Morgunblaðið - 24.09.1995, Page 6
6 SUNNUDAGUR 24. SEFfEMBER 1995
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
MONA eða Magga? hafa
sænskir fjölmiðlar
spurt undanfarna
viku. Hvort á Mona
Sahlin, jafnréttis- og aðstoðarfor-
sætisráðherra, eða Margareta
Winberg, landbúnaðarráðherra,
að leiða Jafnaðarmannaflokkinn
og Svía til nýrrar aldar og nýrra
tíma? Eða koma fleiri til greina?
Við erum í fandinu, sem sam-
kvæmt skýrslu Sameinuðu þjóð-
anna á heimsmet í jafnrétti. Það
hefur lengi legið í loftinu að næsti
formaður ætti helst að vera kona,
og að mati flokksforystunnar
gjarnan Mona Sahlin, til að ná
betur til kvenkyns kjósenda, sem
annars hafa tilhneigingu til að
leita á önnur flokksmið. Stöllurnar
Mona og Magga eru reyndar báð-
ar jafnaðarmenn, en ganga þar
ekki sömu erinda. Mona Sahlin
er holdtekja markaðshyggju- og
Evrópusinna flokksins, sem kjós-
endur lýstu frati á í Evrópuþings-
kosningunum um síðustu helgi.
Margareta Winberg var gegn
ESB-aðild, þó hún segi úrsögn
Svía ekki raunhæfan möguleika,
og nýtur stuðnings „Hreyfingar-
innar“, sem er gælunafn Svía á
verkalýðshreyfingunni.
Nýir tímar inn um bakdyrnar
Evrópusambandsaðildin kom
inn um bakdyrnar í flokksforystu
jafnaðarmanna. Upp úr þurru
lagði flokkurinn til á þingi í des-
ember 1990 að Svíþjóð gerðist
aðili að ESB. Nokkrum mánuðum
síðar lagði Ingvar Carlsson, þá-
verandi forsætisráðherram, inn
aðildarumsókn. Aldrei var útskýrt
hvort og hvernig hlutleysisstefna
Svía ætti að falla að ESB-aðild.
Eftir millispil hægristjómar kom
aftur að Ingvari Carlsson að sann-
færa Svía um ágæti aðildar og
það tókst fyrir tæpu ári. Síðan
hafa skoðanakannanir sýnt að
stuðningurinn hefur snarminnk-
að. Hinn jákvæði meirihluti hefur
samkvæmt skoðanakönnunum
breyst í minnihluta.
Svíar virðast spyrða stórfelldan
niðurskurð íjárlaga undanfarið
saman við aðlögun að ESB. Þeir
sjá hana ekki sem nauðsynlega
kúvendingu eftir áratuga sívax-
andi ríkisforsjá, sem saug til sín
vinnuafl, sem síminnkandi og að-
krepptur einkageirinn réði ekki
lengur við að hafa í vinnu.
I kosningunum fyrir ári, þegar
ískaldur raunveruleikinn var kom-
inn í Ijós, sannfærðu jafnaðar-
menn kjósendur um að sem bygg-
ingarmeistarar velferðarkerfisins
væru þeir best til þess fallnir að
leiða nýskipan velferðarkerfisins.
A það féllust kjósendur, vísast í
von um að flokkurinn gæti aftur
orðið „flokkur hinna góðu gjafa“,
eins og hann kallaði sig á velmekt-
ardögum sínum. En velmektar-
dagarnir eru liðnir og niðurskurð-
urinn blasti við. Og ESB er nefnt
í öðru hveiju orði.
í Evrópuþingskosningunum var
kjósendum mikið niðri fyrir. Ann-
ars vegar með að kjósa ekki og
sýna þar með áhugaleysi og van-
trú á Evrópuverkefni stjórnmála-
mannanna. Hins vegar með að
kjósa og þá ekki jafnaðarmenn,
sem fengú verstu útkomu síðan
1911, heldur Vinstriflokkinn og
Umhverfisflokkinn, sem saman-
lagt fengu þriðjung atkvæða og
eru gegn ESB.
Kvenfólk og ungt fólk
markhópur jafnaðarmanna
Þó bæði kosningaþátttakan og
útreið jafnaðarmanna væri mun
hrikalegri en skoðanakannanir
sáu fyrir, sá Ingvar Carlsso’n hvert
stefndi. Afsögn sína tilkynnti
hann 18. ágúst, enda alltaf legið
í loftinu að hann ætlaði ekki að
kemba hærumar í embætti. Metn-
aður hans var aldrei að vera
flokksformaður og forsætisráð-
herra, þó morðið á Olof Palme
skolaði honum í stólinn.
Undanfarin fimm ár hefur
Carlsson dyggilega haldið Monu
Kosningauppgjör o g formannskjör
sænskra jafnaðarmanna
MONA Sahlin er holdtekja
markaðshyggju- og Evrópu-
sinna sænska Jafnaðar-
mannaflokksins.
Reuter
INGVAR Carlsson og Margareta Winberg landúnaðarráðherra
voru á öndverðum meiði um aðild að Evrópusambandinu fyrir
þjóðaratkvæðið í fyrra.
Sahlin eða Winberg
í stól Carlssons?
Leiðtogavandi sænskra jafnaðarmanna
virtist leystur, þegar Mona Sahlin til-
kynnti að hún gæfí kost á sér í sæti flokks-
formanns og forsætisráðherra við form-
annskjörið í mars. Sigrún Davíðsdóttir
segir verkalýðshreyfínguna syngja
óánægjusöng og það geri kjósendur einnig
sem eigi erfitt með að sætta sig við niður-
skurð eftir að vera aldir upp undir verndar-
væng „flokks hinna góðu gjafa.“
Sahlin á lofti og gefið henni gott
tækifæri til að stunda nám í
flokksformennsku og forsætisráð-
herrastarfinu, nú síðast sem vara-
forsætisráðherra. Þau voru tví-
eykið í fararbroddi þingkosninga-
baráttunnar og í þjóðaratkvæða-
greiðslunni skömmu síðar.
Frá því Ingvar Carlsson til-
kynnti afsögn sína hafa því augu
allra hvílt á Monu Sahlin, um Ieið
og skyggnst var eftir fleiri mögu-
legum frambjóðendum. Hinn at-
kvæðamikli Göran Persson fjár-
málaráðherra aftók strax fram-
boð, Margareta Winberg neitaði
hikandi. Jan Nygren samræming-
arráðherra virtist líklegt efni, þar
til hann tilkynnti í vikunni að
kvenfólkið og unga fólkið virtist
styðja Sahlin. Þar væri vaxtar-
broddur flokksins og því styddi
hann ejnnig Sahlin. Samdægurs
tilkynnti Sahlin að hún tæki
áskorun.
En kosningaútreið Jafnaðar-
mannaflokksins gaf tilefni til
sjálfskönnunar innan fiokksins.
Spurningin er hvort Mona Sahlin
er ekki einmitt holdtekja þeirrar
stefnu, sem kjósendur höfðu lýst
frati og vanþóknun á í kosningun-
um á sunnudaginn. Ýmsir
frammámenn innan Hreyfingar-
innar lýstu vantrú á Sahlin og trú
á Winberg. Tólf þingmenn skor-
uðu á Winberg að bjóða sig fram.
Eiga hinir minni máttar að
vera í aðal- eða
aukasetningu?
Margareta Winberg er barna-
kennari, fædd 1947 og hefur
starfað innan flokksins og Hreyf-
ingarinnar, mest að landbúnaðar-
og jafnréttismálum. Hún var eld-
heitur ESB-andstæðingur í klofn-
um flokknum og ein þriggja and-
stæðinga, sem Carlsson skipaði
ráðherra. Sem landbúnaðarráð-
herra hefur hún getið sér gott
orð, ekki síst fyrir að sinna vel
ESB-tengslunum.
Stuðningur við Winberg er ekki
aðeins bundinn ESB-afstöðunni,
heldur nýtur hún góðs af kraum-
andi óánægju innan flokksins,
ekki síst Hreyfingarinnar, með
niðurskurð og hægristefnu, þar
sem lögmál markaðarins eru
nefnd í aðalsetningu, en þarfir
þeirra sem minna mega sín, eru
orðnar að aukasetningu. Sam-
vinna minnihlutastjórnar Carls-
sons undanfarið við Miðflokkinn,
sem ýmist starfar með hægri-
flokkunum eða jafnaðarmönnum,
hefur einnig vakið tortryggni um
hægrisveiflu, sem birtist í lækkun
atvinnuleysisbóta og annarra fé-
lagslegra greiðslna. Flokksmenn
horfa til Winberg sem fulltrúa
gallharðrar og ómengaðrar jafn-
aðarstefnu. Samkvæmt skoðana-
könnunum eiga þær Sahlin og
Winberg nokkurn veginn jafn
miklu fylgi 'að fagna meðal landa
sinna.
Winberg hefur hikað við að til-
kynna framboð. Spurningin er
hvort hún ætli ekki að nota stuðn-
ingin við sig til að styrkja vinstri-
stefnu flokksins. Hún hefur sagt
að úrsögn úr ESB sé ekki á dag-
skrá, en hefur hug á að knýja
fram þjóðaratkvæðagreiðslu um
niðurstöðu ríkjaráðstefnu ESB
1996 og um aðild að evrópska
myntsambandinu. Og þeir sem
þekkja hana velkjast ekki í vafa
um að hún hyggist einnig nota
stuðninginn til að styrkja eigin
aðstöðu innan flokksins, þar sem
hún hefur verið utan kjarnahóps-
ins í kringum Sahlin og Persson
og aðra markaðssinnaða jafnaðar-
menn.
Þó stuðningurinn við hana virð-
ist vella upp meðal hinna óánægðu
er vafasamt að hann muni duga
henni til að bjóða flokksforystunni
byrginn. Ef hún færi fram og
tápaði yrðu áhrif hennar lítil og
framaferill hennar tæki stefnuna
niður á við. Hún virðist því fyrst
og fremst spila djarft til að örva
andstöðuna við stefnu flokksfor-
ystunnar og þvinga hana þar með
til að hlusta á óánægjuraddirnar.
Kjósendur nútímans eru rás-
andi læmingjar, ekki staðfastir
flokksdátar. Sem stendur er best
boðið á vinstrivængnum. Og þó
sumir segi þau boð ábyrgðarlaust
lýðsskrum hljóma þau vel í eyrum
Svía, sem eiga erfitt með að sætta
sig við að dagar hins gjafmilda
jafnaðarmannaríkisvalds skuli
vera á enda. Þetta er raunveru-
leikinn, sem nýi fiokksformaður-
inn þarf að takast á við, hvort sem
hann heitir Mona, Magga eða eitt-
hvað allt annað.
24 létu lífið
í Alaska
Fyrsta
AWACS-
vélin sem
ferst
Anchorage, Alaska. Reuter.
RANNSÓKNARMENN könnuðu í
gær brak úr AWACS-ratsjárflug-
vél bandaríska flughersins sem
hrapaði alelda skömmu eftir flug-
tak frá Elmendorf-flugstöðinni í
grennd við Anchorage í Alaska á
föstudag. 24 voru um borð og fór-
ust allir. Þetta er í fyrsta sinn sem
slík vél hrapar frá því að byijað
var að nota,þær árið 1977.
Vélar af þessari gerð eru búnar
afar fullkomnum hátæknibúnaði,
geta fylgst með allri flugumferð á
stóru svæði og eru eitt mikilvæg-
asta tækið í vörnum Bandaríkj-
anna. Þær eru af gerðinni Boeing
707, fjögurra hreyfla og auðþekkt-
ar á ratsjánni sem er ofan á búkn-
um.
Veður var gott og er ekki talið
geta hafa valdið slysinu. Að sögn
sjónarvottar kviknaði í einum
hreyfli vélarinnar en talsmaður
flugstöðvarinnar sagði of snemmt
að slá nokkru föstu um orsök
slyssins. Svarti kassinn svonefndi,
þar sem er að finna segulbands-
upptökur af öllum tjáskiptum
áhafnarinnar í fluginu, hefði ekki
enn fundist.
56 tonn af eldsneyti
Vélin hrapaði í um þriggja kíló-
metra fjarlægð frá flugvellinum á
skógi vöxnu svæði. Um 56 tonn
af eldsneyti voru í geymum henn-
ar og varð gífurleg sprenging á
staðnum, þykkir reykjarbólstrar
stigu upp og sáust í allt að 50 km
fjarlægð. Er sagt að reykurinn
hafi minnt á gorkúluský eftir
kjarnorkusprengju.
Björgunarmenn áttu í miklum
erfiðleikum með að komast á stað-
inn vegna staðhátta og urðu að
bijóta sér leið með jarðýtu. Þeir
fundu 22 lík, var talið fullvíst að
þeir tveir sem ekki höfðu fundist
væru einnig látnir. Tveir úr áhöfn-
inni voru Kanadamenn, hinir
bandarískir.
------♦ ♦ ♦-----
Glaumur
og gleði
í Shizu
Peking. Reuter.
OPINBERIR embættismenn í
Kína eru svo gjarnir á að lifa í
glaumi og gleði á kostnað almenn-
ings, að í einni fátækustu sýslu
landsins, þar sem ekki er að finna
eitt einasta iðnfyrirtæki, eru 10
danshús fyrir hina fótfimu skrif-
finna. Kom þetta fram í Dagblaði
verkamanna í gær.
Shizu-sýsla í Sichuan-héraði er
ein sú snauðasta í Kína og íbúarn-
ir eiga í miklum erfiðleikum að
brauðfæða sig af frumstæðum
landbúnaði. Þar er enginn atvinnu-
rekstur, ef undan eru skilin dans-
húsin eða karaoke-staðirnir, sem
embættismannaskarinn heldur
uppi. .
Blaðið nefndi ýmis fleiri dæmi
um spillingu í Sichuan, sagði með-
al annars frá háttsettum emb-
ættismanni, sem farið hefði með
milljónir króna af opinberu fé i
hjákonu sína.
Jiang Zemin, formaður kín-
verska kommúnistaflokksins, hef-
ur kallað spillinguna veiru, sem
drepið geti flokkinn, og hefur fyr-
irskipað herferð á hendur þeim,
sem misnota völdin.