Morgunblaðið - 07.09.1995, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
PABBI/MAMMA
Allt fyrir nýfædda barnib
ÞUMALÍNA
Pósthússtræti 13 - S. 5512136
Fræðsla um
kristna trú
Hefur þú áhuga á námskeiði
um helgisiði og táknmál
kirkjunnar?
Til hvers eru allar þessar
serimóníur?
Leikmannaskóli
kirkjunnar.
Skráning og upplýsingar
á Biskupsstofu
í síma 562 1500.
Tölvunámskeið
Nærri 40 Windows og Macintosh námskeið
fyrir byrjendur og lengra komna.
Windows, Word og Excel
15 klst námskeið @ 13990,-
11.-15. september kl. 9:00-12:00
25.-29. september kl. 16:00-19:00
Excel töflureiknirinn
15 klst námskeið @ 16.200,-
11.-15. septemberkl. 13:00-16:00
Internetið og Netscape
4 klst námskeið @ 4.400,-
15. september ki. 13:00-17:00
Macintosh og ClarisWorks
15 klst námskeið @ 13.990,-
11.-15. septemberkl. 16:00-19:00
Word ritvinnsla
15 klst námskeið @ 13.990,-
18.-22.. september kl. 9:00-12:00
Hringið og fáið senda námskrá.
Frábœr aðstaða í nýjurn húsakynnum á
Grensásvegi 16!
Tölvu- og
verkfræðiþjónustan
Sími: 568 8090
Biddu um Banana Boat
ef þú vilt spara 40-60%
□ Hvers vegna að borga 1.200 kr. fyrir kvartiitra af Aloe geli
þegar þú getur fengið sama magn aí Banana Boat Aloe Vera
geli á 700 kr.7
□ Banana Boat 99,7% hreint Aloe Vera gel læst í 6 mismunandi
pakkningum. Verð frá kr. 65, kr. 499 og upp í 1.000 kr. hálfur
Ittri.
□ Biddu líka um Banana Boat Body Lotioinið með Ak* Vera, A
B2, B5, D og E vítamhi.
□ Hefurðu prófaö alnáttúrulega svitalyktareyðandi kristal-
stáninn? Margar gerðir og verðið er frá kr. 655. M.a.:
O Svitalyktareyðandi Nature's kristalshjarta í gtafaöskju.
□ Svitalyktareyöandi Nature's kristalsdropi í gjafaöskju.
□ Svitalyktareydandi Nature's .Ýtfonum upp* (Pusti-Up Stick).
□ Svitalyktareyðandi Nature's sprey (kristall i vökvafomii).
Biddu um Banana Boat og Nature's kristalinn í apótekum,
sólaðsst, snyrtist og öllum lieilsÉúöum utan Reykjavíkur.
Heilsuval - Barónsstíg 20 tr 562 6275
AKUREYRI
Samherji hefur keypt Arn-
ar gamla frá Skagaströnd
Stokksnesið væntanlega selt
Meitlinum í Þorlákshöfn
'SAMHERJI hf. á Akureyri hefur
keypt skuttogarann Arnar gamla
HU-101 af Skagstrendingi hf. á
Skagaströnd og fær Samheiji skip-
ið afhent í næstu viku. Engar afla-
heimildir fylgja með i kaupunum.
Arnar gamli var smíðaður í Japan
173 fyrir Skagstrending sem átt
hefur skipið alla tíð. Hann er 462
brúttó rúmlestir að stærð, 47 metra
langur, 9,5 metra breiður og búið
2000 hestafla aðalvél.
Skipið fer á rækjuveiðar strax
eftir að það hefur verið afhent nýj-
um eigendum og mun afla hráefnis
fyrir rækjuverksmiðjur Söltunarfé-
lags Dalvíkur og Strýtu.
Stokksnes EA-410 sem verið
hefur á rækjuveiðum og aflað hrá-
efnis fyrir Söltunarfélag Dalvíkur
og Strýtu verður væntanlega selt á
næstunni til Meitilsins hf. í Þorláks-
höfn. Viðræður um sölu eru langt
komnar og verður skipið afhent
nýjum eigendum í lok október.
Skipstjóri á Arnari gamla verður
Brynjólfur Oddsson sem verið hefur
skipstjóri á Stokksnesinu.
Fiskuðu fyrir
410 milljónir
Nói EA-477 sem er i eigu Ham-
ars hf. en gerður út af Samheija
hefur verið seldur til Meitilsins í
Þorlákshöfn og verður skipið afhent
nýjum eigendum í lok næstu viku.
Nói hefur ásamt Oddeyrinni
stundað svokallaðar tvílembinsveið-
ar, þ.e. tvö skip hafa dregið eitt
troll, en slíkar veiðar eru víða stund-
aðar erlendis. Nói og Oddeyrin
stunduðu þessar veiðar í 16 mánuði
og gengu þær vel. Aflinn var tekinn
til vinnslu um borð í Oddeyrinni og
frystu þar. Samtals fiskuðu skipin
fyrir 410 milljónir á þessu tímabili.
Oddeyrin mun fyrst um sinn fara
á rækjuveiðar og landa aflanum
ísuðum til vinnslu hjá Strýtu og
Söltunarfélagi Dalvíkur. Skipstjóri
á Oddeyrinni er Willard Helgason.
Fluttu til útlanda eftir harðan vetur
Morgunblaðið/Berglind H. Helgadóttir
Sala fasteigna að
glæðast á Akureyri
„ÉG VEIT um að minnsta kosti tvö
dæmi þess að hinn harði vetur ýtti
undir að fjölskyldur fluttu til útlanda
í sumar,“ sagði Pétur Jósepsson fast-
eignasali hjá Fasteigna- og skipa-
sölu Norðurlands.
Pétur sagðist vita til þess að síð-
astliðinn vetur sem var afskaplega
harður hafi farið illa með marga.
„Ég veit til þess að hann gerði út-
slagið um þessar fjölskyldur fóru
núna í sumar. Ég kannast við þessar
hugsanir hjá fólki,“ sagði hann.
Aðrir fasteignasalar sem rætt var
við í gær höfðu ekki orðið varir við
að fólk væri að flytja burt úr bænum
í kjölfar fannfergis síðasta vetrar
og sagði Arnar Birgisson hjá fast-
eignasölunni Holti að slíkur vetur
sem fólk á vestan- og norðanverðu
landinu hefðu upplifað á liðnu vetri
kæmi vart nema á 20 ára fresti og
því ástæðulaust að óttast að kom-
andi vetur yrði eins harður.
Salan að glæðast
Þeir fasteignasalar sem rætt var
við sögðu að sala væri mikið að
glæðast eftir nokkuð þunga mánuði.
„Það er óhemju mikið af fasteignum
á söluskrá," sagði Pétur Jósepsson,
en hann nefndi að mun meira af
einbýlishúsum hefði selst að undan-
fömu en um langan tíma. Verð á
stórum eignum hefði þó sigið nokkuð
og mörg stærri hús væru nú seld á
niðursettu verði. Helst væri að verð
tveggja herbergja íbúða héldíst.
Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson
SALA fasteigna á Akureyri er að glæðast eftir fremur
þunga mánuði.
Arnar Birgisson sagði að mikið hefði
verið að gera síðustu daga, greinileg
hreyfmg hefði komið á fasteigna-
markaðinn. Meðal annars nefndi
hann að nemar, bæði í framhalds-
skólum og í háskólanum festu kaup
á íbúð með aðstoð foreldra og ætt-
ingja og mætti rekja slík kaup til
þröngs leigumarkaðar. Mikil eftir-
spurn væri eftir leiguíbúðum á Akur-
eyri og leiga væri há, algengt verð
á 2ja herbergja íbúð væri á bilinu
35-37 þúsund krónur og sæu marg-
ir sér fremur hag í að kaupa en leiga.
Hjá Fasteignasölunni hf. fengust
þær upplýsingar að sala hefði glæðst
mikið að undanförnu og sömu sögu
hafði sölumaður hjá Eignakjöri að
segja.
Vafinn inn
í peysu
mömmu
HANN Logi litli fékk peysu
mömmu sinnar lánaða til að
hlýja sér ögn í gönguferðinni
síðdegis í gær og eflaust hefur
hún tekið úr honum mesta
hrollinn.
Arleg
plast-
poka-
sala
ÁRLEG plastpokasala Lions-
klúbbsins Aspar á Akureyri
er hafin og stendur hún til
mánudagsins 11. september
næstkomandi.
Asparkonur hafa selt Ak-
ureyringum plastpoka að
haustlagi mörg undanfarin
ár og rennur ágóðinn til líkn-
armála. í ár líkt og í fyrra
stykja Lionskonurnar bygg-
ingu sundlaugar við Krist-
nesspítala.
Lionskonur ætla að banka
upp á í hverju húsi á Akur-
eyri og vænta þess að vel
verði á móti þeim tekið eins
og áður.