Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ FIMMTUDAGUR 7. SEPrEMBER 1995 13 MINNISVARÐINN er staðsettur á lóð Dvalar- heiniilisins Áss. Hög'gmynd af Gísla Signrbjörns syni afhjúpuð Hveragerði - Höggmynd af Gísla Sigurbjörnssyni, fyrrverandi for- stjóra Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar og Dvalarheimilisins Áss/Ásbyrgis, var afhjúpuð í Hvera- gerði síðastliðinn sunnudag. Eftirlifandi eiginkona Gísla, frú Helga Björnsdóttir, afhjúpaði minn- isvarðann, en fjórar dætur þeirra hjóna voru einnig viðstaddar athöfn- ina auk annarra gesta. I ávarpi Einars Mathiesen bæjar- stjóra kom fram að bæjarstjórn Hveragerðis hafi í október 1993 samþykkt tillögu Hans Gústafsson- ar, þáverandi bæjarfulltrúa, um að gerð skyldi brjóstmynd af Gísla Sigurbjörnssyni forstjóra, honum til heiðurs vegna brennandi áhuga hans og margháttaðs stuðnings við menn- ingar- og framfaramál Hvergerð- inga. Búnaðarbanki íslands ákvað einnig að heiðra Gísla með því að taka þátt í að reisa minnisvarðann. Til verksins var fenginn Helgi Gísla- son, myndhöggvari úr Reykjavík. Minnisvarðanum hefur verið fundinn staður á lóð Dvalarheimilisins Áss, gegnt Hveragerðiskirkju. Gísli Sigurbjörnsson var fæddur í Reykjavík árið 1907. Hann var son- ur hjónanna Guðrúnar Lárusdóttur alþingismanns og séra Sigurbjörns Á. Gíslasonar. Gísli tók við starfi framkvæmdastjóra Elli- og hjúkr- unarheimilisins Grundar árið 1934, en faðir Gísla var einn af aðalhvata- mönnunum að stofnun þess. Árið 1952 var Gísli fenginn til að annast rekstur nýrrar stofnunar fyrir aldr- aða í Árnessýslu. Upp úr því var Dvalarheimilið Ás stofnað í Hvera- gerði. Gísli stýrði því síðan næstu 32 árin, eða allt til dauðadags, en hann lést í janúar árið 1994. Það var í gegnum rekstur Áss sem Hver- gerðingar kynntust Gísla og hans störfum. Uppbygging á þjónustu fyrir aldraða hófst með komu hans til Hveragerðis og hefur staðið óslit- ið síðan. Gísli var framsækinn og metnaðarfullur fyrir hönd sinnar stofnunar og bæjarfélagsins. Setti hann á stofn Rannsóknastöðina Neðri-Ás í Hveragerði og bauð er- lendum sem innlendum fræðimönn- um aðstöðu til að stunda rannsóknir og fræðistörf til lengri og skemmri tíma. Félagsstarfsemi og framfaramál Hveragerðisbæjar voru Gísla hug- leikin. Hann studdi dyggilega bygg- ingu Hveragerðiskirkju á sínum tíma, sem og ýmiss konar félags- og menningarstarfssemi í bæjarfé- laginu. Með framlögum sínum vildi Gísli ýta undir og treysta grunn að uppbyggingu félags- og menningar- mála í Hveragerði. Með minnisvarðanum vilja Hver- gerðingar heiðra minningu mikils athafnamanns og um leið þakka fyrir þann hlýhug sem Gísli Sigur- björnsson sýndi bæjarfélaginu. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir VERÐLAUNAHAFARNIR með viðurkenningarskjöl sín ásamt formanni umhverfisnefndar, Ester Þorbergsdóttur. Umhverfisverðlaun veitt á Þórshöfn Þórshöfn - í fyrsta sinn í sögu Þórshafnar veitti umhverfis- og fegrunarnefnd á vegum Þórs- hafnarhrepps verðlaun fyrir fegurstu garðana og einnig umhverfi fyrirtækja. Nefndin er skipuð áhugasömu fólki sem vill leggja áherslu á fegrun umhverfisins og aukna gróður- rækt í þorpinu. Þrír garðar í einkaeign fengu viðurkenningu og einnig fyrir- tæki. Garðurinn við Fjarðarveg 27 fékk fyrstu viðurkenningu, en þar býr Guðný María Jó- hannsdóttir. Flestar hennar tómstundir hafa farið í að rækta og hlúa að garðinum sem ber þess vel merki og stóra öspin í garði hennar afsannar það sem áður hefur verið haldið fram, en það er að hér á Þórshöfn þrífist ekkert nema alaskavíðir og arfi. Aðra og þriðju viðurkenningu fengu garðarnir á Sunnuvegi 10 og Pálmholti 4, en eigendur þeirra eru annars vegar hjónin Erla og Konráð Jóhannsson og hins vegar mæðgurnar Guð- björg Guðmundsdóttir og Elsa Jóhannsdóttir. Umhverfi sveita- býlanna var einnig tekið út og þar fékk bærinn Syðri-Brekkur viðurkenningu, en hann er í eigu lijónanna Ulfars Þórðarsonar og Kristínar Kristjánsdóttur. Fyrirtækin hafa einnig gert mikið átak í sínum umhverfis- málum og er Sparisjóður Þórs- hafnar þar fremstur í flokki. Hraðfrystistöð Þórshafnar fékk einnig viðurkenningu og varð framkvæmdastjóranum, Jó- hanni A. Jónssyni, það að orði, að fyrir nokkrum árum hefði það þótt saga til næsta bæjar að HÞ fengi verðlaun fyrir snyrtilegt umhverfi. Síðustu ár hefur áhugi fólks hér í plássinu aukist á því að rækta og fegra umhverfi sitt og ef áfram verður samstaða um þá stefnu eru íbú- arnir hér í góðum málum. Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir FRU Helga Björnsdóttir, ekkja Gísla Sigurbjörnssonar, ásamt Einari Mathiesen bæjarstjóra og dætrum þeirra Gísla, þeim Nínu, Guðrúnu, Helgu og Sigrúnu. GESTIR á Forskoti Ormsteitis tóku þátt í jógaæfingum undir stjórn Kristbjargar Kristmundsdóttur jógakennara. Ormsteiti Sumn blótað og haustið móttekið Egilsstöðum - Ormsteiti verður haldið á Egilsstöðum og Héraði um næstu helgi. Þar verður sumri blótað og haustið móttekið í dag- skrá sem stendur í fimm daga. Samkomutjald hefur verið sett upp r hjarta Egilsstaðabæjar og fer dagskráin þar að miklu leyti fram. Utan þess að skógardag- skrá verður haldin í Hallormsstað. i Heilt hreindýr grillað á teini Forskot Ormsteitis var haldið sl. fimmtudág og fór þá fram kynning á öllum dagskráratriðum Ormsteitis. Einn dagur dagskrár- innar verður helgaður hreindýrinu sérstaklega og verður þá boðið upp á sýningu og sölu á hrein- dýravörum í tjaldinu stóra. Skarp- héðinn Þórisson líffræðingur verður með erindi um dýrin. Góð- ir gestir segja veiðisögur og aðal- atriðið verður þegar heilt hreindýr verður grillað á teini og gestum boðið smakk. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir JON Atli Gunnlaugsson og Þráinn Skarphéðinsson sýndu Uxadans við mikla kátínu gesta á Forskoti Ormsteitis. Flugeldasýning í lok sumars Á markaðsdegi munu bændur mæta með uppskeru sína og Borgfirðingar með sjávarafurðir. Handverksfólk verður með sölu á gripum sínum í tjaldinu og að kvöldi þess dags verður skotið upp flugeldum og sumarið kvatt. R í.kT ef tii lii r d a n

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.