Morgunblaðið - 20.08.1995, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 1995 27
MINNINGAR
+ Lilja fæddist á
Þingeyri í
Dýrafirði. Hún lést
á Hrafnistu 10. ág-
úst sl. Hún var elst
systkina, dóttir Sig-
urðar Fr. Einars-
sonar kennara og
Þórdísar Jónsdótt-
ur, konu hans. Börn
þeirra voru níu og
fósturbörn tvö. 011
eru þau látin nema
fjórar systur. Þær
eru Fjóla, gift
Steingrími Guð-
mundssyni, Þór-
unn, sem er vistmaður á Hrafn-
istu, Asta, sem er búsett í
Bandaríkjunum og Hrefna, sem
er gift Kjartani Th. Ingimund-
arsyni. Lilja var jörðuð í kyrr-
þey 17. ágúst sl.
ER ÉG tek mér penna í hönd til
að minnast systur okkar er mér
efst í huga þakklæti til guðs fyrir
að leyfa henni að lifa þessi fjöl-
mörgu ár án mikilla þrauta. Hún
bar aldurinn vel, enda sérlega skap-
góð kona og að eðlis-
fari lífsglöð. Hún var
þakklát og átti ávallt
nóg til að gefa af sjálfri
sér. Hún var falleg
kona jafnvel fram á
síðustu stundu. Lilja
var gift Halldóri Sigur-
björnssyni frá Bolung-
arvík. Þau eignuðust
ijögur yndisleg börn,
en misstu yngsta barn-
ið á unga aldri. Lilja
var frábær húsmóðir
og myndarleg í öllu
sem hún tók sér fyrir
hendur. Hún vann mik-
ið af listmunum og eftir hana liggja
fjölmargar myndir.
Lilja vann lengst af hjá Magnúsi
I. Magnússyni stórkaupmanni. Hann
var giftur móðursystur ókkar Helgu
Jónsdóttur. Á þeim tíma dvaldist ég
hjá þeim og var sá tími lærdómsrík-
ur fyrir mig. Lilja var mikið fyrir
fagra tónlist og söng sjálf af hreinni
list og kom það sér vel .fyrir mig,
sem þá var að byrja að nema og
læra söng. Þau hjónin voru mjög
samhent og heimilislíf þeirra gott.
Tíminn leið og kom að því að þau
fluttust til Reykjavíkur, en ég fylgdi
systur minn ætíð eftir. Eftir að
börn þeirra voru öll farin af landi
brott fórum við að vera meira sam-
an á ný, en svo skildu leiðir eins
og eðlilegt er eftir að ég gifti mig.
Þá flutti ég til Patreksfjarðar og
byrjaði nýtt líf. Þau hjón ferðuðust
oft út til barna sinna og dvöldu þar
langtímum saman og var það dá-
samlegt, því milli þeirra ríkti ætíð
mikill kærleikur. Síðar, er aldurinn
færðist yfir, fluttu þau á Hrafnistu
í Hafnarfirði. Þar andaðist Halldór
og nú Lilja.
Við systurnar og fjölskyldur okk-
ar viljum þakka öllum á sjúkrahúsi
Hrafnistu, jafnt læknum sem öðr-
um, fyrir frábæra umönnun og hlý-
hug er þau sýndu Lilju. Við vottum
bömum, tengdabörnum og bama-
börnum Lilju okkar dýpstu samúð.
Ég bið góðan guð að styrkja þau í
þeirra djúpu sorg.
Elsku Lilja systir, við kveðjum
þig með þessum fátæklegu orðum.
Kristalsdögg í guðdómsbirtu glitrar,
geislandi stjömur gylla haf og sund.
I morgunljóma táraflóðin titra,
og tónabylgjur fagna þínum fund.
Nú ertu sæl vor elskulega systir,
sólargeislar kyssa mjúka mund.
Friður guðs blessi þig.
Hrefna.
LILJA
SIGURÐARDÓTTIR
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
- frá Guðlaugsvík;
Fljótaseli 21,
Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 18. ágúst.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN ÓLAFUR ELÍASSON
fyrrverandi kaupmaður,
Blönduhlíð 27,
lést í Landspítalanum þann 18. ágúst 1995.
Jón Kristinn Jónsson, Sesselja Ingólfsdóttir,
Ari Jónsson, Lára Hrönn Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er mðttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins á netfang þess Mbi@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á
heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa
örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Skilafrest-
ur vegna
minningar
greina
Eigi minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í
sunnudagsblaði ef útför er á
mánudegi), er skilafrestur
sem hér segir: í sunnudags-
og þriðjudagsblað þarf grein
að berast fyrir hádegi á föstu-
dag. í miðvikudags-, fimmtu-
dags-, föstudags- og laugar-
dagsblað þarf greinin að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virk-
um dögum fyrir birtingardag.
Berist grein eftir að skila-
frestur er útrunninn eða eftir
að útför hefur farið fram, er
ekki unnt að lofa ákveðnum
birtingardegi.
Heimilisleg heimsborg á ver&i fyrir alla!
Þoð er engin tilviljun að þúsundir Islendinga
skuli heimsækja Newcastle og margir fari
Jbangað aftur og aftur!
Newcastle er borg alsnægta þar sem fólk
upplifir ævintýri frá morgni til kvölds.
^ Newcastle býður upp á menningu og mannlíf
stórborgarinnar en með einu skrefi er hægt
að stíga aftur i aldir og upplifa eldfjörugar
miðaldaveislur.
Newcastle er borg fyrir þig!
Verðið á haustferðunum til Newcastle er eins
og allt í þessari vinalegu borg, ótrúlegt en satt.
Kr. 22*900 fyrir fjögurra daga ferð í miðri viku.
Kr. 219.80C fyrir fimm daga helgarferð.
► Kr. 36.800 fyrír vikuferð.
> Kr. 39.800 fyrir tíu daga ferð.
Verð mi&ast við staðgreiðslu fyrir 15. september. Innifalið í ver&i
er flug, flugvallaskattar, gisting og morgunver&ur, fer&ir til og frá
fíugvelli í Newcastle og íslensk fararstjóm. Ver& mi&ast vi& mann
í tveggja manna herbergi.
FERÐASKRIFSTOFAN
Skoðið myndir frá Newcastle og upplýsingar til ferðamanni
á Internetinu. Heimasíðan heitir: Welcome to Newcastle
heimilisfangið er: http://www.ncl.ac.uk/welcome.html
565 2266
JJ
í þessu glæsilega húsi eru enn til leigu tvö pláss á 2. hæð. Hvort rými
er 288m2 og er hægt að sameina þau í eitt rými, samtals 576m2.
Rýmin eru með sérinngangi og möguleika á lyftu.
Aðilum sem áhuga hafa á að leigja umrætt
húsnæði er bent á að hafa samband við
Byggingafélag Gylfa og Gunnars hf.
í síma 562-2991
lSs'i’i’ingalélug Gvlfa og Giunwrs'
'H'arnartáttMl
rX'ki!nrl
Síuii 562-2991 l-ax 562-2175