Morgunblaðið - 07.09.1995, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAUGl YSINGAR
Frá Mýrarhúsaskóla
Starfsfólk vantar í ræstingar.
Vinnutími frá kl. 13.00-17.00.
Upplýsingar gefur húsvörður
í síma 561 1585.
Sjúkrahús og heilsugæslustöð
Bolungarvíkur
Sjúkraþjálfarar
Óskum eftir að ráða sjúkraþjálfara til starfa
í Bolungarvík. Við bjóðum upp á góða starfs-
aðstöðu í nýjum húsakynnum. Starfsemin fer
að mestum hluta fram sjálfstætt.
Upplýsingar gefur Magnús Örn, sjúkraþjálf-
ari, í vs. 567-8577 og hs. 566-8018.
Sölumaður
Heildsala óskar eftir að ráða sölumann til
starfa við sölu á sælgæti. Við leitum eftir
samviskusömum starfskrafti með góða fram-
komu og metnað. Starfið er á höfuðborgar-
svæðinu og að hluta til úti á landi.
Reynsla í sölumennsku æskileg.
Upplýsingar á skrifstofu íslenskrar dreifingar
hf., föstudaginn 8. septembermilli kl. 14og 18.
R ÆLWÞAUGL YSINGAR
TÓNUSMRSKÓU
KÓPPNOGS
Frá Tónlistarskóla
Kópavogs
Athygli skal vakin á því, að í vetur mun Tón-
listarskólinn bjóða upp á hálfs vetrar nám-
skeið fyrir fullorðna. Námskeiðið verður í
fyrirlestrarformi og fer fram einu sinni í viku,
tvær klukkustundir í senn.
Fjallað verður um undirstöðuatriði tónlistar
og gefið yfirlit yfir helstu tímabil tónlistarsög-
unnar.
Gjaldið er kr. 9.000. Innifalið er sameiginleg
ferð á tónleika Sinfóníuhljómsveitar íslands,
sem farin verður í lok námskeiðsins.
Kennari verður Þórunn Guðmundsdóttir,
söngkona.
Kennsla við Tónlistarskólann hefst 18. sept-
ember.
Skólastjóri.
VllÐSKIPTASKÓLI
Stjórnunarféiagsins og Mýherja
ÁNANAUSTUM 15-121 REYKJAVÍK
SÍMI 562 1066, BRÉFSÍMI 552 8583.
Viðskiptaskóli Stjórnunarfélagsins og Ný-
herja (VSN) fer nú í annað sinn af stað með
námskeiðið
„Rekstur og áætlanagerð
smáfyrirtækja“
Tilgangurinn með námskeiði þessu er að
fara á markvissan hátt í gegnum helstu
þætti, sem snúa að daglegum rekstri smáfyr-
irtækja eða einstaklinga.
Helstu efnisþættir eru:
► Samskipti á vinnustað.
► Stofnun og eignarform fyrirtækja.
► Markaðsfræði sem stjórntæki, mark-
aðsmat, markaðssetning.
► Færsla fylgiskjala, virðisaukaskattur og
launaútreikningar, tölvubókhald.
► Tölvunotkun, gerð tilboða og viðskipta-
bréfa, áætlanagerð.
Námstilhögun:
Námskeiðið er öllum opið og hefst 18. sept-
ember nk. Kennsla fer fram tvo virka daga
í viku, frá kl. 16.00 til 19.00, og tvo laugar-
daga af hverjum þremur frá kl. 9.00-14.00.
Gert er ráð fyrir að hægt sé að stunda nám-
ið með vinnu. Námskeiðinu lýkur 15. desem-
ber nk.
Kennsla:
Kennslan fer fram í húsnæði skólans í Ána-
naustum 15. Skólinn hefur á að skipa góðum
kennslustofum og vel útbúnum tölvustofum,
þar sem allur tækjabúnaður og aðstaða til
náms er fyrsta flokks.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans
og síminn er 569 7640.
Einkakennsla íþýzku
Óskað er eftir einkakennslu í þýzku.
Tilboð sendist auglýsingadeild Morgunblaðs-
ins fyrir 13. sept. nk., merkt: „Þ - 4179“.
Góð íbúð
117 fm 3ja herb., falleg íbúð, á þriðju hæð,
til leigu. Fallegt útsýni.
Áhugasamir sendi inn nafn og símanúmer
á afgreiðslu Mbl. fyrir 16. sept., merkt:
„Góð íbúð - 777“.
Samkór Kópavogs
Getum bætt við söngfólki í allar raddir.
Vetrar starfið hefst mánudaginn 11. septem-
ber kl. 20.00 í Digranesskóla.
Nánari upplýsingar gefa Oddur B. Grímsson
í síma 554 0615 og Fanney Jónasdóttir í síma
445 3188.
Höfn íHornafirði
Nýr umboðsmaður hefur tekið
til starfa, Birna Arnaldsdóttir,
Kirkjubraut 5, sími 478 1874.
Handverksfólk
- listiðnaðarfólk
Handverk - reynsluverkefni minnir á að skila-
frestur til að sækja um jólasýninguna í Ráð-
húsi Reykjavíkur í nóvember nk. rennur út
þann 15. sept.
Sendið umsóknir til Handverks, Laufásvegi
2, 101 Reykjavík. Umsóknum fylgi Ijósmynd-
ir af hlutunum, nánari lýsing s.s. stærð, nota-
gildi, hráefni auk nafns, heimilisfangs og síma-
númers.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Hand-
verks í síma 551 7595 og hjá tengiliðum
verkefnisins.
Vélstjórafélag fslands &
Vélstjórar
Félagsfundur verður haldinn nk. föstudag
8. september.
Fundarefni: Uppstilling til stjórnarkjörs.
Fundarstaður: Borgartún 18, Reykjavík,
3. hæð. Fundurinn hefst kl. 17.00.
Uppstillingarnefnd.
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Opinnfundur
Opinnjundur í Val-
höll fimmtudaginn
7. september kl.
17.15-18.45.
Gestur fundarins,
Friðrik Sophusson,
fjármálaráðherra,
mun ræða stöðu og
horfur í ríkisfjármál-
unum.
Fundarstjóri: Ásta
Þórarinsdóttir, hagfræðingur.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
Nefndin.
auglýsingar
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
AGLOW,
kristilegt kvennastarf
Septemberfundurinn er i kvöld
kl. 20.00 í kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58-60.
Ræðukona kvöldsins er Hrönn
Sigurðardóttir.
Fundurinn er opinn öllum kon-
um. Verið hjartanlega velkomn-
ar. Þátttökugjald er 500 kr.
(/»
tz
Hallveigarstíg 1 • sími 614330
Dagsferð laugard. 9. sept.
Kl. 09.00 Skarðsheiði (1053
m.y.s.), fjallasyrpa 7. áfangi.
Fjallið er mjög skorið skörðum
og giljum, með háum hvass-
brýndum tindum og kömbum.
Dagsferð sunnud. 10. sept.
Kl. 10.30 Svínaskarð sem er á
milli Móskarðshnúka og Skála-
fells. Skarðið er í 481 m.y.s og
um það lá fyrrum almannaleið
milli Mosfellssveitar og Kjósar.
Frá og með 1. september er
skrifstofa Útivistar opin frá kl.
12.00-17.00.
Útivist.
V >
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Laugardaginn 9. september
verður breski miðillinn og fyrir-
lesarinn, íris Hall, með námskeið
undir yfirskriftinni „Miðilsþjálfun
- hverjir eru hæfileikar þínir til
miðlunar?" Sunnudaginn 10.
mars verður íris með kennslu í
að leggja Tarot. Innritun og uþþ-
lýsingar í síma 551 8130 milli
kl. 10 og 12 og 14 og 16.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
MfiRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Helgarferðir:
8. -10. seþt. kl. 20.00.
a) Laugar - Hrafntinnusker -
Álftavatn. Ökuferð um friðland
að fjallabaki. Leiðin liggur um
Hrafntinnusker og síðan að
Álftavatni v/Syðri fjallabaksleið.
Gist í Laugum og Álftavatni.
b) Laugar - Hrafntinnusker -
Laufafell, gönguferð. Gist íhúsum.
9. -10. sept. kl. 08.00 Þórsmörk.
Uppselt I skála.
Haustlitaferð til Þórsmerkur
verður 16.-17. september.
Ferðafélag íslands.
Mannræktin,
Sogavegi 108,
fyrir ofan
Garðsapótek,
____ sími 588 2722
l'°A JÖRÐ'3
Skyggnilýsing
- mannrækt
I kvöld kl. 20.30 verður Ingibjörg
Þengilsdóttir, miöill, með
skygggnilýsingu. Eftir kaffihlé
verður kynnt vetrarstarf okkar
þar sem unnið verður í hópum
með sjálfsrækt og þróun ein-
staklingsins. Aðgangseyrir kr.
1.000. Uppl. í síma 588-2722.
Ingibj. Þengilsd., Jón Jóhann.
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Ráðsstefna Norrænu sálarrann-
sóknafélaganna verður haldin í
Munaðarnesi dagana 15.-22.
september nk. Fjölbreytt og
áhugaverð dagskrá; fyrirlestrar,
miðilsfundir o.fl. Einnig verður
boðið uþp á einkafundi meö
miðlunum Maríu Sigurðardóttur,
Kristínu Þorsteinsdóttur, Ingi-
björgu Þengilsdóttur, Irisi Hall,
Erlu Stefánsdóttur, Bjarna Krist-
jánssyni og Diane Elliot.
Skráning og uþþlýsingar í síma
551 8130 á skrifstofutíma ki. 10
til 12 og 14 til 16 alla virka daga.