Morgunblaðið - 07.09.1995, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNINGAR
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995 31
LA UFEY
PÁLSDÓTTIR
+ Laufey Páls-
dóttir fæddist í
Ólafsvík 19. júní
1931. Hún andaðist
á gjörgæsludeild
Borgarspítalans 22.
ágúst síðastliðinn og
fór útförin fram 21.
ágúst.
ELSKU Laufey mín,
mig langar til þess að
kveðja þig að sinni og
þakka þér fyrir stutt en
skemmtileg kynni. Það
var dálítið merkilegt
þegar við hittumst fyrir
fáum árum, við vissum hvorugt að
við værum skyld, en þegar ég tók í
höndina á þér var eins og hvíslað
væri að mér „þessa manneskju átt
þú að þekkja". Svo kom það í ljós
að við höfðum hittst síðast þegar
ég var 4 ára. Ég ætla ekki að reyna
að útskýra þetta, en síðan höfum
við vdrið eins og aldavinir. Ég veit
að sá sem leiddi okkur saman þarna
um árið mun nú taka á móti þér í
nýrri vistarveru og dekra við þig,
þú átt það svo sannarlega skilið.
Bæn mín mun fylgja þér, þinn
frændi,
Bjarni Þór Krisljánsson.
Fyrir níu árum varð ég svo hepp-
in að kynnast Laufeyju Pálsdóttur
og verða tengdadóttir hennar. Öll
gleði og hlátur kringum hana sýndi
mér hvað lífið er mikils virði. Hún
var búin að missa mann sinn og
son, og gekk í gegnum erfiða tíma
á þeim stundum, og þá byijuðu veik-
indi hennar. En hún lét
sig hafa það og sagði
að hún væri ekki tilbúin
til að kveðja strax, því
hún ætlaði að njóta lífs-
ins. Hún kom mér alltaf
til að hlæja. Hún sagði
börnunum okkar Sæ-
þórs að hláturinn lengdi
lífið og hann gerði það
svo sannarlega í hennar
tilviki. Stundum var
hún hætt komin í veik-
indum sínum en reif sig
alltaf upp með bros á
vör og full af gleði. Það
er ekki hægt að lýsa
þessari lífsgleði sem
hún hafði, en þeir sem þekktu hana
vita hvað ég á við. Við munum ávallt
minnast stundanna með henni og
þess lífskrafts sem hún hafði. Þeir
sem þekktu þessa yndislegu konu
vita hvað hún þurfti að ganga í gegn-
um, öll þessi veikindi og baráttu
gegn þeim. Síðustu vikur voru henni
erfiðar og kom sú stund að hún gat
ekki meir og kvaddi þennan heim.
Blessuð sé minning hennar.
Hún er farin elsku tengdamóðir mín,
með gleði sína og hlátur.
Ég mun alltaf sakna þín,
því fylgir sorg og grátur.
Hrefna Krisljánsdóttir.
Hún Laufey er horfin okkur sjón-
um, gengin á vit hins óþekkta, eins
og við öll eigum eftir að gera, aðeins
misjafnlega snemma. Mér fannst hún
fara alltof fljótt, þótt ég hins vegar
geti skilið, að dauðinn er besta lausn-
in, þegar heilsan er farin og ekkert
eftir nema kvöl og stríð.
Við Laufey kynntumst ungar,
eiginlega vorum við báðar hálfgerð
böm, þótt við værum orðnar mæður.
Við áttum mikið samleið um árabil,
þar sem við vorum mágkonur. Það
gekk á ýmsu hjá okkur í þá daga
og oft hlógum við mikið saman, þótt
lífið væri ekki alltaf dans á rósum.
Laufeyju var gefin sérlega góð
lund, svo ekki var hún að erfa það,
þótt eitthvað kastaðist í kekki á milli
okkar. Laufeyju var einnig gefinn
svo góður aðlögunarhæfileiki, að hún
rétti sig alltaf úr beygjunni aftur,
eins og reyrstafur, þótt hún bognaði
stundum í byljum lífsins og þeir voru
margir á lífsleið hennar, en sólskins-
blettirnir voru líka margir á milli
bylja.
Laufey átti góðan mann, Gunnar
Eyjólfsson frá Húsatóftum á Skeið-
um, hann var bömunum góður faðir,
bæði sínum og ekki síður þeim böm-
um er Laufey átti fyrir. Gunnar lést
um aldur fram og einnig misstu þau
dreng af slysförum laust innan ferm-
ingar. Má því nærri geta að mikið
reyndi á Laufeyju, sem aldrei hafði
verið heilsuhraust.
Laufey átti sjö böm, einn drengur
ólst upp hjá góðu fólki sem þeirra
sonur. Börnin voru auðlegð Laufeyj-
ar og hún var þeim sú móðir, sem
hún best gat, enda hlaut hún sín
laun í ást þeirra og umhyggju, þegar
heilsu hennar hrakaði á síðustu
árum. Laufey leið mikið síðustu árin,
en alltaf rétti hún við og alltaf fór
hún þá aftur að vinna í Örva. Þar
vann hún sér hylli samstarfsfólksins
með sinni góðu lund og eignaðist þar
marga góða vini, sem ég veit að
sakna hennar sárt.
Að lokum vil ég kveðja Laufeyju
með kærri þökk og ósk um guðs-
blessun á ókunnum leiðum.
Börnum hennar og öðmm að-
standendum votta ég samúð mína.
Ragna S. Gunnarsdóttir.
t
Ástkær eiginkona mín,
ÞÓRA ALDIS HJELM,
Garðavegi 6,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Hvalsneskirkju laugardaginn 9. september
kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sveinbjörn Eiríksson.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÞÓREYJAR MAGNÚSDÓTTUR,
Grænumörk 1,
Selfossi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkra-
húss Suðurlands.
Jakob Þorvarðarson,
Esther Jakobsdóttir, Karl Zophaniasson,
Pála Jakobsdóttir, Valdimar Þórðarson,
Magnús Jakobsson, Ingunn Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum samúð og hlýhug vegna andláts og jarðarfarar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓNU GUÐBJÖRGU TÓMASDÓTTUR,
síðast til heimilis
á Sólvangi,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á 4. hæð Sólvangs fyrir
góða umönnun.
Tómas V. Óskarsson,
V. Svava Guðnadóttir, Stefán Hólm Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
V
ATVIN N1BAUGL YSINGA R
Frá Finnbogastaðaskóla
Kennara vantar
Kennara vantar í Finnbogastaðaskóla næsta
vetur. Finnbogastaðaskóli er heimavistar-
skóli með 10 nemendur. Fyrir rétta mann-
eskju getur verið um verulega vinnu að ræða.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 451 4031.
íþróttakennarar/
þolfimikennarar
Vegna mikillar aðsóknar þurfum við að bæta
við kennurum í þolfimi fyrir næsta vetur.
Upplýsingar í Mætti í síma 568 9915.
Starf
hjúkrunarforstjóra
við Heilsugæslustöð Raufarhafnar er laust
til umsóknar. í boði er hlunnindi, s.s. ódýrt,
gott húsnæði, staðaruppbót og flutnings-
styrkur. Ágæt samvinna er við heilsugæslu-
stöðvar í næsta nágrenni.
Umsækjendur þyrftu að geta hafið störf
fljótlega.
Nánari upplýsingar í símum 465 2161 stjórn-
arformaður eða 465 1145 heilsugæslustöð.
Barnagæsla
Vill einhver gæta 7 mánaða tvíbura á þriðju-
dagsmorgnum?
Upplýsingar í síma 551-0724.
Apple-umboðið hf.
Við hjá Apple-umboðinu erum að leita að
góðum vinnufélaga. Við leggjum mikið upp
úr að þessi manneskja sé þægileg í sam-
starfi, hafi áhuga á því sem verið er að fram-
kvæma hverju sinni, geti og vilji sinna fjöl-
breyttum verkefnum og eigi auðvelt með að
vinna sjálfstætt, sé jákvæð og tilbúin til að
læra ný vinnubrögð.
Starf
íþjónustudeild
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi rafeinda-
virkjamenntun eða aðra sambærilega. Aðal-
starfið er fólgið í viðhalds- og þjónustuverk-
efnum hjá viðskiptavinum fyrirtækisins, en
því til viðbótar er lagerumsjón mikilvægur
þáttur í starfinu.
Hér er um fullt starf að ræða og við leggjum
stolt okkar í stundvísi og árvekni.
Til að geta tekið afstöðu til umsóknar þinnar
(hafir þú áhuga) er mikilvægt sem fyrsta
skref, að þú sendir okkur skriflega umsókn
fyrir 15. september, merkta: Ólína Laxdal,
b/t Apple-umboðsins hf., Skipholti 21,
105 Reykjavík.
Ath.: Við höfum einsett okkur að svara öllum
umóknum innan 30 daga.
Trésmiðir
Ármannsfell hf. óskar eftir að ráða trésmiði
til vinnu í ákveðið verk.
Þurfa að geta byrjað strax.
Umsóknareyðublöð á skrifstofu,
Funahöfða 19.
„Au pair“ - USA
Ábyrgðárfull, umhyggjusöm og þolinmóð
„au pair“ óskast til að sjá um tvö börn
í háskólabæ nálægt New York.
Sérherb. og snyrting. Afnot af bíl.
Hafið samband við Robin eða Rögnu
í síma 908-359-7894.
Skeljungur hf.
Vaktstjóri
- kassamaður
Skeljungur hf. er fyrirtæki, sem leggur metn-
að sinn í að uppfylla þarfir og væntingar við-
skiptavinarins. Ef þér finnst það hljóma
spennandi, gæti vaktstjórastarf á einni af
bensínstöðvum félagsins á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu verið starf fyrir þig.
Við viljum gjarnan fá umsóknir frá fólki, sem
hefur reynslu af verslunar- og/eða þjónustu-
störfum, er tilbúið til að takast á við krefj-
andi verkefni og getur unnið vaktavinnu.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Skeljungs hf., Suðurlandsbraut 4, 5. hæð.
Nánari upplýsingar gefnar á staðnum.