Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ 2 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995 FRÉTTIR Varðskipið Oðinn dregur Sindra VE áleiðis til Islands Vildu ekki hjálp Norðmanna Sindrí VE er í eigu Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum og Meitilsins í Þorlákshöfn. Búast má við að Sindri verði kominn til íslands fyrir aðra helgi. VARÐSKIPIÐ Óðinn hóf að draga Sindra VE á miðnætti í nótt til móts við dráttarbát sem ætlar að draga skipið áfram til Islands. Sindri VE fékk í skrúfuna á veiðum í Smugunni í fyrrakvöld, stuttu eftir olíutöku, með þeim afleiðing- um að skrúfugír í vélinni eyðilagð- ist. Reiknað er með að Óðinn muni draga Sindra í um hálfan annan sólarhring, áleiðis til íslands, áður en dráttarbáturinn mætir skipinu. Darri Gunnarsson, verkfræðing- ur Vinnslustöðvarinnar í Vest- mannaeyjum, sem á helmingshlut í Sindra VE á móti Meitli hf. í Þorlákshöfn, segir að tryggingafé- lag skipsins hafi samið við eigend- ur dráttarbátsins og megi búast við að Sindri verði kominn til ís- lands fyrir aðra helgi, eða 12.-15. september. „Við vildum ekki leita aðstoðar norsku strandgæslunnar, því við teljum að samskiptin við Norð- menn hafi verið þannig að við vilj- um ekkert hafa við þá saman að sælda. Við áttum togara sem bil- aði þama í fyrra, Breka VE, en fengum ekki viðgerð þar og höfum því viljað forðast öll viðskipti við Norðmenn yfír höfuð,“ segir Sig- hvatur Bjamason, framkvæmda- stjóri Vinnslustöðvarinnar hf. Öryggi að hafa Óðin í Smugu Sindri VE óskaði aðstoðar land- helgisgæslunnar um klukkan átta í gærmorgun. „Við voram strax reiðubúnir að veita þá aðstoð sem óskað var eftir en jafnframt töldum við betra að láta kanna aðrar leið- ir, svo að við gætum haldið áfram að sinna störfum okkar í Smug- unni enda mikið öryggi fólgið í að hafa varðskipið áfram á því veiði- svæði,“ segir Hafsteinn Hafsteins- son, forstjóri Landhelgisgæslunn- ar. Hann segir að tilvitnun í Sig- hvat í fjölmiðlum í gærkvöldi, þess efnis að Landhelgisgæslan hafí gert kröfur um óheyrilega há björgunarlaun, komi sér afskap- lega mikið á óvart. „í gildi eru ákveðnir taxtar um björgunarlaun og það hefði gilt sami taxti hvort sem fiskiskip eða varðskip hefði komið Sindra VE til aðstoðar, en það var ekki farið að ræða um slíka samninga," segir Hafsteinn. Sighvatur segir að ranglega hafi verið haft eftir sér í fjölmiðlum í gær að þessu leyti. Milljóna tjón Sindra rak án vélarafls í sjö vindstiga vestanbrælu í Smugunni mestan hluta gærdagsins, en veðr- ið gekk niður þegar kvöldaði og segir Darri að áhöfn eða skip hafí aldrei verið í nokkurri hættu. í áhöfn skipsins eru 25 menn og var skipið búið að vera á sjó í um 35 daga þegar það fékk í skrúfuna og hafði veitt 160 tonn af þorski. Darri kveðst telja að um milljóna króna tjón sé að ræða fyrir útgerð- ina, ekki síst þar sem skipið verði frá veiðum í að minnsta kosti fjór- ar vikur. Formaður LIU um staðhæfingar norskra fíölmiðia um skemmdan Smugufisk Mistök en ekki al- geng aflameðferð „NORÐMENN hafa komist á snoð- ir um umtal hér heima vegna mis- taka, sem urðu þegar veiðimennsk- an bar skynsemina ofurliði og fersk- fískskip kom með allt of mikinn afla úr Smugunni. Aflinn var of gamall til að hægt væri að frysta hann, hann var saltaður og gæðin þóttu heldur rýr. Því fer hins vegar Qarri að svona meðferð afla sé al- geng,“ sagði Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, í samtali við Morg- unblaðið. Norskir fjölmiðlar skýrðu frá því í gær að stór hluti aflans, sem ís- lendingar veiddu í Smugunni, skemmdist vegna lélegrar meðferð- ar íslenskra sjómanna á honum. Afla sé því oft kastað eða hann settur í gúanó. í fréttinni er þó aðeins vísað til eins tilfellis. Aflinn oftast unninn um borð „Við erum með 30-40 skip í Smugunni, flest frystiskip, sem koma að sjálfsögðu með ferskt hrá- efni að landi, auk skipa sem salta um borð. Þá hafa 3-5 ferskfískskip verið i Smugunni. Þau hafa þurft að veiða sem mest á sem skemmst- um tíma, því þau geta ekki verið úti nema í viku og svo tekur við 4-5 daga heimferð. Þessi skip hafa gjarnan sett glugga í vörpuna og losað sig við þann físk sem þau ná ekki að vinna með góðu móti. Fyrir nokkra kom ferskfisktogari að landi með 340 tonn af fiski, sem var ekki nægilega góður.“ Kristján vísar til togarans Bessa frá Súðavík. Afli togarans var salt- aður, þar sem hann var ekki nógu góður til frystingar. „Þarna urðu vissulega mistök og ég játti þeim í samtali við norskan fjölmiðil. Þetta er hverfandi hluti þess afla sem við erum að veiða þarna. Gífuryrði norskra ráðherra og talsmanna samtaka í norskum sjávarútvegi vegna þessa vekja mikla undrun mína. Við viljum umgangast þessa auðlind af hófsemi og verðum að gæta þess að svona mistök endur- taki sig ekki.“ Morgunblaðið/Ásdís Þingflokkar stj ór narflokkanna funda um fjárlagafrumvarp Ríkisstj órninni veitt óskorað umboð „ÞINGMENN flokksins voru al- mennt mjög sáttir við þá stefnu sem fram kemur í fjárlagaframvarpinu, þótt skiptar skoðanir hafí verið um ýmis smærri atriði," sagði Geir H. Haarde, formaður þingflokks Sjálf- stæðisflokksins, að loknum fundi þingflokksins í gær. Friðrik Sophus- son fjármálaráðherra kvaðst ánægður með niðurstöðu þingflokka stjórnarflokkanna. Aðspurður vildi hann ekki gefa upplýsingar um ein- stakar sparnaðartillögur. Þingflokkar Framsóknarflokks- ins og Sjálfstæðisflokksins veittu ríkisstjóminni í gær umboð til að leggja fram fjárlagafrumvarp, sem gerir ráð fyrir að halli á ríkissjóði á næsta ári nemi fjórum milljörðum króna. „Þingflokkarnir standa fast að baki þeirri stefnumörkun, sem fram kemur í frumvarpinu og stefnt er að því að leggja fram hallalaus ijárlög næsta haust, að óbreyttum efnahagsforsendum," sagði Friðrik Sophusson. Eins og fram kom í Morgunblað- inu í gær eru uppi hugmyndir um að tengja tekjutryggingu ellilífeyris við ijármagnstekjur, sem yrði háð því að tekinn yrði upp fjármagns- tekjuskattur. „Eg vil ekki skýra frá einstökum tillögum að svo komnu máli, enda á enn eftir að útfæra nánar tekju- og gjaldahlið fram- varpsins." Sara til Hull SEGLSKÚTAN Sara, sem mikið hefur verið í fréttum að undan- förnu, var tekin á land í gær og sett um boð í eitt af flutninga- skipum Samskipa. Skipið heldur af stað í dag með skútuna áleið- is til HuII í Bretlandi. Frakkinn, Mathieu Morver- and, er nú aftur orðinn löglegur eigandi skútunnar, en hann keypti hana af Gunnari Borg, sem átt hefur skútuna ásamt fleirum síðustu þrjú ár. Morver- and, sem er til vinstri á mynd- inni, gerði sem kunnugt er til- raun til að sigla skútunni til Frakklands í síðasta mánuði, en var stöðvaður af varðskipi Land- helgisgæslunnar og dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir. Hannes Hlífar efstur HANNES HLÍFAR Stefánsson sigraði Friðrik Olafsson í fjórðu umferð Friðriksmótsins í gær- kvöldi og er í efsta sætinu með 3,5 vinninga. Smyslov vann Sofiu Polgar og Margeir Pét- ursson vann Þröst Þórhallsson. Larsen og Gligoric og Jón L Ámason og Helgi Áss Grétars- son gerðu jafntefli. Skák Helga Ólafssonar og Jóhanns Hjartar- sonar var frestað. Margeir Pétursson er í öðru sæti með 3 vinninga, Jóhann Hjartarson er með tvo vinninga og óteflda skák, Smyslov, Sofia Polgar, Gligoric og Jón L Árna- son með tvo vinninga, Larsen, Þröstur og Helgi Áss eru með hálfan annan vinning, Helgi Ólasfsson er með vinning og óteflda skák og Friðrik Olafs- son er með einn vinning. Fimmta umferð hefst klukk- an 17 í dag. Þá tefla Sofía og Hannes Hlífar, Friðrik og Helgi, Jóhann og Jón, Gligoric og Smyslov, Margeir og Larsen og Helgi Áss og Þröstur. Otuðu byssu út um bíl- glugga Ungir menn miðuðu byssu á vegfarendur á Túngötu út um bílglugga í fyrrakvöld. Maður hafði samband við lögregluna og hafði orðið fyrir því að byssu var miðað á hann út um bílglugga þar sem hann var á ferð í grennd við Landa- kotsspítala. Lögregla á öllu höfuðborg- arsvæðinu leitaði bílsins. Bíll- inn fannst í umdæmi lögregl- unnar í Hafnarfirði skömmu síðar og voru ökumaður og far- þegar færðir á lögreglustöð. Þar kom í ljós við athugun að steypt hafði verið upp í hlaup byssunnar sem mennirnir höfðu otað að fólki og hún hafði þannig verið gerð óvirk. Drukknaði í Kötluvatni Raufarhöfn. Morgunblaðid. 79 ÁRA gamall maður, Sigurð- ur Haraldsson, Núpskötlu á Melrakkasléttu, drukknaði í Kötluvatni á þriðjudagsmorgun þegar hann var að vitja um silunga- net sín þar. Um klukkan 11 um morgun- inn sáu kon- umar á bænum bát Sigurðar við malarkamb- inn sem að- skilur vatnið og sjóinn. Nokkru seinna var þeim litið til bátsins aftur og sáu að hann rak vest- ur með mölinni. Þótti þeim sem ekki væri allt með felldu og hringdu í Harald son Sigurðar sem var á sjó út af Kötluvíkinni. Haraldur fór strax að bát Sigurðar og sá að árar og hækjur Sigurðar voru á sínum stað í bátnum eins og vant var meðan Sigurður dró net sín. Haraldur hafði samband við Kópasker og bað um aðstoð þaðan við leit að föður sínum. Einnig kom lögregla frá Rauf- arhöfn og með henni kafari. Þeir fundu lík Sigurðar fljót- lega á botni vatnsins. Sigurður Haraldsson var fæddur árið 1916. Hann lætur eftir sig eiginkonu og uppkom- in börn. Sigurður Haraldsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.