Morgunblaðið - 26.09.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.09.1995, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERIIMU Samþykkt SF um að heimila óbeina eign útlendinga „Verið að staðfesta raunveruleikann“ ARNAR Sigurmundsson, formaður Samtaka fískvinnslustöðva, segir að með samþykkt aðalfundar SF um að heimiluð verði óbein eignar- aðild útlendinga að íslenzkum fyrir- tækjum í sjávarútvegi, sé verið að staðfesta ákveðinn raunveruleika. Þar sé einnig verið að ítreka svip- aða samþykkt síðasta aðalfundar, meðal annars til að flýta endur- skoðun laga, sem baNna óbeina eignaraðild útlendinga að íslenzk- um fyrirtækjum í sjávarútvegi. „Það má segja að þessi ályktun sé keimlík þeirri, sem samþykkt var á aðalfundinum í fyrra,“ segir Am- ar í samtali við Verið. „Það er ákveð- inn raunveruleiki í sjávarútveginum í dag, að mörg hinna stærri fyrir- tækja eru orðin almenningshlutafé- lög með mjög dreifðri eignaraðild. Útlendingar em þar aðilar í ein- hveijum tilfellum og við teljum ekki ástæðu til að amast við því. Knýja á um endurskoðun laganna Við erum að undirstrika þetta á ný nú til að knýja á um það að á vegum ráðneyta viðskipta og sjáv- arútvegs verði lokið endurskoðun á lögum, sem banna þessa óbeinu eignaraðild. Við sjáum hins vegar ekki ástæðu til að heimila beina eignaraðild útlendinga í íslenzkum sjávarútvegsfyrirtækjum. Því hefur verið haldið á lofti, að áhættu fé vanti inn í sjávarútveginn og við skuldum 106 milljarða króna og því veiti ekkert af nýju, erlendu fjármagni inn í atvinnugreinina. Hér er til mikið fjármagn og líf- eyrissjóðir munu sjálfsagt komáinn í fyrirtækin í vaxandi mæli. Slík fjárfesting verður bæði að teljast góður kostur og jafnframt ætti það að vera til hagsbóta fyrir lífeyris- sjóði víða um land, að styrkja upp- byggingu atvinnulífsins með því að fjárfesta í hlutafélögum í sjávarút- vegi. Engin einangrun Ég get ekki fallizt á þá skoðun að við séum að einagnra okkur með því að takmarka eignaraðild útlendinga í sjávarútvegi við óbeina eign. íslenzkur sjávarútvegur er í mikilli útrás í fjarlægum löndum, svo sem Namibíu, Chile, Mexíkó og víðar. Við erum því ekki að ein- angra okkur, heldur viljum við sitja sjálfir að því sem við höfum hér heima. Það er sæmileg sátt um að heimila óbeina eignariðld, en ekki breyta meiru,“ segir Arnar Sigur- mundsson. Ráðstefna um öryggis- mál sjómanna Á RÁÐSTEFNU um öryggismál slysaskráningu. Ragnhildur Hjalta- sjómanna sem haldin verður næst- dóttir, ráðuneytisstjóri í Samgöngu- komandi föstudag verður m.a. fjall- ráðuneytinu, mun setja ráðstefnuna að um öryggi smábáta, rannsókn kl. 9 á föstudagsmorgun að Borg- sjóslysa, nýliðafræðslu, vaktstöðu artún 6 og Halldór Blöndal, sam- um borð í skipum og forvarnir - gönguráðherra, flytja ávarp. Morgunblaðið/Ómar Össurarson Lax úr Smugunni ÞAÐ ER fleira en þorskur, sem um dálítið af Iaxi í trollið og er veiðist i Smugunni. Skipverjar á Birgir Þór Sverrisson hér með Vestmannaey VE fengu á dögun- einn 30 punda úr aflanum. HEIMABANKI SPARISJ Heimabanki sparisjóðanna veröur kynntur á sýningunni Tækni og tölvur - inn í nýja öld. Sýningin verður í Laugardalshöllinni, 28. september til l.október. Næði -*• orka 4 jafnvægi Hvernig eykur þú orku þína Lærir að vinna úr neikvæðum tiifinningum og nota jákvæða hugsun Helgarnámskeið á Snæfellsnesi •22. sept.-24. sept. • 29. sept.-1. okt. Gisting, fullt fæði og námskeið: 17.400 kr. Leiðbeinandi: Bryndís Júlíusdóttir, kinesiolog. FERÐAÞJÓNUSTA BÆNDA símar 562 3640, 562 3643, fax 562 3644. Námskeið sem borgar sig frá fyrsta degi: UmSIÓnTöL¥!JNETA Ef þú vilt minnka rekstrarkostnað við tölvunetið þitt er þetta námskeið fyrir þig. Námskeið fyrir þá sem vilja sjá um rekstur tölvuneta! 36 klst námskeið, kr. 44.900,- stgr. þegfa'þérh«*a- hk 95093 Dagskrá: • Windows kerfistjórnun og val á búnaði • Novell NetWare netstjórnun • Tengingar við Intemetið og önnur tölvukerfi Námskeið á þriðjudögum og laugardöguin Tölvu- og verkfræðiþjónustan Tölvuraðgjöf • námskeið • útgáfa Grensásvegi 16 • sími 568 8090 Raðgreiöslur Euro/VISA - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.