Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Bretar kenna írum um frestun leiðtogafundar London, Dublin. Reuter, The Daily Telegraph. Hætta á að friðarumleitan irnar renni út í sandinn Kynþátta- hatur vitnis lagt fyrir kviðdóm Los Angeles. Reuter. KVIÐDÓMENDUR í máli bandaríska ruðningskappans O.J. Simpson, sem sakaður er um að hafa myrt eiginkonu sína og vin hennar, hlýddu í vikunni á upptöku af tali lögreglu- mannsins Marks Fuhrmans, þar sem hann fer niðrandi orð- um um blökkumenn. Meirihluti kviðdóms og Simpson eru svartir á hörund og saka veij- endur Simpsons Fuhrman, sem rannsakaði málið í upphafi, um kynþáttahatur. Fullyrða þeir að hann hafí komið blóðugum hanska fyrir á heimili Simpsons til að beina grun að honum. Það var handritshöfundurinn Laura McKinny sem gerði upp- tökurnar á tíu ára tímabili, frá 1985-1994, og í þeim notar Fuhrman orðið „surtur“ 42 sinnum. Fuhrman og McKinny unnu að gerð kvikmyndahand- rits um erfíðleika sem lögreglu- konur lenda í þegar þær eru á ferð í hverfum þar sem glæpa- tíðni er há. Hefur verið fullyrt að Fuhrman hafi fært í stílinn er hann lýsti lífi lögreglumanna fyrir auðtrúa handritshöfund- inum. BRETAR sögðu í gær að Irar ættu sökina á því að leiðtogafundi þjóð- anna, sem átti að vera í gær, var frestað á síðustu stundu. Stjórn Johns Majors, forsætisráðherra Bretlands, kvaðst hvergi hvika frá þeirri afstöðu sinni að hafna aðild Sinn Fein, stjórnmálaarms írska lýðveldishersins (IRA), að samn- ingaviðræðum um framtíð Norður- írlands meðan IRA neitaði að láta vopn sín af hendi. Deilan hefur orð- ið til þess að friðarumleitanirnar, sem hófust í lok ársins 1993, hafa aldrei verið í jafn mikilli hættu frá því IRA lýsti yfir vopnahléi fyrir rúmu ári. Sú krafa bresku stjómarinnar að IRA afvopnist hefur valdið þrátefli í tilraunum til að koma á friði á Norður-írlandi síðustu vikumar. Forystumenn Sinn Fein hafa varað við því að afstaða Breta geti leitt til þess að IRA bindi enda á vopna- hléið. írar hafa lengi sagt að IRA láti ekki nein vopn af hendi fyrr en sam- komulag næst um frið á Norður- íriandi og því sé stefna bresku stjórnarinnar dæmd til að mistakast. Breskir embættismenn sögðu að ráðamenn á írlandi ættu einir sökina á því að leiðtogafundinum var frest- að. „Afstaða þeirra breyttist. Þeir þurfa að útskýra hvers vegna,“ sagði hátt settur embættismaður í London. „Við viljum auðvitað halda áfram ... En boltinn er núna í Dublin." írska stjórnin óskaði eftir því að fundinum yrði frestað í fyrrakvöld eftir að útséð var um að írskir og breskir embættismenn næðu sam- komulagi um að skipuð yrði aiþjóð- leg nefnd til að fylgjast með afvopn- un IRA og vopnaðra hreyfínga mót- mælenda á Norður-írlandi. írska stjórnin varð ókvæða við ásökunum Breta um að hún hefði fallið frá stuðningi við slíka eftirlits- nefnd vegna þrýstings frá Sinn Fein. „Sinn Fein ræður ekki stefnu stjórn- arinnar," sagði Dick Spring, varafor- sætisráðherra og utanríkisráðherra írlands. „Stefna stjórnarinnar ræðst af þeirri kröfu að við komum öllum aðilum deilunnar að samningaborði til að ræða saman og leiða síðan deiluna til lykta með friðarsamn- ingi.“ „Uppgjöf" hafnað Breskir og írskir embættismenn gerðu örvæntingarfullar tilraunir til að bjarga leiðtogafundinum í fyrra- kvöld. Major ræddi við John Brut- on, forsætisráðherra írlands, í að minnsta kosti hálfa klukkustund í síma til að freista þess að finna lausn á deilunni. Viðræðurnar héldu áfram í gær en ljóst var að deilan yrði ekki leyst nema með verulegum tilslökunum af hálfu Ira eða Breta. írskir embættismenn sögðust vona að fundurinn yrði haldinn í næstu viku. Spring sagði að Bruton væri að kanna hvort hægt yrði að fresta fyrirhugaðri ferð forsætisráð- herrans til Kanada um helgina eða stytta hana vegna málsins. Spring sagði að meðal annars væri verið að ræða þann möguleika að IRA gæfí út yfirlýsingu sem gæti orðið til þess að deilan leystist. Heim- ildarmenn sögðu að írska stjómin vonaðist til þess að Sinn Fein gæti fengið írska lýðveldisherinn til að lofa því að beita ekki vopnum nema á hann yrði ráðist. Talsmenn Sinn Fein sögðu hins vegar slíkt jafngilda „uppgjöf" af há'fu IRA. Major í vanda John Major hefur lítið svigrúm til að gefa eftir í deilunni vegna veikr- ar stöðu stjórnarinnar á breska þing- inu. Stjórnin er aðeins með níu sæta meirihluta og þarf að reiða sig á stuðning flokka norður-írskra mót- mælenda, sem vilja að Norður-írland lúti áfram yfirráðum Breta og ljá ekki máls á viðræðum við Sinn Fein meðan IRA heldur vopnum sínum. Tilslakanir af hálfu Majors myndu einnig mæta andstöðu innan þing- flokks íhaldsmanna. Tony Blair, leiðtogi breska Verka- mannaflokksins, kvaðst styðja af- stöðu Majors. Bretar telja Bmton meiri raun- sæismann en tveir síðustu forverar hans en hann er sagður undir mikl- um þrýstingi frá stuðningsmönnum IRA og írskum þjóðernissinnum um að styðja afstöðu Sinn Fein. Kjarnorkusprenging Frakka á Mururoa Hörð viðbrögð við tilrauninni VIÐBRÖGÐ við tilraunasprengingu Frakka á þriðjudagskvöld hafa verið hörð út um allan heim, en með mis- jöfnu móti. Norðurlöndin gáfu út sameigin- lega mótmælayfirlýsingu, þar sem lýst er „vonbrigðum ... með til- raunasprengingar Frakka, sem og tilraunasprengingar Kínveija, í ljósi þess að á ráðstefnu fyrr á þessu ári um samninginn um bann við dreif- ingu kjarnavopna gengust kjama- vopnaveldin undir þá skuldbindingu að forðast tilraunir með kjarna- vopn.“ Tilraununum er Iýst sem skrefi afturábak í viðleitni þjóða heims til að stöðva útbreiðslu kjarna- vopna og Frakkar eru hvattir til að hætta við allar frekari tilrauna- sprengingar. í Kaupmannahöfn klifruðu rót- tækir kjarnavopnaandstæðingar upp á þak sendiráðs Frakklands og aðrir hlekkjuðu sig við inngang þess. Lög- reglan sagðist hafa íjarlægt á frið- samlegan hátt sex mótmælendur Greenpeáce. Fulltrúar á óopinberu kvennaráð- stefnunni fordæmdu tilraunaspreng- ingu Frakka og kröfðust banns við öllum kjarnorkutilraunum. Kohl forðast fordæmingu Helmut Kohl, kanzlari Þýzkalands, ávarpaði þýzka þingið í gær vegna tilraunasprengingarinnar. Hann tók mjög varfæmislega til orða í ummæl- um sínum. Hann ítrekaði andstöðu Þýzkalands við allar kjamorkutil- raunir og að hann hefði við mörg tækifæri sagt vini sínum Jacques Chirac hug sinn. Hins vegar lagði hann áherzlu á að vinnátta Þýzka- lánds og Frakklands væri svo mikil- væg, að hann vildi ekki gera neitt sem kynni að stofna henni í hættu. Kjarnorkutilraun Frakka á eldfjalia- eyjunni Mururoa ONámustokkur, allt aö 610 metra djúpur er grafinn niður í hraunlög. Þá er sprengjan látin síga niður í stokkinn ásamt tækjum til að mæla geislavirkni og höggbylgjur í kjölfar sprengingar. Gögn um sprenginguna berast til mælitækja á yfir- borðinu, sekúndu brotum áöur en höggið splundrar skynjurunum. (Teikningin er ekki f réttum hlutföllum) Yfirborö sjávar Andstæðingar kjarnorku- he 0 tilrauna Frakka hafa áhyggjur af því aö útkulnað eldfjalliö sem Mururoa stendur á, sé mikið sprungið eftir tilrauna- sprengingar á undanförnum árum. Telja sumir aö geisla- virk efni berist út í sjóinn um sprungurnar eða að hluti eldfjallsins láti undan og falli saman. OStór hveifing verður til við sprenginguna, all að 100 metra víð. Lengra frá bræðir hitinn bergið, sem er bráðið í nokkrar mínútur en breytist svo gler, en þaö umlykur þau geislavirku efni sem myndast við sprenginguna. Knight-RidderTribune Hugsanleg NATO-aðild Eystrasaltsríkja Andstaða Rúss- lands ítrekuð Rijja. Reuter. RUSSAR eru algerlega andvígir því að Eystrasaltsríkin fái inngöngu í Atlantshafsbandalagið, NATO, en hafa ekki sett fram nein rök gegn ósk ríkjanna um aðild að Evrópusam- bandinu, ESB. Kom þetta fram í lett- neska dagblaðinu Diena . Vitnar blaðið í Sergei Krylov, að- stoðarutanríkisráðherra Rússlands, sem segir að stækkun NATO í aust- ur og þar með aðild Eistlands, Lett- 100 70 40 GB lands og Litháens sé ógnun við ör- yggi Rússlands. „Gerist það að NATO veiti næstu nágrönnum okkar aðild, eykst ógnunin við öryggi okkar og við munum verða að grípa, ekki aðeins til efnahagslegra og pólitískra aðgerða, heldur einnig hemaðar- legra,“ sagði Krylov í samtali við fréttaþjónustu Eystrasaltsríkjanna í Moskvu sem Diena vitnar til. Fréttastofan segir að þegar Krylov tali um hernaðarlegar aðgerðir eigi hann við að styrkja herdeildirvið landamæri að NATO-ríki. Eystrasaltsríkin þrjú hafa talið NATO-aðild lykilatriði i utanríkis- stefnu sinni frá því að þau fengu sjálfstæði árið 1991.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.