Morgunblaðið - 26.09.1995, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
SLEPPrvhtéfi) f ,-*/.• FÐAþÚ
[££>A£(S..'^J L T WA& f
1| J
gii
X*r‘\
Grettir
/ JfiM PAV7£> b'YL
ig Jenni
ArMJ£UE> M\TT ET? KET/
HAMPAN VIPHORNIP/
Ljóska n
Smáfólk
Jæja, hvað
er 5x10
mikið?
Hvernig Hvað með Hverjum Hvað með Ertu að gera Ég vona að Lít ég út
ættiégað 6x20? er ekki 2x11? aðgamni þetta sé ekki fyrir að
vita það? sama um þínu? of erfitt fyr- missa
það? ir þig. móðinn?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Einkavæddur
eftirlitsiðnaður er
jafngildi gullnámu
Frá Sigurði Magnússyni:
Á SÍÐUSTU árum hafa fjárfesting-
ar í eftirlitsiðnaðinum þótt hvað
arðvænlegastar sem einkarekstur-
inn hefur upp á að bjóða, enda fjölg-
ar þeim fyrirtækjum sem sinna eft-
irliti. Er í því sambandi áhugavert
að kynna sér hvaða menn hafa ver-
ið valdir í nefndir til að semja laga-
frumvörp fyrir einkarekinn eftirlits-
iðnað!
Þrír milljarðar
Skoðunargjöld stefna í
3.000.000.000, þijú þúsund milljón-
ir, á næsta ári, verði haldið áfram
sem stefnir.Er hægt að sætta sig
við allar þessar gjaldtökur?
Ég segi nei; það er ekki hægt,
og sérstaklega þar sem eftirlitið er
í algjörum molum og nánast notað
sem skjól til innheimtu gjalda sem
sett eru á neytendur með ólögum.
Hvers virði er álit neytandans?
Um þessar mundir er nefnd, sem
Sveinn Þorgrímsson, deildarstjóri
hjá Iðnaðarráðuneytinu, stýrir og
sem hann valdi menn í,' að skila
ráðherra tillögum um lög fyrir ný-
skipan rafmagnsöryggismála.
Það er einmitt val Sveins á mönn-
um í nefndina, sem mér fínnst at-
hugunarvert, þetta eru trúlega
sómamenn, en sé tekið tillit til
stjómsýslulaganna þá teljast þessir
menn vera vanhæfir hver á sinn
hátt, og undarlegt er að enginn var
fenginn í nefndina frá raforkukaup-
endum.
Ef til vill er ástæða til að kæra
þessa nefndarskipun til Umboðs-
manns alþingis vegna vafa á hlut-
leysi nefndarmanna?
„Var Neytendasamtökunum boð-
ið að vera með við mótun nýrra
laga um eftirlitsiðnaðinn?" Laga,
sem eru til að opna og plokka fjár-
hirslur heimilanna.
Er formaður þeirra öllu sam-
þykkur sem var ungað út hjá iðnað-
arráðherra síðustu stjórnar, flokks-
bróður hans? Em neytendasamtök-
in pólitísk?
Er Endurmenntunarstofnun
HÍ notuð til áróðurs?
í fréttabréfi frá Endurmenntun-
arstofnun 9. sept. 1995 er auglýst
námskeið sem nefnt er „Nýskipan
rafmagnsöryggismála" og á að
kynna þar reglugerð nr. 543/1993.
Takið eftir að reglugerðin er frá
1993, - en um þessar mundir er
verið að semja frumvarp til laga
um það málefni sem námskeiðið á
að fjalia um. „Er ekki skynsemi í
að geyma tilsögn og umræður þar
til lög um þennan málaflokk hafa
verið samþykkt á Alþingi?"
Vonir!
Ég vona að ríkisstjórnin sjái til
þess að skoðunarstofuiðnaður verði
lagður niður í því umfangi sem
hann kominn er í. Mér finnst eðli-
legra að fé það sem tekið er fyrir
skoðunarþjónustu renni í ríkiskass-
ann og sé notað í þarfir samfélags-
ins og til þarfari og arðbærari
hluta.
Ef þarf að hafa öfluga miðstýr-
ingu á eftirlitsstarfssemi, á hún
„alls ekki að vera einkavædd“.
Samrit sent ráðherrum, Umboðs-
manni alþingis og ráðuneytum.
SIGURÐUR MAGNÚSSON,
Hofteigi 14, Reykjavík.
Líkan af fallöxi
Frá Birgi Bragasyni:
ÉG MÆTTI ásamt tugum þúsunda
á útifundinn á Ingólfstorgi 14. sept-
ember og hlýddi þar á margar
skörulega fluttar ræður og mót-
mæli vegna skattlausra fríðinda og
kauphækkun þingmanna, sem ekki
hafa neyðst til að fara í launalaust
verkfall né flýja úr landi vegna lé-
legra kjara.
Það hvarflaði að mér sú hugsun,
að áhrifaríkara hefði reynzt, ef ein-
hveijir handlagnir smiðir hefðu
mætt á Austurvelli með tilsniðið
efni og skrúfað saman líkan af fall-
öxi. Það hefði verið hægt að fram-
kvæma á tæpri mínútu og á Austur-
velli var engin löggæzla, vegna
þess að allir laganna verðir voru
staddir á Ingólfstorgi, ef svo færi
að allt færi úr böndunum af rétt-
látri reiði landsmanna. En ég hef
grun um, að þeir þingmenn sem
hefðu vogað sér að gjóa augum út
um glugga Alþingshússins og barið
augum „höggstökkinn" hefðu
eflaust minnzt Bastillu-dagsins 14.
júlí 1789 og því sem fylgdi í kjöl-
farið.
Þó að einhveijum hafi orðið það
á að væta sína brók af einskærum
ótta, skiptir það þá engu máli. Þeir
hafa efni á nýjum brókum, þökk
sé íslenzkum skattgreiðendum.
Svo hefði það verið áhrifaríkt,
ef síðasti ræðumaður hefði lokið
ræðu sinni með orðunum: „Að lok-
um vil ég beina þeim tilmælum til
áheyrenda, að þeir snúi sér til suð-
urs, í átt að Alþingishúsinu, og ulli
allir í takt, til að sína vanvirðu okk-
ar. Samtaka nú. Ulla! Ulla!!“
Ef eitthvað hefði beint athygli
heimspressunnar að okkur íslend-
ingum, þá hefði það verið það, að
þriðjungur gömlu víkingaþjóðar-
innar hefðu ullað á þjóðarleiðtog-
ana í háðungarskyni í stað þess
að notast við bombur, hryðjuverk
eða atgeira, — jafnvel kindabyss-
ur, eins og tíðkast meðal „sið-
menntaðra“ þjóða.
BIRGIR BRAGASON,
Laugavegi 81, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.