Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR r FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995 15 i rr \ Neytendaþjónusta Sjóvár-Almennra Hlutlaus endurskoðun og aðstoð í ágreiningsmálum HJÁ Sjóvá-Almennum var nýlega sett á laggirnar sérstök neytenda- þjónusta, sem á að greiða úr ágrein- ingsmálum sem upp kunna að koma um tjónabætur eða önnur samskipti félagsins og viðskiptavina þess. Neytendaþjónustunni er ætiað að vinna sem hlutlaus aðili hvenær sem einhver telur sig órétti beittan og jafnframt tryggja viðskiptavinum félagsins að mál þeirra fái eðlilega og skjóta meðferð. Olafur B. Thors, framkvæmda- stjóri Sjóvár-Almennra, segir að framtakið sé leið til aukinnar neyt- endavemdar og eigi að flýta fyrir úrlausnum og eyða misskilningi sem upp kann að koma. Öllum kvörtun- um og ábendingum sé sinnt og í hveiju tilfelli sé kannað hvort ákvarðanir eða viðbrögð félagsins standist faglega skoðun eða al- mennar kröfur um gæði og þjón- ustu. 15-20% ágreiningsmála breytast Þótt hlutverk neytendaþjón- ustunnar sé að annast öll ágreinings- mál, sem upp kunna að koma, er mat á sakarskiptingu vegna öku- tækjatjóna ekki innan verksviðs hennar. Slík mál eru eins og áður i höndum tjónanefnda tryggingafé- laga, en er skotið til úrskurðamefnd- ar í vátryggingarmálum, fáist ekki viðunandi lausn þar. Aðspurður segir Ólafur að í þeim tilvikum sem neytendaþjónustan telji viðbrögð og ákvarðanir félagsins óaðfmnanlegar, eða viðskiptavinir uni ekki breytingartillögum, leiðbeini neytendaþjónustan um hvaða leiðir em færar fýrir viðkomandi að leita réttar síns og aðstoði jafnframt við slík málskot sé þess óskað. Ólafur B. Thors segir að þjónusta af þessu tagi eigi sér hliðstæður erlendis og hafí gefið góða raun. Ekki sé óaigengt að niðurstöður í allt að 15-20% ágreiningsmála breytist eftir skoðun eins og neyt- endaþjónustu Sjóvá-Almennra sé ætlað að sinna, enda geti þeir sem snúi sér til neytendaþjónustunnar treyst því að hlutleysis sé gætt. Þar sé kappkostað að leitað álits óvil- hallra sérfræðinga ef á þarf að halda. Forstöðumaður neytendaþjón- ustunnar er Brano Hjaltested, en neytendaþjónustan heyrir undir framkvæmdastjóra félagsins. Föt, föndur og myndbönd í vörulistum HBD pöntunarfélag tók nýverið við umboði JCPenney vörulistanna, sem er einn stærsti almenni vöru- listinn í Bandaríkjunum. Ennfremur hefur HBD pönt- unarfélagið, sem stofnað var í apríl sl., umboð fyrir EHos, eins stærsta póstlista Norðurlanda, Domesticat- ion frá Bandaríkjunum, sem er listi með rúmteppi, gardínur og borðdúka, Victoria’s Secret, sem býður upp á kvenfatnað og kven- undirfatnað, Knorr Hobby föndur- lista frá Þýskalandi og Lightning Video listann, en úr honum geta viðskiptavinir pantað myndbönd og geisladiska frá Bretlandi. Hólmgeir Baldursson, eigandi HBD, segir að pöntunum hafi fjölgað jafnt og þétt frá því félag- ið tók til starfa. Félagið verði til húsa að Skúlagötu 63 fyrst um sinn, en verði flutt í Smára- hvammsland í Kópavogi eftir ára- mót og þar verði jafnframt opnuð verslun. Nýir vörulistar eru komnir og kosta frá 300-700 kr., en sé pant- að úr listunum fást þeir endur- greiddir. EIMSKIP Skráning á Verðbréfaþing íslands Skuldabréf Hf. Eimskipafélags íslands 1. flokkur A 1995 hafa verið skráð á Verðbréfaþing íslands. Útgáfudagur og nafnverð skuldabréfa ' Útgáfudagur bréfanna var 30. júní 1995. Nafnverð skuldabréfanna var samtals 300 milljónir króna og voru þau seld í lokuðu útboði á tímabilinu 19. júní 1995 til 30. júní 1995. Annað Skráningarlýsingu, samþykktir og reikninga Hf. Eimskipafélags íslands og önnur gögn um félagið má nálgast hjá Fjárfestingarfélaginu Skandia hf., Laugavegi 170, 105 Reykjavík. \ # . Auglýsing þessi er einungis birt I upplýsingaskyni. Skandia Fjárfestingarfélagiö Skandia hf. löggilt verðbréfafyrirtæki, Laugavegi 170, simi 561 9700. Haldið í Bolholti 4, 4. hæð. 14. sept.-5. okt. þriðjúd./fimmtud. kl. 20.00-22.15 (7 skipti). Námskeið fyrir þá sem eiga við kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga i gegnum mikla breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg. Ath.! Opnir tímar hefjast 12. sept. og verða á þriðjud. og fimmtud. kl. 18.15-19.30. Upplýsingar og skráning: Voga Studio Ásmundur Gunnlaugsson, jógakennari, s. 565-1441 og 552-1033 milli kl. 10.00-12.00 og 20.00-22.00 daglega. Dagskrá RúRek 1995 Fimmtudagur 7. september Kl. 21.30 Leikhúskjallarinn: Philip Catherine og tríó Björns Thoroddsens. Philip Catherine og Björn Thoroddsen gítarar, Gunnar Hrafnsson bassa og Gunnlaugur Briem trommur. Aðgöngumiðaverð kr. 1.200. Kl. 22.00 Fógetinn: Kvartett Reynis Sigurðssonar. Rúnar Georgsson tenórsaxófón, Reynir Sigurðsson víbrafón, Birgir Bragason bassa og Marteen van der Valk trommur. Hornið: Kjallarahljómsveit Péturs Grétarssonar. Óskar Guðjónsson tenórsaxófón, Eyjólfur B. Alfreðsson fiðlu og víólu, Hilmar Jensson gítar og Pétur Grétarsson trommur ásamt hljómbandi og myndbandi. Aðgöngumiðaverð kr. 500. Jazzbarinn: Kvartett Sigurðar Flosasonar. Sigurður Flosason altósaxófón, Eyþór Gunnarsson píanó, Lennart Ginman bassa og Einar Valur Scheving tfommur. Kringlukráin: Kombó Ellenar Eðvarð Lárusson gítar, Þórður Högnason bassa og Birgir Baldursson trommur. Söngvari: Ellen Kristjánsdóttir. assleikskólinn fvrir 3ia-5 ára: rkviss undirbúningur fyrir allan d Byrjendur ogframhald. Við vitum hvað er bestfyrir bömin. Kennslustaðir: Engjateigur 1, Frostaskjól, Fjörgyn, Gerðuberg og Stjömuheimilið Garðabæ. Barnadansar fyrir 4-6 ára: Innritun í síma 568 9797 - 568 7580 Danssmiðja Hermanns Ragnars ’rf Enyjateig 1, 105 Reykjavík^) 568-9797 og 5 6 8 - 7 5 8 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.