Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 7. SEFfEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Alþjóðakvennaráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kína i ' í'\ / Reuter DONNA Shalala, heilbrigðismálaráðherra Bandaríkjanna, reynir að troða sér fram hjá kínverskum öryggisvörðum þegar þeir meinuðu aðstoðarfólki Hillary Clintons að hlýða á ræðu forsetafrúarinn- ar á óopinberu kvennaráðstefnunni í Peking í gær. Reynt að þegja um heimsókn Hillary eking. Reuter. Farþegum sleppt úr haldi UPPREISNARMENN Tamíla- tígranna á Sri Lanka leystu í gær úr haldi um 140 farþega á feiju sem verið höfðu í haldi þeirra í rúma viku. Tamílarnir hafa enn í haldi átta manns úr áhöfn feijunn- ar að því er þeir hafa tjáð Alþjóða- nefnd Rauða krossins. Uppreisnarmennimir segja áhöfnina vera „á lífi og áöruggum stað“. Þá segja talsmenn Rauða krossins þá hafa fullyrt frá töku feijunnar að farþegarnir væru fijálsir ferða sinna en vandkvæði væru á að koma þeim til Jaffna vegna veðurs. Þá er enn ekki ljóst hversu margir farþegarnir eru þar sem böm vom ekki skráð á far- þegalista. Talsmenn Rauða kross- ins neituðu í gær að upplýsa hvort uppreisnarmenn hefðu sett skilyrði fyrir lausn fólksins. Grænfriðung- ar biðjast afsökunar UMHVERFISVERNDARSAM- . TÖKIN Greenpeace sendu í fyrra- dag höfuðstöðvum olíufyrirtækis- ins Shell afsökunarbeiðni vegna fullyrðinga þeirra í áróðursherferð gegn fyrirtækinu, þegar það hugð- ist sökkva borpallinum „Brent Spar“ í Atlantshafið fyrir þremur mánuðum. Grænfriðungar höfðu fullyrt, að um borð í borpallinum væru ennþá um 5.500 tonn af olíu. í afsökunar- beiðninni segir, að útreikningar byggðir á sýnum, sem tekin höfðu verið úr borpallinum og leiddu til þessarar fullyrðingar, hefðu verið rangir. Talsmaður Grænfriðunga sagði í gær, að samtökin hefðu ekki hugmynd um, hve mikil olía hefði verið um borð í „Brent Spar“. Þetta mál kemur samtökum Grænfriðunga mjög illa, þar sem það er talið rýra trúverðugleika þeirra á sama tíma og þeir standa í strangri baráttu gegn kjamorku- tilraunum Frakka í S-Kyrrahafi. Slapp úr hrömmum ísbiarnarins „ÞEGAR ísbjörninn lagði ekki á flótta eftir viðvörunarskotin skildi ég að þetta færi ef til vill ekki vel,“ sagði Ola Wikman, 49 ára Stokkhólmsbúi sem slapp illa meiddur úr hrömmum 310 kílógramma ís- bjarnar á Sval- barða í vikunni sem leið. „Þegar við sáum ísbjörnin var hann um 75 metrum frá okkur,“ segir Wikman í við- tali við Aftenposten á sjúkrahúsi á Svalbarða. „Hann hélt í áttina til okkar. í fyrstu var ég ekki hræddur. Við reyndum að hræða hann með því að skjóta viðvörun- arskotum með merkjabyssu, en björninn varð ekki hræddur, hélt bara áfrarn." Isbjörninn varð félaga Wik- mans, Norðmanninum Helmer Kristensen, að bana. Kristensen var með skammbyssu og skaut tveim skotum að birninum. „ís- björnin stökk þá á hann. Hann kastaði byssunni til mín og ég skaut nokkrum skotum. Þá kast- aði björninn sér yfir mig. Svo virt- ist sem hann vildi ná þeim sem var með vopnið," sagði Wikman. Björninn felldur ísbjörninn beit Wikman í hnakkann, undir vinstra eyra og vinstri öxl. Hann hefur einnig djúp sár á hendi eftir hramma bjarnarins. Wikman reyndi að kasta byss- unni aftur til Kristensens. „Mér heyrðist hann skjóta en það er erfitt að átta sig á þessu öllu, því þetta gerðist svo hratt. Síðan sá ég hann liggja þarna Iíflausan. Ég sá að björninn hafði bitið hann til bana.“ Þegar ísbjörninn nam staðar við lík Norðmannsins gat Wikman forðað sér. Þyrlá var send á stað- inn um leið og fréttir bárust af atburðinum og björninn lagði á flótta þegar hún kom. Nokkrum dögum síðar var björninn aflífað- ur þar sem hann reyndist vera með skotsár á höfði eftir átökin. AÐSTOÐARFÓLK Hillary Clintons, forsetafrúar Bandaríkjanna, neydd- ist til að standa úti í ausandi rign- ingu í langan tíma í gær þegar fund- ur, sem Hillary ávarpaði, var fluttur inn í hús vegna veðurs. Þykir það sýna vel hvaða augum kínverskir ráðamenn líta heimsókn Hillarys og ræðu hennar á kvennaráðstefnunni í fyrradag enda er varla minnst á hana í kínverskum fjölmiðlum. Hill- ary er hins vegar miðpunktur athygl- innar meðal kvennanna, þátttakenda í ráðstefnunum báðum, og í gær tók Madeleine Albright, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð- unum, undir gagnrýni hennar á stefnu kínversku stjórnarinnar í fóst- ureyðingar- og ófijósemismálum. Hillary Clinton ávarpaði í gær óopinberu kvennaráðstefnuna en vegna mikillar rigningar var fundur- inn, sem átti að vera úti, fluttur inn í kvikmyndahús. Kínversku öryggis- verðirnir komu hins vegar í veg fyr- ir, að margt af aðstoðarfólki Hillary fengi að fara inn í húsið með henni og varð það að standa úti í slagveðr- inu í hálftíma áður en þeir létu sig. Auk' þess höfðu öryggisverðir fyllt fremstu sætaraðirnar í húsinu, aug- ljóslega til að takmarka þann fjölda kvenna, sem gæti hlýtt á ávarp bandarísku forsetafrúarinnar. Þeir gáfu þó sætin eftir þegar að þeim var lagt. Hörð gagnrýni Madeleine Albright, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, herti á gagn- rýni Bandaríkjanna á Kína í gær þegar hún sagði á SÞ-ráðstefnunni, að enga kónu ætti að neyða til fóstur- eyðingar eða ófijósemisaðgerðar. Þá réðst hún einnig gegn öðrum mann- réttindabrotum í Kína. „Það er með ólíkindum, að ástæða skuli vera til að kvarta undan tak- mörkunum á málfrelsi og það á þess- ari ráðstefnu, sem haldin er á vegum Sameinuðu þjóðanna og í þeim til- gangi að ræða opinskátt um réttindi kvenna," sagði Albright. Bætti hún því við, að Bandaríkjastjóm myndi áfram leita eftir viðræðum við stjóm- völd, sem neita þegnum sínum um þau réttindi, sem kveðið er á um í mannréttindayfírlýsingu SÞ. Á fréttamannafundi að ræðunni lokinni vildi Albrigt ekkert um það segja hvaða áhrif ræða hennar og Hillary myndu hafa á samskipti Kína og Bandaríkjanna. Ola Wikman Sænsk sjónvarpsstöð setur fram nýja kenningu um morðið á Olof Palme Myrtur í mis- gripum fyrir eiturlyfjasala? FJÖLMIÐLAR hundeltu Christer Pettersson þegar hann hugðist halda upp á að hafa verið leystur úr haldi árið 1989. Pettersson sat í fangelsi um tíma, grunaður um morðið, en var svo látinn laus, því það sannaðist ekki á hann. Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. OLOF Palme, forsætisráðherra Svía, var skotinn í misgripum fyr- ir eiturlyfjasala, samkvæmt nýj- ustu kenningunni um morðið. Morðinginn ætti samkvæmt þessu að vera Christer Pettersson, sem áður hefur verið grunaður um morðið. Kenningin var sett fram í um þriggja klukkustunda sjón- varpsdagskrá á TV4, þar sem blandað var saman leiknum atrið- um og heimildum. Kenningin hef- ur ekki hlotið mikinn hljómgrunn í Svíþjóð, enda eru þarlendir ekki óvanir æsilegum kenningum um morðmálið, sem iiggur eins og mara á Svíum. Fyrri þátturinn fjallaði ein- göngu um Palme, jafnaðarmanna- leiðtogann og síðar forsætisráð- herrann, sem með sterkum per- sónuleika og ákveðnum skoðunum kom sér og Svíþjóð í fréttir víða um heim. í seinni þættinum var athyglinni beint að Christer Pett- ersson. Meðal annars var rætt við fyrrverandi fangelsisfélaga hans, sem sagði frá því að Pettersson hefði átt viðskipti við eiturlyíja- sala nokkurn, en síðan reynt að svindla á honum. í lok þáttarins var svo sett fram sú kenning að Pettersson hefði ák^eðið að stytta eiturlyfjasalan- um aldur. Þá hefði honum hins vegar ekki tekist betur upp en svo að hann hefði skotið Palme í mis- gripum, en þeir tveir, eiturlyfja- salinn og Palme hefðu verið áþekkir útlits. Pettersson hefur áður verið grunaður um morðið á Palme. Kærasta Pettersson bjó rétt hjá morðstaðnum og fleiri vísbending- ar bentu á Pettersson. Lisbet Palme, ekkja Palme, sem var með manni sínum þegar hann var skot- inn, sagði á sínum tíma að hún þekkti Pettersson aftur sem manninn, sem hefði skotið mann sinn. Pettersson sat í fangelsi um tíma, en var svo látinn laus, því morðið sannaðist ekki á hann. Það vantaði ekki áhrifamikla uppbyggingu í sjónvarpsþáttun- um, þar sem áhrifamikil tónlist var óspart notuð. Strax eftir lok seinni þáttarins fór fréttamaður TV4 til Petterssons með mynda- tökumanni. Þeir bönkuðu upp á en Pettersson lét þá fá það óþveg- ið og hótaði þeim öllu illu. Æfintýralegar skýringar Svíar kippa sér ekki lengur upp við ævintýralegar skýringar á óupplýstu morði forsætisráðherr- ans fyrrverandi. Þijár helstu skýr- ingarnar hafa verið að einn maður hafi framið morðið og þá hugsan- lega Pettersson, að það hafi verið hefndarráð Kúrda, eða að sænska öryggislögreglan hafi staðið að baki morðinu. Hópur áhugamanna, sem kallar sig Leynilögreglurnar, hefur reglulega unnið að rannsókn málsins og komið fram með ýmsar kenningar. Ein þeirra er að Palme hafi lengi skipulagt sjálfsmorð og fengið leigumorðingja til að leysa verkið af hendi. Samsæriskenningin aftur á kreik í sumar kom út bók eftir tvo finnska blaðamenn, bræður, þar sem þeir taka upp eina af fyrri kenningum um morðið, lögreglu- samsærið. Þeir fara í gegnum rannsóknina lið fyrir lið og sýna meðal annars fram á hve lögreglan hafí verið óeðlilega sein að bregð- ast við. Eftir lestur þessarar bókar skrifaði Kjell-Olof Feldt blaða- grein. Feldt er fyrrum fjármálaráð- herra, gamall vinur og samstarfs- maður Palme. Hann segir bókina tvímælalaust hafa vakið hjá sér óþægilegan grun um að eitthvað hafí verið bogið við rannsókn máls- ins frá byijun og segist vona að Palmeneftidin, sem nú vinnur að rannsókn málsins, sú þriðja í röð- inni, hugi vel að þeim atriðum, sem velt er upp í bókinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.