Morgunblaðið - 24.09.1995, Page 12
12 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Óhugnanlegt morðmál í Kanada
PAUL Bemardo var nýlega
fundinn sekur um morð á
tveimur unglingsstúlkum,
sem hann hafði áður nauðg-
að og haldið föngnum á
heimili sínu í St. Catherines í Ont-
ario. Hann er einnig sekur um
manndráp á yngri systur konu sinn-
ar. Að auki er hann sekur um hátt
í þrjátíu nauðganir í St. Catherines
og Searborough. Réttarhöldin yfir
Paul Bernardo hafa vakið mikla
Óhugnanlegt morðmál í Kanada hefar
vakið upp miklar umræður um réttmæti þess
að gert sé samkomulag um mildarí refsingu
við ákærða í þeirri von að hið sanna komi í
ljós. Salvör Nordal segir frá þessu máli og
efasemdunum sem kviknað hafa í Kanada.
MORÐINGJARNIR virtust viðfelldin, venjuleg hjón.
athygli og óhug hér í Kanada. Eitt
aðalvitnið gegn honum var fyrrum
kona hans, Karla Homolka, en hún
tók þátt í nauðgununum með hon-
um. Sterkustu sönnunargögnin í
málinu voru hins vegar myndbönd
sem Bernardo hafði tekið af nauðg-
unum og misþyrmingum á fórn-
arlömbunum.
Þrátt fyrir að Paul Bernardo hafi
verið fundinn sekur um morð er
íjölda spurninga ósvarað. Hver var
hlutur Karla Homolka í morðunum?
Hvers vegna fann lögreglan ekki
myndböndin, sem áttu eftir að verða
aðalsönnunargögnin í málinu? Var
samningurinn sem ákæruvaldið
gerði við Karla Homolka mistök?
Hvers vegna rannsakaði lögreglan
ekki vísbendingar sem hefðu leitt
til handtöku Bernardos miklu fyrr?
Þetta eru aðeins nokkrar spurningar
sem brenna á kanadísku þjóðinni í
tengslum við þetta mál.
Mál aldarinnar í Kanada
Réttarhöldin yfir Paul Bernardo
hafa staðið yfir í sumar og hefur
þeim oft verið líkt við mál O.J. Simp-
sons, sem mál aldarinnar í Kanada.
En meðferð þessara mála hefur um
flest verið frábrugðin. Ólikt O.J.-
málinu, sem virðist engan endi ætla
að taka, stóðu réttarhöldin i Tor-
;onto yfir í um Ijóra mánuði. Þá
:hefur frásögn fjölmiðla af þessum
tveimur málum verið gjörólík. í
Kanada er hvorki leyft að sjónvarpa
frá réttarhöldum né taka ljósmynd-
ir. Þá fengu fjölmiðlar ekki aðgang
að gögn>im, sem ekki voru lögð fyr-
ir réttinn, fyrr en dómur hafði verið
upp kveðinn. Flestir eru sammála
um að umfjöllun kanadískra fjöl-
miðla um málið hafi verið smekkleg.
Mál Bernardos hefur vakið at-
hygli fyrir margra hluta sakir, eink-
um aðild konu hans. Karla Homolka
tók oft á tíðum þátt í mannránum
og nauðgunum eins og myndböndin
sýna glöggt. Það er afar fátítt að
kynferðisafbrotamenn og fjölda-
morðingjar vinni með öðrum, síst
af öllum konum. Þetta er því eina
málið sinnar tegundar. Fjöldi sál-
fræðinga og sérfræðinga í afbrota-
fræði, sérstaklega þeirri er snýr að
fjöldamorðum, hafa fylgst grannt
með réttarhöldunum. Hvernig gat
kona tekið þátt í slíku kynferðislegu
ofbeldi? Á Homolka jafnmikinn þátt
að málinu og Bemardo, eða var hún
enn eitt fórnarlamba hans?
Fimmtán ára systur
Homolka nauðgað
Paul Bernardo, sem nú er 32
ára, og Karla Homolka, nú 25 ára,
kynntust í Scarborough í Ontario
1987. Samkvæmt framburði Hom-
olka virðist samband þeirra strax
hafa orðið náið. Fyrstu vikurnar
heillaði Bernardo hana með dýrum
gjöfum og kvöldverðum á góðum
veitingahúsum. En smám saman
kom hans rétta innræti í ljós. Hann
hafði áhuga á afbrigðilegu kynlífi
og vildi hafa mök við aðrar konur
með Homolka - og hún lét undan
óskum hans. Bernardo lét snemma
í ljós áhuga á að hafa mök við
yngri systur Homolka, Tammy.
Eftir þráfaldar óskir lét Homolka
loks undan.
24. desember 1990 dældu þau
hjúin lyfjum í yngri systurina. Þegar
Tammy var orðin meðvitundarlaus
nauðguðu þau henni bæði og tók
Bernardo atburðinn upp á mynd-
band. Tammy, sem var 15 ára þeg-
ar hér var komið sögu, lést þegar
hún kafnaði í eigin ælu þegar hún
var að ranka við sér. Krufning á
Tammy leiddi hins vegar ekki neitt
óeðlilegt í ljós. Urskurðurinn var
slys.
Unglingsstúlkum haldið
föngnum á heimilinu
Eftir dauða Tammy, færðist
Bernardo allur í aukana. í júni 1991
sat Bernardo fyrir unglingsstúlk-
unni Leslie Mahaffy. Hann rændi
henni og fór með á heimili þeirra
hjóna. Þar hélt hann henni í um
sólarhring þar sem henni var nauðg-
að margsinnis af Bernardo og Hom-
olka. Mahaffy lést á heimilinu. Hom-
olka heldur því fram að Bernardo
hafi drepið hana meðan hún var í
vinnunni. Þar sem Bernardo bútaði
líkið í sundur áður en hann losaði
sig við það var ekki hægt að úr-
skurða um dánarorsök. Lík Leslie
Mahaffy fannst tveimur vikum síð-
ar, sama dag og Bernardo og Hom-
olka gengu í heilagt hjónaband með
pomp og prakt.
í ágúst sama ár réðst Bernardo
að stúlku sem gengur undir nafninu
Jane Doe, hún komst hins vegar
undan við illan leik, og bar vitni í
málinu. En ennþá var eitt fórnar-
lamb eftir. Bemardo og Homolka
rændu Kristen French, 15 ára, þeg-
ar hún var á leið heim úr skóla rétt
fyrir páska árið 1992. Henni var
haldið sem kynlífsfanga á heimili
þeirra í næstum þijá sólarhringa.
Henni var margsinnis nauðgað og
misþyrmt á þeim tíma.
Þar sem Homolka og Bernardo
ætluðu að njóta páskalambsins með
foreldrum Homolka á páskadag
þurftu þau að ákveða hvað gera
ætti við French. Þau gátu ekki hald-
ið henni lengur á heimilinu. Á páska-
dagsmorgun var Kristen French
myrt. Homolka segir að Bernardo
hafi kyrkt hana með rafmagnsvír i
svefnherberginu en Bernardo segir
að Homolka hafi myrt hana þegar
hann skrapp út eftir skyndibita.
Líkið skildu þau eftir á heimilinu á
meðan þau nutu páskanna með fjöl-
skyldu Homolka. Stuttu síðar fannst
lík Kristen French þar sem það hafði
verið skilið eftir við vegkant.
Homolka gerir samning
við ákæruvaldið
Þegar hér var komið sögu taldi
Homolka að hún yrði næsta fórnar-
lamb eiginmanns síns. Og 5. janúar
1993 flutti hún frá honum eftir að
hann hafði misþyrmt henni illilega.
Homolka hafði samband við lögregl-
una 9. febrúar og stuttu seinna var
Bernardo handtekinn. Auk viðamik-
illar lögreglurannsóknar tóku við
nokkurra mánaða samningaviðræð-
ur við Homolka. Þeim lauk á þann
veg að ákæruvaldið samdi við hana
um tólf ára fangelsisvist fyrir mann-
dráp gegn því að hún bæri vitni
gegn fyrrverandi eiginmanni sinum.
Á meðan á rannsókn málsins stóð
gerði lögreglan mjög nákvæma leit
í húsi þeirra hjóna. I sjötíu daga var
nánast öllu snúið við, fjalir losaðar
frá gólfum og veggjum, og sönnun-
argagna aflað. Þrátt fyrir þetta fann
lögreglan ekki myndböndin sem
Bernardo hafði tekið af misþyrm-
ingum á Tammy Homolka, Kristen
French og Leslie Mahaffy. Þetta
þykir með ólíkindum. Og í skjóli
þessa gerði Homolka fyrrnefndan
samning. Það er deginum ljósara
að hefðu myndböndin fundist hefði
þessi samningur aldrei verið gerður
og líklega hefði Homolka verið
ákærð með Bernardo. Mörgum þyk-
ir því Homolka sleppa vel.
Myndbönd af misþyrmingnm
Myndböndin hafði Bernardo falið
í ljósakrónu í baðherberginu. Bern-
ardo lét lögmann sinn, Ken Murray,
vita af myndböndunum og fjarlægði
hann þau úr húsinu eftir að lög-
reglurannsókninni lauk. Lögmaður-
inn afhenti þau hins vegar ekki fyrr
en rúmu ári seinna sem sönnunar-
gögn, sama dag og hann óskaði
eftir lausn frá málinu. Hann sætir
nú rannsókn vegna þessa.
Aðeins örfáir hafa séð myndbönd-
in en þau sýna hrottalegar misþyrm-
ingar á fórnarlömbum Bernardos.
Stúlkunum er nauðgað og misþyrmt
margsinnis. Þar grátbiðja þær um
að lífi þeirra sé þyrmt. Aðstandend-
ur fórnarlambanna
óskuðu eftir að mynd-
böndin yrðu ekki gerð
opinber og sýnd við
réttarhöldin af tillits-
semi við hinar látnu og
aðstandendur þeirra.
Dómarinn féllst á rök
þeirra að hluta, einung-
is kviðómendur sáu
myndböndin en aðrir í
réttarsalnum gátu
hlustað á það sem fram
fór. í fullum réttarsal
sátu, meðal annarra,
foreldrar stúlknanna
sem heyrðu bænaróp
dætra sinna rétt áður
en þær voru myrtar.
En það er fleira við
rannsóknimar sem vekur athygli.
Þegar lögreglan rannsakaði fjölda
nauðgana sem áttu sér stað í Scar-
borough á árunum 1987 - 1990 var
Bernardo tekinn til yfirheyrslu og
voru tekin af honum DNA-sýni.
Sýnin voru tekin um 1990. Þau
voru hins vegar ekki rannsökuð fyrr
en rúmum tveimur árum síðar -
árið 1993. Að auki fékk lögreglan
vísbendingar frá nokkrum konum
sem höfðu verið lagðar í einelti um
það leyti sem French var myrt. Þær
gáfu lögreglunni bílnúmer sem
reyndist vera af bíl Bernardos, en
þessum vísbendingum virðist ekki
hafa verið fylgt eftir. Þetta eru sár-
ar staðreyndir nú þegar nokkrar
unglingsstúlkur liggja í valnum.
Hefði verið hægt að stoppa Bern-
ardo miklu fyrr?
Þáttur Homolka
í vitnaleiðslunni kom fram að
Homolka var beitt líkamlegu og
andlegu ofbeldi af eiginmanni sín-
um. Hún hélt því fram að hún hefði
verið kúguð til að taka þátt i mis-
þyrmingum og nauðgunum. Hom-
oíka segir að eftir dauða Tammy
hafi Bernardo hótað að sýna foreldr-
um hennar böndin, ef hún gerði
ekki það sem hann vildi. Með þessu
reyndi Homolka að fá samúð réttar-
ins og skýra aðild hennar að mál-
inu. Það var líka í þágu ákæruvalds-
ins að sýna að Homolka hefði í raun
verið fórnarlamb Bernardos. Sú
skýring réttlætir þann samning sem
gerður var við hana. En mörgum
finnst að í þessu máli séu glæpirnir
of stórir. Homolka hefði margsinnis
getað stoppað Bernardo.
En hvernig gat Bernardo náð
svona miklum tökum á Homolka?
Þessari spurningu er ekki auðvelt
að svara. Samkvæmt rannsóknum
sem gerðar hafa verið kemur í ljós
að konur, sem eru með kynferðisleg-
um sadistum, eru barnalegar mið-
stéttarkonur. Homolka tilheyrir
þeim hópi. Henni hefur líka verið
lýst á þann veg að athafnir hennar
stjórnist meira af þeim sem hún
hittir og umgengst-en eigin persónu-
leika. Með öðrum orðum, hún er
mjög áhrifagjörn.
Bernardo notaði Homolka til að
hjálpa sér við að tæla til sín ungar
stúlkur. Þegar þau stöðvuðu Kristen
French fór Homolka út úr bílnum
og spurði hana til vegar. Þessi að-
ferð dugði vel. Hver hefði trúað að
ungt ástfangið par væri að leita að
fórnarlambi til að nauðga?
Fær Homolka reynslulausn
eftir tvö ár?
Máli Paul Bernardos er ekki lok-
ið. Nú um stundir hugleiða hann
og lögfræðingur hans hvort dómn-
um um morð skuli áfrýjað. Ef hann
áfrýjar ekki ber honum að taka út
dóm um lífstíðarfangelsi sem er um
25 ár hér í Kanada. Að auki á hann
yfir höfði sér refsingar fyrir meðal
annars hátt í 30 nauðganir og
manndráp á Tammy Homolka. Það
er því ólíklegt að hann losni nokkru
sinni úr fangelsi.
Homolka hins vegar fékk 12 ára
fangelsi fyrir manndráp og á mögu-
leika á reynslulausn árið 1997.
Samningurinn við Homolka hefur
vakið upp mikla reiði almennings
hér í Kanada. Þessum samningi er
ekki hægt að breyta nema í ljós
komi að Homolka hafi sagt ósatt
um aðild sína að málinu, að öðrum
kosti stendur 12 ára fangelsisdóm-
ur. Þótt hún eigi möguleika á
reynslulausn er ekki þar með sagt
að hún verði veitt. Og reyndar
minnka líkumar dag frá degi. Fólki
finnst réttlætinu ekki fullnægt með
aðeins 12 ára fangavist, hvað þá
ef hún fær lausn mörgum árum
fyrr. Og meðal annars þess vegna
er líklegt að hún afpláni dóminn til
fulls.
Höfundur stundnr hnskolunáni í
Kanada.
FÓRNARLÖMBIN: Kristen French (t.v)
og Leslie Mahaffy.