Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR TILBOÐIN GARÐAKAUP QILDIR TIL 10. SEPTEMBER. Svínahnakki m. beini. 698 kr. Mamma besta pizzur 298 kr. Libby's ananas sneiðar 'A dós 37 kr. Gevalía cappuccino Tampico karíba ávaxtasafi 11tr. Tampico sítrus ávaxtasafi 1 Itr. 179 kr. 98 kr. 98 kr. Kraft salat dressing 3 í pk. 49 kr. 10-11 BÚÐIRNAR QILDIR FRÁ 7.-13. SEPTEMBER Bakarabrauð gróf 98 kr. Goða skinka 1 kg Kellog’s Kornflakes 500 g 689 kr. 169 kr. Skólajógúrt, allartegundir Nóakropp150g 29 kr. 125kr Axa musli 129kr. Rjómaskyr stór dós 119 kr. Kit-Kat3 í pk. 99 kr. Hi-C6saman 87 kr. Nesquick 1 kg Wesson matarolía 1,41 387 kr. 199 kr. Bónus saltkjöt kg Sórvara í Holtagörðum 359 kr. Rúllukragabolur kr. 587 Skólabolir kr. 497 Handhrærivél ' ' kr. 1.690 Brauðrist kr. 1.790 Alba hljómtækjasamst. m/útvarpi, segulb., 2 hátölurum og geislaspilara kr. 13.900 Álways Ultradömubindi, 2 pk. 148 kr. 548 kr. HAGKAUP QILDIR TIL 16. SEPTEMBER. Prins póló 24 stk. x 40 g 699 kr. Torky þurrkur 2 rl.„ boxfylgir NÓATÚN QILDIR 7.-10. SEPTEMBER Lambaskrokkar hálfir kg. 489 kr. Haust hafrakex 250 g Myllu fjölskyldubrauð 1 kg Jakobs píta taco Krydduð pítubuff 4 stk. 99 kr. 99 kr. 89 kr. 279 kr Unghænur kg. Saltað hrossakjog 3 kg. Reykt folaldakjöt kg. 399 kr. 199 kr. 399 kr. 349 kr’ Humallfiskibollur390g 99 kr. íslenskt kínakál 1 kg 139 kr. McCainfranskar kartöflur 1 kg 189 kr. 11-11 BÚÐIRNAR QILDIR FRÁ 7.-13. SEPTEMBER. Lambalifur 1 kg 98 kr. FJARÐARKAUP Bóndabrauð 98 kr. GILDIR 7. OG 8. SEPTEMBER Brauðskinka 1 kg 685 kr. Svínarifjasteik 423 kr. Lifrarkæfa 1 kg 299 kr. Laushakkað nautahakk 598 kr. Kindakæfa 1 kg 499 kr. Kínakál kg 98 kr. Hangiálegg 1 kg 1.498 kr. Samlokubrauð 98 kr. Epli Jonagold 1 kg 75 kr. Bacon-flögur 49 kr. Appelsínur 1 kg 119 kr. Súkkulaði hafrakex 200 g 39 kr. KASKO KEFLAVÍK Bacon steik kg 698 kr. VIKUTILBOÐ BÓNUS Burton’s Bourbon kex 39 kr. CoOptekex 29 kr. Samsölubeyglur 97 kr. Poppmaís 500 g 49 kr. Bonduelle grænar baunir'/2 39 kr. Núðlur 19kr. Þykkmjólk 39 kr. 7% afsláttur af unnum kjötvörum i 7% afsíáttur af brauði og kökum. í kæli MIÐVANGUR HAFNARFIRÐI QILDIR TIL OQ MEÐ 10. SEPTEMBER Saltað hrossakjöt 1 kg 133kr. Reykt folaldakjöt 1 kg 360 kr. Ölpylsa, áleggsbréfið 99 kr. Veiðipylsa, áleggsbréfið 99 kr. Emmess sumarkassi 397 kr. Tommi og Jenni 'A I 29 kr. Ungaegg 1 kg 249 kr. KattasandurlOkg 299 kr. SKAGAVER HF. AKRANESI HELQARTILBOÐ R.P. Nat shampoo 139 kr. Tempo þurrkur 89 kr. Nóakropp 139 kr. Vínber blá 165 kr. Melónurgular 90 kr. London lamb 799 kr. Rúlluterta brún Sparnaðarskinka 259 kr. 898 kr. ÞÍN VERSLUN Sunnukjör, Plúsmarkaðir Grafarvogi, Straumnes, 10/10 Hraunbæ og Suðurveri, Breiðholtskjör, Garðakaup, Melabúðin, Hornið Seifossi, Vöruval ísafirði og Bolungarvík og Hnífsdal, Þín verslun Seljabraut, Grímsbæ og Norðurbrún, Verslunarfélagið Siglufirði, Kassinn Ólafsvík og Kaupgarður í Mjódd. GILDIR 7.-13. SEPTEMBER Þurrkryddað lambalæri 1 kg Dilkalifur pökkuð 1 kg 749 kr. 149 kr. Hrossabjúgu, 2 stk. 99 kr. Dole rúsínuröOOg Tilda jasmín hrísgrjón 500 g 119 kr. 99 kr. Maxwell House kaffi 500 g 388 kr. Jonagoldepli 1 kg 59 kr. íslenskargulrætur 299 kr. KEA NETTÓ GILDIR 6.-11. SEPTEMBER Hangiframpartur 1 kg 698 kr. Maískorn 432 g 44 kr. Lassi hrísgrjón 227 g 95 kr. McVities súkkulaðikex 200 g 69 kr. Fig Rolls kex 200 g 85 kr. Perur 1 kg 68 kr. Mandarínur 1 kg 98 kr. Flögur 100g 69 kr. Verslanir KÁ GILDIR FRÁ 7.-13. SEPTEMBER Londonlamb 1 kg 799 krTj Kindabjúgu 1 kg 394 kr. Kartöflusalat 1 kg 419 kr. Bakarabrauð 620 g 99 kr. Appelsínur 1 kg 98 kr. Bökunarkartöflur 1 kg 109 kr. Honey Nut Cheerios 565 g 289 kr. Heinz bakaðar baunir 420 g 39 kr. Setta, Hrlngbraut 49 TILBODIN QILDA ÚT SEPT. LjúffengarSettusaml. og'/j I kókdós 149kr. Glóðvolg vaffla m/rjóma+rjúkandi kakó99 kr. Newmans popp 3 pokar í pk. 97 kr. Nýjar myndbandsspólur 199 kr. Tæp fimm ár eru síðan sunnudagsopnun verslana var heimiluð á höfuðborgarsvæðinu Stórmarkaðir á sunnudögiim Morgunblaðið/Þorkell NY verslun, Kaupgarður, var í gær opnuð í Mjóddinni í Reykjavík þar sem Kjöt og fiskur var áður til húsa. LANGUR opnunartími mat- vöruverslana hefur tíðkast í Bandaríkjunum í flölmörg ár og þar eru jafnvel til verslanir sem hafðar eru opnar ailan sólar- hringinn allan ársins hring. Aðrar vestrænar þjóðir virðast hægt og sígandi fylgja í fótspor þeirra þó enn sé vísast langt í að fólk geti keypt í matinn um miðjar nætur hérlendis. Það er ekki langt síðan óheimilt var að hafa verslanir í Reykjavík opnar á sunnudögum. Reykvíkingar gerðu sér þá ferð í næstu bæjarfélög og lögðu t.d. margir leið sína í Vega- mót á Seltjarnarnesi þar sem þeir gátu fengið brýnar nauðsynjar sem gleymdist að kaupa fyrir helgina. Fyrir tæpum fimm árum tók gildi reglugerð sem heimilaði sunnudags- opnun verslana. Kaupmenn voru fljótir að tileinka sér nýja hætti og á undanförnum árum hefur það færst mjög í vöxt að matvöruversl- anir á höfuðborgarsvæðinu séu hafð- ar opnar alla daga vikunnar, jafnt sunnudaga sem aðra daga. VR mótfallið Verslunarmannafélag Reykjavík- ur tekur lengdum opnunartíma hins vegar ekki fagnandi. Guðmundur B. Ólafsson, lögfræðingur þar á bæ, segir að mörg rök hnígi að því að verslunareigendur ættu ekki að hafa lokað á sunnudögum. Það sé t.d. hætta á að ákvæði í lögum um einn hvíldardag í viku verði brotið og að ástæða sé til að óttast vinnuálag á starfsfólk verslana m.a. vegna óreglulegs vinnutíma og að það bitni t.d. á fjölskyldulifi. Þá hljóti vöru- verð að hækka þar sem kostnaður kaupmannanna hljóti að aukast þeg- ar verslanirnar eru opnar á hefð- bundnum frídögum. Góð reynsla Óskar Magnússon, forstjóri Hag- kaups, segir að það séu hrein við- skiptaieg sjónarmið sem ráði því að verslanir fyrirtækisins séu hafðar opnar á sunnudögum. „Hagkaup er enginn brautryðjandi í þessum efn- um en við vildum ekki dragast aftur úr þegar aðrar verslanir fóru að hafa opið.“ Hann segir að þeir hafi góða reynslu af sunnudagsopnuninni og að þá fái fjölskyldur kærkomið tæki- Helgi hvíldardagsins virðist hverfa jafnt og þétt og nú er svo komið að fólk, að minnsta kosti á höfuðborgarsvæðinu, getur farið í matvöru- verslanir hvaða dag vik- unnar sem því hentar best. María Hrönn Gunnarsdóttir skoðaði þróunina. færi til að fara saman og kaupa inn. Verslunarferðimar verði að skemmtun frekar en kvöð og að allt sé miklu afslappaðra. Óskar segir að til að bregðast við því að verslanirnar séu hafðar opnar sífellt lengur hafi verið hannað kerfi til að sjá til þess að fólk vinni ekki lengur en eðlilegt geti talist. Um tólf hundruð manns starfi hjá fyrir- tækinu en að einungis um sjö hund- ruð séu við störf í einu. Ef málum væri ekki þannig háttað yrði launa- kosnaður óyfirstíganlegur vegna yf- irvinnu starfsfólksins þannig að hagsmunir fyrirtækis og starfsfólk fari saman. Þá hafi fyrirtækið ný- lega auglýst eftir starfsfólki vegna sunnudagsopnunar Hagkaups í Kringlunni og um 150 manns sótt um. Óskar segir að margir starfs- kraftar fyrirtækisins séu skólafólk og að það gangi síðan fyrir þegar fólk sé ráðið til sumarafleysinga. Einungis ein Bónusverslun, versl- unin í Holtagörðum, er höfð opin á sunnudögum og segir Jón Ásgeir Jóhannesson, framkvæmdastjóri Bónus, að þannig ætli þeir hjá Bón- us að hafa það. Að sögn Jóns Ás- geirs eru tvær ástæður helstar fyrir því að verslunin er höfð opin þá. Bónusverslanir séu ekki hafðar opn- ar á virkum dögum nema eftir há- degi og því hafi Bónusmenn viljað koma til móts við þá sem ekki hafi tök á að koma þá. Auk þess hafi þeir viljað styrkja þær verslanir sem eru undir sama þaki og þeir í Holta- görðunum. Ein Bónusbúð Bónusverslunin hefur verið höfð opin á sunnudögum í rúmt ár. Jón Ás- geir segir að viðskipti á sunnudögum hafi verið að sækja á en á móti komi að þau þynnist aðra daga, „enda borðar fólk ekki fleiri máltíðir þó verslanir hafi opið lengur," segir hann. Átta starfsmenn eru á sunnudags- vaktinni, þar af eru sex skólafólk. Fastir starfsmenn Bónus fá frí á sunnudögum en að sögn Jóns Ás- geirs er mikil spurn eftir vinnu á sunnudögfum. Ákveðinn tími negldur niður Klukkuverslanirnar svokölluðu eru opnar á sunnudögum jafnt sem aðra daga. Ingibjörn Hafsteinsson, verslunarmaður í 10-10 í Suðurveri, var fyrstur til að opna klukkubúð í Norðurbrún í Reykjavík í apríl 1991. Hann segist hafa opnað klukkubúð- ina sína vegna þess að fólk ruglist í ríminu þegar verslanir séu hafðar opnar á mismunandi tímum. Hann hafi viljað negla niður ákveðinn opn- unartíma sem væri sá sami alla viku- daga og sem fólk gæti treyst. Þá segir hann að kaupmenn hafi orðið að svara því að farið var að bjóða dagvörur í bakaríum, söluskálum, blómabúðum og bensínstöðvum en þar sé opnunartími rúmur. Ingibjörn segir að í fyrstu hafi helst þeir sem unnu langan vinnudag nýtt sér sunnudagsopnunina en að nú sé salan á sunnudögum svipuð og aðra vikudaga. Hann segir að starfsfólk sitt þurfi ekki að vinna um helgar ef það vilji það ekki og að það sé fyrst og fremst skólafólk sem vinni á sunnudagsvöktunum. Ekki eins arðbært og áður Örn Ingólfsson, framkvæmda- stjóri Kaupáss sem starfrækir 11-11 verslanirnar, er sama sinnis og Jón Ásgeir og Ingibjörn og segir að sunnudagar séu ekki slakari dagar en laugardagar og föstudagar. Hann segir að vinnuálaginu sé jafnað á starfsfólkið og að Kaupássmenn vilji heldur hafa marga starfsmenn en fáa til að hafa upp á að hlaupa. Þá segir hann að þeir hafi með lengingu opnunartímans verið að reyna að ná til fólksins í hverfunum en að nú þegar stóru verslanirnar séu einnig farnar að hafa opið á sunnudögum sé þetta ekki eins arðbært og áður var. Nokkrar hverfaverslanir og versl- anir á landsbyggðinni hafa samein- ast undir nafninu Þín verslun með það að markmiði að ná hagstæðum innkaupum, lægra vöruverði og til að verða samkeppnisfærar við stór- markaði. Flestar Þinnar verslunar búðirnar sem eru á höfuðborgarsvæðinu eru opnar á sunnudögum en þó eru und- antekningar þar á. í gær var t.d. verslunin Kaupgarður, sem tilheyrir keðjunni, opnuð í Mjóddinni í Reykjavík og segir Davíð Ólafsson, verslunarstjóri, að í stað sunnudag- sopnunar verði lögð áhersla á góða þjónustu við viðskiptavini m.a. með því að bjóða upp á gott kjötborð, nýbakað brauð og heita rétti bæði í hádegi og síðla dags. Það eru mun fleiri dagvöruversl- anir en hér eru nefndar, stórar og smáar, sem nýta sér heimildina til að hafa opið á sunnudögum. Fleiri og fleiri nýta sér þann möguleika að kaupa í matinn í rólegheitum og eru fegnir að sleppa við langar bið- raðir og steitu á föstudagssíðdegi eftir erilsaman vinnudag. Þeir eru þó enn margir sem ekki finnst við- eigandi að fara í búðir á sunnudög- um og þykir miður að helgi hvíldar- dagsins skuli sífellt minnka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.