Morgunblaðið - 26.09.1995, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 26.09.1995, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 669 1100, SÍMBRÉF 669 1131, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Formannafundur ASI ræðir niðurstöðu Kjaradóms Morgunblaðið/RAX ASÍ óskar skýringa á ummælum ráðherra Banaslys á Reykhólum BANASLYS varð fyrir neðan Klauf, skammt frá Reykhólum, á sunnu- daginn þegar 84 ára gamall maður missti stjórn á fjórhjóli, sem hann var á, með þeim afleiðingum að hann kastaðist á klett og lést samstundis að því er talið er. Að sögn lög- reglunnar á Pat- reksfirði barst tilkynning um slysið kl. 16.05 á sunnudag og þegar lög- regla kom á vettvang ásamt lækni og hjúkrunarfræðingi var maðurinn látinn. Hann hét Jón Þórðarson og var bóndi í Árbæ í Reykhólahreppi. ----».♦■■»--- Lést eftir slys á Þingeyri SEXTÁN ára piltur sem slasaðist í umferðarslysi á Þingeyri aðfaranótt síðastliðins laugardags lést á Borg- arspítalanum síðdegis í gær. Fjögur ungmenni voru í pallbíl sem valt eftir árekstur við kyrr- stæðan bíl. Hin þrjú slösuðust ekki alvarlega, en tvö þeirra voru þó lögð inn á sjúkrahúsið á ísafirði en hafa verið útskrifuð af spítalanum. FULLTRÚAR Alþýðusambands íslands hitta Davíð Oddsson for- sætisráðherra að máli á miðviku- dagsmorgun til að ræða úrskurð Kjaradóms. Verkamannasamband íslands telur að forsendur hafi skapast til að segja upp kjara- samningum frá í vor. Málið var rætt á formannafundi ASÍ í gær. „Niðurstaða okkar af þessum umræðum var að óska eftir viðræðum við forsætisráð- herra og leita skýringa á ummæl- um þeirra ríkisstjórnarmanna sem telja þetta alveg eðlilegt miðað við þróunina undanfarna mánuði og misseri. Við teljum að þetta sé alls ekki eðlilegt en ef við erum að misskilja eitthvað þá hlýtur það að leiða til þess að okkar fólk fái sambærilegar launabreytingar og þarna hafa komið fram,“ sagði Benedikt. Innan launaþróunar og viðmiðunarreglna Davíð Oddsson segir að ekki séu forsendur til að breyta niðurstöðu Kjaradóms. Ný lög um dóminn hafi verið sett fyrir þremur árum þar sem kveðið var á um með hvaða hætti Kjaradómur skyldi dæma og að honum bæri að taka mið af launaþróun í þjóðfélaginu. „Það telur Kjaradómur sig hafa gert í þessu máli og rökstyður í sínum forsendum að hann hafi verið innan þeirrar launaþróunar og viðmiðunarreglna sem honum voru settar með lögum. Og um þau lög var sátt, bæði við aðila vinnumarkaðar að því er ég best veit og á Alþingi,“ sagði Davíð. Hugmyndafræðin þverbrotin Framkvæmdastjórn Verka-. mannasambands Islands telur að forsendur séu til þess að segja upp núgildandi kjarasamningum. Björn Grétar Sveinsson formaður Morgunblaðið/Þorkell FORYSTUMENN Alþýðusambandsins komu saman til fundar I Ölfusborgum í Hveragerði í gær og meðal umræðuefna voru launamál og úrskurður Kjaradóms. Fundur forsætis- ráðherra og for- ystu Alþýðusam- bandsins á morgun VMSÍ sagði að hugmyndafræði kjarasamninganna hefði um langt skeið verið að ná niður verðbólgu og vinna bug á kyrrstöðunni en búið væri að þverbijóta þessa hug- myndafræði. Björn Grétar sagðist ekki bera brigður á að Kjaradómur hefði úrskurðað í samræmi við lög, og væri að fara eftir ákveð- inni launaþróun hjá viðmiðunar- hópum. „Þannig að ég krefst þess og tel að það eigi ekki að vera mikil vandkvæði á því að dómurinn birti gögnin um hvar þessi hækkun hefur orðið,“ sagði Björn Grétar. Davíð Oddsson sagði alrangt að forsendur væru fyrir uppsögn kjarasamninga og það hlytu allir að sjá í hendi sér. Því hafi verið lofað að sjá til þess að verðlagsfor- sendur samninganna héldu og við það hefði verið staðið. Ákvörðun Kjaradóms væri að mati dómsins í samræmi við lög um að taka beri tillit til launaþró- unar en vandamálið væri að dóm- urinn tæki mið af þróun síðustu sex ára en menn bæru það í huga sér saman við ákvarðanir síðustu tveggja ára. ■ Ekki forsendur/4 Uppskerutíð ÞURFT hefur að hafa hraðar hendur við að taka upp hvítkál á Áslandi í Hrunamannahreppi enda fór vetur konungur að gera vart við sig um helgina. Hér láta þau Rasmus Stampe Hjörth, Þor- valdur Jónsson og Ása Ingimars- dóttir hendur standa fram úr ermum í gær. Félagsdómur sýknar ríkið af kröfum Félags íslenskra flugumferðarstjóra Flugumferðar- stjórar hafa ekki verkfallsrétt Nýtt apótek í Reykjavík TVEIR ungir lyfjafræðingar, Ingi Guðjónsson og Róbert Melax, hafa stofnað nýtt apótek, Lyfja hf., sem taka mun til starfa í nóvembermán- uði. Þá verða gengin í gildi laga- ákvæði sem heimila lyfjafræðingum að stofna lyfjabúðir að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Ný lyfjalög tóku gildi 1. júlí á sl. ári én gildistöku ákvæða varðandi lyfjaverð og opnun lyfjabúða var frestað til 1. nóvember á þessu ári. Fyrirkomulag hinnar nýju lyfja- búðar miðar að því að viðskiptavinir hafi greiðari aðgang að lyfjafræö- * ingi en áður hefur tíðkast, að sögn þeirra félaga. Þeir segjast jafnframt hafa ýmis- legt á prjónunum varðandi þjónustu. Mun meira verði af sjálfsafgreiðslu- vörum en áður hafi sést hér á landi, með líkum hætti og þekkist í Bret- landi og Bandaríkjunum. ■ Stofna/16 FÉLAGSDÓMUR sýknaði í gær fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins af kröfum Félags íslenskra flugum- ferðarstjóra. Dómurinn felur í sér að flugumferðarstjórar hafa ekki verkfallsrétt samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfs- manna. Karl Alvarsson, sem sæti á í samninganefnd Félags íslenskra flugumferðarstjóra, segir flugum- ferðarstjóra ósátta við niðurstöðuna og alveg ljóst að þeir muni grípa til aðgerða. Félag íslenskra flugumferðar- stjóra krafðist þess að flugumferð- arstjórar yrðu felldir niður af skrá um kjarasamninga opinberra starfsmanna þar sem segir að störf allra flugumferðarstjóra séu undan- þegin verkfallsheimild samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Stefnandi hélt því fram að skráin hefði ekki lagagildi gagnvart fé- lagsmönnum þar sem ekkert sam- ráð hefði verið haft við félagið um gerð hennar eins og lögboðið er. Þá hafi ekki verið sannað að allir flugumferðarstjórar uppfylli laga- grein um að þeir sinni „nauðsynleg- ustu öryggisgæslu“. Staðfesting á fyrri dómi Félagsdóms í niðurstöðu dóms Félagsdóms í máli fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins gegn Félagi íslenskra flug- umferðarstjóra árið 1987, þar sem fjallað var um verkfallsboðun flug- umferðarstjóra, sagði að störf flug- umferðarstjóra væru þess eðlis að þau féllu fullkomlega undir fyrr- greind lög og því væri flugumferð- arstjórum óheimilt að fara í verk- fall. I niðurstöðum dómsins segir að stefnda hafi borið að hafa samráð við stefnanda áður en skráin var gerð. Félagsdómur fellst hins vegar á það með stefnda að það eitt valdi ekki ógildi skrárinnar að ekki var haft samráð við stefnanda áður en hún var gerð. I niðurstöðum dómsins segir að í kjölfar dóms Félagsdóms 1987 hafi verið gerðar íjórar skrár og þær verið birtar. Samkvæmt þeim öllum hafi flugumferðarstjórar ekki verkfallsheimild. Félagsdómur hafí þegar dæmt að störf flugumferðar- stjóra sem starfa sem flugumferð- arstjórar séu undanþegin verkfalls- heimild og verði að telja að stefn- andi hafi sönnunarbyrði fyrir þvi að aðstæður hafí breyst verulega frá því að sá dómur var uppkveð- inn. Það hafi stefnandi ekki gert og beri því að sýkna fjármálaráð- herra af kröfum stefnanda. Máls- kostnaður var felldur niður. Samninganefndir ekki hist í einn mánuð Flugumferðarstjórar hafa haft lausa kjarasamninga frá því um áramót og fóru þeir í hægagangsað- gerðir í tvo daga í júlímánuði til að þrýsta á um viðræður. Karl seg- ir að samninganefndirnar hafi ekki hist í tæpan einn mánuð. „Það er alveg ljóst að það verður gripið til aðgerða,“ sagði Karl, en vildi ekki tilgreina nánar i hveiju þær yrðu fólgnar. Félagsfundur verður hjá flugumferðarstjórum nk. miðviku- dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.