Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 10
í f c.GGJ M3ím3Tfí3S ViIUOAu'nWR álQAJgHIJOHOlVI 10 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995______________________________________________________________________________ MORGUNBLAÐIi) FRÉTTIR Háskólakennarar samþykkja kjarasamning Hækkunin 6,19-16% FÉLAGSMENN í Félagi háskóla- kennara hafa samþykkt nýjan kja- rasamning félagsins sem undirrit- aður var í síðustu viku með 99 at- kvæðum gegn 44. Guðvarður Már Gunnlaugsson, formaður félagsins telur að samn- ingurinn jafngildi 11% launahækkun að meðaltali fyrir félagsmenn, en segir að hækkanir séu mismunandi eftir starfsheitum eða allt frá 6,19% fyrir þá sem minnst fá og upp í 16% fyrir þá sem fá mest. Það væru lekt- orar og hluti af dósentum sem fengju mesta launahækkun, en þeir sem minnst fengju væri hátt sett fólk í stjómsýslu háskólans. Yfirvinnugreiðslur til hluta prófessora Guðvarður sagði að samningur- inn gilti til ársloka 1996. í honum væri kveðið á um tvær almennar launahækkanir, 3,1% frá 1. ágúst í ár og 3% til viðbótar 1. janúar næstkomandi. Að auki kæmi til launaflokka- hækkun til stórs hóps félags- manna. Þá er ákvæði í samningn- um um yfirvinnugreiðslur til pró- fessora sem hafa litlu yfirvinnu til að jafna aðstöðu milli prófessora og þarf að sækja sérstaklega um þær greiðslur. Guðvarður sagðist óánægður með að ekki hefði tekist að koma þess greiðslum inn í dag- vinnulaunin, en það hefði verið mat samninganefndarinnar að lengra yrði ekki komist. Hann hefði verið nógu sáttur til að skrifa undir samninginn og mæla með sam- þykkt hans við félagsmenn, en væri þrátt fyrir það ekkert himin- lifandi með hann. FAST0GNASALA VITASTÍG 13 552 6020 Í552 6065 Laugarnesvegur 3ja-4ra herb. glæsileg íb. á 3. hæð. Ein íb. á hæð, 91 fm, sem skiptist í stofu, borðstofu, rúmg. hol, hjónaherb., barnaherb., eldhús og baðherb. Fallegt parket á gólfum, nýjar innr. íbúö í sérflokki. Suöursvalir. Gott lán áhv. FÉLAG ilFASTEIGNASALA Gunnar Gunnarsson, lögg. fasteignasali, hs. 5577410. Ljósmyndir á Sauðárkróki UÓSMYNDASÝNINGIN Til sjós og lands hefur verið sett upp í sýningarsal Safnahúss- ins á Sauðárkróki. Á sýning- unni eru 30 ljósmyndir frétta- ritara Morgunblaðsins. Okkar menn, félag fréttarit- ara Morgunblaðsins, efndi fyrr á árinu til samkeppni meðal fréttaritara um bestu Ijós- myndirnar frá síðustu tveimur árum. Dómnefnd valdi um 30 myndir til verðlauna. Verð- launamyndirnar voru settar upp á sýningu sem undanfarna mánuði hefur farið um landið. í Safnahúsinu eru helstu héraðssöfn Skagfirðinga. Ljósmyndasýningin verður þar fram yfir helgi og er opin til skoðunar á opnunartíma Safnahússins. Lagtaf mörkum ÞESSIR duglegu krakkar létu ekki sitt eftir liggja í söfnun Rauða krossins, Konur í neyð, um helgina og héldu hlutaveltu á götuhomi. Veðrið lék við þessa knáu athafnamenn og er ekki við öðm að búast en að vegfarendur hafi tekið þeim vel, enda málstað- urinn góður, og keypt sitthvað smálegt sem krakkarair höfðu safnað í kringum sig. Um 25 millj- ónir króna söfnuðust í söfnun RKÍ, sem renna til hijáðra flótta- manna viða um heim, þar á með- al í ríkjum fyrrum Júgóslavíu. Morgunblaðið/Ásdís Viltn hafa það svart/hvftt eða ílit? OPIN KERFl HF BGÐEIND Við erum í Mörkinni 6 - Sfmi 588 2061 - Fax 588 2062 HP Desk Jet bleksprautuprentarar HP 320 HP 540 HP 6601] kr. 26.900 ki*. 28.900 kr. 49.900 HP 850C HP 1200C HP I600C kr. 79.900 ki*. 99.900 ki*. 149.900 HP LaserJet geislaprentarar HP 4L/ML kr. 55.900 HP 5P ki*. 129.900 HP 4Plus kr. 179.900 VIÐURKENNDUR SÖLUAOIU MQNUITA oo ábyrqo Yfirlýsing- MORGUNBLAÐINU hefir borizt eftirfarandi yfirlýsing frá Árna Samúelssyni: Undirrituðum finnst stórlega hafa verið að sér vegið í grein um Stöð 2 sem birtist í Morgunblaðinu sl. sunnudag. Þar er haft eftir ónafngreindum hluthafa úr minnihluta Stöðvar 2 að undirritaður hafi átt þátt í að reyna að koma í veg fyrir og eyði- leggja þau viðskipti sem voru í undir- búningi á milli Stöðvar 2 og erlenda bankans. Nefndur minnihlutamaður segir að undirritaður hafi notfært sér út- varpsstöðina FM, sem er í eigu Áma Samúelssonar í Sambíóunum, og lát- ið leka út frétt um hina nýju sjón- varpsstöð. Þetta hafi verið gert til þess eins að skemma fyrir samning- um. Undirritaður vill láta nefndan minnihlutamann vita að frétt um sama efni birtist á RÚV þriðjudaginn 22. ágúst eða þremur dögum áður Aths. blaðamanns Vegna athugasemdar Áma Samú- elssonar er nauðsynlegt að birta orð- rétt þann kafla greinar minnar um viðskipti Chase Manhattan-bankans og Stöðvar 2 sem hann finnur að: „Þennan sama dag [föstudaginn 25. ágúst] komu fréttir í útvarps- og sjónvarpsstöðvunum um áform nýju sjónvarpsstöðvarinnar, þar 'sem fram kom að Árvakur hf., útgáfufélag Morgunblaðsins, hefði ákveðið að gerast hluthafi. Einn hluthafi úr minnihlutanum telur að þessari frétt hafi verið lekið í fjölmiðla í þeim til- gangi að reyna að eyðileggja þau viðskipti sem verið var að ganga frá milli hluthafa Stöðvar 2 og við er- lenda bankann. Fréttin hafi haft slæm áhrif á viðkvæmum tíma. Bend- ir hann á að þessi frétt hafi fyrst komið á útvarpsstöðinni FM, sem er í eigu Áma Samúelssonar í Sambíó- unum, aðal hvatamanns að stofnun nýju sjónvarpsstöðvarinnar. Þar var og var þar fjallað um íslenska sjón- varpið hf. Lítið er hægt að segja við því að FM hafi fjallað um þetta þremur dögum síðar ásamt öðrum íslenskum fjölmiðlum. Einnig er rétt að taka það fram að forsvarsmenn Stöðvar 2 hafa vit- að um alllangt skeið að samkeppni væri á næsta leiti og því hafa þess- ar fréttir varla komið þeim í opna skjöldu. Einnig er rétt að umræddur minnihlutamaður geri sér ljóst að við hjá íslenska sjónvarpinu hf. gerð- um allt til að halda þessu leyndu fyrir fjölmiðlum. Það tókst allvel, eða allt þar til RÚV birti umrædda frétt. Þetta var einmitt gert til að hann fengi tékkann sinn, sem hann hafði beðið svo lengi eftir. Að lokum vill undirritaður lýsa yfir furðu sinni á þeim vinnubrögð- um bláðamanns Morgunblaðsins að sannreyna ekki svona sögur fyrir birtingu. Árni Samúelsson. fjallað um íslenska sjónvarpið hf. og þátttöku Árvakurs hf. í dægurmála- þætti á föstudagsmorguninn og aðrar stöðvar tóku málið upp í framhaldinu og fengu þetta staðfest." Blaðamanni er kunnugt um að áður var búið að segja frá því að ný sjónvarpsstöð væri í undirbúningi, um það birtist til dæmis frétt hér í blaðinu fyrir nokkrum vikum. Málið snýst ekki um það heldur þá skoðun fyrrverandi hluthafa í Stöð 2 að frétt um þátttöku Árvakurs hf., útgáfufé- lags Morgunblaðsins, hafi verið kom- ið á framfæri við fjölmiðla á við- kvæmum tíma fyrir seljendur hluta- bréfanna. Upplýsingar um þátt Morgunblaðsins komu ekki fram í frétt Ríkissjónvarpsins 22. ágúst en frá þeim var greint í dægurmála- þætti á útvarpsstöðinn FM þennan tiltekna morgunn, eins og ég fékk staðfest hjá viðkomandi útvarps- manni þegar ég vann að greininni. Helgi Bjaraason. I ♦ I í I t I > i I I I I I I I I í I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.