Morgunblaðið - 07.09.1995, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995 25
JRwgtiiitfafrfr
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
STJÓRNARFORMAÐUR: Haraldur^Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson. .
KVENRETTINDIERU
MANNRÉTTINDI
ÞAÐ MÁ endalaust deila um hversu mikil og varanleg
áhrif fjölmennar alþjóðlegar ráðstefnur hafa í raun.
Færa má sterk rök fyrir því að nær ómögulegt sé að ná
sameiginlegri niðurstöðu milli ríkja dieims um flókin og
umdeild málefni á borð við kvenréttindi, umhverfismál eða
fólksfjölgun. Ráðstefnum Sameinuðu þjóðanna hefur hins
vegar tekist að vekja mikla athygli á mikilvægum málefn-
um.
Þannig varð umhverfisráðstefnan í Rio de Janeiro til að
beina sjónum manna að mörgum alvarlegum umhverfis-
vandamálum og í tengslum við kvennaráðstefnuna, sem
nú stendur yfir í Peking, hefur kastljósinu verið beint að
stöðu kvenna í heiminum, ekki síst í gestgjafalandinu Kína.
Hillary Rodham Clinton, eiginkona Bandaríkjaforseta og
formaður bandarísku sendinefndarinnar á kvennaráðstefn-
unni, gagnrýndi harðlega í ræðu á þriðjudag hvernig reynt
hefði verið að skerða tjáningarfrelsi fulltrúa á ráðstefn-
unnil Hún beindi einnig spjótum sínum gegn fjölskyldu-
stefnu er byggðist á því, að konur væru þvingaðar út í
fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Slíkt væri ótvírætt
brot á mannréttindum.
Benazir Bhutto, forsætisráðherra Pakistans, vék að stöðu
kvenna í ríkjum múhameðstrúarmanna og benti á að í
Kóraninum væri ekki reynt að einskorða konur við heimil-
in. „Kosning [þriggja kvenna sem forsætisráðherra músl-
imskra ríkja] batt enda á þá goðsögn ... að staður konunn-
ar sé á heimilinu, að það sé skammarlegt, vansæmandi eða
félagslega ótækt að múslimsk kona vinni,“ sagði Bhutto.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, ávarpaði ráðstefn-
una við setningarathöfn hennar á mánudag. Vigdís sagði
það mikla framför að menn væru farnir að tengja kjör og
réttindi kvenna og afkomu mannkyns. Nú væri sú hugsun
talin fáránleg að konur nytu ekki jafnréttis á við karla.
Forseti íslands benti hins vegar á að enn byggju margar
konur í heiminum við fátækt og að víða væru stúlkum og
konum ekki búin sömu lífsskilyrði og körlum. Það væri
hlutverk ráðstefnunnar að ráðast á þessi vandamál en ekki
einungis viðurkenna að þau væru fyrir hendi.
„Kvenréttindi eru mannréttindi og mannréttindi eru
kvenréttindi,“ sagði Hillary Clinton í ræðu sinni. Ef kvenna-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna tekst að koma þeim skila-
boðum áleiðis til heimsbyggðarinnar hefur töluverður
árangur náðst.
FYRIRTÆKIN OG
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
FÆRZT hefur í-vöxt á undanförnum árum, að einkafyrir-
tæki leggi lið ýmsum þjóðþrifamálum og verji til þess
nokkru fé. Nýjasta dæmi þessa er áætlun Eimskipafélags
íslands hf. um að taka „fossa í fóstur“. í þeirri áætlun
felst, að fyrirtækið kostar framkvæmdir til að bæta aðgang
ferðamanna að nokkrum stærstu og fegurstu fossum lands-
ins. Fyrir síðustu helgi lauk einmitt slíkum úrbótum við
Goðafoss. Þar var aðkomán stórlega bætt með því að færa
til afleggjarann frá þjóðveginum, bílastæði stækkað og
fellt betur að umhverfinu, göngustígar lagðir og ráðstafan-
ir gerðar til gróðurverndar. Loks var sett upp skilti, sem
lýsir náttúru og sögu staðarins. Forstjóri Eimskipafélags-
ins, Hörður Sigurgestsson, sagði er úrbæturnar við Goða-
foss voru kynntar, að fyrirtækið muni á næstu árum stuðla
að slíkum aðgerðum við nokkra af helztu fossum landsins,
m.a. Dettifoss, þar sem ferðamenn hafa stórslasast fyrr í
sumar, Skógafoss og Fjallfoss (Dynjanda).
Þessar aðgerðir Eimskipafélagsins eru til mikillar fyrir-
myndar og þakkarverðar. Minna má á, að ýmis önnur fyrir-
tæki hafa lagt miklum þjóðþ'rifamálum lið og kostað til
þess verulegum fjármunum. Má nefna þar stuðning Skelj-
ungs hf. við skógrækt og Olíuverzlunar Islands hf. við land-
græðslu.
Þessi dæmi mega verða hvatning til fleiri fyrirtækja um
að verja nokkru af ráðstöfunarfé sínu til stuðnings við
verkefni, sem koma þjóðinni allri til góða. Mörg gera það
nú þegar með ýmsum hætti, t.d. stuðningi við hvers konar
góðgerðarfélög. Slíkur stuðningur skilar sér áreiðanlega
aftur til fyrirtækjanna, þar sem allur almenningur iilýtur
að meta þá þjóðfélagslegu ábyrgð sem 'þau sýna.
Aðalfundur Skógræktarfélags íslands á Egilsstöðum
Morgunblaðið/KG
Lúpinan hefur
sannað gildi sitt
LUPINAN hefur þegar sann-
að gildi sitt sem þýðingar-
mikil uppgræðsluplanta,
segir í ályktun sem sam-
þykkt var samhljóða á aðalfundi
Skóræktarfélags Islands sem hald-
inn var á Egilsstöðum. Þá var lýst
áhyggjum yfir þeim áformum að
gera Rannsóknastöð Skógræktar
ríkisins að deild í Rannsóknastofnun
landbúnaðarins. Slík innlimun yrði
til þess að rjúfa tengsl milli rann-
sóknastöðvarinnar og annarra
deilda skógræktarinnar og skóg-
ræktarfélaganna í landinu. Þá yrði
ekki séð að slík tilhögun leiddi til
sparnaðar án þess að skerða skóg-
ræktarrannsóknir.
Minnt á fyrirheit
Á fundinum var samþykkt tillaga
þar sem minnt er á fyrirheit sem
gefin voru við gerð núverandi bú-
vörusamnings um tveggja milljarða
króna framlag til skógræktar og
landgræðslu. Aðeins hafi verið veitt-
ar um 100 milljónir af fjárlögum til
þessa verkefnis og er skorað á
stjórnvöld að standa við gefin lof-
orð. Jafnframt er skorað á landbún-
aðarráðherra, umhverfisráðherra og
fjárlaganefnd að veita það fjármagn
sem þarf til að hægt verði að ljúka
úrvinnslu og gefa út niðurstöður
könnunar á birkiskógum Islands
sem fyrst.
Enn fremur var samþykkt tillaga,
þar sem skorað er á landbúnaðarráð-
herra að hann beiti sér fyrir því að
á fjárlögum ársins 1996 verði aftur
fjárveiting til Landgræðslusjóðs til
stuðnings þýðingarmiklu áhuga-
mannastarfi skógræktarfélaganna í
landinu.
Reglur um úthlutun styrkja
verði endurskoðaðar
Fundarmenn þökkuðu Skeljungi
hf. lofsverðan áhuga og stuðning
við skógrækt í landinu og skoruðu
á Skógrækt ríkisins að fylgja þeirri
braut, sem kynnt var á aðalfundin-
um á Húsavík. Ef framhald yrði á
því samstarfi var farið fram á að
reglur um úthlutun styrkja til skóg-
ræktarfélaga yrðu endurskoðaðar.
Skorað var á Kaupmannasamtökin,
forsvarsmenn Hagkaups og Bónuss
að sjá til þess að skóræktarfélögin
í landinu nytu góðs líkt og hingað
til af þeim ágóða sem yrði af sölu
burðarpoka í verslunum.
Kynning á landi til skógræktar
Samþykkt var á fundinum að
skógræktarfélagið kynnti í fjölmiðl-
um hvers konar land hentar til skóg-
ræktar. Jafnframt að kynnt yrði
veðurfarslegt gildi skóga og hvernig
beita má skógrækt á skipulegan
hátt til þess að bæta veðurfar í
helstu byggðakjörnum landsins.
Samþykkt var tillaga um árlegt átak
í söfnun og sáningu birkifræs og
bent á að æskilegt væri að Skóg-
ræktarfélag íslands og Landgræðsl-
an kynntu verkefnið almenningi og
nemendum í skólum landsins.
Fjármagn verði tryggt
Samþykkt var að beina þeim til-
mælum til Skógræktar ríksins, land-
búnaðarráðherra og bændasamtak-
anna að bændum utan nytjaskóga-
marka yrði gert kleift að stunda
skógrækt á jörðum sínum með h!ið-
stæðum kjörum og bændum á nytja-
skógaijörðum. Skorað var á Alþingi
og ráðherra að sjá til þess að tryggt
yrði nægilegt fjármagn með sér-
merktri fjárveitingu á fjárlögum til
plöntukaupa til Landgræðsluskóga
á næstu árum, þannig að náð yrði
því takmarki að gróðursetja að lág-
marki 1,5 milljónir plantna árlega á
vegum verkefnisins.
Stjórnarkjör
Gjaldkeri félagsins, Baldur
Helgason, átti að víkja úr stjórn og
gaf hann ekki kost á sér til endur-
kjörs. í hans stað var kjörin Sigríð-
ur Jóhannsdóttir. Aðrir í stjórn eru
Hulda Valtýsdóttir, Sveinbjörn
Dagfinnsson, Þorvaldur S. Þorvalds-
son, Björn Árnason, Vignir Sveins-
son og Sædís Guðlaugsdóttir. Kosið
er árlega um þijá menn í varastjórn
og á fundinum voru kjörin þau Olaf-
ía Jónsdóttir, Magnús Jóhannesson
og Hólmfríður Finnbogadóttir.
1 Hallormsstaðarskógi
Vísir að nytjaskógi
„VIÐ erum komin í hóp skógræktarþjóða," sagði Þór Þorfinnsson
skógarvörður á Hallormsstað, þegar lokið var mælingu á hæsta tré
landsins 20 metra Rússalerki sem gróðursett var árið 1937. Sagði
hann að þegar talað væri um erlenda nytjaskóga væri miðað við 20
metra meðalhæð og því væri þetta merkur áfangi sem náðst hefði á
Hallormsstað þegar fyrsta tréð náði 20 metrum.
Leikið í skógi
TÓNLIST rauf þögnina í skóginum þegar gestir nálguðust lerkilund-
inn háa. Þar voru þeir Jón Guðmundsson sem lék á flautu og Charles
Ross á fiðlu frumfluttan óð til skógarins eftir Charles.
Nýting
skógarafurða
ÞAÐ VAR Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra sem festi útskorinn
skjöld á tréð að viðstöddum fulltrú-
um á aðalfundi Skógræktarfélags
íslands, sem haldinn var á Egils-
stöðum. Forsætisráðherra tilkynnti
jafnframt að ráðuneyti hans hefði
ákveðið að veita 500 þúsund krónur
til að efla nýtinga íslenskra skógar-
afurða. Þá er einnig hugmyndin að
komið.verði upp sameiginlegum
viðarlager í Reykjavík þangað sem
handverksfólk og aðrir geta leitað
og nýtt þann við sem til fellur.
Gestir gengu um skóginn og
starfsmenn skóræktarinnar kynntu
vinnubrögð við skógarhögg og
mátti heyra kallað „timbur," þegar
bolir féllu. Kurlvinnsla og borðvið-
arsög vöktu m.a. óskipta athygli.
Skógarmannaskál
AÐ GÖNGU lokinni buðu skógarbændur á Héraði upp á hressingu og
þar tóku skógræktarmenn og -konur lagið svo undir tók í skóginum.
FASKRUÐSFJORÐUR
HORFUR eru á að einhver bið verði á því að hjúkrunarheimili verði reist á Fáskrúðsfirði.
jpl
{.
liaEl
is W I j
ÍM4HS g f '
Byggingii hjúkrun-
arheimilis frestað
INGIBJÖRG Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra hefur til-
kynnt sveitarstjórnum Búðar-
hrepps, Fáskrúðsfjarðar-
hrepps og Stöðvarhrepps að frestað
verði byggingu 12 rúma hjúkrunar-
heimilis á Fáskrúðsfirði. Búið var
að bjóða framkvæmdina út og opna
tilboð.
Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra, sagði að sú
ákvörðun hefði verið tekin í heil-
brigðisráðuneytinu að fresta öllum
framkvæmdum í heilbrigðisþjónustu
sem áformað hefði verið að fara út
í, öðrum en þeim sem búið væri að
gera skriflega verksamninga um við
verktaka. Þessi ákvörðun væri hluti
af sparnaðaraðgerðum ráðuneytis-
ins. Gert ráð fyrir að með stöðvun
framkvæmda takist að spara 400
milljónir króna á þessu og næsta
ári. Þá er einnig gert ráð fyrir að
framlengja tímabundna lagaheimild
til að veita fé úr Framkvæmdasjóði
aldraðra til rekstrar í heilbrigðisþjón-
ustu og er gert ráð fyrir að þannig
aflist um 80 milljónir króna til viðbót-
ar.
Fjármunir ekki til
Þórir sagði að á næstu dögum
yrði fleiri aðilum tilkynnt um frestun
framkvæmda. Hann vildi ekki nefna
hvað aðrar framkvæmdum yrði fre-
stað, en sagði ljóst að byggingu heil-
sugæslustöðva á höfuðborgarsvæð-
inu myndi frestast og eins yrðu fram-
kvæmdir við K-byggingu Landspítal-
ans stöðvaðar.
Kostnaðaráætlun vegna byggingar
fyrsta áfanga hjúkrunarheimilisins
hljóðaði upp á rúma 41 milljón króna,
en heildarkostnaður við bygginguna
var áætlaður um 80 milljónir. Fjár-
málaráðherra og fyrrverandi heil-
brigðisráðherra undirrituðu samning
við sveitarfélögin þijú um byggingu
hjúkrunarheimilis á Fáskrúðsfírði
skömmu fyrir kosningar í vor.
Heilbrigðisráðherra hef-
ur ákveðið að fresta 511-
um nýjum framkvæmd-
um í heilbrigðiskerfínu.
Ráðherra hefur þegar til-
kynnt að ekkert verði af
byggingu hjúkrunar-
heimilis á Fáskrúðsfirði,
en framkvæmdir voru við
það að hefjast.
„Okkar sjónarmið er að það sé
ekki rétt að veija fjármunum til
bygginga nýrra heilbrigðisstofnanna
þegar við höfum ekki nægilega mikla
peninga til að reka þær stofnanir sem
við_ starfrækjum í dag,“ sagði Þórir.
í bréfi heilbrigðisráðherra til sveit-
arstjórna Búðarhrepps, Fáskrúðs-
fjarðahrepps og Stöðvarhrepps segir
að samkvæmt vistunarskrá séu nú
þrír einstaklingar metnir með þörf
fyrir hjúkrunarrými í þeim sveitarfé-
lögum sem að framkvæmdinni
standa. Ljóst sé að frestun fram-
kvæmda komi sér illa fyrir þessa
einstaklinga sem horft hafi vongóðir
til vistunar á hjúkrunarheimilinu,
sem og aðstandendur þeirra. í lok
bréfsins segir að ráðuneytið sé reiðu-
búið til að vinna með heimamönnum
að því að finna viðunandi lausn á
vandamálum fólksins.
Verkefnum forgangsraðað
Þórir sagði að heilbrigðisráðherra
hefði tekið ákvörðun um að for-
gangsraða verkefnum innan heil-
brigðisþjónustunnar og leggja slíka
áætlun fyrir Alþingi á haustþingi
1996. Hann sagði að samkvæmt lög-
um um heilbrigðisþjónustu bæri að
gera áætlun um forgángsröðun verk-
efna, en það hefði hins vegar ekki
verið gert.
Þórir sagði að í þessari áætlun
væri brýnt að taka ákvörðun um
hvernig ætti að haga áframhaldandi
framkvæmdum við K-byggingu
Landspítalans. Áætlað er að þær
framkvæmdir sem eftir eru við bygg-
inguna kosti 2,4 milljarða. Áform
voru uppi um að framkvæma fyrir
150 milljónir á næsta ári, en fallið
hefur verið frá þeim. *
Furðurleg ákvörðun
Steinþór Pétursson, sveitarstjóri á
Fáskrúðsfirði, segir að ákvörðun
ráðuneytisins sé furðuleg í ljósi þess
að búið hafi verið að gera samning
um framkvæmdina og búið að bjóða
hana út. Það sé ekkert rætt við sveit-
arfélögin heldur fái þau bara allt í
einu bréf um þessa ákvörðun.
Aðspurður sagði hann að það ætti
eftir að koma endanlega í ljós hvort,
ákvörðun ráðuneytisins stæði. Ríkis- “
stjórn og ráðherrar ættu eftir að
fjalla um niðurskurðinn og hann
vonaðist til að þessi ákvöðrun yrði
endurskoðuð. Það gegndi furðu að
hægt væri að rifta samningi sem
hefði verið undirritaður í vor af
tveimur ráðherrum fyrri ríkisstjórn-
ar.
Steinþór sagði að dvalarheimili
hefði verið byggt á Fáskrúðsfírði árið
1987 og alltaf hefði verið gengið út
frá að hjúkrunarheimili yrði reist í
tengslum við það. Mikil þörf væri
fyrir hjúkrunarheimilið. Dvalarheimil- *
ið væri alltaf fullt og á dvalarheimil-
um út á landi væri dregið í lengstu
lög að senda fólk frá sér. „Þannig
að inn á dvalarheimilinu er nú þegar
fólk sem þarf hjúkrunarheimilispláss
í raun og vera fyrir utan það að héð-
an af staðnum eru þó nokkrir ein-
staklingar sem eru í vistun annars
staðar,“ sagði Steinþór.