Morgunblaðið - 26.09.1995, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 26.09.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 39 þakkarskuld við hann. Er mér fyrir ! hönd félagsins ljúft að bera fram þakkir þess nú við leiðarlok, en ekki síður einlægt þakklæti okkar sem með honum störfuðum að málum þess fyrir gott samstarf. Sr. Jón Einarsson var traustur og mikilhæfur félagsmálamaður. Hann fylgdi málum fast eftir, en gætti þess ávallt að farið væri að réttum leikreglum og gerði kröfur 1 til þess að afgreiðsla mála væri I, formföst og skipuleg, en í fundar- | hléum og eftir fundarslit kom í ljós að hinn kröfuharði formfestumaður kunni vel list samræðunnar, hafði næmt auga fyrir skoplegum þáttum tilverunnár og átti auðvelt með að slá á hina léttari strengi. Þess nutu einnig í ríkum mæli þeir sem áttu því láni að fagna að sækja þau hjón, Hugrúnu og sr. Jón, heim. Þar sat gestrisni í öndvegi og þau hjón veittu ríkulega af gleði hjart- > ans hressingu líkama og sál. Heim- | ilið ber vitni um menntun og menn- ingu húsbænda og sterk tengsl þeirra við fornan arf og virðingu fyrir þeim þáttum hans sem gerðu íslendinga að sjálfstæðri þjóð. í því sem öllu öðru stóð Hugrún við hlið eiginmanns síns og sómdi sér ávallt og alls staðar jafnvel fyrir einlægni sína, látleysi og alúð. Með sr. Jóni Einarssyni er geng- inn einn þeirra manna er settu svip á umhverfi sitt og lögðu sterka | hönd á plóg á mörgum sviðum. Hans er því víða minnst. Merkið stendur þótt maðurinn falli og við trúum því að hugur hans og orka hafi verið leyst úr læðingi dauðans til nýrra verka á öðru sviði tilver- unnar. Við hjónin sendum Hugrúnu, börnum þeirra og fjölskyldum ein- j lægar samúðarkveðjur. Snorri Þorsteinsson. Séra Jón Einarsson prófastur, í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd, er lát- inn löngu fyrir aldur fram. Mér kom í huga vísukorn þegar ég frétti um andlát Jóns: Dáinn, horfinn, harmafregn, Halldór sést ei lengur. Það var huggun harmi gep hann var besti drengur. Stutt er síðan kynni okkar Jóns | hófust. Leiðir okkar lágu fyrst sam- an í fulltrúaráði Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. Fór strax vel á með okkur og höfðum við líkar áherslur í málefnum sveitarfélaga. Mér er í minni fulltrúaráðsfundur, sem haldinn var á Hótel Sögu. Þar var tekið fyrir álit sveitarstjórnar- nefndar um sameiningu sveitarfé- laga. Samþykkti fundurinn að fækka sveitarfélögum í 25-30. Að- eins greiddu tveir atkvæði á móti, annar þeirra var Jón. Mér er ekki grunlaust um að ýmsir hafi séð eftir að hafa veitt þessari tillögu samþykki sitt. Mér fannst í samræðum við Jón, að hann hefði metnað fyrir sitt sveitarfélag sem og aðrir dreifðar byggðir úti um landið. Vildi hann halda landinu sem mest í byggð og að einstaklingar og samtök þeirra hefðu sem mest sjálfstæði en þeim l' yrði ekki þjappað saman í stærri heildir. Var það trú hans að samein- ing sveitarfélaga, í andstöðu við vilja fólks, flýtti fyrir byggðaröskun og því að jaðarbyggðir færu í eyði. Fyrir tveimur árum fengum við Fellamenn Jón til að flytja hátíð- arræðu á 17. júní hátíðarhöldum. Flutti hann þar ágæta ræðu þar sem meðal annars komu fram viðhorf hans til samfélagsins. Mér hafa fundist prófastshjónin á Saurbæ | vera til sérstaks sóma fyrir sitt byggðarlag og dýnnæt eru kynni af slíku fólki. Eg og kona mín viljum færa að- standendum Jóns okkar innilegustu samúðarkveðjur. Þráinn Jónsson. I ----------- • Fleiri minningargreinar um Jón Eyjólf Einarsson bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga. GUNNAR MAGNÚSSON + Gunnar Magnússon fæddist í Vestmannaeyjum 4. apríl 1928. Hann lést á Landspítal- anum 5. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Oddakirkju 16. september. MIG langar til að minnast svila míns með nokkrum fátæklegum orðum. Það er erfítt að trúa því að þessi stóri og sterki maður sé allur á svo skömmum tíma, en hinn ill- vígi sjúkdómur spyr ekki um aldur né líkamsburði. Það má segja að hið ótímabæra kall hafí komið með þeim hraða og krafti sem einkenndi Gunnar svo mjög í öllum hans störf- um, því hægagangur var honum ekki að skapi. Mín kynni af Gunnari hófust fyr- ir alvöru árið 1976 þegar yngsta barnið mitt aðeins fímm ára fékk að dvelja sumarlangt á heimili Gunnars og Sillu eftir að ég hafði misst manninn minn og eftir það var drengurinn meira og minna í Ártúnum hjá föðursystur sinni og Gunnari fram að fermingu. Hún var ómetanleg sú hjálp sem heimili Gunnars veitti okkur, það er eitt af mörgu sem aldrei verður full- þakkað. Og nú þegar maðurinn með ljáinn hefur sigrað eins og hann gerir allt- af að lokum, veit ég að heimkoma þín verður góð meðal ættingja og vina og hvíldin góð frá hörðum þrautum. Við sendum hjartans þakkir fyrir alla hjálp og ómetanlega tryggð í gegnum árin. Megi algóður Guð styrkja þig og hugga í þinni djúpu sorg, elsku Silla mín. Jóhanna og Þrúðmar. t Útför HELGA EYJÓLFSSONAR húsasmiðameistara, er lést á hjúkrunarheimilinu Eir 17. sept- ember sl., verður gerð frá Hallgríms- kirkju í dag, þriöjudaginn 26. septem- ber, kl. 13.30. Hermann Helgason, Oddný Jónasdóttir, Sigurður Ragnar Helgason, Kirstfn Flygenring, Helga Helgadóttir, Kristinn Zimsen. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ ARADÓTTIR, Vatnsstíg 11, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 27. september kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent á líknarfélög. Jón Ágústsson, Ágúst Ágústsson, Þorlákur Ari Ágústsson, Gróa V. Eyjólfsdóttir, Guðjón R. Ágústsson, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Þurfður Jana Ágústsdóttir, Arnlaugur K. Samúelsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEFÁN JÓNSSON, Lækjarbergi 25, Hafnarfirði, áður Hverfisgötu 57, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 29. september kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á S.Í.B.S. Jónas Stefánsson, Ragnheiður Þorsteinsdóttir, Pjétur Stefánsson, María Árnadóttir, og barnabörn. t Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur hlýju og samúð vegna andláts móður okkar, GUÐMUNDU KR.S. JÚLÍUSDÓTTUR, Hvanneyrarbraut 50, Siglufirði. Hafdis Ólafsson, Júlfus Jónsson, JóhannJónsson, Jónfna Kr. Jónsdóttir. “I" ■ ■ Wj-a r Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð r og hlýhug við andlát og útför móður 'í * okkar, tengdamóður, ömmu og € . f; ; langömmu, JÓDÍSAR PÁLSDÓTTUR frá Sólmundarhöfða, Akranesi. lf Guð blessi ykkur öll. Nfna Ólafsdóttir, Steinþór B. Ingimarsson, Ebba Ólafsdóttir, Höskuldur Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, GUNNARS MAGNÚSSONAR bónda, Ártúnum, Rangárvöllum. Sérstakar þakkir til starfsfólks krabba- meinsdeildar Landspítalans fyrir umönnun og hlýju. Sigríður Sfmonardóttir og aðstandendur. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför, móður okkar, tengda- móður og ömmu, SIGRÍÐAR SVEINSDÓTTUR, elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður Hvassaleiti 56. Bergur Jónsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Guðjón Jónsson, Jóhanna Jónsdóttir, Dóra Jónsdóttir, Hreinn Ágústsson, Erna Jónsdóttir, Smári Jósafatsson og barnabörn. VINNINGASKRÁ BINGÓLOTTÓ Útdráttur þann: 23. sqitember, 1995 Bingóútdráttur: Ásinn 45 38 64 40 65 6 57 3 25 22 59 63 11 49 28 48 53 46 __________EFTIRTALIN MIÐANÚMER VINNA 1000 KR VÓRPÚTTEKT. 10013 10359 10819 11028 11331 11487 11815 12286 12521 12805 13441 14119 14788 10047 10550 10830 11149 11402 11534 11859 12363 12626 12876 13484 14547 14920 10158 10621 10878 11152 11413 11621 12084 12395 12686 13046 13624 14564 10241 10717 10881 11221 11435 11743 12278 12468 12707 13051 13916 14575 Bingóútdráttun Tvisturinn 28 74 23 22 8 51 19 64 66 57 53 59 21 39 72 50 44 70 14 ___________EFTIRTALIN MIÐANÚMER VINNA 1000 KR VÖRUÚTTEKT. 10099 10560 10882 10989 11246 11626 12462 12713 12801 13009 13380 13918 14851 10243 10626 10931 11060 11253 11892 12547 12784 12859 13159 13647 14091 14908 10288 10835 10953 11076 11395 12237 12562 12789 12870 13264 13652 14348 10461 10839 10983 11092 11596 12260 12601 12797 12945 13332 13912 14351 Bingóútdráttun Þristurinn 41 68 40 20 22 66 2 21 1 69 28 47 56 9 49 27 26 37 ___________EFTIRTALIN MIÐANÚMER VINNA 1000 KR. VðRUÚTTEKT. 10060 10363 10912 11115 11857 11937 12098 12670 12946 13400 13990 14252 14880 10075 10390 10926 11796 11894 11972 12273 12697 13069 13661 13992 14283 14905 10110 10633 10950 11800 11903 11978 12607 12821 13190 13794 14041 14414 10351 10723 11093 11807 11920 12068 12664 12912 13210 13908 14102 14659 Lukkunúmen Ásinn VINNNTNGAUPPHÆD 10000 KR. VÖRUÚTTEKT FRÁ HEIMILISTÆKJUM. 11921 13846 11511 Lukkunúmer: Tvirturinn VINNNINGAUPPHÆÐ 10000 KR. VÖRUÚTTEKT FRÁ J. JONES & VERO MOPA. 13474 10659 14140 Lukkunúmer: Þristurinn VINNNINGAUPPHÆÐ 10000 KR. VÖRUÚTTEKT FRÁ NÓATÚN. 11742 11323 11311 Lukkuhjólið Röð: 0031 Nr: 10418 Bflahjólið Röð: 0032 Nr: 12715 Vinningar greiddir út frá og með þriðjudegi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.