yfirumsjón og skipulagning inn-
heimtu.
3. Skipuleggja og annast tölvuvæðingu og
hafa umsjón með upplýsingakerfi.
Við leitum að viðskiptafræðingi sem hefur
góða bókhaldsþekkingu og reynslu af bók-
haldsstörfum. Góð tölvuþekking er nauðsyn-
leg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar
„Viðskiptafræðingur 305“ fyrir 19. ágúst nk.
Hagvangur hf
Skeifunni 19
Reykjavík
Sími 581 3666
Róðningarþjónusta
Rekstrarróðgjöf
Skoðanakannanir
Pípulagningamenn
Vantar menn í pípulagningavinnu. Þurfa að
hafa einhverja reynslu í pípulögnum.
Umsóknum skal skila inn á afgreiðslu Mbl.,
ásamt nafni, aldri og fyrri störfum, fyrir
20. ágúst nk., merktum: „Pípulagnir -
16117“.
Kennarar
Raufarhöfn
Kennara vantar í Grunnskólann á Raufar-
höfn. Kennslugreinar eru byrjendakennsla,
raungreinar, listgreinar og heimilisfræði í
1.-10. bekk. Tilvalið fyrir hjón.
Á Raufarhöfn búa ca 400 íbúar. Þar er mikið tónlistarlíf, tvær verslan-
ir, hótel, krá og skyndibitastaður. Miklir möguleikar á útivist og sport-
veiði. Góð íþróttaaðstaða, 16 metra innisundlaug, nýtt, stórt íþrótta-
hús, heilsurækt og sauna. Góð heilbrigðisþjónusta og leikskóli.
Raufarhafnarhreppur greiðir flutningskostn-
að, útvegar húsnæði og greiðir niður húsa-
leigu um helming.
Upplýsingar um starfið veita Líney Helga-
dóttir, skólastjóri, í símum 465 1225 og
465 1241, og Hildur Harðardóttir, formaður
skólanefndar, í síma 465 1339.
Skriflegar umsóknir sendist skólastjóra.
Bílanaust hf. óskar að ráða lærðan bfla-
sprautara í bílalakkdeild fyrirtækisins, vegna
vaxandi verkefna.
Hæfniskröfur eru, að viðkomandi:
• geti blandað bílalakk,
• geti unnið sjálfstætt,
• sé þjónustulundaður,
• eigi gott með að vinna með fólki,
• vinni vel undir álagi.
Um framtíðarstarf er að ræða. Ráðning verð-
ur sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
eingöngu veittar á skrifstofu Liðsauka, sem
opin er frá kl. 9-14.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta «1^
Liósauki hf. Igt
Skolavörðustíg 1a -101 Reykjavík - Sími: 562 1355
Fax: 562 1311 - Kt. 600182-0729
Q)
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða leikskólakennara eða annað
uppeldismenntað starfsfólk í neðangreinda
leikskóla.
Ásborg v/Dyngjuveg, s. 553 1135.
Bakkaborg v/Blöndubakka, s. 557 1240.
Grandaborg v/Boðagranda, s. 562 1855.
Grænaborg v/Eiríksgötu, s. 551 4470.
Kvarnarborg v/Árkvörn, s. 567 3199.
Laufásborg v/Laufásveg, s. 551 7219.
Leikgarður v/Eggertsgötu, s. 551 9619.
Njálsborg v/Njálsgötu, s. 551 4860.
Seljaborg v/Tungusel, s. 557 6680.
Ægisborg v/Ægissíðu, s. 551 4810.
í sstarf e.h.:
Grandaborg v/Boðagranda, s. 562 1855.
Kvistaborg v/Kvistaland, s. 553 0311.
Nánari uppláyingar gefa viðkomandi leik-
skólastjórar.
Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir
vinnustaðir.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552-7277.
ÍSAFJ ARÐ ARKAU PST AÐU R
Kennarar - kennarar
Nú er tækifæri til að söðla um og reyna eitt-
hvað nýtt. Okkur vantar kennara í Grunnskól-
anum á ísafirði í eftirtaldar greinar:
Heimilisfræði, handmennt, smíðar,
tónmennt og sérkennslu.
(safjörður er bæjarfélag með um 3500 íbúa. Þar er margháttuð þjón-
usta og atvinnustarfsemi, auk þess sem Vestfiröir eru rómaðir fyrir
sérstæða náttúru og fjölbreytt tækifæri til útivistar og íþróttaiðkunar.
I skólanum eru um 600 nemendur. Starfsfólk og nýir stjórnendur
eru áfram um að stuðla að gróskumiklu og farsælu skólastarfi á
komandi vetri. Hér er því gott tækifæri til að reyna eitthvaö nýtt.
Flutningsstyrkur og niðurgreidd húsaleiga.
Nánari upplýsingar gefa skólastjóri og að-
stoðarskólastjóri í vinnusíma 456-3044 og í
heimasímum 456-4305 (hjá skólastjóra) og
456-4132 (hjá aðst. skólastjóra).
Leikskólastjóri
Leikskólastjóri óskast í leikskólann Barnaból
á Skagaströnd.
Leikskólinn er rekinn í tveim deildum, að
hluta í nýju húsnæði. Spennandi verkefni
fyrir áhugasama. Húsnæði á staðnum.
Nánari upplýsingar veitir Svandís, í síma
452 2998, og Magnús, í síma 452 2707.
Umsóknir sendist Höfðahreppi, Túnbraut 1,
545 Skagaströnd.
Sveitarstjóri.
Heimaþjónusta
Starfsmann vantar í fullt starf við heimaþjón-
ustu á Eskifirði frá 1. september nk.
Um er að ræða aðstoð við fjögurra manna
fjölskyldu, þar sem húsmóðirin er mikið fötluð.
Þetta gæti verið atvinnutækifæri fyrir fjöl-
skyldu sem vildi flytja á milli landshluta.
Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri í
síma 476 1170 á þriðjudögum og fimmtudög-
um og 474 1245 á mánudögum og miðviku-
dögum.
Félagsmálaráð Eskifjarðar.
Ifl
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Stuðningsstörf
Leikskólakennara eða þroskaþjálfa vantar í
stuðningsstörf í neðangreinda leikskóla:
Lindarborg v/Lindargötu, s. 551 5390.
Sólborg v/Vesturhlíð, s. 551 5380.
Stakkaborg v/Bólstaðarhlíð, s. 553 9070.
Ægisborg v/Ægissíðu, s. 551 4810.
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik-
skólastjórar.
Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir
vinnustaðir.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552-7277.